Dagur - 29.08.1962, Qupperneq 44
IPROTTIR ,
vetur og sumar
í LDREI áður mun þátttaka almennings í íþrótta-
æfingum hafa verið svo mikil sem nú er og það,
sem mestu veldur þar um, er:
Skyldunám í íþróttum við skólana.
Betri skilyrði til íþróttaiðkana en áður var.
Fleiri og lærðari íþróttakennarar.
Fullkomnara skipulag á félagsstarfsemi íþrótta-
manna.
Hátt á annað þúsund manns iðka nú íþróttir á
Akureyri einhvern hluta ársins. Meðan skólarnir
starfa eru æfingatímar í fimleikasölunum frá kl. 8
til 22 fimm daga vikunnar, en tveim til þrem tímum
skemur á laugardögum.
íþróttabandalag Akureyrar var stofnað 20. des.
1944. Hlutverk þess er að skipuleggja hina frjálsu
íþróttastarfsemi á Akureyri og hafa yfirumsjón með
henni, ennfremur að vera milliliður íþróttafélag-
anna annars vegar og ríkis og bæjar hins vegar varð-
andi fjárstuðning og aðra fyrirgreiðslu. Ársþing
bandalagsins kýs formann þess, gerir fjárhagsáætl-
un, um íþróttamót, ferðir og heimsóknir og gerir
aðrar þær ályktanir, sem íþróttamálin varða. —
íþróttafélögin eiga sinn manninn hvert í stjórn
bandalagsins. Þau eru nú 7 og félagatala alls 1513.
Einnig eru starfandi sérráð innan bandalagsins í 6
íþróttagreinum og tilnefna þau félög, sem iðka við-
komandi íþróttagrein, fulltrúa í sérráðið. Hlutverk
sérráða er að vinna að eflingu sinnar íþróttagreinar,
sjá um kennslu í henni að nokkru leyti og sameina
félögin til keppni við önnur íþróttahéruð og á lands-
mótum.
Reksturskostnaður við íþróttastarfsemina hefur
farið sívaxandi undanfarin ár. — Árið 1961 varð
kennslukostnaður hjá félögunum og sérráðum sam-
kvæmt kennsluskýrslum, samtals kr. 217.605.00. —
Kennslustyrkur frá í. S. í. það ár var aðeins kr.
13.667.44.
Samandregið yfirlit um tekjur og gjöld íþrótta-
félaganna 1961:
Tekjur af árgjöldum............. kr. 23.760.00
Aðrar tekjur ................... — 249.745.88
Samtals kr. 273.505.88
42 D A G U R