Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1996, Page 38

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1996, Page 38
» |tyiglingaspjall LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 1996 33"V DV-myndir GS Inn úr kuldanum - ókeypis tónleikar á hverjum föstudegi í Hinu húsinu „Það er alltaf fullt af krökkum niðri í bæ á föstudögum að gera ekki neitt og það er því ágætis- grundvöllur fyrir alls konar uppá- komur á þessum tíma, tU dæmis til ’að kynna tónleika sem síðan eru haldnir um kvöldið eða um helgina eða vera með alls konar uppákom- ur,“ segir Birgir Örn Thoroddsen, einnig þekktur sem Bibbi eða Cur- ver. Birgir Örn og nafni hans Birg- ir Örn Steinarsson sjá um að skipu- leggja svokallaðar síðdegisuppá- komur í Hinu húsinu við Aðalstræti á hverjum föstudegi klukkan 17.00. Á hverjum föstudegi Byrjað var með föstudagsuppá- komurnar, sem ætlaðar eru fyrir fólk á aldrinum 16 til 25 ára, i sept- ember sl. og þær hafa verið á hverj- um föstudegi síðan þá. Birgir Örn segir að langoftast séu þetta hljóm- sveitir en á jólatónleikunum lásu ljóðskáld einnig upp úr verkum sín- um og mæltist það vel fyrir. Stefnt er að því að hafa uppákomurnar fjölbreyttari, til dæmis að hafa sýn- ingar úr leikritum líka. Hugmyndin að þessu starfi kvikn- aði hjá þeim nöfnum síðasta sumar. „Ég og Birgir vorum að vinna í sumar við skipulagningu opnunar- hátíðar fyrir Hitt húsið og þessi hugmynd svona spratt upp úr því. Krakkar fara mjög mikið í bæinn á föstudögum eftir skólavikuna til að slappa af og rölta og þar er grund- völlurinn kominn." Erlendar hljómsveitir líka Að meðaltali sækja um 50 manns tónleikana sem eru ókeypis. Stund- um eru þó mun fleiri og til dæmis þegar sænska danshljómsveitin Lucky People’s Riot spilaði í Hinu húsinu í haust þá komu um 300 manns. „Þetta eru alls ekki bara íslensk- ar hljómsveitir sem spila hérna. Við höfum Verið í samstarfi við þá sem eru að flytja inn hljómsveitir þannig að við höfum fengið erlend- ar hljómsveitir til að spila fyrir okk- ur. Þegar Atari Teenage Riots kom til landsins þá kom einn úr hljóm- sveitinni og spilaði af plötunni þeirra og kynnti hljómsveitina og þegar Ash kom þá var einnig kynn- ing á þeirri hljómsveit." - Er aldrei vesen að fá hljómsveit- ir? „Það er alveg upp og ofan. Einu sinni eða tvisvar höfum við ver'ið á fimmtudegi að redda hljómsveit. En það er aðallega ef einhverjar hljóm- sveitir klikka á því að spila. Oftast er þetta alveg planað og núna er til dæmis búið að plana mánuð fram í tímann,“ segir Birgir Örn. I sumar er áætlað að flytja föstudagsuppákomurnar yfir götuna og út á Ingólfstorg. Næsta föstudag spilar hljómsveit- in KK og síðan Sóun og svo eru væntanlegar hljómsveitir frá Finn- landi og Hollandi. Birgir Örn segir að í sumar sé síðan hugmyndin að flytja tónleikana um set og halda þá úti undir berum himni á Ingólfs- torgi. -ból Söngvari hljómsveitarinnar LOS í sveiflu. in hliðin w Ahugamaður um hvers kyns nautnir - segir Guðmundur Pátursson, gítarleikari ársins Guðmundur Pétursson var fyr- ir skömmu valinn gítarleikari árs- ins. Þrátt fyrir ungan aldur þá er þetta í þriðja sinn sem hann hlýt- ur íslensku tónlistarverðlaunin fyrir gítarleik. IGuðmundur tók þátt í söng- leiknum Hárinu í hittifyrra og í Jesus Christ Superstar í fyrra. Hann segir að í þessum bransa komi oft tímabil þar sem lítið er að gera en hann hafl hins vegar | haft í nógu að snúast síðustu miss- I erin. Tvö önnur leikhúsverkefni eru í vændum, annars vegar leik- rit í Þjóðleikhúsinu þar sem Guð- mundur mun sjá um tónlist og hins vegar er það leikrit í Borgar- leikhúsinu þar sem hann á að leika í hljómsveit. Að auki er Guðmundur að leika með hinum ýmsu listamönnum, svo sem Emilíönu Torrini, Trega- sveitinni, KK og Bubba Morthens. Þá er hann að huga að því að gefa út plötu með öðrum listamönnum. Þaö er Guðmundur sem sýnir á sér hina hliðina að þessu sinni: Fullt nafn: Guðmundur Sv. Pét- ursson. Fæðingardagur og ár: 6. des. 1972. Maki: Enginn. Böm: Ekkert. Bifreið: Engin, en ég á hjól. Starf: Tónlistarmaður. Laun: Mjög breytileg. Áhugamál: Tónlist, mannleg fræði og hvers kyns nautnir. Hefur þú unnið í happdrætti eða lottói? Já, ég hef unnið svona smáræöi hér og þar í gegnum tíð- ina. Hvað finnst þér skemmtileg- ast að gera? Gera uppgötvanir. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Leggjast lágt í starfi mínu. Uppáhaldsmatur: Hamborg- Bmmmmmmm arhryggur upp á hefðbundinn jóla- máta. Uppáhaldsdrykkur íslensk mjólk. Hvaða íþróttamaður stendur fremstur í dag, að þfnu mati? Mér stendur eiginlega á sama. Uppáhaldstímarit: Classic CD. Hver er fallegasta kona sem þú hefur séð? Þær eru marg- ar. Ég geri ekki upp á milli þeirra. Ertu hlynntur eða andvígur rík- isstjórninni? Andvígur. Hvaða persónu langar þig mest að hitta? Guðmundur Pétursson var valinn gítarleikari ársins, þriðja árið í röð. DV-mynd GS Pete Townsend. Uppáhaldsleikari: Daniel Day Lewis. Uppáhaldsleikkona: Emma Thompson. Uppáhaldssöngvari: Lennon og McCartney. Uppáhaldsstj ór nmála- maður: Fidel Castro. Uppáhaldsteikni- myndapersóna: Hagg- is McHaggis. Uppáhaldssjónvarps- efni: Heimildarmyndir og sápuóperur. Uppáhaldsmatsölu- staður: Vitabar. Hvaða bók langar þig mest að lesa? Jólasögur úr samtímanum eftir Guðberg Bergsson. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Rás eitt. Uppáhaldsútvarpsmaður: Pétur Tyrfingsson. Á hvaða sjónvarpsstöð horfir þú mest? Stöð 2. Uppáhaldssjónvarps- maður: Óskar Ingi- marsson. Uppáhalds- skemmtistaður: Kaffi List. Uppáhaldsfélag í íþróttum: Ekk- ert. Stefnir þú að einhverju sér- stöku í framtíð- inni? Að verða að betri manni og að komast úr landi. Hvað ætlar þú að gera í sumarfríinu? Ég fer aldrei í sumarfrí. -ból Banderas hjartaknúsari: Fúlsaði við Madonnu Spænski hjartaknúsarinn Anton- io Banderas er einn umtalaðasti maðurinn í Hollywood þessa dag- ana. Áður en hann varð frægur meðal Hollywoodstjarnanna sem „maðurinn sem fór frá konunni sinni vegna Melanie Griffith“ þá var þessi hormónahetja helst þekkt sem „maðurinn sem fúlsaði við Madonnu". Banderas vísaði ástleitni Madonnu á bug í partíi í Madríd hjá spænska leikstjóranum Pedro Almodovar en hann hefur leikið í nánast öllum myndum Almodovars. Þessi atburður varð til þess að augu Bandaríkjamanna beindust að þess- um hugaða manni sem sneri sig út úr neti Madonnu og honum var fljótlega boðið að leika í kvikmynd- inni The Mambo Kings i Bandaríkj- unum. Banderas kunni enga ensku en var fljótur að læra og fleiri kvik- myndir fylgdu í kjölfarið. Hann lék elskhuga Tom Hanks í Philadelphia, í Húsi andanna, Interview with the Vampire og Desperado. Banderas er 36 ára og hann hefur margsinnis verið kosinn kynþokka- fyllsti karlmaður heims. Hann er þó ósammála þessum dómi. „Þegar ég byrja að missa hárið og eldast þá breytist þetta. Þá á fólk eftir að segja: Hann var kynþokkafyllstur en nú er hann ekkert." Banderas vinnur nú við tökur á kvikmyndinni Evita þar sem hann leikur byltingarforingjann Che Gue- vara. Leiðir Banderas og Madonnu hafa enn einu sinni legið saman því að Madonna leikur Evu Peron í myndinni. Þær sögur ganga að vel fari á með hjartaknúsaranum og söngdísinni en litlar líkur eru þó taldar á því að Madonnu takist að tæla Banderas í sína sæng þar sem kappinn hugsar þessa dagana um lítið annað en hana Melanie sína. Banderas hjartaknúsara finnst Madonna ekkert sexí.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.