Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1996, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1996, Blaðsíða 2
fréttir LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 1996 JLj"V Alþýðuflokkurinn hefur 53 milljónir til ráðstöfunar til 1999: Tekjur fra þingflokknum dragast saman um 25% - skuldir flokksins jukust um a.m.k. 15 milljónir króna í fyrra Skuldir Alþýðuflokksins hafa aukist um 15 milljónir króna frá því í alþingiskosningunum vorið 1995 og nema nú að minnsta kosti sam- tals 26,1 milljón króna, samkvæmt áreiðanlegum heimildum DV, en rúmum 32 milljónum, samkvmæt rekstraryfirliti Alþýðuflokksins. Tekjur flokksins hafa dregist veru- lega saman og er gert ráð fyrir að samdrátturinn nemi tæpum 7 millj- ónum króna á ári næstu árin. Þetta kemur fram í greinargerð Sigurðar E. Arnórssonar, fyrrverandi gjald- kera flokksins, og Friðþjófs K. Eyj- ólfssonar endurskoðanda til Rann- veigar Guðmundsdóttur, þáverandi formanns þingflokksins, sumarið 1995. í greinargerðinni kemur fram að flokkurinn standi ákaflega illa og sé í raun gjaldþrota samkvæmt ís- lenskum lögum. Þar segir einnig að þingflokkurinn hafi ákveðið að lækka framlag sitt úr 2,4 milljónum í 1,8 milljónir króna á ári. Tekjur flokksins frá Alþingi hafi lækkað og lækki um fjórðung á ári næstu fjög- ur árin vegna úrslita þingkosning- anna. Þær fari úr rúmum 16 millj- ónum í um 12 milljónir króna. Þá komi „nokkrir þættir tekna“ flokkn- um ekki „til hagsbóta" eða um 2 milljónir á ári. Jafnframt tekjusamdrætti kemur fram að árleg greiðslubyrði Alþýðu- flokksins hafi aukist um 6,5 miiljón- ir króna á ári næstu þrjú árin. Ráð- stöfunarfé flokksins hefur því minnkað um 13,5 milljónir króna á ári miðað við síðasta kjörtímabil. Rekstrartekjur Alþýðuflokksins fyrir tímabilið 1992-1994 námu tæp- um 42 milljónum og rekstrargjöld voru um 25,5 miUjónir króna, sam- kvæmt greinargerðinni. Skuldir flokksins námu 11,1 milljón í lok tímabilsins árið 1994, fjármagns- gjöldin tæpum 2,5 milljónum og rekstrarhagnaðurinn um 14 milljón- um króna. Þrátt fyrir þetta var eig- inflárstaða flokksins neikvæð um rúmar 9 milljónir króna árið 1994. Gjaldkeri Alþýðuflokksins hefur gert langtíma fjárhagsáætlun fram í ársbyrjun 1999. Þar kemur fram að tekjur flokksins nema samtals 53 milljónum króna. Af 53 milljónum fara 7 miiljónir í greiðslur af lang- tímalánum. Afgangurinn fer í rekstrarkostnað skrifstofu, styrki vegna sveitarstjórnakosninga í júní 1998 og önnur mál. -GHS Formaður Alþýðuflokksins: Höfum ekki upplýsingar um hvert kjördæmi ÍGjaldkeri Alþýðuflokksins: Fær enga er- lenda styrki „Erlenda styrki? Flokkurinn fær enga erlenda styrki. Punkt- ur,“ segir Sigurður E. Arnórs- son, gjaldkeri Alþýðuflokksins, um frétt DV af því að gert hafi | verið ráð fyrir því í kostnaðar- áætlun Alþýðuflokksins fyrir I alþingiskosningarnar i fyrra að flokkurinn fengi 12 milljónir í styrki frá „unnendum lýðræð- is“ og 3 milljónir í erlenda, „erl.“, styrki. Sigurður kannast ekki við neina styrki frá unnendum lýð- ræðis, hann segir að þetta hljóti að vera í fjárhagsáætlun sem í hann hafi ekki séð. Hann segist ekki kunna neinar skýringar á þessu en eiga að vita af því sé Ium slíkt að ræða. Sigurður hef- ur enga trú á því að verið sé að fara framhjá sér með þetta. „Ég kann bara engar skýring- ar á þessu,“ segir hann. -GHS stuttar fréttir IHagnaður á járnblendi Hagnaður á rekstri íslenska jámblendifélagsins í fyrra var 280 milljónum meiri en árið áður. Frá þessu var skýrt í RÚV. Göngin hagkvæm Hagfræðistofnun Háskóla ís- lands metur það svo að göng undir Hvalfjörö séu ein hag- kvæmasta stórframkvæmd í samgöngumálum á íslandi. Stofnunin áætlaöi á sínum tíma að þjóðhagslegur ávinningur væri um 7,1 milljarður króna, þar af neytenda um 4,5 millj- arða, sagði í fréttum RÚV. Sameining sex hreppa Félagsmálaráðuneytið gaf út i gær auglýsingu um staðfestingu á sameiningu sex hreppa i Norð- ur- ísafjarðarsýslu. Samkvæmt henni verður kosin ný stjórn í sveitarfélaginu 11. maí nk. og skal kosningin vera hlutfalls- kosning, sagði í fréttum Bylgj- unnar. -ÞK m---------~r............ 11,11 „Kosningabarátta landsflokksins var upp á 28 milljónir króna. Upp- lýsingar hafa einnig birst um kosn- ingabaráttuna í Reykjavík og öll gögn um það. Hún var upp á 8 millj- ónir króna. Við höfum ekki upplýs- ingar um það hvað hvert einstakt kjördæmi lagði til málanna til við- bótar,“ sagði Jón Baldvin Hanni- balsson, formaður Alþýðuflokksins, þegar DV bar undir hann frétt blaðsins í gær um fjármál flokksins. í gær greindi DV frá þvi að í greinargerð gjaldkera og endurskoö- anda flokksins til Rannveigar Guð- mundsdóttur, þáverandi formanns þingflokksins, væri sagt að Alþýðu- flokkurinn væri gjaldþrota ef hann væri hlutafélag samkvæmt íslensk- um lögum. Samkvæmt þessu bréfi kostaði kosningabarátta flokksins vegna alþingiskosninganna í fyrra 26 milljónir króna en samkvæmt fjárhagsáætlun flokksins, sem DV hefur undir höndum, kostaði hún um eða yfir 40 milljónir króna. í blaðinu í gær kom einnig fram að í kostnaðaráætlun vegna alþing- iskosninganna 1995 væri gert ráð fyrir 3 milljónum króna i „erl. styrki“, eða erlenda styrki eins og DV túlkar það, og 12 milljónir króna í styrki frá „unnendum lýðræðis.“ Jón Baldvin sagðist ekki vita um hvaða styrki þama væri að ræða og sagðist geta fullvissað blaðamann um að flokkurinn hefði ekki fengið neina erlenda styrki. Hann svaraði því engu hvort flokkurinn væri í raun gjaldþrota heldur benti á að upplýsingar um fjármál flokksins væru opinberar. Þær mætti nálgast hjá gjaldkera flokksins og birta rétt- ar fréttir í stað þess að birta dellu- mál og getsakir. -GHS Slökkviliðsmenn voru kallaðir að húsi í Hafnarstræti í gær. Lögreglan bað þá um aðstoð vegna foks frá því. Gaflar sem standa upp fyrir þak voru felldir en til stendur að rífa húsið á næstunni. Hafði rokið ekki valdið neinum öðrum vandræðum í gærkvöldi. DV-mynd S Þú getur svarað þessari spurningu með því að hring/a í síma 904-1600. 39,90 kr. mínútan. Já 1 I Nel2j ,r ö d d FOLKSINS 904-1600 Er réttlætanlegt að leggja 4,6 milljarða í Hvalfjarðargöng? Gasleki og eldur í tunnu Slökkviliðið í Reykjavík var kall- að að húsi við Víðimel í Reykjavik í gær. Þar hafði kviknað i ruslatunnu í geymslu. Vandalaust var aö slökkva eldinn. Skömmu síðar kall- aði kona í húsi á Leifsgötu eftir að- stoð þar sem henni tókst ekki að Vaxtalækkun Bankastjórn Landsbankans hefur ákveðið að lækka vexti 1. mars nk. Ákvörðunin er, samkvæmt frétt frá loka fyrir gas sem hún notar að jafnaði við eldamennsku. Konan varð strax vör við lekann og tókst slökkviliðsmönnum að aftengja kút- inn og loka fyrir lekann. Þykir mildi að leki' skyldi ekki hafa kom- ið að kútnum á öðrum tíma. -sv Landsbankans bankanum, tekin í kjölfar breyttra forsendna fyrri hluta ársins. stuttar fréttir Mótmælir skerðingu réttinda Stjóm Félags háskólakenn- ara krefst þess að ríkisstjórnin | falli þegar frá þeim áformum að | leggja fram frumvörp sem fela í | sér mikla skerðingu á réttind- Ium opinberra starfsmanna. í þeim felist lítilsvirðing við starfsmenn ríkisins. íslensk kvik- myndahátíð íslensk kvikmyndahátíð verður haldin í Moskvu og Pét- ursborg 28. febrúar til 3. mars i nk. Verða sýndar þar sex ís- | lenskar myndir, Hrafninn flýg- | ur, Hin helgu vé, Sódóma | Reykjavík, Veggíóður, Á köld- | um klaka og Tár úr steini. Sölusýning í dag, 24. febrúar, verður opn- j uð á vegum Sjálfsbjargar sölu- sýning á listaverkum í Ráðhúsi Reykjavíkur og stendur hún til 4. mars. Verkin eru gefin af ; listafólkinu og verður ágóðan- 1 um varið til uppbyggingar á ISólbakka við Vatnsenda. Stækkun Grundar- tanga Á aukafundi 1 stjórn íslenska jámblendifélagsins í Reykjavík í gær var rætt um stækkun verksmiðjunnar. Niðurstaðan var að stækkun væri arðvænleg en ekki þætti tímabært að ákveða hana. Allir segi af sér Sóknarnefnd Langholtssafn- aðar vill að allir deiluaðilar, nefndin sjálf, sóknarprestur og i organisti, segi af sér. Með öðr- | um hætti verði ekki hægt að 5 leysa deilurnar, sagði í fréttum IRÚV. Þýsk-íslenska selt Ómar Kristjánsson, aðaleig- andi Þýsk-íslenska, hefur selt Bílanausti fyrirtækið, sagði í fréttum RÚV. Ekki vanhæfir Félagsmálaráðherra telur ~ ekki að kennarar og skólastjór- í ar verði vanhæfir til setu í Isveitarstjórnum eftir 1. ágúst þegar grunnskólinn færist til sveitarfélaga, sagði í fréttum RÚV. Annar ekki farþega- fjölda Flugstöð Leifs Eiríkssonar 1 annar ekki með góðu móti þeim farþegaijölda sem um hana mun fara á mestu álagstímum “ næsta sumar. Gert er ráð fýrir í að farþegar verði meira en ein ? milljón á árinu í fyrsta sinn, ’ sagði í fréttum RÚV. -ÞK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.