Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1996, Blaðsíða 50
58
afmæli
LAUGARDAGUR 24. FEBRUAR 1996
Hjördís Hjörleifsdóttir
Hjördís Hjörleifsdóttir, fyrrv.
skólastjóri Grunnskólans í Holti i
Önundarfirði, til heimilis að
Mosvöllum í Mosvallahreppi, verð-
ur sjötug á morgun.
Starfsferill
Hjördís fæddist á Sólbakka á
Flateyri við Önundarfjörð og ólst
þar upp. Hún stundaði nám við
Héraðsskólann á Núpi 1942—44,
starfaði í Bretlandi 1947^8 og í
Danmörku 1948-50, var á nám-
skeiði við Húsmæðraskólann á
Laugarvatni 1952, lauk húsmæðra-
kennaraprófi 1954 og stundaði síð-
ar nám við MH 1979-80.
Hjördís var ráðskona Núpsskóla
1950-52, ráðskona í Fornahvammi í
Norðurárdal 1954-55, ráðskona í
Reykjavík 1955-57, kennari við
Húsmæðraskólann Ósk á ísafirði
1958-76, skólastjóri Grunnskólans í
Holti í Önundarfirði 1976-91, og
jafnframt kennari við Gagnfræða-
skólann á ísafirði og við Hús-
mæðraskólann Ósk um skeið.
Hjördís sat um skeið á Alþingi
sem varaþingmaður fyrir Samtök
frjálslyndra og vinstri manna 1972
og 1973, var fullrúi á þingi Samein-
uðu þjóðanna 1977, sat í áfengis-
varnarnefnd ísafjarðar í nokkur
ár, í Fræðsluráði ísafjarðar og hef-
ur sinnt fleiri nefndarstörfum.
Fjölskylda
Fóstursonur Hjördísar er Már
Kristinsson, f. 10.3. 1954, vélstjóri á
Dalvík, kvæntur Herborgu Harðar-
dóttur húsmóður og eiga þau tvo
syni, Einar og Hörð.
Systkini Hjördísar eru Ingibjörg
S. Hjörleifsdóttir, f. 1929, húsmóðir
á ísafirði; Ásdís Hjörleifsdóttir, f.
1930, skólastarfsmaður í Kópavogi;
Kristjana Hjörleifsdóttir, f. 1932,
sjúkraliði í Bergen; Hringur Hjör-
leifsson, f. 1933, skipstjóri á Fá-
skrúðsfirði; Finnur Torfi Hjörleifs-
son, f. 1936, lögmaður í Hafnarfirði;
Örn Hjörleifsson, f. 1939, skipstjóri
á Akranesi.
Foreldrar Hjördísar voru Hjör-
leifur Guðmundsson, f. 1896, d.
1984, verkstjóri og pípulagningar-
maður á Sólvöllum á Flateyri, og
k.h., Sigrún Jónsdóttir, f. 1899, d.
1974, húsmóðir.
Ætt
Hjörleifur var bróðir Guðrúnar,
móður Finns Magnússonar, kaup-
manns á ísafirði, fóður Magnúsar,
fyrrv. framkvæmdastjóra Kaup-
mannasamtakanna, og Stefáns
læknis. Bróðir Hjörleifs var Georg,
faðir Guðmundar læknaprófessors.
Hjörleifur var sonur Guðmundar,
útvegsb. á Görðum, Jónssonar, b. í
Breiðadal, Andréssonar.
Móðir Hjörleifs var Gróa, systir
Finns i Hvilft, föður Hjálmars,
fyrrv. forstjóra Áburðarverksmiðj-
unnar, Ragnheiðar skólastjóra og
Gunnlaugs, alþm. í Hvilft. Gróa var
dóttir Finns, b. í Hvilft, Magnús-
sonar, alþm. þar, bróður Torfa
alþm. á Kleifum, Ásgeirs, alþm. á
Þingeyrum, og Ragnhildar,
langömmu Snorra skálds og Torfa,
fyrrv. sáttasemjara, Hjartarsona.
Magnús var sonur Einars, hrepp-
stjóra og dhrm. í Kollafjarðarnesi,
Jónssonar, af ætt Einars skálds í
Eydölum. Móðir Gróu var Sigríður
Þórarinsdóttir frá Vöðlum Jóns-
sonar, b. í Unaðsdal.
Sigrún var dóttir Jóns, búfræð-
ings á Veðrará, Guðmundssonar, b.
á Ketilsstöðum, Pantaleonssonar.
Móðir Jóns var Guðrún, systir
Jóns á Breiðabólstað, langafa Frið-
jóns Þórðarsonar, fyrrv. ráðherra,
föður Þórðar, forstjóra Þjóðhags-
stofnunar, og langafa Gests, föður
Svavars, fyrrv. ráðherra. Guðrún
var dóttir Jóns, b. á Hallsstöðum á
Fellsströnd, Jónssonar og Ingveld-
ar Þorkelsdóttur.
Móðir Sigrúnar var Guðrún Ingi-
björg, systir Kristínar, langömmu
Jóhanns Gunnars Þorbergssonar
yfirlæknis. Önnur systir Guðrúnar
var Gunnjóna, móðir Jóns Guð-
jónssonar, bæjarstjóra á ísaflrði,
afa Halldórs Jónssonar læknis.
Guðrún var dóttir Jóns, b. á Arnar-
nesi í Dýrafirði, bróður Torfa,
langafa Einars Odds Kristjánsson-
ar alþm. Jón var sonur Halldórs
Torfasonar, b. þar, bróður Magnús-
ar, langafa Jóns forseta. Torfi var
sonur Mála-Snæbjarnar, lrm. á Sæ-
bóli, Pálssonar. Móðir Guðrúnar
var Ingibjörg, systir Ríkeyjar,
Hjördís Hjörleifsdóttir.
ömmu Snorra Jónssonar, forseta
ASÍ, og langömmu Jónu Gróu Sig-
urðardóttir borgarfulltrúa. Bróðir
Ingibjargar var Finnur, afi Mars-
ellíusar Bernharðssonar, skipa-
smiðs á ísafirðj, og Braga Eiríks-
sonar, forstjóra Skreiðarsölunnar
og föður Böðvars lögreglustjóra.
Guðrún S. Gísladóttir
Guðrún S. Gísladóttir, Kirkju-
vegi 11, Keflavík, verður áttræð á
morgun.
Starfsferill
Guðrún fæddist i Garði i Gerða-
hreppi og ólst þar upp í foreldra-
húsum. Hún stundaði nám við
Hérðasskólann á Laugarvatni. Eft-
ir að hún gifti sig stundaði hún
húsmóðurstörf á stóru heimili. Þau
hjónin fluttu til Keflavíkur 1959.
Fjölskylda
Guðrún giftist 17.4. 1938 Erling
Eyland Davíðssyni, f. 8.3. 1916, d.
8.9. 1974, sjómanni og bifreiða-
stjóra. Hann var sonur Davíðs
Björnssonar, búfræðings og smiðs
í Reykjavík, siðar bóksala í
Winnipeg, og k.h., Kristjönu Guð-
brandsdóttur húsmóður.
Böm Guðrúnar og Erling eru
Örn Erlingsson, f. 3.2. 1937, útgerð-
armaður í Keflavík og á hann
flmm böm; Steinn Erlingsson, f.
14.1. 1939, innheimtustjóri Hita-
veitu Suðumesja, kvæntur Hildi
Guðmundsdóttur, fyrrv. kaup-
manni og eiga þau fjögur börn;
Steinunn Erlingsdóttir, f. 28.12.
1941, húsmóðir í Keflavík, gift Ólafi
Sigurðssyni kennara og eiga þau'
þrjú börn; Þorsteinn Erlingsson, f.
28.5. 1943, útgerðarmaður i Kefla-
vík, kvæntur Auði Bjarnadóttur
húsmóður og eiga þau fjögur börn;
Pálína Erlingsdóttir, f. 4.10. 1949,
húsmóðir í Landskrona í Svíþjóð,
gift Hans Erik Magnús Hákonsson
húsasmið og eiga þau tvö börn;
Stefanía Erlingsdóttir, f. 28.6. 1953,
starfsmaður hjá Pósti og síma, gift
Birgi Svan Símonarsyni, rithöf-
undi og kennara og eiga þau tvö
böm.
Systkini Guðrúnar: Þorsteinn, f.
7.10.1917, d. 25.8.1939, kennari; Sig-
hvatur Jón Gíslason, f. 16.6. 1920,
fyrrv. afgreiðslumaður í Keflavík,
kvæntur Ingveldi Hafdísi Guð-
mundsdóttur og eiga þau fjögur
böm; Ingibjörg Gísladóttir, f. 4.8.
1926, húsmóðir í Keflavík, ekkja
eftir Bjarna Vilberg Albertsson og
eiga þau einn son.
Foreldrar Guðrúnar voru Gísli
Sighvatsson, f. 4.5. 1889, d. 19.9.
1981, formaður og útgerðarmaður i
Garði, og k.h., Steinunn Stefanía
Steinsdóttir, f. 18.10. 1895, d. 31.1.
1944, húsmóðir.
Guðrún og börn hennar taka á
móti gestum í sal Karlakórs Kefla-
víkur við Vesturbraut í Keflavik á
morgun, sunnudaginn 25.2., kl.
16.00-19.00.
Guðrún S. Gísladóttir.
Þórflur Elísson
Þórður Elísson, Þórustíg 9,
Njarðvík, verður níræður á morg-
un.
Starfsferill
Þórður fæddist að Vatnabúðum í
Eyrarsveit og ólst upp í Eyrarsveit-
inni. Hann var einungis ellefu ára
þegar hann byrjaði að stunda sjó-
mennsku á opnum árabátum.
Næstu flórtán árin eða til 1935 var
hann háseti á togurum. Þá tók
hann til við trillubátaútgerð, fyrst
frá Hellisandi á Snæfellsnesi en
síðan frá Njarðvík. Síðustu sextán
Brúðkaup
Höfium sali
fyrri minni
og stærri
brúðkaup
Látið okkur sjá um
brúðkaupsveisluna.
Hóm JjglÁND
5687111
starfsárin starfaði Þórður í Skipa-
smíðastöð Njarðvíkur en þar hætti
hann störfum sjötíu og átta ára að
aldri.
Fjölskylda
Þórður kvæntist 26.4. 1930 Mar-
gréti Jónsdóttur, f. 5.4. 1907 að
Þingvöllum í Helgafellssveit, Ijós-
móður á Snæfellsnesi og á Reykja-
nesi í áratugi. Hún er dóttir Jóns
Sigmundssonar, b. á Þingvöllum og
síðar útvegsb. á Hellissandi, og
Kristínar Jónsdóttur húsfreyju.
Böm Þórðar og Margrétar era
Kristin Dagbjört, húsmóðir í Njarð-
vík; Vilborg Katrín, húsmóðir í
Reykjavík; Jón Sigmund; Steinþór
Breiðfjörð, prestur í Hafnarfirði;
Margrét Þórunn, starfsmaður í
New York.
Fyrir átti Margrét soninn Hilm-
ar Ölver, búsettur í Gautaborg.
Systkini Þórðar voru Guðjón;
Gísli Karel; Guðrún; Snorri; Lilja;
Helga; Kristberg. Af systkinahópn-
um era aðeins Þórður og Helga á
lífi, svo og fósturbróðir, Haraldur
Valdimar Hólmsteinn.
Þórður Elísson.
Foreldrar Þórðar vora Elís Gísla-
son, bóndi í Vatnabúðum í Eyrar-
sveit, og Vilborg Jónsdóttir hús-
freyja frá Helgafelli í Helgafells-
sveit.
Þórður tekur á móti gestum á
heimili dóttur sinnar, Kristínar, að
Grandarvegi 13, Njarðvík, á morg-
un, sunnudag, kl. 15.00-17.00.
Til hamingju
með afmælið
24.febrúar
80 ára
Ketill R. Sigfússon,
Háteigsvegi 22, Reykjavík.
70 ára
Hallbjörn Bjömsson,
Austurbergi 12, Reykjavik.
Hann er að heiman.
60 ára
Hólmfríður Sigurðardóttir,
Syðri-Jaðri, Staðarhreppi.
Hjálmfriður Þórðardóttir,
Asparfelli 2, Reykjavík.
Guðjón Haraldsson,
Bjarkargrund 42, Akranesi.
50 ára
Bergljót Sigurðardóttir,
Skipholti 52, Reykjavik.
Herdís Óskarsdóttir,
Glitvangi 19, Hafnarfirði.
Ingibjörg Ólafsdóttir,
Sundabakka 11, Stykkishólmi.
Þuríður Svanbjömsdóttir,
Völvufelli 50, Reykjavik.
Emil Ragnarsson,
Uppsalavegi 16, Húsavík.
Vilborg Georgsdóttir,
Hamrahlíð 22, Vopnafirði.
Baldur Árni Friðleifsson,
Mímisvegi 13, Dalvík.
40 ára
Guðjón Emil Ingólfsson,
Engihjalla 17, Kópavogi.
Benedikt Gunnar Ingvarsson,
Hjallabraut 43, Hafnarfirði.
Guðrún Vigdís Jónsdóttir,
Hlíðarhjalla 59, Kópavogi.
Karitas Anna Þórðardóttir,
Álftahólum 6, Reykjavík.
Ólöf Stefana Pálmadóttir,
Hlíðarbraut 1, Blönduósi.
Elsa Hákonardóttir,
Dalatanga 10, Mosfellsbæ.