Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1996, Blaðsíða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1996, Blaðsíða 56
FRÉTTAS KOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Frjálst,óháð dagblað LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 1996 Ofanflóðasjóð- ur samþykkir húsakaupí _ Hnífsdal Ofanflóðasjóður samþykkti í gær að styrkja ísafjarðarkaupstað til kaupa á húsum á snjóflóðahættu- svæðum í Hnífsdal á staðgreiðslu- markaðsverði. „Sveitarfélagið hyggst bjóða við- komandi eigendum staðgreiðslu- markaðsverð. Það er ásættanlegt, að mati Ofanflóðasjóðs," segir Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri í um- hverfisráðuneytinu. „Ég er langt frá því að vera sátt- ur. Ef þetta verð stendur, sem mér var gefið upp, þá vantar mig eina og hálfa til tvær milljónir til að geta keyþt sambærilegt hús,“ segir Hjörtur Ágúst Helgason, húsasmíða- -meistari í Hnífsdal, í samtali við DV. Hann býr með fjölskyldu sinni að Fitjateig 5. Húsið er á hættu- svæði vegna snjóflóða. 1 fyrravetur mátti fjölskyldan ekki búa í húsinu í þrjá mánuði vegna snjóflóðahætt- unnar. Alls eru það um 20 íbúðir í Hnífs- dal sem eru á hættusvæði. -IBS Sjópróf Dagfara GK: Vildum í ' heimahöfn - segir skipstjórinn „Útgerðarstjóri skipsins hafði samband við mig og það hafði áhrif á þá ákvörðun að freista þess að koma aflanum í heimahöfn í Sand- gerði. Það var ekki mjög slæmt í sjó- inn þegar við komum fyrir Reykja- nesið og við ætluðum að reyna að komast inn áður en versta veðrið skylli á,“ sagði Guðmundur Garð- arsson, skipstjóri á Dagfara GK 70, en sjópróf fóru fram hjá sýslumann- sembættinu í Keflavík í gær vegna brotsins sem Dagfari fékk á sfg i vikunni og eyðilagði öll tæki í brú. * Guðmundur taldi að áhöfnin hefði verið í nokkurri hættu. Einn skipverji fékk á sig mikið högg, missti meðvitund og í ljós hefur komið að einn hálsliður er brotinn. Njörður hf. fór fram á þáð við tryggingafélag sitt, Tryggingu hf., að sjópróf færu fram. Málið verður sent ríkissaksóknara og mun hann taka endanlega ákvörðun um niður- stöðu málsins. -ÆMK/-sv Árekstrar í rokinu Eitthvað virðist rokið hafa farið illa í ökumenn í Reykjavík í gær því 20 árekstrar voru tilkynntir til lög- reglu frá því kl. 10 og fram að kvöld- ■A->*mat. Þykir íjöldinn heldur í hærri kantinum. -sv Birgir Þórðarson hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands: Salmonella i gras- bítum um allt land - ekkert nema aukið hreinlæti getur útrýmt salmonellu „Því miður er það orðið aOt of algengt að salmonella fínnist í grasbítum, hestum, kúm og kind- um og hún fínnst orðið um næst- um allt land. Það eina sem hægt er að gera til að útrýma salmon- ellu er að auka hreinlæti. Að skolpræsi séu lengd út fyrir stór- straumsfjöru og að loka sorp- haugum. Sem betur fer eru bænd- ur orðnir meðvitaðir um þá hættu sem markaðir þeirra eru í, sem og heilsa manna, ef ekki tekst að útrýma salmonellunni," sagði Birgir Þórðarson, hjá heil- brigðiseftirliti Suðurlands. Hann hefur manna mest fengist við þennan vágest, salmonellu í mat- vælum. Fram á allra síðustu misseri hafa menn talið að salmonellu væri aðeins að finna í eggjum og kjúklingum en það er ekki rétt. Hún hefur borist með sjófugli, sem hefur lifað á sorphaugum og úrgangi skolpræsa, um nær allt land. Salmonellan berst með fugl- inum á tún og engi, í vatnsból dýra og í lóðnubræðslurnar. Dæmi eru um að salmonella hafi fundist í fiskimjöli sem notað er í fóðurbæti. Birgir segir að á til- tölulega stuttum tíma hafi sorp- hirðumái tekið framforum. Slíkt er fyrirbyggjandi og það eina sem dugar. Þó eru sorphaugamál úti á landi víða í ólestri og það vantar á að skolræsismál séu komin í lag. Birgir Þórðarson sagði að þeg- ar salmonella kom upp í sláturaf- urðum á Selfossi í haust hafi heil- brigðiseftirlit Suðurlands skrifað umhverfis- og landbúnaðarráð- herra og beðið um að þessi mál yrðu tekin til alvarlegrar skoðun- ar. í framhaldi af því skipaði ráð- herra starfshóp sem er og hefur verið að vinna í þessum málum. „Það er alveg sama hvernig menn velta þessu vandamáli fyr- ir sér, það er bara til ein vörn og hún er aukinn þrifnaður á öllum þeim sviðum þar sem hætta er á að salmonella geti þrifist," sagði Birgir Þórðarson. -S.dór Þær eru vel búnar þessar skólastúlkur og í vetrarveðrinu í gær veitti ekki af. Stoppið hjá sjoppunni var örstutt en þó náðu þær að kíkja á tímaritsforsíðu sem fremur er ætluð fullorðnum. DV-mynd GS Prófmál hjá Héraðsdómi Vesturlands: Grásleppukarlar ákærðir í „einka- landhelgismálí“ Réttarhöldum er lokið í máli fimm grásleppukarla, þriggja frá Reykhólum, eins frá Stykkishólmi og eins úr Reykjavík en þeir hafa verið ákærðir fyrir að leggja grá- sleppunet í netalögnum landeigenda við nokkrar eyjar, m.a. Langey, í Breiðafirði. Þeim er jafnframt gefið að sök að hafa lagt net á æðarvarps- tíma og þar með brotið lög um frið- un æðarvarps sem er friðlýst við eyjarnar. Málavextir voru þeir að mennirn- ir lögðu grásleppunet á umræddum svæðum sumarið 1994. Landeigend- ur kvörtuðu til sýslumanns sem fól Landhelgisgæslunni málið. Menn af varðskipi lögðu hald á netin og mældu m.a. fjarlægð þeirra frá landi. í kjölfar rannsóknar voru mennirnir síðan ákærðir. Þegar grásleppukarlarnir komu fyrir Héraðsdóm Vesturlands kom fram að þeir telja sig hafa leyfí til að stunda grásleppuveiðarnar - það sé í raun ósanngjarnt að aðeins land- eigendur megi leggja net og njóta þeirra hlunninda sem fást af æðar- varpi. í málinu var tekist á um svoköll- uð netlög en í þeim felst í rauninni að landeigendur hafi sína einka- landhelgi eða lögsögu. Þar er um að ræða svæði allt að 112 metra frá landi. Hér er því um prófmál að ræða sem varðar hagsmuni mun fleiri landeigenda og fiskimanna. Héraðsdómur Vesturlands mun kveða upp dóm í málinu í mars. -Ótt Blinda og ófærð víða um land Landsmenn fengu góðan skammt af um í gær. vetrarríkinu í gær. Á Norðurlandi var Þungfært var orðið í úthverfum á viða mjög blint og hvasst og lítið ferða- Akureyri í gær og fjórir árekstrar urðu veður. Sömu sögu var að segja vestur með stuttu millibili. Kvaðst lögreglan í með Norðurlandinu og austur á raun hissa á að ekki skyldi vera meira Vopnafiörð. Þar var að sögn lögreglu um óhöpp. Einn meiddist smávægilega ailt orðið ófært og sást ekki milli húsa í einum árekstrinum en aðallega var þegar DV talaöi austur á sjötta tíman- um að ræða eignatjón. -sv ER RAÐID EKKI AD BURSTA TENNURNARí SKEPN- UNUM? Veðrið á morgun: Víðast þurrt syðra Á morgun verður norðan 'stinningskaldi eða allhvasst. Éljagangur eða snjókoma norð- anlands en víðast þurrt syðra. Frost 2 til.8 stig. Veðrið í dag er á bls. 61 Sími 533 2000 Ókeypis heimsending Smá- auglýsingar sVO'a DV woo 550 i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.