Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1994, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1994, Síða 20
20 FÖSTUÐAGUR 30. DESEMBER 1994 Dagur í lífl Randvers Þorlákssonar leikara: Áramótaskaup í lokavinnslu Randver Þorláksson leikur i áramótaskaupi Sjónvarpsins, í Fávitanum og leikstýrði talsetningu á kvikmyndinni Konungur Ijónanna. * DV-mynd GVA Ur einu atriða áramótaskaupsins. Lesendur ættu að þekkja hvað þarna Það var síminn sem vakti mig þennan ágæta morgun. Þegar ég leit á klukkuna með stírurnar í augun- um sá ég mér til skelfmgar að hún var að verða tíu. í símanum var mín ágæta vinkona í Mosfellsdalnum og bæjarfulltrúi í Mosfellsbæ, Guöný Halldórsdóttir, leikstjóri áramóta- skaupsins og rithöfundur. Hún spurði mig með þjósti hvort ég ætlaði ekki að hunskast niður í Sjónvarp til að kíkja á áramótaskaupið. Nú væri kominn tími til að raða þvi upp og ég þyrfti að vera með sem einn af höfundum. Hinir höfundarnir, Gísh Rúnar og Edda Björgvinsdóttir, væru löngu mættir og biðu eftir mér. Ég afsakaði mig með löngu máh. Ég hafði verið að frumsýna í Þjóð- leikhúsinu kvöldið áður í leikritinu Fávitanum og oft vilja frumsýning- arveislurnar verða langar og ég því í litlu stuði. Því lagði ég til að þau hin röðuðu skaupinu upp og ég myndi síðan, eins og aðrir lands- menn, horfa á það gagnrýnum aug- um og finna því síðan allt til foráttu: „Þetta er nú ekki eins gott og í fyrra - rosalega vont grín. Af hverju eru ekki bara sungnar gamanvísur eins og á þorrablótinu.“ Guðný skildi mig vel og kvaddi mig með virktum. Tvær frumsýningar Þegar mér var hugsað til gærdags- ins sá ég að þetta hafði verið við- burðaríkur dagur, tvær frumsýning- ar. Fyrir utan frumsýninguna á Fá- vitanum í Þjóðleikhúsinu - sem hafði gengið mjög vel og áhorfendur tóku frábærlega, var frumsýnd kvik- myndin Konungur ljónanna í SAM- bíóunum. Það er mögnuð teikni- mynd úr smiðju þeirra Walt Disney- manna en ég var leikstjóri talsetn- ingarinnar. Eg ákvað að kúra örlítiö lengur. Bömin okkar voru ekki heima. Lith sonurinn var hjá ömmu sinni og afa og táningurinn, dóttir mín, hjá vin- konu sinni. Þaö var því óvenju frið- sælt þennan morgun. West Side Story „Þetta voru góð jól en alltof stutt,“ hugsaði ég þegar ég var að sofna aft- ur. Enn hringdi síminn. Eiginkonan teygði sig í tóhð og ýtti við mér: „Kahi er í símanum". í símanum var Karl Ágúst Úlfsson, Spaugstofumaður og vinur minn. Hann var að minna mig á fund sem átti að halda í Þjóðleik- húsinu í hádeginu vegna söngleiks- ins West Side Story sem æfingar eru að hefjast á. Kalh, sem er leikstjór- inn, hafði beðið mig að vera aðstoð- arleikstjóri. Ég sagðist muna allt um fundinn (sem ég var reyndar búinn að gleyma), kvaddi Kalla og sippaði mér í leppana. Við hjónin ákváðum að sækja son- inn til ömmu og afa áður en fundur- inn hæfist. Þetta var langur fundur, var ekki búinn fyrr en klukkan fimm. Þá dreif ég mig heim th að reyna að hjálpa konunni við að und- irbúa mikla matarveislu sem viö ætluðum að halda um kvöldið. er á seyði. Gestirnir voru meðhmir hins frá- bæra félags, „Ítalíufélagsins“, en í því eru tvenn hjón fyrir utan okkur Guðrúnu, þau Björgvin Halldórsson og Ragnheiður kona hans og Björn G. Björnsson og eiginkona hans, Þóra. Þetta er magnað félag því til- gangur þess er eingöngu að hittast yfir góðum mat, ræða um uppáhalds- landið okkar allra, ítahu. í þessu matarboði átti að taka ákvörðun hvar á Ítalíu við ætluðum að eyða saman sumarfríinu. Viö höfðum eytt þremur vikum saman á ítahu fyrir nokkrum árum - sem er eitthvert eftirminnhegasta sumarfrí sem við höfum átt. Því hefur verið ákveðið að endurtaka þetta í sumar. Sannar- lega eitthvað til að hlakka th og ylja sér yfir í svartasta skammdeginu. Maturinn heppnaðist frábærlega hjá frúnni að venju og við sátum og spjölluðum fram eftir. Þetta var búinn að vera góður dag- ur og svo hefst grár hversdagsleikinn - en bara í nokkra daga því önnur hátíð er í vændum. Finnur þú finnn breytingar? 290 ss^z Er þetta hjá áfengisútsölunni? Nafn: Heimili: 5512 Vinningshafar fyrir tvö hundruð áttugustu og átt- undu getraun reyndust vera: 1. Jóna Guðjónsdóttir, 2. Sigtryggur Þórhallsson, Skipholti 45, Teigagerði 14, 105 Reykjavík. 108 Reykjavík. Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar hetur er að gáð kemur i ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atrið- um verið breytt, Finnir þú þessi fimm at- riði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni hl hægri og senda okkur hana ásamt nafni þinu og heimihsfangi. Að tveimur viktim hðnum birtum við nöfn sigurvegaranna. 1. verðlaun: Grundig útvarpsklukka að verðmæti 4.860 krónur frá Sjónvarpsmiöstöðinni hf. 2. verðlaun: Fimm Örvalsbækur. Bækumar sem eru i verðlaun heita: Þú ert spæjarinn, Símínn, Á ystu nöf, i helgreipum haturs og Lygi þagnarinnar. Bækurnar eru gefnar út af Frjálsri íjölmiðlun. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 290 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.