Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1994, Page 39

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1994, Page 39
FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1994 51 DV hefur valið Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur mann ársins 1994: Glæstur kosningasigur á viðburðaríku ári „Ég lít svo á aö tilnefning eins og aö vera valin maður ársins sé tii uppörvunar og áminningar því eitt er aö vinna kosningar og annað er allt það starf sem á eftir kemur. Það er í rauninni miklu mikilvæg- ara og miklu erfiðara heldur en sjálf kosningabaráttan og ég tala nú ekki um kosningasigurinn sem var aðallega sætur,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri sem DV hefur vabð mann ársins 1994. Starfið sem fylgdi í kjölfar kosn- ingasigursins hefur verið viðamik- ið og vinnudagur borgarstjóra því langur. Þaö kemur fyrir að synir Ingibjargar Sólrúnar, Sveinbjörn og Hrafnkell, sem eru 11 og 9 ára, séu ekki alltaf ánægöir með kosn- ingasigur móðurinnar. „Ég veit nú ekki hvort ég á að hafa það eftir en þegar þeir eru aðframkomnir eiga þeir til að segja að þeir vonist bara til að Sjálfstæðisflokkurinn vin'ni næst svo að þessu linni. En yfirleitt sýna þeir þessu heilmikla þolinmæði og út á viö sýna þeir stuðning þegar þeir eru spurðir hvort það sé ekki leiðinlegt að mamma sé aldrei heima. Þá segja þeir gjarnan að það sé nú ekki þannig." Vill ekki lokast inni í ráðhúsinu „Þessi bók kemur sér vel við samningu ávarpa." Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri með bókina Orðastað sem hun hlaut i tilefni þess að hafa verið valin maður ársins af DV. DV-mynd Brynjar Gauti Á kosninganótt þegar Ingibjörg Sólrún og Reykjavíkurlistinn felldu rótgróinn meirihluta sjálfstæðismanna í borginni. Árið sem er að líða hefur verið viðburðarikt hjá Ingibjörgu Sólrúnu. Hún gifti sig í sumar og siðasta dag ársins heldur hún upp á fertugsafmæli sitt. DV-mynd GVA Borgarstjórinn ver miklum tíma í ráðhúsinu og Ingibjörg Sólrún segir auðvelt að einangrast. „Mað- ur er svo óskaplega upptekinn í þessu starfi að það er hætta á að maður losni úr tengslum við aðra en þá sem leita hér inn í borgar- kerfið. Ég sé þetta skýrt núna þegar ég stend á þessum áramótum og horfi til baka. Ég var upptekin af því fyrstu mánuðina að fá yfirsýn, kynnast öllum málaflokkunum, embættismönnunum og starfsfólk- inu. Ég tel mig hafa náð nokkuð góðri yfirsýn en mér finnst ég þurfa að fara meira úr út úr ráöhúsinu. Mér finnst ég vera aö lokast hér inni,“ greinir Ingibjörg Sólrún frá. Hún leggur áherslu á að nauð- synlegt sé að vinna gegn því og þá að hluta til með þvi að koma af sér daglegum verkum sem ýmsir aðrir geta sinnt. „Ég gæti þá komist meira út og heimsótt ýmsar stofn- anir og komist í hverfi borgarinnar og bara skoðað það sem þar er að gerast. Þá gæti ég átt samræður við fólk á vettvangi þess en ekki bara mínum." Borgarstjórinn fæstviðrekstur Að sögn Ingibjargar Sólrúnar er munurinn á starfi borgarstjóra og alþingismanns aðallega sá að borg- arstjórinn fæst mikið við rekstur en alþingismaðurinn er á stöðug- um málfundi. „Það á reyndar sér- staklega við þegar maður er í stjórnarandstöðu. Héma er maður stöðugt að takast á við praktísk vandamál, vandamál dagsins í dag. Hingaö koma óskaplega mörg er- indi sem þarf að leysa úr.“ Henni em sérstaklega minnis- stæð vandamál í sambandi við íþróttahöllina og Borgarspítalann. „Máhð í sambandi við íþróttahöll- ina var auðvitað að mörgu leyti erfitt viðureignar. En ég er mjög ánægð með þá lausn sem fékkst á því. Ég held að hún hafi verið far- sæl. Hún var tiltölulega ódýr fyrir borgina og leysti þátt sem þurfti að leysa. Borgarspítalinn var með óskaplega mikinn rekstrarhalla á eftir sér. Það tókst að vinda ofan af honum og ná sameiningu við Landakotsspítala." Veróurvörvið aukna fátækt í starfi borgarstjóra hefur Ingi- björg Sólrún kynnst erfiðleíkum hins almenna borgara betur heldur en hún gerði í þinginu. „Mér finnst ég sjá aukna fátækt. Ekki bara í Reykjavík heldur landinu öllu. Það er sífellt stærri hópur fólks sem getur í rauninni ekki framfleytt sér þó það sé fullvinnandi fólk. Það lif- ir ekki á laununum sínum. Þetta er sérstaklega barnafólk og eldri konur sem eru bara á strípuðum launum. Þær fá enga yfirvinnu og eiga kannski ekki eigið húsnæði heldur eru á leigumarkaði. Mér finnst þetta mjög áberandi hjá eldri konum.“ Orðin sjálfsöruggari Þar sem Ingibjö'rg Sólrún hefur vakiö athygli fyrir skörulegan mál- flutning við alls kyns aðstæður kemur það eiginlega á óvart þegar hún segir talsverðan tíma hafa far- ið í að semja ávörp og ráeður í upp- hafi. „Þetta er ekkert sem maöur gerir einn, tveir og þrír. Þetta er þjálfun. Ég hef um árin lagt mikla vinnu í svona hluti. Fólk heldur kannski að þetta komi af sjálfu sér. Þetta er eins og þegar þú sérð ein- hvern leika á hljóðfæri og heldur að það sé ekkert mál. En að baki liggur ákveðin æfing. Ég hef alltaf eytt miklum tíma í aö undirbúa mig fyrir slíka hluti og ég bý að því núna. Ég er orðin sjálfsöruggari og þori að tala meira frá brjóstinu en í upphafi." Stuðningurfrá erlendum konum Framboð Ingibjargar Sólrúnar í vor og kosningasigurinn í kjölfarið vakti talsverða athygli víöa í Evr- ópu. Síðastliðið sumar komu hing- að margir erlendir blaðamenn til að ræða við hinn nýja borgarstjóra. „Þetta þótti greinilega talsverður áfangi fyrir kvennabaráttuna, ekki bara hér heldur í víðara samhengi. Ég finn fyrir miklum stuðningi frá erlendum konum sem ég hitti eða láta í sér heyra. Stuðningurinn hefur verið sérstaklega áberandi frá Norðurlöndum. Nú eru reyndar konur þar komnar mjög langt í þessum málum en það eru þó enn- þá tímamót þegar konur eru bein- línis kosnar til ábyrgöarstarfa." Nýttárí meirajafnvægi Komandi ár leggst vel í Ingi- björgu Sólrúnu. „Það verður ör- ugglega ekki eins viðburðaríkt og árið sem er að líða því það hefur verið mjög viðburðaríkt í lífi mínu, bæði í pólitíkinni og persónulega. Ég held að nýja árið verði gott ár og í meira jafnvægi en árið sem er að líöa. Ég stefni að því að gera eins vel og ég get í borgarmálunum og reyna, þegar við erum komin meö fótfestu hérna, að koma stefnumálum Reykjavíkurlistans í framkvæmd hverju á fætur öðru.“ Síðasta dag ársins verður Ingi- björg Sólrún fertug. Hún ætlar að taka á móti vinum, vandamönnum og velunnurum í Norræna húsinu milli klukkan 13 og 15. „Svo reikna ég með að halda áramót með hefö- bundnum hætti og borða kvöldmat með Össuri Skarphéðinssyni og Árnýju og vinafólki sem við bjugg- um lengi með, Gylfa Páli Hersi og Sigurlaugu. Óg nú hefur Birta, kjördóttir Össurar og Árnýjar, bæst í hópinn. Þetta verða fastir liöir eins og venjulega, flugeldum skotið upp og farið á brennu."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.