Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1996, Blaðsíða 27
JLlV LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 1996
Vínnustofa arkitekta, menningarverðlaunahafi DV í byggingarlist:
tnenning v
'k ~jk ■
asta umhverfis
hennar frem-
í ur en tilvitn-
I ana í arf-
„Menningarverðlaun DV komu
okkur skemmtilega á óvart. Ekkert
okkar átti von á því að fá þau í þetta
sinn þannig að sú staðreynd að við
vorum fyrir valinu er afar ánægju-
leg.“ segir Sigríður Sigþórsdóttir
arkitekt en hún hlaut ásamt félög-
um sínum Hróbjarti Hróbjartssyni,
Richard Ólafi Briem og Sigurði
Björgúlfssyni á Vinnustofu arki-
tekta á Skólavörðustíg Menningar-
verðlaun DV í byggingarlist fyrir
hönnun á nýju kirkjunni á ísafirði.
Sigurður og Hróbjartur hlutu
þessi sömu menningarverðlaun 1987
fyrir íbúðir aldraðra í Seljahverfi og
því í annað sinn sem þeir verða fyr-
ir valinu.
Gerum eitthvað sem
skiptir máli
„Þetta er óneitanlega stórt
klapp á bakið og staðfesting á
því að við erum að gera eitt-
hvað sem skiptir máli og vek-
ur athygli fólks. Þetta er líka
viðurkenning fyrir bygg-
ingarlistina," bætir Sigríður
viö í samtali við DV.
„Menningarverðlaunin
vekja athygli margra og þau
lyfta okkar fagi á hærra plan ef
svo má segja því þetta er í
raun eini vettvangurinn hér-
lendis þar sem verðlaun af
þessu tagi eru veitt,“ segir
Richard.
Hróbjartur er sammála
og segir verðlaunin hafa
geysimikla þýðingu fyrir
sig og stofuna. En hverja
telur hann vera megin-
kosti nýju kirkjunnar á
ísafirði? „Það sem skiptir
mestu máli er að hún er á
ísafirði, á köldum en
grónum stað. Við völdum
hlýja gulan lit á kirkjuna
en ísfirðingar virðast hafa
mikið af gulum og rauðum litum á
sínum húsum. Okkur fannst litur-
inn passa mjög vel við náttúruna og
kirkjan á að minna heimamenn á
hafið og skipin,“ segir Hróbjartur.
Yrkisefni
sótt til umhverfis
Kirkjan á ísafirði var tekin í
notkun á síðasta ári. Hún er á horni
gamla kirkjugarðsins og gefur sú
nánd kirkjunni og rýmum hennar
sérstakan blæ. Það var mat dóm-
nefndarinnar, sem í sátu dr. Maggi
Jónsson arkitekt, Þorgeir Ólafsson,
listfræðingur og deildarstjóri í
menntamálaráðuneytinu, og Inga
Dagfinnsdóttir arkitekt, að höfund-
ar kirkjunnar hefðu sótt yrkis-
efni sín til nán-
leifð. Þannig hafi tekist að ná heil-
steyptu samspili kraftmikilla forma.
Úrvinnsla sé fagleg og alúð lögð í
alla þætti byggingarinnar. Verkið
sé einkar trúverðugt framlag til
kirkjubygginga.
„Kirkjan er byggð á sama stað og
gamla kirkjan og form hennar fellur
vel inn í umhverfið. Hún er auðvit-
að ólík gömlu kirkjunni en skírskot-
ar til hennar. Við lögðum áherslu á
tengsl kirkju og safnaðarheimilis
við umhverfi sitt en þau eru mörk-
uð þeim dráttum að nýja kirkjan
fellur að hefð þeirrar eldri um legu
og stefnu,“ segir Sigurður.
í verklýsingu kemur fram að
haldin er í heiðri sú venja er skap-
ast hefur um aðkomu-
leið í gegnum
kirkjugarð að
dyrum guðs-
hússins
ast mót vestri en dyrum safnaðar-
heimilis og skrifstofa beint að Sól-
götu á ísafirði. Þannig er gerður
eðlilegur greinarmunur á trúarleg-
um athöfnum og hinum ýmsu fé-
lags- og safnaðarstörfum.
Þó að kirkjan hafi verið tekin í
notkun í fyrra má segja að hún sé
enn í vinnslu. Byggingu er ekki lok-
ið og er hún unnin i áföngum. En
það er í nógu að snúast hjá fjór-
menningunum á Vinnustofu arki-
tekta sem eiga langt samstarf að
baki.
15 ára samstarf
„Við höfum unnið saman síðan
1981 og rekið teikni-
Menningarverðlaun DV eru staðfesting á því að við erum að gera eitthvað sem skiptir máli og fólk kann að meta.
stofu saman. Við höfum tekið að
okkur ýmis verkefni stór og smá og
meðal þess sem við höfum hannað
er Dvalarheimili aldraðra í Selja-
hverfi sem við Hróbjartur vorum
verðlaunaðir fyrir. Listaskólinn í
Laugarnesi er einnig verk Vinnu-
stofunnar sem og íbúðir Dvalar-
heimilis aldraðra við Vitatorg, á
mótum Lindargötu og Skúlagötu.
Meðal þeirra verkefna sem við
erum að fást við þessa dagana er
hönnun fyrir Heilsufélagið í Bláa
lóninu en til stendur að setja á lagg-
irnar nýja og bætta meðferðarstöð
og flytja aðstöðuna til. Heilsufélagið
stefnir að þvi að auka þjónustu sína
og því þarf að byggja upp nýja fyrir-
myndaraðstöðu. Vinnustofa arki-
tekta hefur gert tillögu að því fyrir
félagið, það liggja fyrir drög um
möguleikana og viö höfum trú á að
þau eigi eftir að þróast," segir Sig-
urður.
Margir hæfir arkitektar
Vinnustofan hefur einnig
komið nálægt nokkrum
skólabyggingum úti á lands-
byggðinni, t.d grunnskólan-
um á Húsavík og á Laug-
um. En hafa þau tekið
þátt í verkefnum sem
snúa að útlöndum? „Já,
það höfum við gert,“ seg-
ir Sigríður. „Við tókum
þátt í samstarfsverkefni
íslenskra og sænskra að-
ila um hönnun á Lyfja-
verksmiðjunni í Litháen.
Við gætum alveg hugsað
okkur að vinna meira fyr-
ir útlönd og hið sama gildir
sjálfsagt um aðrar stofur hér á
landi. Hér er mikið af hæfum
arkitektum og næg verkefni
ytra, t.d. í Austur-Evrópu, en
auðvitað er þetta alltaf spurning
um markaðssetningu.“
-brh
Osmo Vanská er menningarverðlaunahafi DV í tónlist:
Sögusinfónían er stórskrýtið verk
„Það hríslaðist um mig hlý til-
finning þegar ég frétti af þessu og ég
varð mjög undrandi og glaður. Við
erum auðvitað bara að vinna okkar
vinnu og það er góð tilfinning þegar
einhver metur það sem maður er að
gera. Þá líður þér eins og þú hafir
gert eitthvað áhugavert sem snertir
fólk,“ segir Osmo Vánská, aðal-
hlj óms veitarstj óri Sinfóníuhlj óm-
sveitar íslands, seni hlaut Menning-
arverðlaun DV í tónlist fyrir starf
sitt með hljómsveitinni og einstak-
an flutning á Sögusinfóníu Jóns
Leifs.
Vánská tók við stöðu -aðalhljóm-
sveitarstjóra sinfóníuhljómsveitar-
innar af landa sínum, Petri Sakari,
árið 1993 og síðan þá hefur hljóm-
sveitin verið í mikiUi uppsveiflu.
„Við höfum unnið mikið þennan
tíma og það hafa margir sagt mér að
hljómsveitin hafi þróast mikið,"
segir Vánská.
Stundum hæg og stund-
um skerandi
Tónleikar Vánskás með sinfóníu-
hljómsveitinni hafa vakið mikla at-
hygli fyrir vönduð og listræn vinnu-
brögð. Einna mesta eftirtekt vakti
uppfærsla hans á Sögusinfóníu Jóns
Leifs sem nú er komin út á geisla-
diski. Þessi flutningur Sögusinföni-
unnar telst vera frumflutningar þar
sem verkið hefur aldrei fyrr heyrst
flutt nákvæmlega
skrift höfundar.
Vánská segir
verkið sé stór-
skrýtið í já-
kvæðri merk-
ingu þess orðs
og fullt af
óvæntum uppá-
komum.
„Kraftur
verksins liggur í
þessari bilun.
Stundum er
tónlist-
for- in hæg og hljómþýð og ég hef heyrt
að þá hafi fólk jafnvel hækk-
að í hljómflutnings-
tækjunum tfi að
heyra betur. En
síðan gerist það
ári'nokkurrar við-
vörunar að allt
springur og háir,
ótrúlegir tónar
skera eyrun."
Vánská hefur i
11 ár stjórnað
Lahti sinfóníu-
hljómsveitinni og
unnið til fjölda
alþjóðlegra
verð-
launa fyrir starf sitt þar en hljóm-
sveitin er talin með þeim bestu í
Finnlandi. Jafnframt hefur Vánská
stjórnað flölda annarra sinfóníu-
hljómsveita annars staðar á Norður-
löndum, í Belgíu, Hollandi, Japan,
Frakklandi og víðar.
Sjónvarpslausir
fimmtudagar
Vánská kom fyrst til íslands árið
1989 á samnorræna tónlistarhátíð.
Það er honum minnisstæðast frá
þessari fyrstu íslandsdvöl að þá
voru engar sjónvarpsútsendingar á
fimmtudögum. „Mér fannst þetta
vera afar sniðugt og fersk hug-
mynd.“
Hann hefur ferðast á milli Finn-
lands og íslands þann tíma sem
hann hefur stjórnað Sinfóníuhljóm-
sveitinni og dvalið í eina og eina
viku i senn hér á landi, alls tíu vik-
„Ég hef haft það á
tilfinningunni að
hljómsveitin þyrfti
á mér að halda,“
segir Osmo
Vánská, aðal-
hljómsveitarstjóri
Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands.
DV-myndir Brynjar
Gauti
ur á ári.
„Ég held að öllum útlendingum,
sem hingað koma, líki vel. Náttúru-
fegurðin er slík. Ég fékk tækifæri til
að sjá svolítið af náttúrunni þegar
viö fórum í rútu í tónleikaferðalag
um landið. Þetta er yndislegt land.“
Á leið til Skotlands
Vánska hættir störfum með Sin-
fóníuhljómsveit Islands í haust. Þá
tekur hann við starfi aðalhljóm-
sveitarstjóra skosku BBC-sinfóníu
hljómsveitarinnar í Glasgow.
Hann segist vera ánægður með
sinn tíma á íslandi. „Starfið með
hljómsveitinni hefur verið mjög ár-
angursríkt og ég hef notið þess mik-
ið. Ég hef líka haft það á tilfinning-
unni að hljómsveitin þyrfti á mér að
halda og við höfum gert mjög góða
hluti. Þessi hljómsveit á mikla
möguleika."
Sinfóníuhljómsveitin er nú á tón-
leikaferðalagi í Bandaríkjunum þar
sem hún mun halda níu tónleika,
meðal annars í New York.
„Þetta er mikið verkefni og áskor-
un fyrir okkur öll. Ég hef aldrei
stjórnað hljómsveit í Bandarikjun-
um fyrr svo að það má segja að
þetta sé alveg ný reynsla fyrir mig,“
segir Vánska.
Síðustu tónleikar sinfóníuhljóm-
sveitarinnar undir stjórn Vanskás
veröa i maí og hljómsveitin mun
síðan taka upp plötu i júní.
-ból