Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1999, Side 34
34
FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999
FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999
Sport
Sport
Tíu efstu í kjöri íþróttafréttamanna á íþróttamanni ársins 1999
Sami Hyypia, varnarmaðurinn sterki
hjá Liverpool, hefur verið útnefndur
knattspyrnumaður ársins i Finnlandi.
Hyypia hefur átt frábært tímabil með
Liverpool og eru flestir þeirrar skoðun-
ar að kaup Gerards Houllier á Finn-
anum séu kaup ársins í ensku knatt-
spyrnunni. Hyypia, sem var útnefndur
leikmapur nóvembermánaðar í A-deild-
inni, hafði betur í kjörinu gegn mark-
verðinum Annti Niemi og sóknar-
manninum Jari Litmanen.
Maradona hefur verið útnefndur besti
íþróttamaður Argentínu á öldinni.
Þessi mikli knattspymusnillingur átti
stærstan þátt í að Argentínumenn urðu
heimsmeistarar í knattspymu árið 1986
og hann er af mörgum talinn einn besti
knattspymumaðurinn sem komið hefur
fram á sjónarsviðið.
Austurrikismenn voru sigursælir á
heimsbikarmóti í stórsvigi í Saalbach í
Austurríki í gær en þeir urðu í þremur
efstu sætunum. Sigurvegari varð
Christian Mayer, Herman Maier varð
annar og Benjamin Raich þriðji en
hann var með besta tímann eftir fyrri
ferðina.
ítalska liöió Lazio er reiðubúið að
punga út 4,5 milljörðum króna til að
kaupa Brasiliumanninn Rivaldo frá
Barcelona ef marka má frétt ítalska
blaðsins Gazzetto dello Sport í gær.
Sagt er í fréttinni að Lazio muni fjár-
magna kaupin með því að selja Chilebú-
ann Marcelo Salas til Juventus.
Eyjóifur Sverrisson og félagar hans í
þýska liðinu Hertha Berlin munu fá
liðsstyrk á næstunni en Brasilíumaður-
inn Alex Alves sem leikur með
Cruzeiro gengur frá samningi við
Herthu á næstu dögum. Alves er 24 ára
gamall framheiji sem skorað hefur 25
mörk fyrir lið sitt á þessari leiktíð.
íslendingalióin í grísku knattspym-
unni unnu bæöi leiki sína í gærkvöld.
Panathinaikos, lið Helga Sigurðsson-
ar, lagði Xanthi á útivelli, 1-3, og AEK,
lið Arnars Grétarssonar, vann góðan
útisigur á Proodeftiki, 1-4. -GH
Ólafur skrifaði undir
Ólafur Adolfsson skrifaði í gær
undir tveggja ára samning við liö
FH i knattspymunni. Ólafur er
sterkur miðvörður og mun styrkja
lið FH mikið.
-SK
Opið bréf til Billiard- og snókersambands íslands:
Stjórnin brýtur grund-
vallarlög og reglur
Íþróttasíðu DV hefur borist
eftirfarandi bréf:
„Síðastliðinn laugardag var
haldið úrtökumót á vegum
BSSÍ þar sem keppt var um
þátttökurétt á Norðurlanda-
móti í snóker sem haldið verð-
ur í Danmörku í febrúar á
næsta ári. Þarna voru mættir
til leiks margir af sterkustu
spilurum landsins enda mikið
í húfl, þaö er að segja að geta
keppt fyrir landsins hönd gegn
sterkustu spilurum hinna
Norðurlandaþjóðanna.
Keppt var með því fyrir-
komulagi að beinn úrsláttur
réð áframhaldandi þátttöku
hvers og eins og í átta manna
úrslitum lék ég gegn Gunnari
Hreiðarssyni og vann ég leik-
inn örugglega, 4-2. Þetta þýddi
að ég var svo sem öruggur með
þátttöku á mótinu í febrúar þar
sem 3-4 spilarar úr þessu móti
tryggðu sér rétt til þess og var
ég samkvæmt þessu kominn í
fjögurra manna úrslit eftir
þennan sigur.
Þaö er svo sem ekki frásögu
færandi þangað til eftir leik-
inn að Gunnar lagði fram
kæru á hendur mér og ásakaði
mig um slæma framkomu í
leiknum sem truflaði spila-
mennsku hans á meðan á
leiknum stóð.
Samkvæmt reglugerð getin-
hann svo sem gert það og hef
ég ekkert um það að segja en
ferlið og ákvörðunartaka
snókersambandsins í fram-
haldi af þessu máli er
stórfurðuleg og mun ég fara
yfir það sem átti sér stað hér á
eftir.
Um kvöldið (sama dag og
leikurinn fór fram) var settur
fundur innan sambandsins
þar sem farið var yfir um-
rædda kæru og var sú ákvörð-
un tekin að leikurinn skyldi
verða spilaður að nýju á há-
degi daginn eftir og var mér
tilkynnt það með skilaboðum
klukkan sjö sama morgun að
ég ætti að leika leikinn að
nýju fimm klukkustundum
áður en leikurinn átti að hefj-
ast. Óviðsættanlegt í alla staði
og þá sérstaklega vegna þess
að í fyrst lagi var ég ekki kall-
aöur á fundinn og spurður
álits.
í öðru lagi þar sem enginn
kvörtun um mina hegðun var
lögð fram til yfirdómara á
meðan á leiknum stóð hvorki
frá Gunnari né öðrum spilur-
um í salnum.
í þriðja lagi að leikurinn
skuli vera endurspilaður þar
sem bann eða fjársekt tíðkast í
alþjóðareglum og í fjórða lagi
að ég var aö vinna umrædda
nótt, og eftir stutt símtal um
morguninn við Björgvin Hall-
grímsson, formann BSSÍ, tjáði
hann mér að ég skyldi spila
leikinn að nýju án þess að gefa
mér neinar skýringar aðrar en
þær að þetta hafi verið ákveð-
ið kvöldiö áöur og ef ég mætti
ekki til leiks væri leikurinn
tapaður.
Svo fór að ég tapaði (M enda
ósofinn og ósáttur í alla staði.
Ég hafði samband við ÍSÍ til
að leita réttar míns og furðuðu
menn þar á bæ sig á þessum
vinnubrögðum og háttalagi
stjórnarinnar og sögðu það
liggja í augum uppi að þetta
mál væri meira og minna
stórfurðulegt í marga staði.
Þess ber að geta að ÍSÍ getur
ekki tekið neinar ákvarðanir
né dæmt í þessu máli þar sem
snókersambandiö er ekki inn-
an þeirra veggja.
Ég hafði samband við
Snókersamband Evrópu og
furðuðu menn sig enn meir á
þessari framkomu stjórnar-
meðlima hins íslenska sam-
bands og er málið núna í at-
hugun hjá yfirdómara Evrópu-
sambandsins og mun ég taka
ákvörðun um framhaldið
hvert og hvort ég tek þetta mál
lengra og þá hvemig.
Þangað til lýsi ég vanþókn-
un minni á störfum Billiard-
og snókersambands íslands og
segi ég mig hér með opinber-
lega úr sambandinu þar sem
erfltt er að leggja vinnu og
metnað í að vera í hópi
fremstu spilara landsins á
meðan núverandi stjórn kem-
ur svona fram og getur ekki
farið eftir grundvallarlögum
og reglugerðum sem settar em
á vegum Alþjóða- og Evrópu-
sambandsins í snóker."
Fyrrverandi meistaraflokks-
og landsliðsmaður í snóker.
Arnar Petersen
Bjarki Sigurðsson
handknattleiksmaður úr
Aftureldingu. Besti leikmaður
íslandsmótsins 1998-1999.
Eyjólfur Sverrisson
knattspyrnumaður úr Herthu Berlín.
Fyrirliði landsliðsins og lykilmaður
hjá þýska félaginu.
Kristinn Björnsson
skíðamaður úr Leiftri. í hópi fremstu
svigmanna heims og náði best
fjórða sæti á heimsbikarmóti.
Örn Arnarson
sundmaður úr Sundfélagi
Hafnarfjarðar. Evrópumeistari í 100 og
200 metra baksundi í 25 metra laug.
Rúnar Alexandersson
fimleikamaður úr Gerplu.
Framarlega í heiminum í bestu grein
sinni, bogahestinum.
Rúnar Kristinsson
knattspyrnumaður úr Lilleström.
Kjörinn leikmaður ársins í Noregi og
sló landsleikjametið.
Sigurbjörn Bárðarson
hestamaður úr Fáki. Heimsmeistari
og heimsmethafi á heimsleikum
ísienska hestsins.
Vala Flosadóttir
stangarstökkvari úr ÍR og 1. maí
Malmö. Silfurverðlaunahafi á
heimsmeistaramótinu innanhúss.
Þórður Guðjónsson
knattspyrnumaður úr Genk.
Belgískur meistari með félagi sínu
og markahæstur í landsliðinu.
r . ,í-
Helgi Kolviðsson, lengst til hægri, í baráttunni í leik Bayern Múnchen og Mainz í gærkvöld.
• •
Reuter
Bayern vann Mainz orugglega
Helgi Kolviðsson og félagar í FSV
Mainz áttu á brattann að sækja í gær-
kvöld í þýsku bikarkeppninni á heima-
velli Bayem Múnchen.
Bayem sigraði 3-0 með mörkum frá
Christian Jancker, Roque Santa Crus og
sjálfsmarki.
Hansa Rostock sigraði Stuttgart, 2-1.
Magnus Arvidsson gerði bæði mörk
Rostock en Sean Dundee mark Stuttgart.
Loks sigraði Stuttgart Kickers lið
Freiburg, 1-0, og sigurmarkið skoraði
Tomislav Maric.
-SK
Islendingarnir rólegir í þýska handboltanum
Flensburg er í efsta sæti þýsku
úrvalsdeildarinnar í handknattleik
eftir stóran sigur gegn Eisenach í
gærkvöld, 23-16. Róbert Duranona
skoraði 2 mörk fyrir Eisenach.
Ólafur Stefánsson skoraði einnig
2 mörk þegar Magdeburg náði jafn-
tefli á heimavelli Wetzlar, 21-21.
Willstatt steinlá heima gegn Bad
Schwartau, 22-28. Gústaf Bjama-
son skoraði 3/1 mörk fyrir Will-
statt og Magnús Sigurðsson 3.
Dagur Sigurðsson skoraði 2
mörk og Heiðmar Felixson 1 þegar
Wuppertal sigraði Schutterwald
24-22.
Dormagen tapaði á heimavelli
Nettelstedt, 25-21. Daði Hafþórsson
skoraði 2 mörk fyrir Dormagen.
Loks sigraöi Grosswallstadt lið
Frankfurt, 27-23, og Minden vann
Gummersbach á útivelli, 23-24.
-SK
Sex mörk hjá Newcastle
Newcastle sigraði Tottenham, 6-1,
í leik liðanna í enska bikarnum í
gærkvöld.
Alan Shearer skoraði tvö
markanna en hin mörkin gerðu þeir
Speed, Dabizas, Ferguson og Dyer.
Mark Tottenham gerði David Gin-
ola. Tveir aðrir leikir voru á dag-
skrá. Leicester vann Hereford, 2-1,
í framlengingu og Blackbum vann
West Bromwich Albion, 2-0, í
framlengingu. -SK
Birkir skrifaði undir hjá IBV
Birkir Kristinsson, landsliðsmaður í knattspymu, skrifaði í gær und-
ir nýjan samning við knattspymudeild ÍBV og gildir samningurinn til
tveggja ára.
Birkir lék í marki Eyjamanna í sumar en hann sneri heim eftir at-
vinnumennsku í Noregi og Svíþjóð. Eftir tímabilið hélt hann til Austur-
ríkis og lék með A-deildarliðinu Lustenau. Birkir fór fram á það við ÍBV
að verða leystur undan samningi og urðu Eyjamenn viö þeirri ósk. Nú
hefur hann ákveðið að snúa til baka og geta því Eyjamenn andað léttar.
Á tímabili voru Eyjamenn í markvarðarleit og héldu sig vera búna að
semja við Færeyinginn Jens Martin Knudsen en hann ákvað að taka til-
boði Leifturs og mun standa í marki liðsins jafnframt því að þjálfa liðið.
-GH
Rivaldo kjörinn aftur?
Alþjóða knattspymusambandiö, FIFA, mun tilkynna um val á knatt-
spymumanni ársins í hófl sem haldið verður í Brussel i Belgíu þann 24. jan-
úar. 140 landsliðsþjálfarar víðs vegar um heiminn stóðu að kjörinu og í gær
var tilkynnt hvaða þrír leikmenn urðu í efstu sætunum.
Þetta em Rivaldo, leikmaður Barcelona og brasilíska landsliðsins, David
Beckham, leikmaður Manchester United og enska landsliðsins, og argent-
ínski landsliðsmaðurinn Gabriel Omar Batistuta sem leikur með Fiorentina
á ítaliu. Einn þessara þriggja hreppir titilinn eftirsótta sem Frakkinn
Zinedine Zidane fékk á síðasta ári.
Þetta er í níunda sinn sem FIFA stendur að kjörinu en sá fyrsti sem varð
fyrir valinu var þýski landsliðsmaðurinn Lothar Mattháus.
FIFA hefur valið landslið Brasilíu sem lið ársins og háttvísisverðlaunin
koma í hlut Nýsjálendinga sem héldu heimsmeistarakeppni U-17 ára í nóv-
ember síðastliðinn.
-GH
NBA-DEILDIN
Úrslitin í nótt:
Boston - Atlanta .........98-81
Walker 24, Barros 15, Anderson 13 -
Coles 13, Ellis 13, Rider 11.
New York - Toronto .......91-90
Sprewell 25, Houston 18, Wallace 14 -
Carter 36, Davis 12, Christie 11.
Cleveland - Orlando .....97-103
Sura 28, Kemp 18, Person 14 -
Atkins 22, Williams 14, Gatling 13.
Miami - Utah..............74-72
Mouming 17, Carter 16, Brown 14 -
Molone 21, Russel 12, Homacek 12.
Chicago - Minnesota......86-106
Brand 17, Artest 14, David 14 -
Garnett 22, Sealy 19, Smith 18 .
Golden State - LA Clippers 99-103
Starks 22, Caffey 16, Mills 15 -
Nesby 28, Odom 22, Piatkowski 22.
43. sætið
íslenska landsliðið í knattspyrnu
er í 43. sæti á styrkleikalista Al-
þjóða knattspymusambandsins sem
gefinn var út í gær. íslendingar hafa
hækkað um fimm sæti frá því í nóv-
ember og um alls 21 sæti frá því um
síðustu áramót en þá voru íslend-
ingar í 64. sæti.
Brasilía er sem fyrr í efsta sæti
listans, Tékkland er í öðru sæti,
Frakkland í þriðja, Spánn í fjórða,
Þýskaland í fimmta, Argentína og
Noregur eru jöfn í sjötta og sjöunda
sæti, Rúmenía er í áttunda, Króatía
í níunda og Mexíkó er í tíunda sæt-
inu. -GH
kjöri íþróttamanns ársins hjá Samtökum íþróttafréttamanna lýst í beinni næsta mánudagskvöld
Á mánudagskvöldið kemur, 27. desember,
kynna Samtök íþróttafréttamanna kjör sitt á
íþróttamanni ársiris 1999. Þetta er í 44. skipti
sem samtökin standa að þessu kjöri en Vil-
hjálmur Einarsson varð fyrstur fyrir valinu
árið 1956, í kjölfar silfurverðlauna hans í
þrístökki á Ólympíuleikunum í Melbourne þá
um haustið.
Það eru meðlimir í Samtökum íþróttafrétta-
manna sem hafa atkvæðisrétt í kjörinu og
hver þeirra velur tíu íþróttamenn og raðar
þeim á lista frá einum og upp í tíu. Sá sem
Örn Arnarson var kjörinn íþróttamaður ársins 1998
og hefur geymt styttuna glæsilegu í eitt ár.
hlýtur flest stig samtals er sæmdur nafnbót-
inni íþróttamaður ársins, sem óumdeilanlega
er æðsta viðurkenning sem íslenskum íþrótta-
manni hlotnast ár hvert.
Hér að ofan má sjá þá 10 íþróttamenn sem
urðu í efstu sætunum í kjörinu að þessu sinni
og er þeim raöað eftir stafrófsröð. Á mánu-
dagskvöldið tekur einn þeirra við styttunni
glæsilegu sem fylgir nafnbótinni og varðveitir
hana í eitt ár. í þeim hópi eru tveir sem hlotið
hafa titilinn, þeir Öm Arnarson sem sigraði í
fyrra og Sigurbjörn Bárðarson sem var valinn
árið 1993.
Vilhjálmur var valinn fimm sinnum
Vilhjálmur Einarsson hefur oftast allra ver-
ið kjörinn íþróttamaður ársins, alls fimm
sinnum á fyrstu sex árum kjörsins. Þeir Einar
Vilhjálmsson spjótkastari, sonur Vilhjálms, og
Hreinn Halldórsson, kúluvarparinn sterki af
Ströndunum, voru valdir þrívegis hvor.
Frjálsíþróttamenn hafa oftast hreppt hnoss-
ið, 20 sinnum. Sundmenn koma næstir með 6
útnefningar, handknattleiksmenn hafa verið
valdir 5 sinnum, knattspyrnumenn 5 sinnum,
kraftlyftingamenn þrisvar, og körfuknattleik-
ur, júdó, hestaíþróttir og fimleikar hafa einu
sinni hver íþrótt átt sinn fulltrúa i efsta sæt-
inu.
Þessir hafa verið valdir íþróttamenn ársins
frá upphafi:
1956 Vilhjálmur Einarsson, frjálsar
1957 Vilhjálmur Einarsson, frjálsar
1958 Vilhjálmur Einarsson, frjálsar
1959 Valbjöm Þorláksson, frjálsar
1960 Vilhjálmur Einarsson, frjálsar
1961 Vilhjálmur Einarsson, frjálsar
1962 Guðmundur Gíslason, sund
1963 Jón Þ. Ólafsson, frjálsar
1964 Sigríður Sigurðardóttir, handkn.
1965 Valbjöm Þorláksson, frjálsar
1966 Kolbeinn Pálsson, körfuknattl.
1967 Guðmundur Hermannss., frjálsar
1968 Geir Hallsteinsson, handknattl.
1969 Guðmundur Gíslason, sund
1970 Erlendur Valdimarsson, frjálsar
1971 Hjalti Einarsson, handknattl.
1972 Guðjón Guðmundsson, sund
1973 Guðni Kjartansson, knattspyma
1974 Ásgeir Sigurvinsson, knattsp.
1975 Jóhannes Eðvaldsson, knattsp.
1976 Hreinn Halldórsson, frjálsar
1977 Hreinn Halldórsson, frjálsar
1978 Skúli Óskarsson, kraftlyftingar
1979 Hreinn Halldórsson, frjálsar
1980 Skúli Óskarsson, kraftlyftingar
1981 Jón Páll Sigmarsson, kraftlyft.
1982 Óskar Jakobsson, frjálsar
1983 Einar Vilhjálmsson, frjálsar
1984 Ásgeir Sigurvinsson, knattsp.
1985 Einar Vilhjálmsson, frjálsar
1986 Eðvarð Þór Eðvarðsson, sund
1987 Arnór Guðjohnsen, knattspyma
1988 Einar Vilhjálmsson, frjálsar
1989 Alfreð Gíslason, handknattl.
1990 Bjarni Friðriksson, júdó
1991 Ragnheiður Runólfsdóttir, sund
1992 Sigurður Einarsson, frjálsar
1993 Sigurbjörn Bárðarson, hestaíþr.
1994 Magnús Scheving, flmleikar
1995 Jón Arnar Magnússon, frjálsar
1996 Jón Arnar Magnússon, frjálsar
1997 Geir Sveinsson, handknattleikur
1998 Örn Arnarson, sund
1999 ??????????????
-VS
Vilhjálmur Einarsson, fyrsti íþróttamaður ársins og
sá sem oftast hefur verið kjörinn.