Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1994, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1994, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1994 Utiönd Stuttar fréttir Díana prinsessa á skíðum í Colarado og stelur allri athyglinni frá Fergie: Díana skíðar með forríkum piparsveini Sést hefur til Díönu prinsessu af Wales meö Teddy Forstmann, al- ræmdum 54 ára gömlum bandarísk- um auökýfmgi og piparsveini, í Vail í Colarado en þar dvelur prinsessan þessa dagana við skíðaiökun. Teddy þessi er forríkur hlutabréfabraskari frá New York og mikill kvennamaö- ur, en þau kynntust fyrr á þessu ári. Blaðamenn frá blaðinu Rocky Mo- untain News sáu þau tvö spila saman tennis sl. miðvikudag og náðu mynd- um af parinu. Þótti fara afskaplega vel á með þeim. Rocky Mountain News er algjört smáblað og þykir sem blaðamenn þess hafi náð að „skúbba" öllum helstu sérfræðingum um málefni konungsfjölskyldunnar bresku með þessari frétt því svo virðist sem eng- inn hafi vitað af því að Díana hygöist dvelja í Vail milli jóla og nýárs. Út- Sara Ferguson hefur verið á skíðum i Sviss síðustu daga. Þegar fréttist af Díönu með moldríkum piparsveini í Colarado höfðu fjölmiðlar engan áhuga á Fergie lengur. Simamynd Reuter sendarar frá stærstu blööum Bret- lands voru allir staddir í skíðabrekk- unum í Klosters í Sviss þar sem Fergie, hertogaynja af Jórvík, hefur verið að renna sér en einnig er von á Karli Bretaprinsi þangað bráðlega. Helstu kóngafjölskyldur Evrópu fara venjulega til Klosters. Þegar fréttin um að Díana væri á skíðum með ein- hleypum milljónamæringi í Vail barst út varð uppi fótur og fit meðal blaöamanna sem alhr bókuðu hiö snarasta far til Colarado og enginn hefur áhuga á grey Fergie lengur. „Fergie er alltaf gott fréttaefni en Díana með manni er miklu betri frétt,“ sagði ljósmyndari um leið og hann bókaði flug frá Klosters. Díana er ekki með prinsana tvo, Vilhjálm og Harry, með sér í Vail. Þeir fara með fóður sínum Karli til Klostersínæstuviku. Reuter N°Z ARAMOTAHEIT Láttu ekki snobb og fölsk lof- orð ráða vali þínu á snyrti- vörum. Ekkert krem tekur hrukkurnar burt en við getum komið í veg fyrir öldrun og minnkað hrukkudýpt með réttum kremum. Notfærðu þér þessar ráð- leggingar frá sérfræðingum Boots. VANDAMÁLIN: Húðin verndar líkamann fyrir utanaðkomandi áhrifum, eins og kulda, þurrki, hita og sól. Streita, mataræði og svefn hafa mikil áhrif á húðina. Álagið er mest á húðina á veturna, hún verður líflaus, þurr og flagnar oft. LAUSNIRNAR: Gerðu að vana daglega um- hirðu húðar. Hreinsaðu að kveldi með hreinsimjólk og andlitsvatni. Nuddaðu síðan vel með næt- urkremi. Á morgnana skaltu hreinsa með andlitsvatni og næra vel með No7 dagkremi sem bæði nærir og ver húðina. Sértu um og yfir þrítugt er gott að eiga No7 augnkrem því öldrun byrjar oft fyrst kringum augun. No7 býður einnig uppá frábært Positive Action krem sem er djúpnær- andi dag/næturkrem í einu. Eldri dömur ættu að fá sér Nurture hrukkukrem sem minnkar hrukkudýpt og eflir teygjanleika húðar. Gefðu þér eitt kvöld annað slagið til að dekra við sjálfa þíg- Fáðu þér andlitsbað. Þú þrífur húðina með hreinsi- mjólk og berð síðan á þig No7 prótín næringarmaska, slappar af í 15 mínútur og hreinsar síðan maskann af með volgu vatni. Styrkir og róar húðina með No7 and- litsvatninu, berð á þig augnkremið kringum aug- un og hrukkukremið á hrukkusvæðin, nuddar að síðustu vel á þig nætur- kreminu og ferð svo snemma að sofa. Þú lítur örugglega betur út daginn eftir! i_____________________________i No7 er frá Boots sem er eitt stærsta lyfjafyrirtæki í heimi. Þú færð gott verð og frábært innihald í einföldum pakkn- ingum No7. No7 fæst í betri snyrtivöru- verslunum og apótekum. VITRAR VELJA No7 Gleðilegt No7 ár. Barbara Attenborough Acc. Auglýsing Mikil hamingja ríkir nú í keisarafjölskyldunni japönsku eftir að Kiko prins- essa, eiginkona Akishinos prins, ól annað bárn þeirra hjóna í gær. Það var stúlka. Prinsinn er annar í röðinni sona keisarans. Símamynd Reuter Ný von í baráttunni viö krabbamein: Æxli í tilraunadýr- um visna og hverff a Vísindamenn í Bandaríkjunum til- kynntu í gær að þeir heíðu náð veru- legum árangri í að stöðva blóðflæði til ýmissa tegunda æxla í dýrum í tilraunastofum. Þessi uppgötvun gæti leitt til nýrra aðferða við að fá æxli í mönnum til að visna upp og hverfa. „Við viljum ekki gera of mikið úr þessu. Við erum ekki að segja að töfralausnin sé fundin, það á eftir að gera heilmiklar rannsóknir enn. En við höfum verið á grænu ljósi tii þessa,“ sagði David Cheresh, einn vísindamannanna við Scripps rann- sóknarstofnunina í La Jolia í Kalifor- níu sem stóðu að rannsókninni. Sagt er frá rannsóknum Cheresh og félaga hans, Peters Brooks, í fag- tímaritinu Cell, eða Frumu, sem kemur út í dag. Vísindamönnunum hjá Scripps tókst að koma í veg fyrir vöxt nýrra æða sem næra æxli á blóði án þess að valda skaða á æðum í eðlilegum og heilbrigðum vefjum í tilrauna- stofudýrum. Þetta tókst með jwí aö gefa eina sprautu af einræktuðu mótefni sem kallað er LM609 eöa litlu gervipeptíði. Viö tilraunirnar var m.a. hlutum af æxlum úr mönnum komið fyrir í kjúkiingafóstrum. Ef æxlið fær ekki blóð, veslast það bara upp og hverfur. Ekki verður hægt að hefja tilraunir á mönnum fyrr en búið er að kanna slæmar aukaverkanir mótefnisins og hversu eitrað það er, sennilega ekki fyrr en eftir hálft annað ár. Reuter Vonast eftsrfriöi Stríðandi fylkingar í Bosníu vonast eftir að ná samkomulagi um 4 mánaða vopnahlé. Mannskættflugslys Fimmtíu og tjórir létu lífið í flugslysi í Tyrklandi í gær þegar þota brotlenti í hríðarbyl. Indæltstrið Pavel Grat- sjov, varnar- málaráðherra Rússlands, hót- aði í gær að rússneskar hersveitir mundu ráðast inn í Grosní, höfuðborg Tsjetsjeníu, ef upp- reisnarmenn gæfust ekki upp. Ráðherraburt Fjármálaráðherra Mexikó sagðl af sér þegar forsetinn kynnti neyðaráætlun í efhahags- málum. Washington til bjargar Bandaríkjastjórn ætlar að veita Mexíkó aðstoð til að hressa upp á efnahaginn. Leysið upp herinn Leiðtogar grasrótarhreyfinga á Haití hvöttu stjórnvöld til aö leysa upp her landsins sem al- menningur óttast mjög. MótmælaíBelgrad Nokkur þúsund Belgradbúar mótmæltu tilraunum stjómvalda til að sölsa undir sig eina óháða dagblaðið. Clintonframáný Bill Clinton Bandaríkjafor- seti sagði að hann ætlaði aö bjóða sig aftur fram til forseta- cmbættisins eftir tvö ár og sér ekki hvers vegna hann ætti að skipta um skoðun síðar. Drykkjumenn óhressir Drykkjumenn á írlandi eru óhressir með strangari reglur um akstur og áfengisneyslu. Kínaskelfur Jaröskjálfti sera mældist 5,7 stig olli nokkrum skemmdum í Suð- vestur-Kína í morgun. Ííhaldsátt Repúblikanar taka við sfjómar- taumum Bandaríkjaþings í næstu viku og stefna á nýtt íhaldstímabil. Átféiagann Afríkumaöur í Belgiu drap fé- laga sínn í rifrildi og lagði sér hann til munns. Rabin í klemmu Yitzhak Rab- in, forsætisráð- herra ísraels, er í klemmu um þessar mundir og í dag ætla ísraelskir og arabiskir vinstrisinnar gð mótmæla í sameiningu nýrri landnemabyggð gyðinga. e-nuiii Daglegt líf innan stækkaðs ESB verður enn flóknara og erfiðara eftir inngöngu Svía, Finna og Austurríkismanna. Danirámóti Forráðamenn dansks fiskiðn- aðar eru andvígir því aö ESB veiti Norömönnum frekari viöskipta- ÍVÍlnanÍrmeðflsk. Reuter, Ritzau

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.