Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1996, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1996, Blaðsíða 31
UV LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 1996 Kærur, upplausn og flokkadrættir innan þjóðkirkjunnar: fréttir - og nota orð eins og „skelfilegt" um ástandið í kirkjunni „Þetta er ósannur áburður," er það eina sem Ólafur Skúlason bisk- up hefur látið hafa eftir sér um ásakanir á hendur honum um kyn- ferðislega áreitni við tvær konur. í frásögn annarrar konunnar af mál- inu er talað um „tilraun til nauðg- unar“ og hefur siðanefnd Prestafé- lagsins haft greinargerð hennar á sínu borði undanfarna daga. Þetta eru alvarlegustu ásakanir sem komið hafa fram á hendur ís- lenskum biskupi á síðari tímum og hafa valdið þvilíku uppnámi innan kirkjunnar að prestar sem DV hefur rætt við nota orð eins og , áfall“ og „skelfilegt" um ástandið. Vísað til ríkissaksókn- ara Svo alvarlegt er ástandið að Ólaf- ur Skúlason bað á fimmtudags- kvöldið ríkissaksóknara um „opin- bera rannsókn á tilurð og sannleiks- gildi ásakana" á hendur honum um kynferðislega áreitni við tvær kon- ur. hendur biskupi ekki verið fyrir siðanefnd heldur kæra á hendur séra Vigfúsi Þór Árnasyni, sóknar- presti í Grafarvogi, fyrir að aðhafast ekkert þegar umrædd kona bað hann að ræða mál sitt við aðra presta. Sátt hefur náðst í þvi máli en samt heldur það áfram að veltast fyrir siðanefnd. Þeir prestar sem DV hefur rætt við eiga það sameiginlegt að vilja ekki nefna ásakanimar á hendur biskupi opinberlega. Þeim þykir nóg um deilur innan kirkjunnar á síðustu vikum og mánuðum og forð- ast að vera orðaðir við þær. „Ég get staðfest að verið er að fjalla um mál á hendur þjónandi presti á þeim tíma,“ var það eina sem séra Geir Waage, formaður Prestafélagsins, vildi segja um ásak- anirnar á hendur biskupi þegar DV ræddi við hann. Flokkadrættir í hópi presta Flokkadrættir eru hins vegar Innlent fréttaljós Gísli Kristjánsson „Biskup getur ekki lengur beitt sér í nokkru máli,“ sagði prestur í samtal við DV. Hann kaus, eins og fleiri, að fara huldu höfði og láta ekki bendla sig við deilumar sem nú era uppi. Það dylst hins vegar engum að biskup stendur illa að vígi. Alla biskupstíð Ólafs Skúlasonar hefur verið sótt að honum og nú hefur hann orðið fyrir versta áfallinu á ferlinum. Hvort sem sökum er logið upp á biskup eða ekki situr hann undir þungum áburði. Á undanfórnum mánuðum hefur biskup orðið að takast á ,við mörg erfið deilumál. Ber þar hæst deilur Jóns Stefánssonar, organista við Langholtskirkju, og séra Flóka Kristinssonar, prests þar. Mikið vantar á að lausn hafi fundist á þyi Alla tíð Ólafs Skúlasonar í embætti biskups hefur staðið styr um verk hans. Hann hefur átt sér mótstöðumenn í hópi presta og deilt við þá vegna umdeildra ákvarðana. Nú hefur það hins vegar gerst í fyrsta sinn í sögunni að klögumál á hendur biskupi vegna meintra kynferðisbrota eru bæði fyrir siðanefnd Prestafélagsins og á borði ríkissaksóknara. DV-mynd JAK Beðið hefur verið viðbragða bisk- ups allt frá því að DV greindi fyrst frá því á fimmtudaginn í síðustu viku að siðanefnd hefði til meðferð- ar kæru þar sem aðalatriðið væri ásakanirnar á hendur honum. Bisk- up sagðist ætla að gefa út yfirlýs- ingu um málið og hann brá á það ráð að vísa því til ríkissaksóknara. Formlega hafa ásakanirnar á miklir og skiptast menn í andstæð- inga og fylgismenn biskups; þá sem halda að hann hafi ekki hreinan skjöld og þá sem telja að ásakanir um kynferðisbrot eigi sér uppruna í Langholtskirkju og komi fram nú til þess eins að gera biskup óvígan í því máli. Þar bíður biskups að kveða upp úrskurð i deilum org- anista og prests. máli þótt beðið sé úrskurðar bisk- ups. Honum er m.a. hótað kæru ef hann dæmir presti í óhag. Skammt er og síðan háværar deil- ur voru i Keflavíkursöfnuði um byggingu safnaðarheimilis þar sem meirihluti sóknarbarna neitaði að una úrskurði biskups. Litlu lengra er síðan allt fór í háaloft í Hvera- gerði vegna þess að biskup skipaði séra Jón Ragnarsson í embætti prests þar án þess að auglýsa stöð- una. Það reyndist þó löglegt og ákvörðun biskups stóð. Áður höfðu risið ekki síður lands- frægar deilur á Seltjarnarnesi vegna mála séra Solveigar Láru Guðmundsdóttur og séra Gylfa Jónssonar. Biskup þótti tvístígandi i því máli eins og raunar fleirum sem komið hafa upp innan kirkj- unnar. Öflugir andstæðingar Vitað er að margir prestar hafa aldrei sætt sig við Ólaf Skúlason sem biskup. Kjör hans olli flokka- dráttum meðal presta og andstæð- ingar hans þá - menn eins og séra Sigurður Sigurðarson vígslubiskup og séra Geir Waage, formaður Prestafélagsins, - hafa leynt og ljóst birst i hópi þeirra sem eru ósáttir við Ólaf. Því er raunar haldið fram að deil- umar í kirkjunni séu flóknari en svo að hægt sé að rekja þær til bisk- upskjörsins á sínum tíma. Sumir vilja rekja deilurnar enn lengra aft- ur og því er bæði haldið fram að þær eigi sér trúarlegar og persónu- legar rætur. Það er hins vegar spuming hvort einhverju skiptir hve langt rætur deilnanna eru raktar aftur til að varpa ljósi á vanda biskups nú. Hann er sakaður um „tilraun til nauðgunar“. Stuðningsmenn bisk- ups halda margir því fram að sá áburður sé angi af Langholtskirkju- deilum. Málið komi fram einmitt nú þegar verst stendur á hjá biskupi í þeirri deilu. Aðeins einn snertiflötur Þetta er hins vegar ósannað mál. DV hefur heimildir fyrir því að ásakanimar á hendur biskupi teng- ist Langholtskirkjudeilunni aðeins á einn hátt. Sigrún Pálína Ingvars- dóttir, sem ber sakirnar á biskup, kærði séra Vigfús Þór-til siðanefnd- ar Prestafélagsins fyrir aðgerðaleysi í máli hennar þegar hann lýsti full- um stuðningi við biskup í Lang- holtsdeilunni um miðjan janúar. Þá þóttist hún sjá að ekkert yrði úr að séra Vigfús tæki upp mál hennar gagnvart biskupi. Ásakanir Sigrúnar varða meint kynferðislegt brot hans gagnvart henni fyrir 17 árum og engin leið er að sjá hvernig það tengist áratuga löngum deilum innan kirkjunnar um trú eða persónur. Á borði siðanefndar er mál sem varðar meint brot biskups gegn Sig- rúnu Pálínu. Sá áburður er nú einn- ig kominn til rannsóknar hjá ríkis- saksóknara. Sigrún Pálína segir að Ólafur Skúlason hafi reynt að nauðga sér meðan hann var prestur í Bústaðasókn og hún sóknarbarn hans. Biskup segir að það sé „ósann- ur áburöur". Málið stendur því orð gegn orði og það er nú höfuðverkur siðanefnd- armanna og saksóknara að finna út hvað er satt og hvað logið. -GK Matseðill Fonrétiun N Kóngasveppasúpa Aðalréttur: Eldsteiktur lambavöðvi með gljáðu grænmeti, ofnsteiktum jarðeplum og sólberjasósu. Eftinréttur: A Ferskjuís í brauðkörfu með heitri^r karamellusósu. 8 ðti^remes Söngvaran Björgvin Halldórsson Pálmi Gunnarsson Ari Jónsson Bjami Arason Söngsystur. Dansarar Kynnir: Þorgeir Ástvaldsson. Handrit, útlit og lcikstjórn: Björn G. Björnsson. Verð krónur 4.800, Sýningarverð kr. 2.200,- Næstu sýningar: 24. febrúar mars: 2., 9., 15., 25. og 30. apríl: 13., 20. og 27. ATH: Enginn aðgangseyrir á dansleik! í Ásbyrgi laugardaginn 24. febrúar , BÍTLAVINAFÉLAGIÐ Leikurlýrir dansi ellir sýninguna Vinsamlegast hafið samband, sími: 568-7111. Sértilboð á hólelgistingu, sími 568 8999 Salir, með og án veitinga við öll tækifæri!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.