Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1994, Blaðsíða 19
FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1994
19
Merming
Samuel Lebihan smellir mynd af Irene Jacob í Rauðum Kieslowskis, frábærri lokamynd þríleiksins um frönsku
fánalitina.
Háskólabíó-Þrír litir: Rauður: ★★★
Á valdi örlaganna
Þá er lokið þríleik pólska leikstjórans Krzysztofs
Kieslowskis um frönsku fánalitina og einkunnarorð
stjómiagabyltingarinnar frá 1789, frelsi, jafnrétti og
bræðralag. Þrír litir: Rauður er komin í Háskólabíó,
verðugur endir á annars mistækum myndafiokki.
Bláa myndin um frelsið gerist í Frakklandi, sú hvíta
um jafnréttið í Póllandi frjálshyggjunnar og hin rauða
um bræðralagið í Svisslandi á vorum dögum, sannkall-
aður samevrópskiu- búðingur.
Upphafsatriði Rauðs sýnir okkur dásemdir tækninn-
ar, hvemig hún gerir okkur kleift að velja númer á
tóli sem sendir síðan boð um leiðslur, fyrst innan-
húss, síðan neðanjarðar og neðansjávar áður en kom-
ið er á land í öðru ríki. En þrátt fyrir þessi tækniund-
ur næst ekki alltaf samband. Stundum er enginn til
að taka upp tóhð á hinum endanum. Og stundum tala
persónurnar svo á skakk og skjön hvor við aðra að
þær ná ekki saman.
Þannig er því farið um Valentine (Jacob) sem alltaf
er að tala við kærastann í síma til Englands en sér
hann aldrei.
Svo er annað fólk sem hún er alltaf að hitta á fornum
vegi, eins og ungi upprennandi lögfræðingminn (Lo-
rit), án þess að neitt annað gerist en að leiðir skerist.
Lögfræðingurinn verður síðan stöðugt á vegi enn ann-
ars manns, gamals og biturs dómara á eftirlaunum
(Trintignant) sem ver tíma sínufrf í að hlera símtöl
nágrannanna, án þess að þeir hittist. Það er ekki fyrr
en örlögin, eða tilviljunin (dómarinn mundi segja að
Sviðsljós
Kvikmyndir
Guðlaugur Bergmundsson
það væru örlögin og lögfræðingurinn ungi líka), sjá
til þess að Valentine og dómarinn kynnast að (örlaga-
)hjólin fara að snúast.
Kieslowski tekst að byggja upp töluveröa spennu
meö sífelldu flakki sinu milh persóna þar sem hinar
eru þó aldrei langt undan, sjást til dæmis út um glugga.
Samskipti sýningarstúlkunnar og dómarans fá þó
mest rými enda eru þau einu persónurnar sem eitt-
hvað er lagt í, frábærlega túlkaðar af Irene Jacob og
þeim gamla jálki Jean-Louis Trintignant. Kieslowski
tengir svo í lokin allar myndirnar þrjár á alveg frábær-
lega skemmtilegan hátt í sjóslysi á Ermarsundi þar
sem hann segir okkur að við verðum að ástunda frelsi,
jafnrétti og bræðralag ef við ætlum okkur að lifa af í
þessari álfu okkar.
Þrir litir: Rauður (Trois Couleurs: Rouge).
Handrit: Krzysztol Piesiewicz og Krzysztof Kieslowski.
Leikstjóri: Krzysztof Kieslowski.
Leikendur: Irene Jacob, Jean-Louis Trintignant, Jean-Pierre
Lorit, Frédérique Feder.
Sylvester Stallone brýtur
blað í kvikmyndasögu
Sylvester Stallone er ekki auralaus
nú fremur en fyrri daginn og á
ástandið þó heldur eftir að skána.
Sylvester Stallone er maður mik-
illa vöðva og mikUr vöðvar þurfa
fleiri krónur í vasann en meðaljón-
inn fær. Þess vegna er það að Sly,
eins og vinir hans kalla hann, mun
brjóta blað í sögu kvikmyndagerðar
í HoUy wood þegar hann stingur tutt-
ugu miUjóna dollara launatékka í
vasann. Það samsvarar tæplega hálf-
um öðrum milljarði króna.
Stórblaðið Los Angeles Times segir
að karl fái þetta fyrir kvikmynd sem
hann leikur í árið 1996 fyrir Savoy
kvikmyndafélagið. Að vísu fylgir sá
bögguU skammrifi að myndin verður
að græða meira en hundrað milljónir
dollara. Hvorki StaUone né kvik-
myndafélagið vildu staðfesta frétt
blaðsins.
Annars verða stærstu stjörnurnar
í Hollywood að gera sér heldur lægri
laun að góðu. Menn eins og Tom
Cruise, Kevin Costner og Arnold
Schwarzenegger fá alla jafna ekki
nema tólf tíl fimmtán miUjónir doll-
ara fyrir hverja mynd. Það svarar tíl
800 fil 1000 miUjóna króna, eða þar
um bU
markaðstorg
tækifæranna
Ur Fávitanum. Baltasar Kormákur, t.h., leikstýrir einnig Hárinu.
DV-mynd GVA
Síðasta sýning á Hárinu
Fávitinn eftir Fjordor Dostojevskí
er sýndur á stóra sviðinu í Þjóðleik-
húsinu í kvöld og er uppselt. Á stóra
sviðinu í Borgarleikhúsinu er í kvöld
sýning á Leynimel 13 eftir Harald
Á. Sigurðsson, Emil Thoroddsen og
Indriða Waage og á litla sviðinu er
Óskin (Galdra-Loftur) eftir Jóhann
Sigurjónsson.
Leikhús Frú Emilía sýnir Kirsu-
berjagarðinn í kvöld og er uppselt
og þá er sömuleiðis uppselt á Hárið
í Islensku óperunni en þetta er loka-
sýning á verkinu.
BLAÐBERAR ÓSKAST
Reykjavík
Skeifan - Faxafeni
Styrktarfélag vangefinna
Vinningsnúmer í happdrætti félagsins
24. des. 1994.
1. vinningur Mazda 323 1300 LXi,
árgerð ’95, kr. 1.200.000
Nr. 15173
2.-5. vinningur bifreið að eigin vali á kr. 450.000
Nr. 89 - 8058 - 14l 92 - 21631
Þökkum stuðninginn.
Gledilegt nýár.
Styrktarfélag vangefinna
Breytingar á
Sparileiðum vegna
nýrra reglna
Seðlabanka íslands
Frá og með l.janúar 1995 koma til framkvæmda nýjar
reglur frá Seðlabanka íslands um verðtryggingu sparifjár.
Reglurnar hafa eftirfarandi áhrif á Sparileiðir íslands-
banka:
Sparileið 3
Verðtrygging leggst af. Óheimilt er að verðtryggja
óbundið sparifé og verður því hætt samanburði á
ávöxtun nafnvaxta og verðtryggðra kjara. Reikn-
ingurinn ber því eingöngu nafnvexti.
Sparileið 12,24 og 48
Reglur um úttektir breytaslAð loknum binditíma,
eru reikningar lausir með fimm mánaða millibili,
einn mánuð í senn.
ISLAN DSBAN Kl