Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1996, Síða 8
8
LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1996 JjV
sælkerinn
Jón Snorrason, yfirkokkur Café Óperu, býður upp á steinasteik:
Blönduð Fantasía
með kjöti og fiski
„Steinasteikurnar
eru ennþá lifandi. Það
er alltaf að færast í
aukana hjá okkur að
útlendingarnir borði
steinasteikur og íslend-
ingarnir koma alltaf
jafnt og þétt í þetta. Það
eru ákveðnar steikur
sem hafa haldið sér frá
upphafi. Siðan hafa
þróast aðrar útfærslur
í samræmi við óskir
gestanna gegnum
árin,“ segir Jón Snorra-
son, yfirkokkur og
framkvæmdastjóri Café
Óperu í Reykjavík.
„Veitingamenn byrj-
uðu fyrst að bjóða upp
á steinasteikur árið
1988. Steinaofninn okk-
ar, sem heldur steinun-
um heitum, var á sín-
um tíma keyptur af
sjúkrahúsinu í Kefla-
vík. Hann var notaður Jón Snorrason, yfirkokkur á Café
þar undir bakstur og Óperu, segir að steinasteikurnar
eldamennsku þannig séu alltaf sígildar. Hann nefnir hér
að hann á sér merka efnivið í steik sem hann nefnir
sögu. Þýsku framleið- blandaða Fantasíu. DV-mynd Pjetur
endumir hafa komið til
að sjá ofninn og verið mjög ánægð- Jón segir að steinasteik með
ir með hann,“ segir hann. góðu fersku hráefni sé sígild á ís-
matseðlinum hjá sér.
Hann gefur hér uppskrift
að Blandaðri Fantasíu.
Heima er best að hita
steinana í ofiii við hæsta
hita en á Café Ópem em
steinarnir hitaðir við 400
gráður.
50 g lambakjöt
50 g kjúklingur
30 g hörpuskel
50 g humarhalar
50 g rækjur
50 g lax
brokkoli
sveppir
gulrætur
sítróna
eggaldin
Blönduð
Fantasía
- fyrir einn
landi og leggur þunga áherslu á að
hafa sem mest úrval af henni á
Gott er að hera fram bak-
aða kartöflu, hvítlauks-
smjör, eða Café du Paris
smjör, sojasósu og svo er
kryddið auðvitað nauðsynlegt, til
dæmis salt og pipar. -GHS
matgæðingur vikunnar
Ljúffeng
brauð-
terta
„Þetta er heitur réttur
sem mjög þægilegt er að
gera daginn áður og
skella svo inn í ofn,“ seg-
ir lesandi, sem ekki vill
láta nafns síns getið. Les-
andinn sagðist eiga upp-
skrift aö girnilegri
brauðtertu í fórum sín-
um, sem væri uppruna-
lega ættuð frá Bessastöð-
um en hefði tekið breyt-
ingum í meðföram. Hér
kemur uppskriftin.
1 peli rjómi
samlokubrauð
y2 dós sveppir
rækjur
3-4 msk. majónes
1 tsk. karrí
rifinn ostur
Skorpan er tekin af
samlokubrauði og brauð-
ið er sett í botninn á fati.
Einum pela af rjóma er
hellt yfir brauðið. Hálfri
dós af sveppum er dreift
yflr brauðið, rækjum er
stráð yfir. Hrært er sam-
an karríi og majónesi og
þynnt út meö safa af
sveppunum og hrærunni
smurt yfir. Rifnum osti er
dreift yfír réttinn og svo
er rétturinn settur í ofn
þar til osturinn er bráð-
inn. -GHS
Lilja Brynja Guðjónsdóttir í Þorlákshöfn:
Lúðurúllur með rækjusósu
og einfaldur eftirréttur
„Ég setti þessar uppskriftir ekki í
samhengi heldur eru þetta bara rétt-
ir sem ég tíndi úr sitt hvorri átt-
inni,“ segir Lilja Brynja Guðjóns-
dóttir, íbúi í Þorlákshöfn, en hún er
matgæðingur vik-
unnar að þessu
sinni.
Lilja
Brynja gefur
uppskrift að
Lúðurúllum
með
rækjusósu og
einföldum og
fljótlegum
eftirrétt.
Lúðurúllur
800 g smálúðu- eða rauð-
sprettuflök
3 dl mysa eða hvítvín
4 dl vatn
2 tsk. fiskikraftur
salt-sítrónupipar
sítrónusafi
negulnaglar
Fiskurinn er roðflettur og bein-
hreinsaður. Ef flökin era stór þarf
að skera þau sundur. Örlitlum sítr-
ónusafa, salti og sítrónupipar er
stráð yfir flökin og þeim rúllað upp.
Fest með tannstönglum og neg-
ulnagla stungið í hverja rúllu.
Vatn, mysa og fiskikraftur
sett í pott og suðan látin
koma upp. Fiskrúllumar eru
settar út í og soðnar í 34
mín.
Lilja B. Guðjónsdóttir gefur uppskrift að góðum fiskrúllum og einföldum og
fljótlegum eftirrétti úr makkarónukökum og jaröarberjum.
DV-mynd Sigrún Lovísa
iy2 msk. smjör
1 y2 msk. hveiti
soð af fiskinum
1 peli rjómi
1 eggjarauða
150-200 g rækjur
y2 tsk. paprikuduft
y2 tsk. engiferduft
Smjörið er brætt og hveiti hrært
saman við. Þynnt með fisksoðinu.
Rjómanum er hellt út í og kryddað
eftir smekk. Eggjarauðan er létt-
þeytt og hrærð út í sósuna ásamt
rækjunum. Eftir það má sósan ekki
sjóða.
Rétturinn er borinn fram með
soðnum kartöflum og soðnu græn-
meti, til dæmis gulrótum, blómkáli
eða spergilkáli.
Einfaldur eftirráttur
150 g makkarónukökur
y2 dós jarðarber
2 msk. kókosmjöl
sletta af sérrí (má sleppa)
Oetker búðingur með möndlum
Makkarónukökur eru muldar í
skál. Jarðarberin era stöppuð og
þeim er hrært saman við ásamt kók-
osmjöli og sérrí. Nota má örlítið af
jarðarberjasafanum með. Búðingur-
inn er búinn til samkvæmt leiðbein-
ingum á pakkanum. Mesti hitinn er
látinn rjúka af honum og honum-
hellt yfir. Þetta er svo kælt í 3-4 klst.
og borið fram með þeyttum rjóma.
Lilja Brynja skorar á Emu Mar-
len í Þorlákshöfn.- GHS
Marserandi
bomba,
smákökur
ogterta
Jón Arilíusson kondítormeistari
hefur að undanfömu verið á Bylgj-
unni og gefið uppskriftir að kökum
og sælgæti fyrir jólin auk þess sem
lesendur hafa sent inn uppskriftir í
uppskriftaleik. Hér birtast nokkrar
I uppskriftir Jóns og tvær vinnings-
uppskriftir frá hlustendum, þeim
Siliu Sigrúnu Þórsteinsdóttur og
Betu Ámundadóttur.
Marserandi
Bounty bomba
2 eggjahvítur
100 g sykur
150 g Bounty
Þeytið vel saman eggjahvítur og
sykur. Blandið saman við 150 g af \
smátt skomu Bounty. Bakið maren-
sið í tveimur 24 cm formum við 150-
170 g í ca 30 mín.
Mars rjómaís
4 dl rjómi
3 eggjahvítur
1 dl sykur
100 g Mars
Stífþeytið eggjarauðumar og syk-
urinn. Blandiö léttþeyttum rjóma
og smátt skomu Bounty saman við.
Látið í sama form og marensið og
frystið. Setjið isinn á marensbotn
ca 30 mín. áður en tertan er borin
fram.
Heit Marssósa
1)4-2 stk. Mars
1 msk. 36% sýrður rjómi
Bræðið Mars súkkulaöið við lág-
an hita í vatnsbaði. Blandið síðan
sýrðum rjóma út í. Hrærið vel sam-
an. Berið sósuna fram volga.
Snickers smákökur
100 g saxað Snickers
150 g saxað suðusúkkulaði
150 g púðursykur
80 g smjör
1 stk. egg
160 g hveiti
'A tsk. natron
• % tsk. salt
vanilla
Öllu er blandað saman. Rúllað í
pylsur og kælt. Skorið niður eins og
smákökur og raðað á plötu. Bakað
við 175 gráður í ca 8 mín. Teknar út
frekar ljósar og látnar kólna á plöt-
unni.
Twix terta með banan-
arjóma
100 g sykur
2 litlar eggjahvítur
y2 tsk. lyftiduft
2 lengjur fint skorið Twix
Þeytið saman sykur og eggjahvít-
ur, hrærið lyftidufti og Twix saman
viö. Bakiö við 150 gráður í 60 mín. í
24 cm formi.
Tertan er lögð þannig saman:
Hvítur svamptertubotn, 1 peli þeytt-
ur rjómi og 2 bananar marðir í
rjómanum, Twix marensbotn.
-GHS