Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1996, Síða 51

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1996, Síða 51
LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 1996 Áslaug Fjóla Guðmundsdóttir Áslaug Fjóla Guðmundsdóttir húsmóðir, Barónsstíg 27, Reykja- vík, verður sjötug á morgun. Starfsferill Aslaug fæddist á Nesjavöllum í Grafningi en ólst upp á Króki í Grafningi. Áslaug fékk síðan barnafræðslu í sveitaskóla en stundaði síðar nám við Flensborg- arskólann í Hafnarfirði. Áslaug var bústýra að Hvassa- hrauni í níu ár og síðan húsfreyja að Ingólfshvoli í Ölfusi þar sem þau hjónin ráku stórbú um áran- bil. Fjölskylda Fyrri maður Aslaugar Fjólu var Kjartan Hannesson, f. 22.9. 1920, d. 5.12. 1979, bóndi að Ingólfshvoli. Hann var sonur Hannesar Gísla- sonar, b. á Stóra-Hálsi í Grafningi og Margrétar Jóhannsdóttur hús- freyju. Sambýlismaður Áslaugar var Pétur Geirsson, f. 16.1. 1916, d. 23.12. 1995. Börn Áslaugar Fjólu eru Hrafn- hildur Bláey, f. 26.7. 1944, var gift Vilhjálmi Halldórssyni bílasmið en þau skildu og eru börn þeirra Halldór trésmiður, Áslaug Fjóla nemi, Sólrún Harpa og Kjartan, en seinni maður Hrafnhildar er D. Coello Villa og er sonur þeirra Fer- ardo; Njáll Hannes, f. 30.11. 1945, múrarameistari, kvæntur Maríu Guðmundsdóttur snyrtifræðingi og eru börn þeirra Rakel Rós og Dav- íð Már; Úlfar Grettir, f. 16.10. 1947, d. 7.12. 1965; Hrefna Sóley, f. 5.11. 1948, bóndi í Reykjakoti II í Ölfusi, var fyrst gift Gunnari Davið Har en þau skildu og eru dætur þeirra Erna Svala og Elísabet en seinni maður Hrefnu Sóleyjar er Guð- mundur Júlíus trésmiður og eru börn þeirra Áslaug Fjóla, Þórður og Ólöf; óskírður drengur, f. 20.7. 1952, d. 9.11. 1952; Smári Kjartan, f. 30.8. 1953, múrari, en kona hans er Guðbjörg Selma dagmóðir. Systkini Áslaugar Fjólu: Egill, f. 13.5. 1921; Guðrún Mjöll, f. 17.9. 1923, nú látin; Jóhannes Þórólfur Gylfi, f. 20.5.1931; Sæunn Gunnþór- unn, f. 15.6. 1933; Jóhanna, f. 12.8. 1936; Elfa Sonja, f. 28.3. 145; Erling- ur Þór, f. 1.12. 1947. Foreldrar Áslaugar Fjólu voru Guðmundur Jóhannsson, f. 12.10. 1897, bóndi í Króki í Grafningi og síðar búsettur í Reykjavík, og Guð- rún Sæmundsdóttir, f. 7.8. 1904, húsfreyja í Króki. Áslaug Fjóla er á Kanarieyjum á afmælisdaginn. Áslaug Fjóla Guömundsdóttir. Sigurberg Einarsson í afmælisgrein sem birtist s.l. þriðjudag um Sigurberg Einarsson vélstjóra, voru nokkrar meinlegar villur vegna rangra og ónákvæmra aðsendra heimilda. Greinin er því birt hér leiðrétt. Sigurberg Einarsson vélstjóri, Sunnuflöt 17, Garðabæ, varð sex- tugur s.l. þriðjudag. Starfsferill Sigurberg fæddist í Reykjavík 20.2. 1936 og ólst þar upp. Hann lauk vélstjóraprófi frá Vélskóla ís- lands 1959. Sigurberg var vélstjóri til sjós og lands, m.a. á Gullfossi. Hann starf- aði síðan hjá föður sínum í Vél- smiðjunni Bjargi til 1972 er hann hóf störf hjá íslenska álfélaginu þar sem hann er flokksstjóri á vélaverkstæði í steypuskála. Sigurberg kvæntist 8.11. 1958 Steinunni Sigurbjörgu Sigurgeirs- dóttur, f. 16.7. 1940, húsmóður. Hún er dóttir Sigurgeirs Frið- rikssonar, bifreiðasmiðs 1 Kópa- vogi, og k.h., Lilju Vigfúsdóttur húsmóður. Börn Sigurbergs og Steinunnar Sigurbjargar eru Einar Ingi, f. 7.6. 1958, vélvirki, en kona hans er Elín Helgadóttir; Siggerður Lilja, f. 26.12. 1960, leiðbeinandi, búsett í Kópavogi, en hennar maður er Ró- bert Gunnarsson múrari og er dótt- ir þeirra Ingunn, f. 10.10.1988; Egg- ert, f. 7.2. 1962, rafeindavirki í Reykjavík, kvæntur Auði Hrafns- dóttur og eiga þau fjögur böm, Hörð Pál, f. 31.8. 1981, Líneyju, f. 14.5. 1986, Finn Hrafn, f. 12.6. 1983 og Óskar Eggert, f. 24.7. 1995. Kyn- móðir Líneyjar var Líney Harðar- dóttir en kynfaðir Harðar Páls og Finns Hrafns er Páll Pálsson. Systur Sigurbergs eru Guðborg Einarsdóttir, f. 29.3. 1930, gift Jónasi Þórðarsyni; Þuríður Einars- dóttir, f. 23.3. 1933, gift Ólafi Vigni Albertssyni. Forelch-ar Sigurbergs voru Einar Guðjónsson, f. 4.6. 1903, d. 27.11. 1992, járnsmíðameistari í Reykja- Sigurberg Einarsson. vík, og Ingigerður Eggertsdóttir, f. 7.12. 1902, d. 8.6. 1991, húsmóðir. Tll hamingju með afmælið 25. febrúar 80 ára Þórhalla Sigurðardóttir, Iðavöllum 10, Húsavík. 75 ára Kristján Jónatansson, Aðalgötu 34, Súðavík. Ólína Ólafsdóttir, Hjallaseli 55, Reykjavík. Sólveig Jóhannsdóttir, Kleppsvegi 40, Reykjavik. Elisabeth Vilhjálmsson, Reykjahlíð 12, Reykjavík. Elisabeth er þjóðkunn fyrir íþróttaáfrek sln og sjálfboðavinnu hjá íþróttafélagi fatlaðra í Reykja- vík og íþróttasambandi fatlaðra. Hún getur ekki tekið á móti gest- um vegna veikinda. Elisabeth afþakkar blóm og gjafir en þeim sem vildu gleðja hana er bent að styrkja íþróttafélag fatl- aðra í Reykjavík, Hátúni 14. Reikningsnúmer félagsins er 700075 hjá íslandsbanka, Lauga- vegi 172, Reykjavík. 70 ára Guðrún I. Eyjólfsdóttir, starfsmaöur hjá Mjólkursamsöl- unni, Skaftahlíö 20, Reykjavík. Guðrún verður með opið hús og tekur á móti gestum í Drang- ey, húsi Skag- firðingafélags- ins,; Stakkahlíð 17, sunnudaginn 25.2. kl. 15.00-18.00. Hallgerður Helgadóttir, Árbraut 19, Blönduósi. 60 ára Helga Hreinsdóttir, Kársnesbraut 85, Kópavogi. Kolbrún Sigurjónsdóttir, Miðstræti 15, Vestmannaeyjum. Jóhannes Guðmundsson, Hlégerði 29, Kópavogi. Nanna Úlfsdóttir, Álfheimum 15, Reykjavík. Lárus Szarvas, Hátúni 10B, Reykjavík. Sigríður Kröyer, Lagarási 10, Egilsstöðum. 50 ára Einar Rafh Haraldsson, framkvæmdastjóri, Sólvöllum 10, Egilsstöðum. Kona hans er Guðlaug Ólafsdóttir skrifstofumaður. Einar og Guðlaug taka á móti gest- um í Hótel Valaskjálf laugardags- kvöldið 24.2. kl. 20.30-21.00 en þá hefst dagskrá sem lýkur með dans- leik kl. rúmlega 23.00. Lára Rafnsdóttir, Engjaseli 13, Reykjavík. Ragnar Elbergsson, Grundargötu 23, Grundarfirði. Hafsteinn Hafliðason, Dvergholti 1, Hafnarfirði. Guðrún Lúðvigsdóttir, Ólafsvegi 28, Ólafsfirði. 40 ára Karl Vilhelm Halldórsson, Heiðargerði 21, Húsavík. Róbert Rósmann, Akurbraut 17, Njarðvík. Valgeir Valgeirsson, Safamýri 25, Reykjavík. Ari Jónsson, Flétturima 9, Reykjavík. Þórir Magnússon, Stapasíðu 11B, Akureyri. Heiðrún Pétursdóttir, Borgarhlíð 2F, Akureyri. Tómas S. Þorsteinsson, Sviðholtsvör 8, Bessastaðahreppi. Friðbjörg K. Hallgrímsdóttir, Byggðavegi 144, Akureyri. Ástríður Andrésdóttir, Mánabraut 9, Akranesi. Fermingar Höfum sali Á til leigu /i\ fyrir l fermingar Lílf HÓTEL JJÁLANI ) 5687111 ■h •• 903 • 5670 •• Aðeins 25 kr. mínútan. Sama verð fyrir alla landsmenn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.