Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1996, Qupperneq 58

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1996, Qupperneq 58
66 LAUGARDAGUR 7. DESEMBER 1996 Handboltamark skall á andlit stúlku í íþróttahúsi: Sprunga i kjalka og slæmt brot á nefi og augntóftum Tíu ára gömul stúlka fékk yfir sig handboltamark í leikfimitíma í íþróttahúsinu við Austurberg í fyrradag með þeim afleiðingum að hún brotnaði töluvert í andliti. Snúra hafði verið strengd í stórt handboltamark til þess að búa til auka badmintonvöll og var stúlkan að hanga í snúrunni eftir að leik- fimitímanum lauk. Hún var flutt með sjúkrabíl á slysadeild Sjúkra- húss Reykjavíkur og þar fór hún strax í aðgerð. „Stúlkan skall á hnakkann og fékk markið beint á nefið. Bein brotnuðu innarlega í nefinu og upp í báðar augntófir, auk þess sem sprunga kom í efri kjálka," segir Kristján Guðmundsson, sérfræðing- ur á Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Kristján sagði að stúlkunni liði þokkalega eftir aðgerðina í fyrradag en hún væri nokkuð illa útlítandi og rifin og tætt innan í nefinu. Hann átti vona á að henni yrði hald- ið á sjúkrahúsinu fram yfir helgi en reiknaði ekki með varanlegum skaða fyrir stúlkuna. „Mörkin detta ekki þótt hangið sé í þverslánni en þarna var hangið í snúrunni og þannig kemur annað átak á markið. Mér þykir afar leið- inlegt að þetta skyldi eiga sér stað og markið mun framvegis ekki verða notað i þessum tilgangi,“ seg- ir Gunnar Hauksson, forstöðumað- ur íþróttahússins. Aðspurður hvort ekki væri ástæða til þess að festa mörkin sagði Gunnar að þau væru boltuð niður í keppni en þarna hefði þetta mark verið í geymslu við bekkina og eins og áður sagði notað til þess að búa til auka badminton- völl. -sv Tíu ára stúlka var flutt á Sjúkra- hús Reykjavíkur þar sem hún gekkst undir aðgerð í fyrradag. Hún brotnaði nokkuð í andliti en vonir standa til þess að áverkarn- ir séu ekki varanlegir. DV-mynd S Málarekstur fv. skrifstofustjóra gegn Slysavarnafélaginu: SVFI dæmt til að greiða Guðbirni 823 þúsund Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær Slysavamafélag ís- lands til að greiða Guðbimi Ólafs- syni, fyrrum skrifstofustjóra félags- ins, þriggja mánaða „aukauppsagn- arfrest", samtals 823 þúsund krón- ur, vegna uppsagnar hans á síðasta ári. Uppsögnin tengdist því að Guð- björn var meðal annarra ósáttur við að Hálfdan Henrysson var leystur frá störfum á sínum tíma. Guðbjöm hafði stefnt félaginu til greiðslu hátt í 30 milljóna króna þar sem hann taldi sig hafa verið ævi- ráðinn hjá Slysavarnafélaginu á svipaðan hátt og ríkisstarfsmenn. Því hafnaði héraðsdómur hins veg- ar alfarið - ráðningarsamningur hans og lög félagsins hafi ekki gefið tilefni til að ætla að hann hafi verið æviráðinn með sama hætti og ríkis- starfsmenn. Dómurinn komst að þeirri niður- stöðu að óvissa hefði verið um kjör Guðbjarnar vegna skorts á uppsagn- arákvæði í ráðningarsamningi. Hins vegar þótti hann eiga rétt á auknum uppsagnarfresti sem dóm- urinn taldi að væri hæfilega metinn þrir mánuðir að auki við hinn hefð- bundna uppsagnarfrest. Slysavarnafélag íslands er jafn- framt dæmt til að greiða Guðbimi 250 þúsund krónur í málskostnað. -Ótt „Tossaskattur“ þegar innheimt- ur í framhalds- skólum í skýrslu Ríkisendurskoðunar um ríkisreikninginn 1995 er rekstur framhaldsskólanna tek- inn sérstaklega fyrir. Þar kennir ýmissa grasa. Meðal annars kemur fram að þrír skólar inn- heimti sérstakt gjald vegna end- urtekningarprófa, frá 900 til 6.000 króna. Ekki er tekið fram hvaða skólar þetta eru. Ríkisend- urskoðun telur að gjaldtaka af þessu tagi sé ekki heimil sam- kvæmt lögum um framhalds- skóla. Henni svipar engu að síð- ur til hugmynda menntamála- ráðherra um að taka upp endur- innritunargjald ef nemendur falla á prófi, eða „tossaskattinn" svokallaða. Ríkisendurskoðun telur það sömuleiðis ekki í samræmi við lög að í sex framhaldsskólum hafi sérstöku refsiálagi verið bætt við skólagjöld vegna þeirra nemenda sem ekki greiða á gjalddaga og þeirra nemenda sem fá skólavist eftir að gíróseðl- ar fyrir gjöldin hafi verið sendir út. Refsiálagið er frá 1.000 til 3.000 krónur, mismunandi eftir skólunum sex. í skýrslunni kemur fram að innheimta gjalds af ljósritun blaða fyrir nemendur framhalds- skóla sé afar mismunandi. Ríkis- endurskoðun segir verulegan misbrest á innheimtu þessa gjalds og ráðstöfun. Dæmi séu um það í einkum skólanna að ljósritunargjald renni í kaffisjóð kennara. -bjb Guðmundur Bjarnason hefur kveikt á gasloganum í Álfsnesi á Kjalarnesi. Ögmundur Einarssonr, framkvæmastjóri Sorpu, til vinstri, og Guðmundur Bjarnason ráðherra virða hann fyrir sér. DV-mynd ÞÖK Sorpa í Álfsnesi: Gasi brennt til að forð- ast gróðurhúsaáhrif Tvö umferðar- slys í Ölfusi Tvö umferðarslys urðu i Ölfusi í gær. Það fyrra varð á Suðurlands- vegi austan við Ingólfshvol um há- degisbilið þegar bifreið valt út i skurð. Fjórir voru í bílnum og var einn þeirra fluttur meðvitundarlaus á Sjúkrahús Reykjavíkur. Hann var með höfuðáverka en hinir þrír sluppu með minni háttar meiðsl. Þá varð árekstur tveggja bila við Sandhól í Ölfusi um klukkan 17 í gær. Annar bíliinn lenti út í skurð við áreksturinn. Ökumenn og far- þegar sluppu án meiðsla. -RR Símasöfnun Fé- lags ungra fíkla Félag ungra fikla, FUF, hyggst opna miðstöð þar sem boðið verður upp á stuðningshópa, félags- og klúbbstarfsemi, ráðgjafa og margt fleira. í fréttatilkynningu frá félag- inu segir að ætlunin með þessu sé að virkja unga fikla sem vilja ná bata og hafa löngum til að lifa skemmtilegu lifi án vimuefna. FUF leitar til þjóðarinnar þar sem það stendur fyrir símasöfnun nú um helgina. Sjálfboðaliðar munu taka við framlögum í síma 552 1800 frá klukkan 8 á morgnana til mið- nættis dagana 6.-8. desember. -RR Guðmundur Bjamason umhverf- isráðherra kveikti í gærkvöldi á gasbrennara sem brennir metangasi sem myndast í urðunarsvæði Sorpu í Álfsnesi. Gasinu er safnað saman um röranet í hluta urðunarsvæðis- ins og dælt í gegn um hreinsibúnað og loks brennt. Ástæðan er sú að metangas er gróðurhúsalofttegund og því óæskilegt að það berist út í andrúmsloftið. Ögmundur Einarsson, fram- kvæmdastjóri Sorpu, segir að þetta sé í sjálfu sér óæskileg meðferð á gasinu sem hefur sömu eiginleika og það gas sem flutt er inn til lands- ins til ýmissa nota. Hann segir að Sorpa geti framleitt allt það magn af gasi sem ísland nú flytur inn. Smá- vægilega viðbót þurfi við þann bún- að sem í gær var tekinn í notkun til að framleiða 200 tonn af gasi tilbúnu til hvers kyns nota, m.a. á bifreiðar í stað bensíns. -SÁ Kópavogur: Alvarlegt umferðarslys Alvarlegt umferðarslys varð á Hafnarfj arðarvegi undir Hamra- borgarbrú í Kópavogi í gærkvöld. Bíllinn, sem var á leið suður veg- inn, rann til í hálku og lenti á undirstöðum brúarinnar. Ökumaður og einn farþegi voru í bílnum og að sögn lögreglu slös- uðust báðir að því er talið alvar- lega. Báðir voru fluttir á slysa- deild. -RR/S
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.