Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1996, Blaðsíða 34
42 tónlist
LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 1996 DV
I : ' " 'S: r?
i & ;;
-
Topplag
Topplagið, Sick and Tired, á
hljómsveitin The Cardigans
þriðju vikuna í röð. Hljómsveit-
ina skipa fimm ungir Svíar sem
sent hafa frá sér tvær plötur í
fullri lengd. Lagið sem trónir á
íslenska listanum er af plötunni
Life. The Cardigans kom til
landsins í gær og ætlar að halda
tónleika bæði í Reykjavík og á
Akureyri.
Hástökkið
Hæsta nýja lag síðustu viku
fer hratt upp listann og er há-
stökk þessarar viku. Það stekk-
ur hvorki meira né minna upp
úr 40. sæti í það 18. Það er hljóm-
sveitin Seven Mary Three með
lagið Cumbersome.
Hæsta
nýja lagið
Það er ekki oft að nýtt lag á
íslenska listanum komi svona
hátt inn á sinni fyrstu viku, alla
leið í 8. sætið. Það er hljómsveit-
in Take That með lagið How
Deep Is Your Love sem afrekar
þetta. Næstu vikur hlýtur lagið
óhjákvæmilega að gera atlögu
að toppsætinu.
Eru þær hættar?
Fréttir hafa borist af því að
hljómsveitin Sugar sé búin að
leggja upp laupana en útgáfufyr-
irtæki sveitarinnar hefur ekki
fengist til að staðfesta fréttirn-
ar. Þá hafa sögusagnir verið á
kreiki í Bretlandi að undan-
fórnu um að hollenska dans-
hljómsveitin 2 Unlimited sé að
hætta en þær fregnir hafa sömu-
leiðis ekki fengist staðfestar. Og
RCA hljómplötufyrirtækið
sendi á dögunum frá sér yfirlýs-
ingu, um að allar fregnir um að
Take That væri að hætta væru
bull.
Ice Cube
borgar ekki
Rapparar eru að verða jafn
tíðir gestir í réttarsölum vestan-
hafs og á vinsældalistum. Ice
Cube er nú kominn enn eina
ferðina í málaferli og að þessu
sinni er það hljómsveitin hans
sem dregur hann þangað en liðs-
menn hennar segjast aldrei hafa
fengið grænan eyri borgaðan
fyrir lagið „Wicked“ sem rapp-
arinn gaf út fyrir nokkrum
misserum. Ekki er beint um
stórupphæðir að ræða í þessu
samhengi eða litlar 7,5 milljón-
ir króna.
í boði á Bylgjunni á laugardag kl. 16.00
ÍSLENSKI LISTINN NR. 158
vikuna 24.2. - 1.3. '96
Uj SÍÐASTA VIKA FYRIR 2 VIKUM VIKUR Á LISTANUM 1 :W 4®
1 1 1 5 SICK AND TIRED 3 l/IfCA MR CARDIGANS
2 3 3 6 1979 SMASHING PUMKINS
(3 7 11 5 SPACEMAN BABYLON ZOO
4 2 2 6 ONEOFUS JOAN OSBORNE
5 4 7 4 DON'T LOOK BACK IN ANGER OASIS
6 11 15 5 CACION DEL MARIACHI LOS LOBOS & ANTONIO BANDERAS
7 17 22 4 LET ME LIVE QUEEN
NÝTTÁ LISTA ...
Cs) N Ý 1 HOW DEEP IS YOUR LOVE TAKETHAT
9 g 9 6 TIME HOOTIE & THE BLOWFISH
10 1 PEACHES THE PRESIDENTS OF THE USA
11 5 6 5 DON'T CRY SEAL
12 8 12 4 MINNING VALGERÐUR GUÐNADÓTTIR
13 15 39 3 HAPPY SAD PIZZICATO FIVE
(14) 19 26 3 GOT MY SELF TOGETHER BUCKETHEADS
15 10 10 8 I THINK OF ANGELS KK 8i ELLEN KRISTJÁNSDÓTTIR
16 1 TWIGGY TWIGGY PIZZICATO FIVE
17 6 5 8 DISCO 2000 PULP
18 40 2 CUMBERSOME SEVEN MARY THREE
19 12 4 10 EARTH SONG MICHAEL JACKSON
(20 ‘ fiaTSj 1 I WILL SURVIVE DIANA ROSS
21 27 - 2 HOOK BLUES TRAVELER
22 fUjJp 1 OPEN ARMS * MARIAH CAREY
23 l 14 l 10 FATHER AND SON BOYZONE
24 1 GLYCERINE BUSH
25 23 30 3 SITTIN' UP IN MY ROOM BRANDY
26 18 20 6 WONDERWALL MIKE FLOWERS POPS
27 26 36 3 NEVER NEVER LOVE SIMPLY RED
(28) 29 28 10 GOOD INTENTION TOAD THE WET SPROCKET
29 13 8 4 QUEER GARBAGE
30 1 IRONIC ALANIS MORISSETTE
31 30 40 3 DON'T HIDE YOUR LOVE REMBRANTS
Ö2) 20 18 12 EYES OF BLUE PAULCARRACK
33 1 BURNING DOWN THE HOUSE BONNIE RAITT
34 16 17 3 IF YOU WANNA PARTY MOLELLA & OUTHERE BROTHERS
OD 36 - 2 LIVING ON A DREAM RIGHT SAID FRED
NÝTT 1 FOLLOW YOU DOWN GIN BLOSSOMS
37 34 34 3 WORLD I KNOW COLLECTIVE SOUL
38 22 24 5 SOMETHIN' STUPID ALI CAMPBELL
39 38 _ 2 LET IT FLOW TONI BRAXTON
40 33 - 2 LET'S PUSH IT NIGHTCRAWLERS
Fækkar
í Cypress Hill
Útgáfufyrirtæki rappsveitar-
innar Cypress Hill hefur tilkynnt
að rapparinn Sen Dog sé hættur
í hljómsveitinni. Ekki er ljóst
hvaða áhrif þetta hefur á framtíð
sveitarinnar en hún er þessa dag-
ana á tónleikaferð um Bandarík-
in. Sen Dog þarf ekki að kvíða at-
vinnuleysi því hann hefur þegar
tilkynnt um stofnun funk-rokk
sveitarinnarDogwood sem hann
mun veita forstöðu.
2 Non Blondes
Linda Perry, fyrrum forsþ-
rakki og söngkona í 4 Non
Blondes, er að koma fram á sjón-
arsviðið aftur eftir að hún hætti
skyndilega í 4 Non Blondes í
fyrra. Að sögn Lindu er hún langt
komin með að vinna sólóplötu
sem mun vera á allt öðrum nót-
um en það sem 4 Non Blondes var
að gera á sínum tíma. Og meðal
þeirra sem koma fram á plötunni
með Lindu er engin önnur en
gamla sýrudrottningin Grace
Slick sem gerði garðinn frægan
með Jefferson Airplain hér á
árum áður og síðar með hljóm-
sveitinni Starship.
Fela Kuti
úr haldi
Við sögðum frá því í síðustu
viku að nígeríski tónlistarmaður-
inn og manpréttindamaðurinn
Fela Kuti hefði verið handtekinn
í heimalandi sínu og óttuðust,
menn hið versta enda herforingj-
arnir sem stjórna landinu'engin
lömb að leika sér við. Fréttir hafa
nú borist um að Kuti hafi verið
sleppt úr haldi en yfirvöld hafa
tilkynnt að hann megi eiga von á
vægum dómi vegna eiturlyfja-
misferlis.
Plötufráttir
Hljómsveitin Counting
Crows, sem sló svo eftirminni-
lega í gegn fyrir tveimur árum
eða svo, er nú loks að leggja
lokahönd á nýja plötu sem þá er
önnur plata sveitarinnar. Sveit-
in er þó ekkert að flýta sér að
koma henni á markað því stefnt
er að útgáfu í ágúst... Önnur
stórsveit er líka á bólakafi í
hljóðversvinnu þessa dagana en
það er Pearl Jam og standa von-
ir til þess að ný plata frá sveit-
inni komi út seint á þessu ári.
-SþS-
Kynnir: Jón Axel Ólafsson
Islenski listinn er samvinnuverkefni Bylgjunnar, DVog Coca-Cola á Islandi. Listinn er niðurstaða skoðanakönnunar sem er framkvæmd af markaðsdeild DV i hverri viku.
Fjöldi svarenda er á bilinu 300 til 400, á aldrinum 14 til 35 ára aföllu landinu. Jafnframt er tekið mið afspilun þeirra á islenskum útvarpsstöðvum. Islenski listinn birtist
á hverjum laugardegi i DV og er frumfluttur á Bylgjunni kl. 14.00 'á sunnudögum i sumar. Listinn er birtur, að hluta, i textavarpi MTV sjónvarpsstöðvarinnar. Islenski
listinn tekur þátt í vali "World Chart" sem framleiddur er af Radio Express i Los Angeles. Einnig hefur hann áhrif á Evrópulistann sem birtur er i tónlistarblaðinu Music
& Media sem er rekið af bandaríska tónlistarblaðinu Billboard.
Yfirumsjón með skoðanakönnun: Hrafnhildur Kristjánsdóttir - Framkvæmd könnunar: Markaðsdeild DV - Tölvuvinnsia: Dódó - Handrit: Sigurður Helqi
Hlöðversson, Ágúst Héðinsson og Ivar Guðmundsson - Tæknistjórn og framleiðsla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn Steinsson - Útsendingastjórn: Halldór Backman
og Jóhann Garðar Ólafsson - Yfirumsjón með framleiðslu: Ágúst Héðinsson - Kynnir: Jón Axel Ólafsson
wmmám