Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1999, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999
Fréttir
Úttekt erlends ráðgjafarfyrirtækis á Sjúkrahúsi Reykjavikur:
Of mikil starfsemi
í of litlu húsi
- vantar 6 fermetra fyrir hvern sjúkling
Ef stærð Sjúkrahúss Reykjavíkur
er borin saman við þá staöla í sjúkra-
rými sem unnið er eftir í nágranna-
löndunum er allt of mikil starfsemi á
sjúkrahúsinu miðað við stærð. SHR
er með tæpa 15 fermetra á sjúkling
en nútímasjúkrahús erlendis er talið
þurfa 21 fermetra á hvem sjúkling.
Þetta kemur fram í skýrslu erlenda
ráðgjafarfyrirtækisins Emst &
Young sem hefur verið að athuga
rýmisþörf SHR miðað við þá starf-
semi sem er þar innan veggja. Skýrsl-
an verður tilbúin um áramótin.
„Afkastatölur SHR, og raunar ann-
arra íslenskra spítala, em fyllilega
sambærilegar við fjölmarga aðra
spitala á Norðurlöndum sem ráðgjaf-
arfyrirtækið er með tölfræðilegar
upplýsingar um,“ sagöi Jóhannes
Pálmason, framkvæmdastjóri SHR.
„Ráðgjafamir velta upp spumingum
um hvað hægt sé að gera hér, þ. á m.
færa til starfsemi innanhúss, færa
starfsemi jafnvel út fyrir húsið o.s.frv.
Framtíðarþróunin er að fækka rúmum
á spítalanum en auka vægi dagdeilda
og göngudeildaþjónustu. Skemmri lega
kallar á umfangsmeiri þjónustu við
hvem einstakling. Það hefur verið
vandamál íslensku sjúkrahúsanna að
geta ekki komið sjúklingum áfram til
visttmar á hjúkrunarheimilum sem
era ódýrari úrræði heldur en vistun
innan veggja sjúkrahúsa."
Þegar hafa tilteknar breytingar og
tilfærslur á stóm sjúkrahúsunum ver-
ið ákveðnar fyrir næsta ár. Breytingar
verða í rúmaskiptingu á SHR á næsta
ári. Þegar viðgerðum lýkur á húsnæði
sjúkrahússins, sem verður á næstunni,
mun gjörgæslan verða flutt í endur-
bætt húsnæði á 6. hæð. Aðalstarfsemi
öldrunarþjónustunnar er á Landakoti
en hluti deildar á sjúkrahúsinu hefur
verið notaður fyrir bráðainnlagnir
aldraöra. Þar hafa verið 15 rúm en
verður fækkað í 6 rúm næsta haust. Sú
aðgerð verður metin þegar reynsla er
komin á hana. Þessi breyting verður í
tengslum við að á næsta ári munu all-
ar æðaskurðlækningar flytjast frá
Landspítala yfir til SHR. Lýtalækning-
ar hafa þegar verið færðar af SHR á
Landspítalann.
-JSS
Baldvin llka
yfir milljarð
Skötuveislur veröa á íslandi í dag - hjá sumum langt fram eftir Þorláksmessu. Þessi hefö er síöur en svo aö leggjast af.
DV upplýsir hér nýjustu aöferöina viö aö matreiöa skötuna þannig aö ekki komi lykt inni í íbúöinni: Fariö meö pottinn út á
svalir, kveikiö á gasgrillinu, sjööiö og lokiö svalahuröinni á meöan. Myndin er tekin í Faxamarkaöi í gær. DV-mynd Teitur
Tónlistarskóli Garöabæjar:
Kennarar ætla í hart
- bera mótmæli í hvert hús
DV, Aknreyri:
Samherjatogarinn Baldvin Þor-
steinsson kom til Akureyrar í gær
eftir vel heppnaða veiðíferð. Sam-
tals nemur aflaverðmæti Baldvins á
árinu einum milljarði og einni
milljón, að sögn Þorsteins Más Bald-
vinssonar, forstjóra Samherja. Afla-
verðmætið er þvi 26 milljónum
minna en hjá Arnari frá Skaga-
strönd sem einnig kom til hafnar í
gær.
Arnar hefur mun meiri þorsk-
veiðiheimildir en Baldvin Þor-
steinsson. Afli Amars var 6.400
tonn upp úr sjó en 7.600 tonn hjá
Baldvin. Fjórir frystitogarar Sam-
herja öfluðu fyrir 3,2 milljarða
króna á árinu. -gk
Áminntu bæjarstjómina:
Bæjarfulltrúar
völdu slysið
- segir nefndarformaður
„Við áminntum bæjarstjórnina,"
sagði Guðmundur Hallgrímsson, for-
maður skólanefndar Tónlistarskóla
Garðabæjar. Nefndin hefur ítrekað
samþykkt sína um að Smári Ólason
sé hæfastur umsækjenda í starf
skólastjóra. Jafnframt hefur nelhdin
lýst óánægju sinni með afgreiðslu
málsins í bæjarstjóm. Guðmundur
sagði að þar væri um „slæma stjóm-
sýsluaðgerð" að ræða.
„Skólanefnd hefúr ekki stjóm á
þróuninni," sagði Guðmundur. „Það
er ljóst að allir kennaramir styðja
Smára heilshugar. Ég aðvaraði bæj-
arfulltrúana og sagði að það yrði
stórslys ef þeir veldu annan umsækj-
anda fram yfir Smára. En þeir völdu
slysið. Þá spyr ég: Var þessi umsækj-
andi svona miklu hæfari að þaö rétt-
lætti aö fara út í þetta stríö og setja
allt skólastarf í uppnám? Við því hef
ég enn ekki fengið svar.“ -JSS
Kennarar Tónlistarskóla Garða-
bæjar ætla ekki að una þeirri nið-
urstöðu að bæjarstjórn komist upp
með að brjóta reglugerð skólans
við meðferö ráðningar nýs skóla-
stjóra skólans. Kennaramir ætla
að bera mótmæli í hvert hús í
Garðabæ á næstunni. Þá ætla þeir
„í hart“, eins og einn úr þeirra
hópi orðaði það, ef bæjarstjórn
breytir ekki ráðningunni.
Skólanefnd hafði mælt með yfir-
kennara skólans, Smára Ólasyni,
til starfsins. Málið fór til bæjarráðs
og þaðan til bæjarstjómar sem
samþykkti hins vegar að ráða Agn-
esi Löve. Allir kennarar skólans
skrifuðu undir mótmæli þar sem
vísað er i reglugerð skólans þar
sem segir að bæjarráð ráði „skóla-
stjóra og aðra fasta starfsmenn að
fengnum tillögum skólanefndar".
Þess má geta að mikill meirihluti
kennara skólans studdu Smára
skriflega þegar hann sótti um
starfið.
„Það eru geysilega mikil von-
brigði í röðum kennara með fram-
gang málsins innan bæjarstjórnar,"
sagði Ólafur Elíasson, kennari í tón-
listarskólanum, í samtali viö DV.
„Það er einhugur meöal kennara
um þessi mótmæli. Þeim er aðallega
beint gegn vinnubrögðum bæjar-
stjómar. Ég hélt satt að segja að
svona vinnubrögð tíðkuðust ekki
lengur á íslandi. Það er mat allra
sem ég hef talað við innan skólans
að hér sé Smári Ólason yfirkennari,
sem fagleg nefnd taldi hæfastan til
að gegna þessu starfi, að veröa fyrir
persónulegri óvild bæjarfulltrúanna
sem eru ekki menn að meiri af þeim
sökum.
Tónlistarskóli Garðabæjar er
mjög framsækinn skóli sem hefur á
að skipa vel menntuðu kennaraliði.
Allir sem þekkja til vita að skóla-
starfið hefur hingað tO verið öflugt
og metnaðarfullt. Hvemig sem á
það er litið hefur bæjarstjóm valdið
miklum skemmdum á góðum skóla
með þessum hrossakaupum."
-JSS
Barnaverndarmálið vekur mikla athygli:
Urðu að skipta um númer
- því síminn hringdi látlaust daga og nætur
„Síminn stoppaði ekki hjá okkur
eftir að DV fór að segja frá máli
okkar. Það endaði með því að við
urðum að skipta um númer,“ sagði
Sigrún Ragnarsson sem búsett er í
Noregi. Dóttir þeirra á nú í mála-
ferlum við barnaverndarnefnd
Reykjavíkur. Nefndin hafði svipt
foreldra stúlkunnar forræði yfir
henni. Þeir fluttu siðan til Noregs
og hófu baráttu þaðan fyrir forræð-
inu. Eftir tiu ára baráttu þeirra
breytti barnaverndamefnd úr-
skurði sínum og veitti foreldrun-
um fullt forræöi yfir dótturinni.
Dóttirin ákvað þá að höfða mál á
hendur nefndinni því með breyt-
ingu á úrskurði sínum hefði hún
viðurkennt mistök.
„Til okkar hefur hringt fjöldi
fólks frá Islandi, sem er að leita
ráðlegginga hjá okkur,“ sagði Sig-
rún. „Fegin vildum við geta hjálp-
að þeim öllum. En þegar svo var
komiö að síminn hringdi alla daga
og fram á nætur þá neyddumst við
til að skipta um númer. Þetta sýn-
ir best hversu margir eiga í vand-
ræðum vegna samskipta sinna við
barnaverndaryfirvöld. En rauði
þráðurinn er að gefast aldrei upp.“
-JSS
Stuttar fréttir dv
Rísi úti
Guöni Ágústs-
son landbúnaðar-
ráðherra segir
Degi að hann vilji
sjá ráðunauta-
stöðvar rísa úti á
landi. Hann segir
fjarri lagi að
hann sé að flytja
einhver verkefhi til borgarinnar.
Hafi varann á
Framkvæmdastjóri Hjálparstarfs
kirkjunnar segir vissara fyrir al-
menning að hafa varann á gagnvart
söfnunum og tryggja að óskað sé eft-
ir fjárframlögum á réttum forsend-
um. Fjöldi fyrirspuma hefúr borist
vegna safhana sem menn kannast
lítt við. Bylgjan greindi frá
Sýknuð
Bifreiðastöð Þórðar Þórðarsonar
hefur veriö sýknuð í Héraðsdómi
Vesturlands af riftunarkröfu þrota-
búsins. Bústjóri þess vfldi rifta þeim
gjömingi Þórðar þegar hann seldi
sonum sínum bifreiðastöðina. Dagur
greindi frá.
Selt RARIK
Á fundi bæjaryfirvalda í Hvera-
gerði og RARIK í gær var gengið frá
sölu á dreifikerfi rafveitu bæjarins
tfl RARIK. Kaupverð er 215 milljón-
ir króna. Mbl. greindi frá.
Síminn að einkavæða
Landssíminn er farinn að einka-
væða hluta starfsemi sinnar án vit-
undar Alþingis, að mati sumra þing-
manna sem íhuga að taka málið upp
á þingi. Veriö sé að færa einkafyrir-
tæki tugmilljónir króna á silfúrfati.
Stöð 2 greindi frá.
Hækkar vexti
Mjög liklegt er
að Seðlabanki ís-
lands hækki vexti
um 0,5 % á næstu
dögum. Birgir ís-
leifur Gunnars-
son, bankastjóri
Seðlabankans,
segir að mikfls að-
halds sé þörf til að spoma gegn verð-
bólgu. Stöð 2 greindi frá.
VG næststærst
Vinstrihreyfingin - grænt fram-
boð er með 20,5% fýlgi í nýrri skoð-
anakönnun Gallups og fær þar með
næstmest fylgi á eftir Sjálfstæðis-
flokknum. RÚV greindi frá.
Skötuveisla
Útgerðar- og rækjuvinnslufyrir-
tækið Skagstrendingur býður öllum
bæjarbúum tfl skötuveislu í dag,
Þorláksmessu, í félagsheimilinu
Fellsborg. Búist er við um 300
manns, eða um helmingi íbúa sveit-
arfélagsins. Dagur greindi frá.
1000 kvartanir
1000 kvartanir berast greiðslu-
kortafyrirtækinu VISA í hveijum
mánuði út af færslum á reikningum
sem korthafar kannast ekki við.
Vilja umsókn
Meira en tveir þriðju íslendinga á
aldrinum 25-44 ára vilja að sótt
verði um aðfld að Evrópusamband-
inu. RÚV greindi frá.
Lyfin hækka
Hlutur almennings í lyfjaverði
hækkar nú um áramótin, sam-
kvæmt nýrri reglugerð.
Meint leynimakk
Sigurjón Bene-
diktsson, bæjar-
fulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins á
Húsavík, ásakar
Reinhard Reynis-
son bæjarstjóra
um að hafa ekki
kynnt bæjar-
stjóm né bæjarráði efhi skjals sem
inniheldur gmnn að samræmdu mati
á Ljósavík hf. og Fiskiðjusamlagi
Húsavíkur hf. Til stendur að sameina
fyrirtækin. Mbl. greindi frá.
Kveikt í bálkesti
Kveikt var í áramótabálkesti á
Valhúsahæð á Seltjamamesi í nótt
og brann hluti hans áður en náðist
að slökkva eldinn. Þá var tilkynnt
um eld á veitingastað um hálf-
tvöleytið í nótt en kviknað hafði í
jólakreytingu. Skemmdir urðu nær
engar. -hlh
a landi