Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1996, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1996, Blaðsíða 37
LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 1996 45 Kasparov reyndist ofjarl tölvunnar Einvígi Kasparovs við tölvuna Dimmblá í Philadelfíu vakti miMa athygli langt út fyrir raðir skáká- hugamanna, enda kemur raunveru- legt inntak einvígisins öllum við, þ.e. hversu öflug er tölvan orðin í að líkja eftir mannlegri hugsun? Skáklistin hefur löngum verið tölvuáhugamönnum hugstæð sem haft hafa áhuga á gervigreind. í eöli sinu er skákin einfóld, takmarkast af 64 reitum og 32 taflmönnum. Samt eru möguleikamir nánast óendanlega margir. í enskri bók er frá því greint aö mögulegar mis- munandi skákir, fjörutíu leikir eða færri, séu 25 x 10 í 115. veldi. Þetta er svimandi há tala; talsvert hærri en sekúndufjöldinn sem liðinn er frá því jörðin varð til og hærri en áætlaður fjöldi rafeinda í himin- geimnum (talinn vera nálægt 10 í 79. veldi). Þegar tölvan er orðin sterkari en fremstu skákmeistarar heims hefur tölvutæknin því unnið mikilvægan sigur. Umsjón Jón L. Árnason Framfarir tölvuforritanna hafi verið miklar síðan fyrsta tölvuskák- mótið var haldið, árið 1970. Sem dæmi má nefna að eitt forritanna á mótinu, Marsland að nafni, hafði þann veikleika að valiö milli besta og versta leiksins að þess dómi réðst nánast af tilviljun. Nú eru for- ritin orðin býsna öflug, eins og margir eigendur PC-tölva eru til vitnis um. Því mátti búast við spennandi keppni milli Kasparovs og IBM-tölvunnar Dimmlár sem get- ur reiknað út 50 miiljarða mögu- leika á þremur mínútum. En þessir gríðarlegu reiknihæfi- leikar gagnast lítt ef stöðumatið er ekki í lagi. Þetta er hinn veiki blett- ur tölvuforritanna því að hvemig sem reynt er að fóðra þær á skyn- sömum leiðum til að meta taflstöður verður aldrei hægt að búa til algild- ar reglur. Skákin er einu sinni þannig að í ákveðnni stöðu geta tví- peð verið sterk, sem að öðru jöfnu eru ekki eftirsóknarverð, eða ridd- ari sterkari en biskup. Ekki þarf heldur að minnast á þau mörgu dæmi þegar tölvan seilist eftir peði á kostnað stöðunnar án þess að geta reiknað út afleiðingamar. Dimmblá vann fyrstu skákina gegn Kasparov og tefldi hana nokk- uð vel. Kasparov jafnaði metin eftir langt og strangt endatafl og tveimur næstu skákum lauk með jafhtefli. Kasparov var greinilega brugðið við þessa óvæntu mótspymu en um leið virtist hann hafa áttað sig á veik- leikum tölvunnar. í tveimur síðustu skákum einvígisins komu fram til- tölulega einfaldar stöður sem reynd- ust tölvunni ofviða - mannlegt inn- sæi skorti. Grípum niður í síðustu skákir einvigisins þar sem veikleikar tölv- unnar komu sem gleggst í ljós. í 5. einvígisskákinni var þessi staða á borðinu eftir 23 leiki. Dimmblá hafði hvítt og átti leik: Staðan er í jafnvægi en bmgðið getur til beggja vona. Kasparov bauð jafntefli er hér var komið sögu en forráðamenn tölvunnar höfnuðu boðinu. Þess má geta að á venjulegri heimilistölvu kýs forritið Fritz 4 svörtu stöðuna en metur taflið þó því sem næst jafnt. 24. Dc3 Dimmblá vann fyrstu skákina gegn Kasparov og tefldi hana nokkuð vel. Fritz 4 kýs einnig þennan leik en trúlega er 24. De3 betra. Hvítur þarf ekki að óttast 24. De3 Bg4 25. Rc2. 24. - f5 25. Hdl Be6 26. De3? Nú fer tölvan að tefla ráðleysis- lega. Eftir 26. Hd2 Hc8 (ekki 26. - f4?? 27. Rxe6 og hótar máti) 27. Db2 f4 28. Rxe6 Dxe6 29. Hcl ætti að vera unnt að halda jöfhu. 26. - Bf7 27. Dc3 f4 28. Hd2 Df6 29. g3 Hvítim er kominn í miklar ógöng- ur - í fáum leikjum hefur taflið breyst svörtmn í hag. Leppun ridd- arans er banvæn. 29. - Hd5 30. a3 Kh7 31. Kg2 De5 32. f3 Eða 32. gxf4 Dxf4 33. De3 Hg5+ 34. Khl Dg4 35. Dg3 e3! og biskupinn skerst i leikinn. 32. - e3 33. Hd3 e2 34. gxf4 el=D 35. £xe5 Dxc3 36. Hxc3 Hxd4 - Og Kasparov vann auöveldlega. í sjöttu skákinni átti Dimmblá slæman kafla í byrjun miðtaflsins en missti svo algjörlega fótfestu. Tölvan hafði svart og átti leik í þess- ari stöðu: X ** á i m iii fe i A A A A A ÉL B 1 ia*a ABCDEFGH Svartur á lakara tafl en staðan er traust. Vel mætti hugsa sér áætlun á borð við þá að flytja biskupinn til f6, setja kóngshrókinn á d8 og skipta upp á c4. En Dimmblá missir þráð- inn: 17. - Bb4? 18. He3 Hfd8 19. h4 Rge7? 20. a3 Ba5? 21. b4 Bc7 22. c5 Eins og í fimmtu skákinni hefur tölvan kastað dýrmætum leikjum á glæ. 22. - He8 23. Dd3 g6 24. He2 Rf5 25. Bc3 h5 26. b5 Rce7 27. Bd2 Kg7 28. a4 Ha8 29. a5 a6 30. b6 Bb8?? Hér brestur stöðumatið gjörsam- lega. Tölvan metur yfirráðin yfir e5 meira en innilokun hróksins á a8. Auðvitað var 30. - Bd8 þvingað. 31. Bc2 Rc6 32. Ba4 He7 33. Bc3 Re5? Annar afleitur leikur, sem bygg- ist á röngu stöðumati. Fróðlegt hefði verið að sjá hvemig Kasparov hefði unnið úr stöðuyfirburðum sín- um eftir t.d. 33. - Dc8. 34. dxe5 Dxa4 35. Rd4 Rxd4 36. Dxd4 Dd7 Ekki 36. - Dxd4 37. Bxd4 og síðan 38. Hb2 og 39. c6 og vinnur. Takið eftir aö nú er biskupinn á b8 graf- inn lifandi og með honum hrókur- inn á a8. Ekki þarf að spyrja að leikslokum. 37. Bd2 He8 38. Bg5 Hc8 39. Bf6+ Kh7 40. c6! bxc6 41. Dc5 Kh6 42. Hb2 Db7 43. Hb4 Og stjómendur Dimmblár kusu að leggja niður vopn. Svartur getur sig hvergi hrært en hvítur fær valið úr vinningsleiðum. Áfram gæti t.d. teflst 43. - Kh7 44. De7 Dxe7 45. Bxe7 He8 46. b7 Ha7 47. Bc5 og síðan 48. Hcbl, 49. Bxa7 og 50. b8=D. -JLÁ Cll þú mætir aldrei of seint í skólann! auka starfsréttindi þín og starfsframa? í dag er dagur símenntunar. Frá kl. 13-17 er opið nús í 50 skólum og öðrum fræðslustofnunum um land allt. Þér er boðið að taka þátt í tuttugu mínútna námskeiðum, allt frá beinaskurði til stjörnufræðiforrita. Boðið er upp á veitingar, gestaþraut, happdrætti o.m.fl. - Tekið verður vel á móti börnunum. Það er aldrei of seint að læra eitthvað nýtt og auka við menntun sína. Menntun er eina fjárfestingin sem aldrei verður frá þér tekin! Þér standa opnar dyr á eftirtöldum stöðum: Bankamannaskólinn-fræðslumiðstöð bankamanna, Snorrabraut 29 Bréfaskólinn, Hlemmur S Búnaðarbanki íslands- Fjármálanámskeið, Tryggvagata 24 Farskóli Þingeyinga, Framhaldsskólarnir á Húsavik og Laugum Ferðamálaskóli Íslands, Höfðabakki 9 _________ Félags- og fræðslumiðstöð iðnaðarins, Hallveigarstigur I Félag islenskra gullsmiða Félag meistara og sveina í fataiðn Félag pípulagningarmeistara i Reykjavik Fræðsluráð byggingariðnaðarins Fræðsluráð málmiðnaðarins Hárgreiðslumeistarafélag íslands Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík Landssamband bakarameistara Ljósmyndarafélag íslands Prenttæknistofnun Samband íslenskra tannsmiðameistara Samstarfsnefnd atvinnulifs og skóla Úrsmiðafélag íslands Félagsmálaskóli UHFÍ, Fellsmúli 26, Hreyfdshúsið Fjölbrautarskólinn við Ármúla, Ármúli 12 Fjölbrautaskóli Suðurlands/Farskóli Suðurlands, Selfoss Framhaldsskóli Vestfjarða / Farskóli Vestfjarða, Torfnesi, ísafjörður Framhaldsskólinn i Vestmannaeyjum, Vestmannaeyjar Fræðslumiðstöð í fíknivörnum, Grensásvegur 16 Fullorðinsfræðslan, Gerðuberg I Háskólinn á Akureyri, Oddfellow-húsið v/Sjafnarstíg, Akureyri Heimilisiðnaðarskóíinn, Laufásvegur 2 Hvammshlíðarskóli: Fullorðinsfræðsla fatlaðra á Akureyri, Hvammshlíð 6 Iðntæknistofnun - fræðslusvið, Keldnaholt Kvöldskóli Kópavogs, Snælandsskóti v/Furugrund Leiklistarstúdíó Eddu Björgvins og Gísla Rúnars, Aðalstræti 6 Menntaskólinn við Hamrahlíð - Oldungadeild, Hamrahlið Hyndlistaskólinn í Reykjavík, Tryggvagata 15 Námsflokkar Reykjavíkur, Hiðbæjarskólinn, Frikirkjuvegur I Prenttæknistofnun, Hallveigarstígur I Slysavarnaskóli sjómanna: Skólaskipið Sæbjörg v/Grófarbryggju í Reykjavíkurhöfn Starfsþjálfun fatlaðra, Hátún 10 d Stjórntækniskóli Islands, Höfðabakki 9 Stjórnunarfélag íslands, Ánanaustum 15 Stjórnunarskólinn, Sogavegur 69 Tölvu- og verkfræðíþjónustan, Grensásvegur ló Tölvuskóli íslands, Höfðabakki 9 Tölvuskóli Reykjavíkur, Borgartún 28 Verkmenntaskólinn á Akureyri Viðskipta- og tölvuskólinn, Ánanaust 15 Vitund hf., Laugavegur 47 Vimulaus æska, Grensásvegur 16 Ökuskólinn í Hjódd, Þarabakki 3 Rannsóknaþjónusta Háskólans Evrópskt ár simenntunar 1996 Lífið er rétti tíminn til aö læra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.