Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1994, Blaðsíða 6
6
FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1994
Neytendur
Matgæðingar DV bera saman marineraða síld frá fimm framleiðendum:
Síldin frá Ora þótti best
4=gott, 5 = mjög gott) og gera athuga-
semdir varðandi bragð, útbt og áferð.
- fékk 11 stig af 15 mögulegum, Islenskir sjávarréttir í öðru sæti
Marineraða síldin frá Ora hlaut
hæstu einkunn matgæðinga DV þeg-
ar hún var borin saman við mariner-
aða sOd frá íjórum öðrum framleiö-
endum, íslenskum sjávarréttum,
Sæsiifri, Glyngore og íslenskum
matvælum.
Þau Úlfar Eysteinsson, matreiðslu-
meistari á Þremur frökkum, Dröfn
Farestveit hússtjómarkennari og
Sigmar B. Hauksson, áhugamaður
um matargerðarlist, voru beðin að
gefa síldinni einkunn frá 1-5 (1 =
mjög vont, 2 = vont, 3 = sæmilegt,
„Ekta síldarbragð"
Ora-síldin fékk 11 stig af 15 mögu-
legum en næst á eftir, með 10 stig,
kom síldin frá íslenskum sjávarrétt-
um. Um Ora-síldina sagði Sigmar:
„Hressandi bragð, ekta síldarbragð
og hæfilega sæt.“ Úlfari fannst hún
hafa gott útht og vera „safarík og
bragðgóð" og Dröfn fannst hún mjög
góð.
Síldin frá íslenskum sjávarréttum
Hvaða síld bragðast best?
■k^^^Ú = ÚlfarD = DrOTT^=Sigmar
Ora Sæsilfur
... *L| J -J
4j
w 3 »» ; 21 “ * l[ i
Ú D S Ú D S Ú D S
Glyngúre
5 | 5
4 1 4
3 o 3 j
JL •i 2 ■
J- ™ 'PSf j rk m w 1
Ú D S Ú D S
„Vond lykt, ekki boðleg," var athugasemd Drafnar um marineruðu síldina
frá einum framleiðandanum. Sildin frá Ora fékk hæsta samanlagða einkunn
matgæðinganna, eða 11 stig af 15 mögulegum. DV-mynd ÞÖK
var eina síldin sem fékk fullt hús hjá
einhverjum matgæðinganna en Úlfar
gaf henni 5 og sagði bragðið vera
fyrir sinn sinekk, „fallegt flak, litur
góður og safarík". Dröfn gaf henni 3
án athugasemda en Sigmar gaf henni
einungis 2 og sagði „mjög htiö spenn-
andi“.
Síldin frá Sæsilfri lenti í þriðja
sæti með 8 stig af 15 mögulegum.
Dröfn gaf henni hæstu einkunnina
af þremenningunum, eða 4, með
umsögninni „þokkaleg“. Úlfar gaf
henni 3 og fannst bitinn fahegur „en
örlítið of mikill neguh“ en Sigmar
gaf henni einungis 1 og sagði: „Fyrst
sýndist mér þetta vera falleg síld en
eftirbragðiö var mjög vont og síldin
molnaði uppi í manni.“
REY
RESTAURANT
* *
B A R
NVARSFAGNAflUR l.JANUAR 1995
FORDRYKKUR:
KAMPAVÍN
MATSEÐILL:
GRÆNMETIS KJÖTSEYÐI „JARDINIÉRE"
FYLLT KÚRBÍTSBLÓM MEÐ HUMARSUFFLÉ
KAMPAVÍNSKRAP
NAUTASTEIK „DU PAPE"
REYKJAVÍKUR FANTASÍA
KAFFI OG KONFEKT
VANIR MENN OG ÞURIÐUR SIGURÐARDOTTIR
LEIKA FYRIR DANSI.
VTSRfÐ 5.200 pr. mann
HÚSIÐ OPNAÐ KL. 19.00 - HÁTÍÐARKLÆÐNAÐUR
VEISLUSTJÓRAR: EYJÓLFUR KRISTJÁNSSON OG INGI GUNNAR JÓHANNSSON.
FORSALA AÐGÖNGUMIÐA
Á KAFFI REYKJAVÍK
í DAG, Á GAMLÁRSDAG
OG VIÐ INNGANGINN
HÚSIÐ OPNAÐ FVRIR AÖRA
EN MATARGESTI KL. 22.30
KR 1.500
o
1«
irj
M
SO
5/5
1
<
Q
O
«
R E S T A U R
Sími 625540
KAFFI REYKIAVÍK ÓSKAR LANDSMÖNNUM GLEÐILEGS ÁRS OG ÞAKKAR FRÁBÆRAR MÓTTÖKUR Á ÁRINU
Glyngore-síldin fékk 5 stig í næst-
neðsta sætið. Úlfari fannst hún seig
og þurr en bragðiö í lagi og Sigmari
fannst hún „sæmileg en ekki bragö-
góð“. Dröfn fannst hún hreinlega
vond og gaf henni 1.
Loks fékk síldin frá íslenskum
matvælum einungis 3 stig, þ.e. eitt
stig frá hverju þeirra. Úlfar og Dröfn
voru sammála um að hún væri þrá
og hræðilega vond, „vond lykt, ekki
boðleg“ skrifaði Dröfn. Sigmar sagði
„Hræðilegt, hvaö er þetta eiginlega?
- Ekki síld allavega. Hvernig er hægt
að gera svona vonda síld?“ Til örygg-
is athuguðum við dagsetninguna á
síldinni sem reyndist vera í lagi.
Sennilega var þetta gölluö fram-
leiðsla.
■ V. -v
Valur og Flugeldabomban standa
lika fyrir flugeldasölu í ár.
DV-mynd BG
Fleiri
selja
flugelda
Það eru fleiri í flugeldasölunni en
fram komu í aukablaðinu okkar um
flugelda á miðvikudaginn. Má þar
t.d. nefna Knattspyrnufélagið Val
sem bæði verður með flugeldasölu í
Valsheimihnu, við Hamrahhðarskól-
ann og að Borgartúni 32. Valsmenn
segjast kappkosta aö hafa gott úrval,
m.a. vænar fjölskyldupakkningar,
hagstætt verð og vandaða vöru. Þeir
veita einnig heimsendingarþjónustu
sem verður að teljast nokkuð óvana-
legt.
Einnig má nefna að fyrirtækið
S.ída er að hefja flugeldasölu í fyrsta
sinn undir heitinu Flugeldabomban.
Útsölustaðimir eru að Höfðatúni 12
og í gámum við Sprengisand, Skeif-
una 8 og við F&A aö Fosshálsi 27.
Kappkostað er að hafa mikiö úrval
og að vera í ódýrari kantinum.
Heilsu okk-
ar ógnað
Salmonellumengun í kjúkling-
um á íslandi er aht of mikil. í ljós
hafa komiö alvarlegar’brotalamir
í framkvæmd innra gæðaeftirlits
í alifuglaeldi þannig að heilsu al-
mennings hefur verið ógnað og
er það óviðunandi ástand. Þeirri
áskorun er beint til yfirdýra-
læknis og Hollustuvemdar ríkis-
ins að reglum, sem í gildi em um
salmonellumengun í alifuglum,
verði framfylgt svo að öryggi
neytenda veröi tryggt. Þessi sam-
þykkt var gerð á fundi formanna
heilbrigðisnefnda sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu í desember
sl. eftir að þeir höfðu fjallaö um
skýrslu Hollustuverndar ríkisins
um úttekt á tíðni salmonellu
1991-1994.
Skylt er að verðmerkja allar vör-
ur greinilega.
Skylt að
verðmerkja
Neytendasamtökin vilja minna
á að samkvæmt reglum er skylt
að verðmerkja allar vömr greini-
lega. Jafnframt er nú skylt að
merkja meö mælieiningarverði,
þ.e. veröi á lítra, kíló eða fer-
metra, þar sem það á við.
Samtökin segjast munu leita
allra leiða til aö knýja á um að
seljendur verðmerki samkvæmt
reglunum og beina því til seljenda
vöra og þjónustu að virða þessa
sjálfsögðu skyldu við neytendur.
Þanrtig verði eðlileg samkeppni
tryggð og veröskyn neytenda en
fram hefur komið að verðmerk-
ingu erí mörgum tilvikum áfátt.
Ekki í flug-
eldasölu
Vegna fréttar þess efnis í flug-
eldakálfinum okkar aö íslenskir
ungtemplarar standi fyrir flug-
eldasölu í ár vill Sigurður B. Stef-
ánsson stórkapelán árétta aö
Góötemplarahreyfingin á íslandi,
IOGT, eigi enga aöild að þeirri
sölu. Hann segir góðtemplara
ávallt hafa átt gott samstarf við
Landsbjörg og telur mikilvægt aö
félög sem byggja á-hugsjónastarfi
í þágu fólksins í landinu hafi
öfluga fjáröflunarleið sem hægt
sé að treysta. Hann hvetur því
landsmenn til að styðja þá með
flugeldakaupum.
"S-U-J,-1 A#>'i
Yndisaukinn frá Emmessís hf.
Þörf fyrir
Yndisauka
Nýverið kom á markaðinn nýr
ís frá Emmessís hf. Um er að
ræða ekta rjómaskafís sem hlotið
hefur nafnið Yndisauki. Fyrsta
bragötegundin er Swiss Mint,
sem er súkkulaöiskafís með
frísklegu myntubragði. Bragðið
er einkar spennandi og býður upp
á ýmsar nýjungar þegar um er
að ræða eftirrétti. Yndisauki fæst
í eins htra umbúðum.