Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1994, Qupperneq 16
16
FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1994
Sviðsljós
Beatrice og Eugenie búnar aö komast að því hver var í gervi jólasveinsins.
í jólaboði
hjá Söru
Fyrir jólin bauð Sara Ferguson,
hertogaynja af Jórvík, hópi barna
sem glíma við alvarlega sjúkdóma
heim tR sín. Hún hafði keypt gjafir
handa öllum barnaskaranum og auð-
vitað dætrunum tveimur, Beatrice,
sem er sex ára, og Eugenie sem er
fjögurra ára.
Þegar gleðin stóð sem hæst læddist
hertogaynjan upp í svefnherbergið
sitt og klæddist jólasveinabúningi
sem hún hafði falið þar. Þegar
sveinki birtist varð uppi fótur og fit.
Beatrice og Eugenie þekktu ekki
mömmu sína í fyrstu. Það voru þó
þær sem voru djarfastar af bömun-
um og toguðu í skeggið á jólasveinin-
um. Þegar þær komust að því hver
var í dulárgervinu hoppuðu þær upp
í fangið á sveinka.
Um jólin dvaldi Sara í litlu húsi á
lóð Sandringhamhallar. Hún eyddi
aðfangadagskvöldi ein þar sem dæt-
urnar voru í höllinni hjá foður sínum
og öðrum meðlimum konungsfjöl-
skyldunnar. Á jóladag voru dæturn-
ar hins vegar hjá móður sinni.
Matgæðingur vikuimar
Tandoori-kjúklingur
- og karrígrænmetisblanda
„Margir sjá indverskan mat fyrir
sér eingöngu sem logandi sterkan
en indverskur matur er í raun ekki
aðeins blanda af fjöldamörgum
matreiðsluaðferðum heldur einnig
blanda af kryddum margra gerða
sem framkalla viðbrögð í tungunni
allt frá súkkulaðikeim yfir í logandi
eld,“ segir Magnús Þorkelsson,
matgæðingur og kennslustjóri í
MS. Hann kveðst ætla að kynna
matseðil einfaldrar gerðar en segir
nauðsynlegt að gefa sér góðan tíma.
„Það þarf að hafa allt að sólar-
hrings fyrirvara á matseldinni.
Þetta er óborganlega skemmtilegur
matur fyrir þá sem hafa gaman af
matseld og nautn af að borða.“
Réttinn þarf að byrja að matbúa
að minnsta kosti átta klukkustund-
um áður en hann er borðaður.
Tandoori-kjúklingur
kjúklingur (um 1 'h kíló)
tandoori krydd frá Bart Spices
eða Rajahsa
hrein jógúrt (2 litlar dósir)
sítrónusafi
rauður og gulur matarlitur ef vill
Kjúkhngnum skipt í að minnsta
kosti fjóra hluta. Hamnum er flett
af og kjúklingurinn þurrkaður.
Hrært upp í jógúrtinni og 2 msk.
af tandoori kryddi blandað saman
við ef maður vill hafa bragðið milt
en 3 msk. ef styrkurinn á að vera
meiri. Út í þetta eru jafnframt sett-
ar 2 msk. af sítrónusafa. Kryddlög-
urinn er borinn á kjúklinginn sem
raðað er ofan í stórt fat þannig að
bil sé á milli bitanna. Þetta er látið
standa í tólf tíma en best er aö það
sé sólarhringur. Síðan ræðst það
af árstíð og aðstæðum hvernig
þetta er eldað. Notast má við gasgr-
iU, kolagrill eða bakaraofn. Stykkj-
unum er raðað á plötu eða bökuð
í fatinu og látin liggja þar svo lengi
sem þarf, líklega 45 til 55 mínútur
við 200 gráða hita. Snúið og krydd-
blandan borin á og loks sett undir
grill í 5 mínútur í lokin. Sumar
Magnús Þorkelsson
tandoori-blöndur eru rauðleitar og
kjúklingar sem fást á veitingahús-
um eru þannig. Ef Bart-blandan er
notuð eða aðrar grænleitar blönd-
ur er ágætt að setja smá matarlit í
blönduna, gulan 1 tsk. og rauðan
/i tsk. til að fá réttan lit.
Karrígrænmetisblanda
1 msk. turmeric
1 msk. kúmen
2 msk. kóríander
1 tsk. engifer
1 tsk. paprika
1 tsk. kardimommur
1 tsk. svartur pipar (jafnvel heill)
hnífsoddur af anis
garaam masala
stór laukur
grænmeti árstíðanna
matarolía
Kryddmagnið miðast við hvert
pund af hráefninu. Kartöflur, gul-
rætur og rófur henta vel, einnig
kál, svo sem spergilkál, hvítkál,
blómkál og rósakál. Laukurinn er
smásaxaður og grænmetið skorið í
hæfilega bita en það ræðst af teg-
undinni hversu smátt. Hafa þarf í
huga að kartöflur eru lengur að
soðna en kál. Kryddiö, allt nema
garaam masala, sett í glas og hrært
vel saman við svolítið af vatni
þannig að úr verði þykkur grautur.
Fjórar matskeiðar af olíu settar í
pott og hitað vel undir. Laukurinn
settur saman við og látinn krauma
smástund. Þegar hann er farinn að
linast vel er kryddblandan sett út
í og látin sjóða með. Indversk krydd
eru af mörgum toga, sum þarf að
hita og steikja áður en þau eru
notuð, önnur ekki. Þetta er gert til
að opna þau og gera bragðið betra.
Þegar kryddið flýtur upp og leggst
ofan á laukinn er óhætt að setja það
af grænmetinu sem lengst er í suðu
út í og setja ríflega af vatni yfir.
Hrært í þannig að vel blandist. Síð-
an er fljótsoðnara grænmeti sett
út í. Slökkt undir pottinum og látiö
standa þar til borið er fram. Þannig
tekur grænmetið í sig bragðið. Best
er að gera þetta ekki minna en 2 til
4 klukkustundum áður en borða
á. Þegar aö því kemur að bera fram
má seta 1 tn 2 msk. af garaam ma-
sala út í, eftir því hvað magnið er
mikið. Fyrir manninn er hæfilegt
að sjóða hálft pund af grænmeti ef
tvíréttað er, til dæmis meö kjúkl-.
ingnum en minna ef fleiri réttir eru
á borðinu. Ef soðið þykir of sterkt
er ágætt að setja svolítið af kókos-
mjöli eða kafíirjóma út í en það
slær aðeins á bragöið. Með þessu
er gott að bera fram hrísgijón og
sjóða þau með saffrankryddlegi og
salta lítið. Soðið af grænmetinu er
notað sem sósa yfir grjónin.
Magnús skorar á Kristin Alberts-
son jarðfræðing að vera næsti mat-
gæðingur. „Hann er útpældur
kunnáttumaður í indverskum mat
og við eldum saman af hreinni
ástríðu."
-----í*.
Abbie ásamt foreldrunum Roger og Karen og bróðurnum Charlie.
Abbie í faðmi
fjölskyldunnar
Abbie Humphrie, litla stúlkan sem
rænt var af fæðingardeild í Notting-
ham í Englandi í sumar, er orðin nær
hálfs árs og heldur nú upp á sín
fyrstu jól í faðmi fjölskyldunnar.
Abbie var aðeins fimm klukku-
stunda gömul þegar henni var rænt
og fannst ekki fyrr en eftir sextán
daga. Réttarhöldum yfir konunni,
sem rændi barninu, er nýlega lokið.
Hún var ekki dæmd til fangelsisvist-
ar og hefur það komið mjögá óvart.
Þrátt fyrir aö hafa fengið bamið
sitt aftur heilt á húfi þarf móðirin
enn á aðstoð sérfræöinga að halda
vegna áfallsins sem hún varö fyrir.
Hún gat ekki farið aftur til vinnu í
október eins og ráðgert hafði verið.
Hinhliðin__________________________________
Stefni á milda flugeldasölu
- segir Víðir Reynisson, framkvæmdastjóri flugeldasölu Hjálparsveitar skáta
Nú er flugeldasalan komin á fullt
en þeir menn sem standa að söl-
unni hafa unniö að henni allt þetta
ár. Að sögn Víöis Reynissonar,
framkvæmdastjóra Hjálparsveitar
skáta í Reykjavík, hefst undirbún-
ingur að sölu flugelda næsta árs
um leið og sölu þessa árs lýkur.
Flestir flugeldanna koma frá Kína
en Víðir segir aö þeir komi einnig
frá Þýskalandi, Bretlandi og
Frakklandi. Það er flugeldakapp-
inn sem sýnir hina hliðina að þessu
sinni.
Fullt nafn: Guðmundur Víðir
Reynisson.
Fæðingardagur og ár: 22. apríl 1967.
Maki: Sigrún María Kristjánsdótt-
ir.
Börn: Ég á eitt barn, Kristján Orra,
sem er nítján mánaða.
Bifreið: Toyota Corolla árgerð 1987.
Starf: Húsasmiður og fram-
kvæmdastjóri flugeldasölu Hjálp-
arsveitar skáta í Reykjavík.
Laun: Þau eru breytileg.
Áhugamál: Það eru björgunarstörf
en ég hef verið í Hjálparsveitinni í
tíu ár.
Hefur þú unnið nýlega í happdrætti
eða lottói? Nei, það er orðið langt
síðan ég hef unnið eitthvað. Eg
spila þó stundum í lottóinu.
Hvað finnst þér skennntilegast að
gera? Vera á fjöllum.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Vaska upp.
Uppáhaldsmatur: Góð nautasteik.
Víðir Reynisson, framkvæmda-
stjóri flugeldasölu Hjálparsveitar
skáta i Reykjavík.
DV-mynd Brynjar Gauti
Uppáhaldsdrykkur: Kók.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag? Mér finnst Siggi
Sveins í handboltanum alltaf góð-
ur.
Uppáhaldstímarit: Það er Lands-
bjargarblaðið.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan eiginkonuna?
Það er örugglega Hófí.
Ertu hlynntur eða andvígur ríkis-
stjórninni? Frekar hlynntur.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? Það væri gaman að hitta
þann sem kleif Everest fyrstur,
Edmund Hillary.
Uppáhaldsleikari: Tommy Lee Jo-
nes.
Uppáhaldsleikkona: Meg Ryan.
Uppáhaldssöngvari: Bubbi er alltaf
í uppáhaldi hjá mér.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Ég
þori varla að nefna Jón Baldvin en
ég hef alltaf gaman af honum.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Grettir.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Ætli það
séu ekki fréttir.
Uppáhaldsmatsölustaður: Hard
Rock.
Hvaða bók langar þig mest að lesa?
Útkall Alfa.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? FM 95,7.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Gulli
Helga.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Ætli
það sé ekki frændi konu minnar,
Ólafur E. Friðriksson fréttamaður.
Uppáhaldsskemmtistaður: Café
Royal.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: ÍBV.
Stefnir þú að einhveiju sérstöku í
framtíðinni? Ná góðri sölu fyrir
hjálparsveitina í Reykjavík sem
mun koma henni til góöa næsta
árið en það er mér efst í huga á
þessari stundu.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Ég
tók mér eiginlega ekkert frí en fór
þó á þjóöhátíðina í Eyjum.