Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1999, Blaðsíða 26
26
LAUGARDAGUR 18. DESEMBER 1999 !DV
%/aðan ertu?
Eg er ættuð að vestan. Pabbi
var úr Flatey á Breiðafirði
og mamma frá bænum Firði
í Múlasveit á Barðaströnd en ég er
fædd í vesturbænum, flutti þaðan í
Fossvog en fór svo átta ára gömul
austur á Homafjörð þar sem ég bjó
í sjö ár en þaðan fórum við til
Eskifjarðar og svo aftur í bæinn.
Ég lít þess vegna alltaf á Horna-
ijörð sem minn heimabæ."
Þannig lýsir Ólafia Hrönn Jóns-
dóttir, leikari, söngkona og
grínisti, uppvexti sínum í ýmsum
landshornum. Ástæðan fyrir þessu
sígaunalífi var sú að faðir Ólafíu
vann hjá Landsbanka íslands og
var ráðinn útibússtjóri á Höfn og
síðar á Eskifirði. Það var árið 1971
sem fjölskyldan tók sig upp og
flutti austur.
Hvar er þessi
Hornafjörður?
„Ég hélt að Homafjörður væri
þar sem Langanesið er. Mér
fannst það svona homlegasti stað-
urinn á landinu. Svo var mér
náttúrlega sýnt þetta á korti.
Hornafjörður var ekki í vega-
sambandi með suðurströndinni
til Reykjavíkur svo þegar við
komum að ánum á Skeiðarár-
sandi var bUIinn settur á pramma
og ferjaður yfir strauminn. Þetta
fannst okkur auðvitað heljarmik-
ið ævintýri en ég minnist þess
ekki að ég væri hrædd. Ég man að
þetta studdi hugmyndir mínar
um að maður væri að flytjast á
mjög afskekktan stað.
Ég var sannfærð um að við
myndum flytja í torfbæ sem samt
væri með öllum nýtísku þægind-
um. Þetta voru mínar hugmyndir
um sveitina enda var ég bara átta
ára. Ég veit ekki af hverju ég héit
þetta því ég hafði verið i sveit og
þar var ekki torfbær. Ég held að
Gunna systir hafi skrökvað þessu
að mér. Henni tókst einu sinni að
fá mig til að trúa því að pylsur
yxu á trjám.“
Það reyndist heldur ekki vera
torfbær sem fjölskyldan fékk til
afnota á Hornafirði. Systkinin
Lék hálfan asna í Kardimommubænum
- Ólafía Hrönn Jónsdóttir, leikkona og söngvari, rifjar upp æskuárin á Hornafirði og víðar
voru fimm og Ólafía er þeirra
næstyngst. í þorpinu þótti koma
nýja bankastjórans heldur en
ekki saga til næsta
bæjar þvi þar
hafði ekki banka-
stjóri haft búsetu
áöur.
Hornafjörður
var einangraðri en
margir aðrir stað-
ir á landinu fyrstu
árin eftir að Ólafía
flutti þangaö. Það
gjörbreyttist 1974
þegar brýmar yfir
vatnsfollin voru
tekin i notkun og
auðveldara varð
að ferðast landveg
til Hornafjarðar frá Reykjavik.
„í endurminningunni er þetta
eins og sprenging. Allir vildu fara
hringveginn og það varð endalaus
gestagangur. Á þessum árum
stækkaði bærinn talsvert. Ég
minnist einnig þess hvernig far-
andverkamennirnir, sem komu í
stórum hópum á hverju ári, settu
svip á bæinn.“
Hornafjörður skiptist í Innbæ
og Útbæ og Ólafía tilheyrði Út-
bænum. Þegar slæmt var í sjóinn
kom fyrir að flæddi yfir eiði milli
bæjarhlutanna og þá varð Útbær-
inn eyja. Krakkamir í bæjarhlut-
unum voru yfirleitt vinir en
stundum sló í brýnu milli þeirra.
„Það vom styrjaldir milli Útbæ-
inga og Innbæinga en það var
mest fyrir minn tíma,“ segir Ólaf-
ia. Nú er búið aö fylla nógu mik-
ið upp til þess að ekki flæðir yfir
eiðið lengur.
Anna Lú og Lolla Bank
Ólafía segist hafa leikið sér mik-
ið við Dodda
bróður sinn,
sem er ári
eldri en hún,
þegar fjöl-
skyldan bjó í
Fossvogi og
hann var neyddur til að hafa hana
með í Leynifélaginu Ofurhugum
sem starfaði í Fossvogi. Þegar til
Hornafjarðar kom eignaðist Ólafía
fljótt nýja vini. Þar var fremst í
flokki Ánna Lú.
„Það er rétt að taka fram að Lú
er svona heimatilbúið viðumefni
eða ættarnafn sem loddi við alla
fjölskyldu Önnu og á rót sína að
rekja til hrekks sem pabbi hennar
átti þátt i fyrr á öldinni. Sá sem
varð fyrir hrekknum sagði: Þú ert
nú meiri ljúgarinn, í æsingi. Þar
með var ættamafniö komiö.
Þetta var algengt á Homafirði
og þurfti ekki mikið til. Ég var
kölluð Lolla Bank þegar ég var
krakki á Hornafirði og öll mín
systkini. Þetta var vísun í að vera
dóttir bankastjórans."
Hermt eftir Þorsteini Ö
Þær vinkonumar léku sér tölu-
vert með öðrum krökkum í fjör-
unni og í ýmsum eltingaleikjum,
s.s. fallin spýtan og þess háttar en
leiklistin var samt það áhugamál
sem þeim fannst mest heillandi.
„Við vorum í rauninni alltaf að
búa til leikrit, bæði til flutnings á
sviði og i útvarpi. Það eru ein-
hvers staðar til ennþá sýnishorn
af leikritum okkar á segulbandi.
Það má heyra þar
hvemig við
hermdum eftir
dramatískum
leikkonum og Þor-
steinn Ö. Stephen-
sen hefur greini-
lega verið mikil
fyrirmynd því það
var mikið humm-
að og ha-að á milli setninga.
Þetta voru hádramatísk leikrit
þar sem veðrið var oft mjög vont
og mikið spáð í hvort hann Ólafur
kæmist í tæka tíð eða yrði úti.“
Fyrsta hlutverkið var
hári
Fyrstu skrefin á leiksviðinu
steig Ólafia ekki á Hornafirði held-
ur í Breiðagerðisskóla þegar hún
var átta ára og lék héra.
„Ég var sú eina sem lærði text-
ann sinn og var alveg grjót-
hneyksluð á hinum krökkunum
sem voru með blöðin í höndunum.
Njáll Guðmundsson, kennarinn
okkar, sagði þeim að það væri allt
í lagi og ég man að ég var líka
mjög hneyksluð á honum fyrir
þessa lausung."
Þær stallsystur Anna Lú og
Lolla Bank voru síleikandi á
í prófíl
Snævar Már
17 ára
júdómaður
Hann heitir Snævar Már
og er talinn okkar efnileg-
asti júdómaður. Hann var
að koma heim frá Dan-
mörku gulli hlaðinn þar
sem hann stundaði nám við
Vejen-Sport College með
ströngum júdóæfingum og
keppni.
Fullt nafn: Snævar Már Jóns-
son.
Fæðingardagur og ár: 15.
maí 1982,-
Maki: Engin.
Börn: Engin.
Skemmtilegast: Hanga með
vinum mínum.
Leiðinlegast: Að læra.
Olafía Hrönn Jónsdóttir bjó í sjö ár á Höfn í Hornafiröi og steig þar sín fyrstu spor á leiksviöinu þegar hún lék háif-
an asna í Kardimommubænum.
DV-mynd ÞÖK
Homafirði og Ólafía segist hafa
farið upp á svið við öll tækifæri
sem gáfust, hvort sem það vora
skólaskemmtanir, skátaskemmt-
anir eða leiksýningar en á Homa-
firði var starfandi öflugt leikfélag.
Hálfur asni í Kar-
dimommubænum
„Við lékum mikið í skólanum.
Stefán Ólafsson kennari, sem þar
var og er enn, var óþreytandi við
að hvetja okkur áfram og fleiri
kennarar voru einnig mjög
áhugasamir og léku jafnvel með
okkur.
Fyrsta hlutverkið mitt á sviði
í alvöruleikriti var hjá leikfé-
laginu þegar það setti Kar-
dimommubæinn á svið þegar ég
var 12 ára. Ég mátti velja hvort ég
léki póstsvein eöa hálfan asna og
valdi auðvitaö asnann því mér
fannst það mun meira krefjandi
hlutverk. Á þessum árum var það
besta hrós sem ég fékk ef einhver
sagði að ég væri góð að leika.
Ég var afturhelmingurinn af
asnanum og hélt um mittið á Dísu
Imsland. Anna Lú lék einmitt ljón-
ið í sömu sýningu. Ég þurfti að
æfa án búnings í langan tíma og
var alltaf að hringja í búningakon-
una til að vita hvernig búningnum
liði. Þetta var stórkostlega gaman
og á þessum árum á Homafirði
varö ég staðráöin í að verða leik-
kona. Ég reyndi mikið til að fá
Önnu Lú vinkonu mína með mér í
leiklistarskólann en það tókst ekki
og ég hef mjög sjaldan náð henni
upp á svið.“
-PÁÁ
Uppáhaldsmatur: Nauta-
lundir
Uppáhaldsdrykkur: Sprite.
'allegasta manneskja: Birta,
’layboy-stúlka.
Fallegasta röddin: Nina i
Cardigans.
Fallegasti líkamshluti: Aug-
un.
Hvaða hlut fmnst þér vænst
um? Sjónvarpið mitt.
Hvaða teiknimyndapersóna
myndiröu vilja vera? Kenny.
Uppáhaldsleikari: Edward
Norton.
Uppáhaldstónlistarmaður:
Ég er alæta á tónlist.
Sætasti stjórnmálamaður:
Siv Friðleifsdóttir.
Uppáhaldssjónvarpsþáttur:
Drew Carrie.
Leiðinlegasta auglýsingin:
Ég hef verið laus við þær í
hálft ár.
Skemmtilegasta kvikmynd-
in: Sleepers.
Sætasti sjónvarpsmaður- j
inn: Dóra Takefusa.
Uppáhaldsskemmtistaður: í |
góðra vina hópi í heimahúsi.
Besta „pikk-öpp“-línan: Hæ,
ég er nýr í bænum, geturðu
nokkuð gefið mér leiðbeining-
ar um hvemig ég kemst heim
til þín.
Hvað ætlaðir þú að verða?
Frægur. Ég ætlaði sko að
meika það.
Eitthvað að lokum: Gleðileg
jól.