Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1999, Síða 22
22 hljómplötur________
Haukur Heiðar Ingólfsson - Á Ijúfum nótum:
Notalegt
andrúmsloft
Það færist mjög í vöxt að
gefnir séu út geisladiskar með
dægurmúsík þar sem söngvar-
ar eru gjörsamlega sniðgengn-
ir. Fyrr á árum var erlendum
listamönnum að mestu látið
eftir að fullnægja þörfmni fyr-
ir instrúmental músik. En nú
eru nýir tímar og það á við aö
því leyti líka að mikið er litið
til lagasmíða sem eru aldnar
að árum þótt vissulega megi
segja að þær séu sumar sí-
grænar og eilífar á sinn hátt. I
ár eru til dæmis Kristinn
Svavarsson og Þórir Úlfarsson
á svipuðum (ljúfum) nótum og
Haukur Heiðar á diskinum
Romantic Sax og Gunnar
Gunnarsson að sumu leyti líka
nema hann er einn á ferð án aðstoð-
armanna. Gítarleikarinn Edwin
Kaaber sendi frá sér svipaðan disk
fyrir nokkrum árum og fleiri mætti
nefna.
Lög Jóns Múla eru greinilega
einkar vinsæl til flutnings án þenn-
an hátt. Jónas Árnason nefndi
kvæðabók sína Til söngs og hefur
Ingvi Þór Kormáksson
varla grunað að lögin yrðu flutt
svona mikið án söngs en Anna
Pálína bætir úr því i ár með því að
taka fyrir texta Jónasar á sínum
diski. - Hér er mætt Stúlkan mín
eftir Jón Múla, Bláu augun þín eftir
Gunnar Þórðarson, Gálgablús eftir
Magnús Eiríksson og Vals moder-
ato eftir Magnús Pétursson heitinn.
Og þau þáttaskil hafa orðið að lag
eftir Bubba Morthens, Það er gott
að elska, er komið í hóp lyftu- og
dinnerlaga. Slík verða örlög jafnvel
hörðustu rokkara eftir því sem árin
færast yfir. Reyndar passar lag-
ið bara rétt þolanlega í þetta
músíkumhverfi. Af erlendum
lögum má nefna Suður um höf-
in, sem er næstum orðið ís-
lenskt eftir ofspiiun hérlendis,
gríska lagið Never on Sunday,
Alone Again (Naturally) eftir
Gilbert O’Suflivan, A Night-
ingale Sang in Berkeley Squ-
are. Allt í allt fjórtán lög.
Flutningur laganna er af-
slappaður, geðþekkur og hinn
vandaðasti en fremur tilþrifa-
litill þrátt fyrir að verki séu
hinir færustu spilarar sem auk
Hauks eru Alfreð Alfreðsson,
Ámi Scheving, Einar V. Schev-
ing og Vilhjálmur Guðjónsson.
En þannig á það víst vera á svona
diski. Lagið Solace eftir Scott Joplin
flytur Haukur Heiðar einsamall og
fer vel með það. Ekki ætti hann að
eiga i vandkvæðum með að gera
sólópíanóplötu líkt og áðurnefndur
Gunnar. Markmiðið hér er hið
sama og á Romantic Sax; að skapa
notalegt andrúmsloft við ýmsar að-
stæður, svo sem við veisluborð. Nú
á tímum má raunar eiga von á
svona músík úr óvæntustu áttum,
ekki bara úr lyftum og í veitingasöl-
um.
FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999 JL>"V
Ýmsir - Leggur og Skel: ★★★
Fyrir böm
og fullorðna
Það svífur gamaldags sveita-
rómantík yfír vötnunum á Leggi
og skel. Myndir Brians Pilk-
ingtons í diskbæk-
lingi draga ekki dul
á að hér er átt við
veröld sem var.
Flest lögin eru eftir
Magnús Þór Sig-
mundsson við ljóð
eftir Margréti Jóns-
dóttur. Þau eru að
mestu ætluð börnum og eru
lýsandi fyrir horfna tíð líkt og
mörg kvæöin í Vísnabókinni
frægu. Heiti söngvanna segja sitt
um innihaldið; Lambið mitt, Góð-
ir vinir, Snotra, Lítill ferðalang-
ur, Bláeyg (um brúðu). Magnúsi
Þór er þetta greinilega hugleikið
efni enda hefur hann áður sótt á
svipuð mið. Lög hans bera all-
nokkum keim af íslenskum og
írskum þjóðlögum en einnig al-
þjóðlegum rokkballöðustíl. Hann
hefur fyrir löngu fundið sér sinn
farveg í lagasmíðum og fágað
formið jafnt og þétt.
Ingvi Þór Kormáksson
Sem dæmi um virkilega vel
heppnaðar lagasmíðar má nefna
Vetrarljóð, Bláeyga og
Draumadísina. Það er eiginlega
bara Blómadansinn sem er frem-
ur óvönduð smíð. Það á við um
lagið í heild sinni en ekki síst óís-
lenskar áherslur á öðru atkvæði í
orðunum „blómál-
far“ og „vorkvöldi".
Þetta er nú eina
stóra syndin. Verst
að þetta gerist í
fyrsta sungna laginu.
Áður en að því kem-
ur er ágætt upphafs-
stef í írskum anda,
samið af Rafni Jónssyni.
En það flýtur hér fleira meö;
Maístjaman, Völuvísa Guðmund-
ar Böðvarssonar, Bí, bí og blaka
og Sofa urtuböm. Þessi lög og
ljóð eru í þessari röð aftast á
diskinum og hæfa ekki illa því
sem á undan hefur farið. Magnús
Þór syngur sjálfur nokkur lög
ásamt því að leika á gítar. Aðrir
söngvarar eru Stefán Hilmars-
son, Hreimur Örn Heimisson,
Þórann Magnúsdóttir, Kristjana
Stefánsdóttir, Steinunn Ólína
Þorsteinsdóttir, Tóta litla og
Ljósálfarnir. Aðrir sem fram
koma eru Birgir Bragason bassa-
leikari, Jóhann Hjörleifsson
trommari, Martial Nardeau
flautuleikari, Dan Cassidy og
Simon Kuran fiðluleikarar, Egg-
ert Pálsson með slagverk og Sig-
urður Halldórsson sem leikur á
selló. Bæði böm og fullorðnir
ættu að geta notið þessara ágætu
söngva.
/( < \>/i f<JJt f(tttf/.j jjtrtf JtfttJt
tt ttt
tt tJt
X Jt(/tt JJt
ic/Jjtl(/(</</(/ta <t <tnjtt/