Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1999, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1999, Blaðsíða 29
JjV FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999 X 29 Strætisvagnar hlaðnir gjafavörum koma um helgar til HornaQarðar: Jólunum stolið frá okkur - segja kaupmenn og gagnrýna bæjarstjóra fyrir að leigja farandsölum húsnæði DV, Höfn, Hornafirði: „Þaö geta verið allt að þrír mark- aðir í gangi i einu, alltaf um helgar, rétt fyrir jólin, rétt fyrir fermingar og aðra toppa,“ segir Guðrún Ing- ólfsdóttir, kaupmaður í Orkuverinu á Hornafirði. Farandsalar sem kom með heila strætisvagna fulla af jóla- vöru hrella verslunareigendur á Homcdirði og em nánast að stela jólunum, segja heimakaupmenn. Ekki minnstir í sölu gjafavöru er Dublin á íslandi og Lotto sem kaup- menn segja eyðileggja heimamark- aðinn endanlega og nánast stela jól- unum frá staðbundnum verslunum. Þjónustuaðilar stofnuðu fyrir nokkrum dögum Samtök verslunar- og þjónustu á Homafirði. Ekki hvað síst beinast spjót kaupmanna að far- andsölum og þeir gagnrýna bæjar- stjóra því íþróttahús bæjarins eru leigð farandsölumönnum. Auk þess hafa stjómmálaflokkarnir leigt hús- næði s.ín fyrir farandsalana. Á ann- að hundrað manns vinnur hjá versl- unum og þjónustufyrirtækjum Homaíjarðar. „Við höfum aldrei sagt eitt eða neitt, kaupmemi hér, en núna höfum við komið við kaunin á ýmsum ráða- mönnum hér,“ sagði Guðrún. Hún segir að gatnagerðargjöldin séu há, til dæmis þurfi kaupfélagið að borga 10 milljón krónum meira á Höfn en þeir þyrftu að gera í Reykjavík. Stofnfundur nýju samtakanna 8. desember hófst með óformlegum við- ræðum um helstu viðfangsefni sam- takanna, svo sem hvemig ætti að spoma við ágangi farandsala, sam- skipti við bæjarfélagið, sorphirðu- gjöld af verslunar- og þjónustuaðilum og gatnagerðargjöld sem kaupmenn segja óheyrilega há. Greint var frá umræðum á fundi sem nokkrir fúll- trúar verslunar- og þjónustufyrir- tækja sátu með Garðari Jónssyni bæjarstjóra fyrr um daginn en áður hafði bæjarstjóra verið send greinar- gerð þar sem mótmælt var leigu á húsnæði bæjarfélagsins til farandsala í samkeppni við starfandi verslunar- og þjónustuaðila í Homafírði. Bæjarstjóri tjáði fundarmönnum að bæjarfélagið ætlaði að móta sér reglur varðandi leigu á húsnæði bæj- arfélagsins til farandsala. Hann taldi ekki óeðlilegt að íbúar nytu hag- stæðra tilboða á varningi farandsal- anna. Hann sagði að bæjarfélagið þyrfti á leigutekjum að halda fyrir þessar húseignir en rétt væri að bjóða húsnæðið til afnota á eðlilegu markaðsverði. Fulltrúar verslunar og þjónustu mótmæltu þessu harðlega og ítrekuðu sjónarmið sin, að hér væri um óeðlilega samkeppni að ræða þar sem farandsalar væru ein- ungis að fleyta rjómann af viðskipt- unum með viðkomandi vöruflokka í ódýrri aðstöðu sem byggð hefði verið fyrir almannafé. Jafnframt skoruðu fulltrúarnir á bæjarstjóra að beita sér fyrir því að húsnæði á vegum bæjar- félagsins yrði í framtíðinni ekki leigt til slíkra aðila til höfuðs verslunar- og þjónustuaðilum í Homafirði. í stjóm Samtakanna voru kosin þau Guðrún Ingólfsdóttir, Orkuver- inu, formaður, Stefán Jónsson, Martölvunni, og Guðný Helgadóttir, Lóninu. -JI Þúsundir eiga ekki fyrir mat SEG sjónvarp 28” 50 megariða með textavarpi og scart tengi Jólaverð 36.990 k, - og þeim fjölgar mitt í góðærinu, segja fulltrúar líknarsamtaka Mæðrastyrksnefnd var færð góð gjöf í vikunni þegar eigendur og starfsfólk veitingastaðanna Asks og Nings gáfu andvirði jólagjafa starfsfólksins í kjúklingum. Reyndist gjöfin vera um eitt tonn af kjúklingum sem Mæðrastyrks- nefnd kemur í réttar hendur fyrir jólin. Eigendur staðanna, hjónin Bjarni Óskarsson og Hrafnhildur Ingimarsdóttir, afhentu gjöfina. DV-mynd ÞÖK HIISASMIÐJAN Sími 525 3000 • www.husa.is SEG sjónvarp 20” með textavarpi Jólaverð 19.990 kr. Fiölgun virðist vera í hópi þeirra sem ekki eiga til hnifs og skeiðar þessi jólin ef marka má aðsókn í hjálp stofn- ana sem veita matar- og fatagjafir til fólks hér á landi. Á bak við þær hjálp- arbeiðnir sem berast em líklega á milli fimm til tíu þúsund einstakling- ár. Mæðrastyrksneíhd, Hjálpræðisher- inn og Hjálparstarf kirkjunnar hafa verið áberandi í þvi að sinna þeim sem af einhverjum ástæðum eiga ekki fyrir mat eða fatnaði fyrir jólin. Ásgerður Flosadóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar, segir að í fyrra hafi um 1.100 umsóknir um aðstoð borist nefridinni fyrir jólin, en að baki hverri umsókn em einn eða tveir fúll- orðnir og kannski tvö til þijú böm. Þetta geti því verið um 4000 manns. „Á föstudag var fjöldinn sem til okk- Ford T bíll aldarinnar Ford Model T var valinn „bíll aldar- innar“ af fjölþjóðlegri nefnd 133 bíla- blaðamanna með hliðsjón af atkvæða- greiðslu almennings sem nefndin efndi til á netsíðu sinni samhliða sínum störf- um. Ford T fékk 742 stig í lokatalningu en næstur í röðinni var Mini-bíllinn breski með 617 stig. Þar á eftir kom Citroén DS með 567 stig, þá Volkswagen bjailan með 521 stig og loks Porsche 911 með 301 stig. ar hefúr leitað frá 1. desember um 700. Nú em stærstu dagamir eftir og án efa verður fullt hjá okkur fram að jólum en við höfum opið á Þorláksmessu. Það skynja fáir aðrir en þeir sem vinna beint við svona líknarstörf þá þörf sem fyrir hendi er. Ég get ekki séð að góðærið nái til þeirra sem minnst mega sín. TO okkar leita fyrst og fremst einstæðar mæður, öryrkjar og aldrað fólk. Aðstoðin er í þríþættu formi, matarmiðar, matarpokar, sem afgreiddir era ffá 13. desember, og fata- úthlutun," segir Ásgerður. Jónas Þórir Þórisson hjá Hjálpar- starfi kirkjunnar segir að 2100 einstak- lingar um allt land hafi notið aðstoðar hjálparstarfsins um síðustu jól. „Þörf- in fyrir aðstoð hefur farið vaxandi all- an ársins hring. Á ársgrundvelli hefur aukningin hjá okkur verið um 16%. Margir sem til okkar leita em öryrkj- ar og alveg ljóst að fjöldi fólks berst í bökkum." Miriam Óskarsdóttir hjá Hjálpræð- ishemum segir að um 250 fúlltrúar fjölskyldna hafi leitað til þeirra eftir aðstoð það sem af er desember og þeim eigi eftir að fjölga. „Síðan eigum við von á trúlega 120 manns í mat á að- fangadagskvöld. Þar fá líka allir sína pakka. Þá verðum við með hátíð fyrir eldri borgara á þriðja i jólum.“ Hundmð leita til Hjálpræðishersins eftir fatnaði. Gjöf ÍSAL í formi áls sem fyrirtækið keypti aftur á eina milljón og þijátíu þúsund kemur hjálparstarf- inu vel. -HKr. Þær Guðrún Sóley Gestsdóttir og Gunnur Eiríksdóttir afhentu ABC hjálparstarfinu ágóðann af Listahátíð krakka sem haldin var í haust. Eina úr þessum duglega hópi vantaði í gær, Helgu J. Markúsdóttur. Það var Guðrún Margrét Páls- dóttir hjá ABC sem tók við fénu. DV-mynd Hilmar Listahátíð krakka rekin með rokgróða: Fátæk börn njóta hagnaðarins Sjaldan er mikill ágóði af listinni - en þremur 12. ára telpum sem fengu þá hugmynd að halda Listahá- tíð krakka i haust sem leið, tókst að ná endum saman og vel það. í gær afhentu þær ABC barnastarfinu 50 þúsund krónur, hagnaðinn af lista- framtakinu í Tjarnarbíói í haust. Þetta fé mun koma í góðar þarfir meðal fátækra, munaðarlausra bama víða um heim. Listahátíðin gekk vel, foreldramir trúðu því nánast ekki hversu vel allt var skipulagt. Fjölmargir góðir tón- listar- og danskrakkar komu fram - spilaði frítt sem leynigestur. Húsið og í lokin kom sjálfur Skítamórall og var nánast fullskipað. -JBP Tilvalin • S "I • • • Tolagro
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.