Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1996, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1996, Blaðsíða 36
44 Kþróttir LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 1996 Töframaðurinn Earvin Magic Johnson er byrjaður aftur: Sannfærður um sigur í baráttunni við alnæmið Hann er 36 ára gamall og hefur ekki spilaö alvöru körfubolta í fimm ár. Hann hefur reynt fyrir sér sem þjálfari og sem stjórnarmaður, er 15 kílóum of þungur, lyftist varla frá jörðu þegar hann reynir langskot - og er með alnæmisveiruna í blóð- inu. Samt ætlar allt að ganga af göfl- unum í Los Angeles. Virðulegir borgarar bíða klukkustundum sam- an fyrir utan Forum-höllina, heimavöll LA Lakers, bara til að sjá honum bregða fyrir. Sumir þeirra eru forstjórar sem hafa lokað skrif- stofum sínum í tilefni dagsins. Kvikmyndastjörnur fljúga yfir þver Bandaríkin til að verða vitni að þessum mikla viðburði. Sumar þeirra fá ekki einu sinni miða. Stóru tímaritin, Time og News- week, láta taka af honum forsíðu- myndir. Dagblöðin birta fréttir af honum á forsíðum sínum, fyrir ofan blaðhausinn. Bandaríska körfu- knattleikssambandið íhugar að velja hann í ólympíuliðið 1996. í Forum er löngu orðið troðfullt af áhorfendum og fréttamönnum. Virtir íþróttafréttamenn húka uppi í rjáfri með tölvur sínar og skrifa af miklum móð. Og svo skorar snillingurinn sína fyrstu körfu. Hann fær sendingu frá félaga sínum, Cedric Ceballos, nálg- ast hringinn rólega frá hægri og lyftir boltanum í gegnum hann. Ekkert sérstakt við þetta, svona gera menn á hverjum degi. En For- um leikur á reiðiskjálfi, miðpunkt- ur athyglinnar er baðaður skærum ljósum kastaranna og fréttamenn- irnir punkta hjá sér í grið og erg. En það eru enn 15 mínútur þang- að til leikurinn byrjar og þetta er bara upphitunin! Já, þetta er Earvin (Magic) John- son og það er greinilegt að hann er ekki einhver venjulegur körfubolta- maður. Aldrei getað hætt Fyrir fimm árum fór líka allt á hvolf út af þessum manni. Þá upp- götvaðist alnæmisveiran í blóði hans. Hann vildi halda áfram að spila körfubolta ári siðar en þegar andstæðingarnir lýstu sumir hverj- ir yfir ótta sínum við smit 1 átökun- um undir körfunni ákvað Magic að hætta alveg sem atvinnumaður. Hann hefur hinsvegar aldrei get- að slitið sig frá íþróttinni. Magic spilaði með bandaríska landsliðinu á ólympíuleikunum í Barcelona 1992 og þá flykktust frægustu íþróttamenn heims að honum til að fá eiginhandaráritun. Hann stjórn- aði liöi Lakers í 16 leikjum árið 1994 en hætti þegar hann komst að raun um að sigurvilji leikmannanna jafn- aðist ekki á við hans eigin. Magic hefur ferðast um heiminn með sitt eigið stjörnulið og spilað sýningarleiki. Þegar loksins kom að því að liðið tapaði leik var hann ekki sáttur, leysti liðið upp og stofn- aöi nýtt. Æfingar í UCLA Á sumrin hefur Magic ætíð hald- ið sér í formi með því að leika sér i körfubolta í sal UCLA-háskólans. Með honum hafa spilað þekktir og óþekktir körfuboltamenn og hann hefur ráðið ferðinni, stjórnað leikj- um hinna eldri gegn þeim yngri. í sumar bar svo við að vegna launa- deilna í NBA-deOdinni mátti hann ekki spila með leikmönnum þaðan. Hann var meðeigandi í Lakers og reglur deildarinnar bönnuðu hon- um að umgangast leikmennina á meðan deilan stóð yfir. Magic fór að mæta klukkan níu á morgnana til að hlíta reglunum. En það spurðist fljótt út. Fyrsta morg- uninn mættu tveir NBA-leikmenn með honum, þann næsta voru þeir orðnir tólf. Hann hringdi á skrif- stofu deildarinnar og spurði hvað í ósköpunum hann ætti aö gera. „Ég er ekki áð umgangast þá, þeir eru að umgangast mig,“ sagði hann. Daginn eftir mættu Hakeem Ola- juwon og Reggie Miller, og flestir leikmanna LA Lakers og LA Clipp- ers klukkan níu um morguninn, og einir eitt hundrað áhorfendur! Baráttan við alnæmi enn ein áskorunin Magic er mikill keppnismaður og þannig hefur hann mætt sjúkdómn- um ógurlega sem yfir honum vofir. „Þetta er eins og stórleikur, úrslita- keppni. Enn ein áskorunin. Ég vil alltaf koma fólki á óvart og sigrast á því ómögulega. Það var sagt við mig að ég væri of stór til að leika sem bakvörður. Það var sagt við mig að ég kynni ekki að skjóta. Mitt svar var alltaf: Jæja, ég skal sýna þér. Þetta er bara enn eitt dæmið,“ segir Magic. Sannfærður um að hann sigrist á veirunni Hann kennir sér einskis meins, en hve lengi endist það? David Ho, læknir hjá Aaron Diamond stofnun- inni sem sérhæfir sig í rannsóknum á alnæmi, segir að mesta óvissan sé fólgin í því hvenær Magic hafi smit- ast. „Við köllum þetta „núllið.“ Hafi núllið verið nokkrum mánuðum áður en ljóst var að hann væri með veiruna, er ekkert óeðlilegt við Magic. Margir eru einkennalausir eftir fimm ár og meðaltíminn án einkenna er tíu ár. Hafi núllið hins- vegar verið fyrir 15 árum, erum við að upplifa merkilegan hlut. Sem stendur er veiran ekki til vandræða vegna lyfjameðferðar, lífernis hans og hugarfars. Hann er sannfærður um að hann sigrist á veirunni, og hver veit? Kannski tekst honum að halda út þangað til nægilega góð lækning finnst. Það eru til dæmi um að fólk lifi góðu lífi, án einkenna, 15 árum eftir smit. Núna getum við fullyrt að hann hefði aldrei þurft að hætta að spila körfubolta en það gat enginn sagt til um fyrir fimm árum. Earvin hefur undirtökin í barátt- unni sem stendur en enginn veit hve lengi það endist,“ segir David Ho. Vill deyja á vellinum Magic hefur leitt sjúkdóminn hjá sér eins og mögulegt er en hann hef- ur líka verið í fararbroddi í kynn- ingu á honum og forvarnarstarfi í Bandaríkjunum. Barátta hans hefur verið mörgum alnæmismituðum mikilvægt fordæmi. Hann segist ætla að verða allra karla elstur en að sjálfsögðu hefur hann líka gert ráð fyrir hinum möguleikanum. „Þegar stundin rennur upp mun ég biðja um körfubolta og að mér sé ekið inn á völlinn. Þar vil ég deyja,“ segir hann. „Hlustið ekki á kjaftasögur" Það er ekki langt síðan Magic sagði í viðtali: „Það eina sem ég sé eftir er að þriggja ára gamall sonur minn muni aldrei sjá mig í búningi Lakers." Og það var bara um miðj- an janúar sem hann sagði: „Nei, ég hef enga ástæðu til að byrja aftur. Líf mitt eins og best verður á kosið og því vil ég ekki breyta.“ Eftir að Magic sást skömmu síðar á æfingu hjá Lakers sagði umboðsmaður hans: „Hlustið ekki á kjaftasögur. Hann er bara að reyna að kveikja í leikmönnum Lakers. Hann er mjög sáttur við sjálfan sig. Hann byrjar aldrei aftur.“ Jú - töframaðurinn er byrjaður aftur. Hann er þungur á sér, er ekki í byrjunarliði Lakers, en töfrarnir. eru skammt undan. í þriðja leik sin- um var hann stigahæsti leikmaður Lakers, tók 7 fráköst og átti 6 stoðsendingar. Körfuboltahallirnar eru troðfullar hvar sem hann kem- ur. Það voru ákveðin tímamót í um- ræddum þriðja leik þegar einn mótherja hans var Karl Malone, maðurinn sem á sínum tíma átti mestan þátt í því að Magic hætti við að halda áfram að spila eftir að veir- an uppgötvaðist. Malone lýsti þá yfir áhyggjum sínum yfir því að verða fyrir smiti ef hann mætti Magic. Magic ber engan kala til Malones. „Hann sagði það sem hin- ir þorðu ekki að segja, og honum ber að hrósa fyrir það,“ segir Magic. í dag er viðhorfið annað hjá Malone og hann lýsti því yfir fyrir skömmu að ekkert væri að óttast. Það er tímanna tákn sem gefur til kynna að viðhorf fólks hafi breyst. Leikmenn NBA-deildarinnar hafa áttað sig á því að það eru meiri lík- ur á að markataflan í Forum-höll- inni hrynji yfir þá en að þeir smit- ist af alnæmi af Éarvin Magic John- son. -VS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.