Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1994, Side 26
26
FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1994
Sérstæð sakamál
Jan Young staröi skelfd á sjón-
varpsskjáinn. Hún þekkti vel
myndina af manninum sem verið
var að sýna. Augnabliki síðar sagöi
þulurinn: „Þetta er Colin Ireland.
Hann er talinn sekur um fimm
grimmileg morð á kynhverfum
mönnum í London.“
Jan, sem sat við kvöldverðar-
borðið, missti bæði hníf og gaffal.
Svo hrópaði hún: „Hann gerði það
þá eftir allt saman.“ Þegar hún
hætti að skjálfa, stóð hún upp og
hringdi í New Scotland Yard. Þegar
hún fékk samband við réttan aðila
sagði hún: „Colin Ireland er mað-
urinn minn.“
Er hér var komið var hafinn loka-
þáttu'r martraðar í lífi Jan Young,
tveggja barna móður frá fyrra
hjónabandi, og honum lauk ekki
fyrr en hún fékk send undirrituð
skilnaðarskjöl í apríl á þessu ári.
„Engin kona á öllu landinu er fegn-
ari en ég að vera að skilja," sagði
hún þá. „Allt síðan ég sá andlit
hans á sjónvarpsskjánum hef ég og
bömin mín lifað í skugganum af
því sem hann gerði. Nú getum við
byrjað nýtt líf.“
Ást við fyrstu sýn
Jan Young rak krá í smábænum
Buckfastleigh í Devon árið 1989.
Hún var þá fjörutíu og sjö ára. Dag
einn gekk Colin Ireland, sem var
sjö árum yngri en hún, inn um
dymar. Hann gekk beint að af-
greiðsluborðinu og spurði: „Er
mögulegt að fá að sofa hér í nótt?“
Hann var í hermannajakka í felu-
htum, með bakpoka og minnti helst
á málaliða úr kvikmynd. „Ég varð
strax hrifin af honum," segir Jan.
Ég lét hann hafa herbergi og gat
ekki litið af honum aUt kvöldið,
Þeir sem unnu með mér í kránni
vöruðu mig við að vera ein með
honum. Þeir sögðu eitthvað miður
gott í fari hans en ég gat ekki séð
það. Hann sagði mér að hann væri
sérfræðingur í því að halda lífi við
erfiðar aðstæður, rétt eins og hann
væri þrautþjálfaður björgunar-
sveitarmaður. Hann hefðist við úti
á heiðinni þar sem hann dræpi dýr
með bemm höndum til þess að
hafa ofan í sig.
Ég heföi átt að sýna meiri var-
kámi, en hér var kominn afar
áhugaverður ókunnugur maður
sem sagði mér allt um það sem
drifið hafði á daga hans. Það var
ótrúlega hrífandi.“
Bónorðið
„Ég sagði honmn frá börnunum
mínurn," segir Jan. „Að ég hefði
verið gift en skilið. Ég sagði honum
hka frá þvi að það hefði ekki verið
létt að reka krána ein. Hann hafði
nefbrotnað, og var með slæmar
tennur, en áður en dagur rann vissi
ég að ég var ástfangin af honum.“
Viku síðar hafði Ireland sest að í
húsinu og fór að hjálpa Ian við
reksturinn. Með þeim bjuggu son-
urinn Liam, 12 ára, og dóttirin
Kate, 14 ára. Konur sem sóttu
krána urðu svo hræddar við Ire-
land að Jan gat ekki látið hann
þjóna. Hún varð því að setja hann
tÚ annarra verka niðri í kjallara.
Bömunum fannst hins vegar
mikið til Irelands koma og Jan varð
stöðugt hrifnari af honum. Hún
féllst því fljótlega á að breyta
bankareikningi sínum, þannig að
hann yrði á nöfnum þeirra beggja.
Rétt á eftir baö Colin Ireland Jan
Young.
„Ég játaðist honum strax," segir
Jan.
Fyrsta hótunin
„En það leið ekki á löngu þar til
Jan Young.
ég kynntist því að nokkra hvemig
hann var í raun og veru. Hálfum
mánuði fyrir brúðkaupið lét ég í
ljósi einhveijar efasemdir um
skynsemi þess að giftast aftur og
þá sagði hann ótrúlega kuldalegri
röddu: „Ef þú tekur þessi börn frá
mér mun ég leita þig uppi, hvar
sem þú verður, og drepa þig.“
Mér hrá mikið því mér fannst að
honum væri í raun alvara. Þá lang-
aði mig til að taka börnin og fara
frá honum. En hann var of snjall
fyrr mig. Allt í einu var hann orð-
inn sá sem hann hafði verið áður
og baðst afsökunar á orðum sínum.
Hann gaf mér þá skýringu að hann
gæti ekki til þess hugsað að missa
mig.“
2. janúar 190 gengu þau Jan og
Cohn í hjónaband í Newton Abbot
í Devon. En áður en þrjár vikur
vora hðnar fór Jan að sjá eftir því
að hafa gifst. Colin hafði vart sett
upp giftingarhringinn fyrr en hann
lét grímvma faha og þá sá hún hve
tilhtslaus og grimmlyndur maður
hann var í raun og veru.
Hann hélt uppi samræðum við
Jan um nætur og sagði þá frá því
að hann heföi fengið miög strangt
uppeldi hjá foreldrum sem hefðu
verið mormónar, og þar kom að
hann sagðist vera „böðuh myrkra-
höfðingjans“. Jafnframt sagðist
Jan og Colin á brúðkaupsdaginn.
hann hata kynhverfa karlmenn
mikið.
Kynferðislega misboðið
Colin var þeirrar skoðunar að
heimsendir væri í nánd. Jan segir
að hann hafi oftar en einu sinni
sagt: „Ég er æðsti herforingi Satans
og dag einn mun hann biðja mig
um að drepa einhvem. Ég bíð bara
eftir skipuninni."
Af og til ræddi hann um úrshta-
baráttu góða og ihs. Hann sagði Jan
standa með englunum en hann
myndi berjast með myrkrahöfð-
ingjanum. Þá vék hann stundum
að hatri sínu á kynhverfum. Hann
sagðist hafa verið sendur í sérskóla
á unghngsáunum, efhr að hafa ver-
ið staðinn að þjófnaði, og þar hefði
sér verið kynferðislega misboðið
af kynhverfum karlmanni.
Skoðanir Cohns skutu Jan skelk
í bringu. En milli þess sem hann
ræddi þær var hann sá sem hún
og bömin höfðu kynnst í upphafi.
Hvarfið
Fiórum mánuðum eftir brúð-
kaupið var því hins vegar í raun
lokið. Upphaf endisins var að Colin
ók Jan og bömunum til móður
hennar í Margate í Kent. Það var
á laugardegi en hann sýndi sig ekki
í helgarlokin. Jan varð að fá lánaða
peninga hjá móður sinni til að kom-
ast aftur til Buckfastieigh en þegar
þangað kom varð henni ljóst hvers
kyns var. Bíll hennar var horfinn
og sömuleiðis sjónvarpstæki og
myndbandstæki. Einnig voru öll
fót Colins horfm og reyndar ahar
eigur hans, hveiju nafni sem þær
nefndust. A heimihnu var ekkert
eftir nema minningin um hann en
þó var Jan enn ekki orðið ljóst hve
iha hún stóð. Það kom ekki í ljóps
fyrr en hún fór í bankann. Þá sýndi
sig að Colin hafði tekið allt út af
reikningi þeirra, jafnvirði ehefu
hundruð þúsund króna. Þar af var
jafnvirði þijú hundruð þúsunda
hennar einkaeign en hitt fé sem
tengdist rekstri krárinnar.
„Eg missti alveg stjórn á mér,“
segir Jan. „Allt í einu stóð ég þama
með börnin og átti ekki neitt. Það
leið svo ekki á löngu þar th ég
missti krána, því ég gat ekki borgað
brugghúsunum. Eg varð að láta
setja mig á skrá með atvinnulaus-
um og flutti á gistiheimih."
Símtalið
Jan reyndi nú það sem hún gat
til að koma undir sig fótunum á
ný og gleyma Cohn. Hún fór til lög-
manns th að kanna möguleika á
skilnaði en ekkert varð úr honum
því hvergi tókst að hafa uppi á
Colin.
Eftir ár kom lögregluþjónn á fund
Jan og sagði henni frá því að mað-
ur hennar hefði verið handtekinn
eftir innbrot í vopnabúr. En áður
en lögmaður gat á ný gengið frá
skjölum varðandi skhnaðinn og
komið þeim th Colins var hann lát-
inn laus. Fannst hann nú hvergi.
„Ég heyrði bara frá honum einu
sinni eftir það,“ segir hún. „Hann
hringdi til mín seint á árinu 1993.
Hann spurði hvort við værum skil-
in, og þegar ég svaraði því neitandi
sagði hann: „Það er ekkert vit í því
að við séum gift lengur. Þú átt fljót-
lega eftir að sjá að það er betra að
við séum það ekki.“ Ég sagði hon-
um að hann hefði eyðhagt líf mitt.
Ég var næstum komin yfir þetta
allt þegar ég sá myndina af honum
í sjónvarpinu."
Skrímsli
Jan fór í dómssahnn þegar mál
Colins kom fyrir rétt í desember í
fyrra. Hún átti í erfiðleikum með
að trúa því sem þar kom fram. Sak-
borningurinn fékk fimm lífstíðar-
fangelsisdóma fyrir að hafa rænt
og kyrkt kynhverfa karlmenn sem
hann hitti á næturklúbbum í Lon-
don.
Réttúrinn fékk að heyra hvernig
hann skipulagði morðin. Og menn
sem þekktu Colin báru að hann
hefði spurt þá hve marga hann
þurfti að myrða til þess að geta tal-
ist fjöldamorðingi.
Jan reyndi að fá skilnað meöan
Colin sat í varðhaldi en hann neit-
aði aö veita henni hann.
„Ég hef stundum ásakað mig fyr-
ir að bera að hluta ábyrgðarinnar
á því að hann myrti þessa fimm
menn,“ segir Jan. „Ég var kona
hans og hefði átt að vita hvers
vænta mátti af honum. En ég hef
hins vegar komist að þeirri niður-
stöðu að óhugsandi hafi verið fyrir
mig að stjóma svona skrímsli."
Jan starfar nú á fasteignasölu og
fékk skilnað við Cohn í apríl í ár.
„í dálkinn „Athugasemdir" á
skhnaðarumsókinni skrifaði hún:
„Colin, ég vona að þú endir ævina
þar sem þú ert.“
„Vonandi ná þessi orð til þess
Colins sem ég giftist," segir Ján.
Ég vh að hann finni th reiði minnar
vegna þess sem hann gerði.“