Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1999, Síða 54
58
FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999 DV
afmæli_________________________
Halldór Hlífar Árnason
Halldór Hlífar Árnason, verk-
stjóri hjá Olíufélaginu Essó á
Gelgjutanga, Arahólum 2, Reykja-
vík, er fímmtugur í dag.
Starfsferill
Halldór fæddist á Blönduósi og
ólst upp í Eyjakoti í Vindhælis-
hreppi í Austur-Húnavatnssýslu.
Hann var í farskóla í Vindhælis-
hreppi, stundaöi nám við Héröaös-
skólann í Reykjanesi við Djúp
1965-67, lauk meiraprófi bifreiða-
stjóra 1969 og hefur sótt ýmis nám-
skeið er lúta að starfi hans.
Fjölskylda
Halldór kvæntist 25.7. 1970 Guð-
rúnu Jónsdóttur, f. 1.11. 1950, for-
stöðumanni. Hún er dóttir Jóns
Mars Ámundasonar, f. 11.10. 1921,
lengst af bónda í Bjarghúsum i Vest-
urhópi í Vestur-Húna-
vatnssýslu, nú i Reykja-
vík, og k.h., Jóhönnu
Björnsdóttur, f. 4.8.
1930, húsfreyju og leið-
beinanda.
Sonur Halldórs og
Guðrúnarer ÁrniHall-
dórsson, f. 28.10. 1970,
rekstrarhagfræðingur í
doktorsnámi við Við-
skiptaháskólann í
Kaupmannahöfn, en
kona hans er Katrín
Ásta Gunnarsdóttir, f.
6.4. 1972, kandidatsnemi
i tölfræði við Kaup-
mannahafnarháskóla og eru synir
þeirra Egill Tumi, f. 16.8. 1996, og
Halldór Skúli, f. 20.6. 1999.
Bræður Halldórs eru Daníel, f.
16.4. 1948, sölumaður í Reykjavík,
kvæntur Guðrúnu Þor-
björgu Svansdóttur, f.
3.10. 1950, skrifstofu-
manni; Bragi, f. 26.12.
1950, slökkviliðsstjóri á
Blönduósi, , kvæntur
Svandísi Torfadóttur, f.
29.9. 1951, starfsmanni
við bamaheimili.
Foreldrar Haildórs:
Ámi Davíð Danielsson,
f. 16.5.1911, d. 28.6. 1970,
bóndi að Eyjakoti í
Vindhælishreppi, og
Heiðbjört Lilja Hall-
dórsdóttir, f. 23.8. 1918,
húsfreyja og verka-
kona, nú búsett á Blönduósi.
Ætt
Árni var sonur Daníels, ijós-
myndara á Sauðárkróki, Davíðsson-
ar, b. á Gilá í Vatnsdal, Davíðsson-
ar. Móðir Daníels var Þuríður
Gísladóttir, frá Mosfelli i Svínadal.
Móðir Árna Davíðs var Magnea
Aðalbjörg Árnadóttir, b. í Lundi í
Fjótum Magnússonar, oddvita á Hl-
ugastöðum Ásmundssonar, b. á
Ámá, Árnasonar. Móðir Magnúsar
var Aðalbjörg Magnúsdóttir. Móðir
Árna var Ingibjörg Sölvadóttir, b. á
Þverá í Hrollleifsdal, Þorlákssonar.
Móðir Magneu Aðalbjargar var
Baldvina Ásgrímsdóttir, b. á Skeið-
um í Fljótum, Ásmundssonar, b. á
Bjarnastöðum, Jónssonar. Móðir
Baldvinu var Guðrún Sveinsdóttir,
b. í Minna-Holti, Þorsteinssonar og
Gunnhildar Magnúsdóttur.
Halldór Hlífar Árnason.
Sigurjón Helgi Kristjánsson
Sigurjón Helgi Kristjánsson, sölu-
maður hjá Marks & Spencer í Aber-
deen i Skotlandi, 61F Logie Place,
Aberdeen, AB16 7UP, verður fertug-
ur á aðfangadag.
Starfsferill
Sigurjón fæddist í Reykjavík og
ólst við Baugsveg í Skerjafirði.
Hann var í Miðbæjarskólanum og
síðan Melaskóla, lauk gagnfræða-
prófl frá Hagaskóla 1976, verslunar-
prófi frá VÍ 1978, stúdentsprófl frá
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
1980 og stundaði síðan nám í tölvu-
fræði viö Háskólann í Kent í Kant-
arborg. Auk þess sótti hann nám-
skeið í sprengitækni.
Sigurjón var verslunarstjóri hjá
Tónborg í Kópavogi um skeið. Eftir
háskólanám starfaði hann á eigin
vegum við forritun og þýðingar og
var auk þess dreiflngarstjóri hjá út-
gáfu Æskunnar. Þá stofnaði hann
bókaútgáfuna Ósiris sf.
Sigurjón flutti til Ólafsvíkur 1986
og var þar leiðbeinandi við grunn-
skólann. Hann flutti til Reykjavíkur
ári síðar og hóf störf sem tölvari hjá
Löggildingarstofunni þar sem hann
hafði yfirumsjón með tegundarpróf-
unum á hinum ýmsu mælitækjum.
Hann var auk þess leiðbeinandi á
námskeiðum til löggildingar á vigt-
arkönnum auk þess að vera fulltrúi
íslands í norrænni fagnefnd Alþjóöa
samtakanna um lögmælifræði. Er
Löggildingarstofan var einkavædd
hóf Sigurjón störf hjá Pósti og síma.
Jafnframt því lék hann í ýmsum
sjónvarpsauglýsingum.
Sigtn-jón flutti til Skotlands 1997
og hefur átt þar heima
síðan. Hann starfaði til
skamms tíma hjá
Chubb Security Per-
sonnel Ltd sem vakt-
maður hjá fyrirtækjum
í olíuiðnaðinum. Hann
er nú söluráðgjafl hjá
Marks & Spencer í
Aberdeen.
Sigurjón var trúnað-
armaður á vegum SFR,
hefirn starfað í góð-
templarareglunni, í
Sam-Frímúrararegl-
unni og á vegum Kirkju
Jesú Krists hinna Síðari
Daga Heilögu. Hann var
einn helsti hvatamaður að stofnun
Hollvinafélags Hagaskólans. Hann
starfar nú í Starfleet Command, Qu-
adrant 2, Deep Space
Station Bon-Accord
sem hefur það mark-
mið að safna fé fyrir
hin ýmsu líknarmál-
efni.
Fjölskylda
Bróðir Sigurjóns var
Ronald Michael Krist-
jánsson, f. 10.5. 1951, d.
9.6. 1994, prentari.
Foreldrar Sigurjóns:
Kristján J. Sigurjóns-
son, f. 5.4. 1923, d. 11.8.
1983, skipstjóri á Áma
Friðrikssyni, og Bella
Mcdonald Sigurjóns-
son, f. 16.10. 1930, fyrrv. símamær,
búsett í Reykjavík.
Sigurjón Helgi
Kristjánsson.
Baldur Baldursson
Baldur Baldursson,
matráðsmaður og ráð-
gjafi, Stifluseli 10,
Reykjavík, verður
fimmtugur á aðfanga-
dag.
Starfsferill
Baldur fæddist i
Reykjavík og ólst þar
upp. Hann lauk sjúkra-
liðaprófi 1973, stundaði
nám við Vélskóla ís-
lands 1975-76, og við
Hótel- og veitingaskól-
an íslands 1987-88.
Baldur Baldursson.
Baldur hefur stund-
aði ýmis almenn störf
til sjós og lands. Hann
starfar nú við Meðferð-
arstoð ríkisins fyrir
unglinga að Stuðlum.
Þar hefur hann starfað
frá 1989.
Fjölskylda
Eiginkona Baldurs:
Kristín Gunnarsdóttir,
f. 7.5. 1953, skrifstofu-
maður. Hún er dóttir
Gunnars Magnússonar
skipstjóra og Kristinar
Valdimarsdóttur. Þau skildu.
Dóttir Baldurs og Ingu Ólafar
Ingimundardóttur, f. 31.10. 1950, d.
12.1. 1996, er Anna Jóna, f. 5.2. 1972,
búsett á Húsavík, en maður hennar
er Þráinn Ingólfsson, f. 17.9.1968, og
eru börn hennar Bjarki Grettisson
og Ingvi Leó Þráinsson.
Böm Baldurs og Kristínar eru
Valdimar Kristinn Baldursson, f.
30.11. 1974, búsettur í Noregi;
Malena Bima Baldursdóttir, f. 19.11.
1977, háskólanemi, í sambúð með
Pétri Sigurðssyni, f. 19.6. 1977.
Albræður Baldurs: Bjöm Baldurs-
son, f. 9.5.1942, þýðandi í Reykjavík;
Kolbeinn Baldursson, f. 14.10. 1944,
sjúkraliði í Reykjavík; Bragi Sigurð-
ur Baldursson, f. 28.12.1952, rafvirki
í Reykjavík.
Hálfsystir Baldurs, samfeðra, er
Guðrún Baldursdóttir, f. 5.6. 1940,
sjúkraliði í Kópavogi.
Foreldrar Baldurs: Baldur Kol-
beinsson, f. 1.1. 1914, d. 20.4. 1981,
vélstjóri í Reykjavík, og Anna Guð-
björg Bjömsdóttir, f. 15.2j 1914, hús-
móðir.
Baldur tekur á móti gestum í fé-
lagsheimili Rafveitunnar, þriðju-
daginn 28.12. milli kl. 18.00 og 21.00.
Guðrún Bjarney Samsonardóttir
Guðrún Bjarney Samsonardóttir
húsmóðir, Bjarteyjarsandi, Hval-
fjarðarstrandarhreppi, verður
ílmmtug á jóladag.
Fjölskylda
Guðrún fæddist í Reykjavík en
ólst upp í Hvammsvík í Kjósarsýslu.
Hún giftist 12.12. 1971 Jónasi Guð-
mundssyni, f. 1.2. 1944, verktaka.
Hann er sonur Guðmundar Jónas-
sonar, f. 16.5. 1903, d. 1991, bónda á
Bjarteyjarsandi, og k.h., Guðbjargar
Guðjónsdóttur, f. 15.3. 1909, fyrrv.
húsfreyju á Bjarteyjarsandi.
Börn Guðrúnar og Jónasar eru
Guðbjörg Elva, f. 3.2. 1970, starfar
við þungavinnuvélar, búsett í
Reykjavík, en sambýlismaður henn-
ar er Stefán Smári Lárusson, f.
17.11. 1968; Guðlaug Helga, f. 29.8.
1971, húsmóðir í Reykjavík, en sam-
býlismaður hennar er Unnar Karl
Halldórsson, f. 12.10. 1973 og eru
synir þeirra Fannar Öm, f. 23.12.
1994, Fjölnir Máni, f. 26.11. 1998, og
Sölvi Freyr, f. 26.11. 1998; Amfinn-
ur, f. 5.3. 1973, starfar við þunga-
vinnuvélar, búsettur í Reykjavík,
en sambýliskona hans er Inga Lára
Sigurðardóttir, f. 6.5.1978; Guðjón, f.
26.2. 1975, starfar við þungavinnu-
vélar, búsettur í Reykjavík, en sam-
býliskona hans er Þórdís Þórisdótt-
ir, f. 12.8. 1974; Samson Bjami, f.
19.10.1983, nemi við Fjölbrautaskól-
ann á Akranesi en unnusta hans er
Vala Gauksdóttir, f. 10.1.1983; Dofri,
f. 3.3. 1987, nemi við Heiðarskóla.
Systkini Guðrúnar eru Jóna Guð-
björg, f. 4.1. 1951, bankastarfsmaður
í Reykjavík; Sigríður, f. 17.5. 1953,
veitingamaður, búsett í Reykjavík;
Helgi, f. 3.6. 1954, sjómaður, búsett-
ur í Vogum á Vatns-
leysuströnd; Margrét, f.
28.11. 1955, kennari á
Húsavík; Valgerður, f.
23.9. 1957, húsmóðir í
Reykjavík; Guðbjöm, f.
1.11. 1958, starfsmaður
við þungavinnuvélar,
búsettur í Reykjavík;
Bára, f. 12.4.1960, versl-
unarmaður, búsett í
Kópavogi; Þorbjörg, . f.
13.5. 1961, húsmóðir í
Reykjavík; Hrönn, f. 5.7.
1965, húsmóðir, búsett í
Danmörku.
Foreldrar Guðrúnar:
Samson Samsonarson, f.
30.8. 1917, d. 1978, bóndi í Hvamms-
vík í Kjós, og k.h., Guðlaug Helga
Guðbjömsdóttir, f. 2.5. 1929, hús-
freyja.
Ætt
Foreldar Samsonar
vora Samson Jóhanns-
son og Bjarney Svein-
bjarnardóttir frá Þing-
eyri í Dýraflrði.
Foreldrar Guðlaugar
voru Guðbjörn Guð-
laugsson og Jóna Odd-
ný Halldórsdóttir en
þau bjuggu á ýmsum
stöðum.
Guðrún tekur á móti
gestum í félagsheimil-
inu Hlöðum á Hval-
fjarðarströnd á afmæl-
isdaginn milli kl. 15.00
og 21.00.
Guðrún Bjarney
Samsonardóttir.
Til hamingju
með afmælið
23. desember
80 ára_________________
Guðbjörg Lilja Ámadóttir,
Furugerði 1, Reykjavík.
Kristjana Vigfúsdóttir,
Hvammi, Húsavík.
Zophonias Mámsson,
Meltröð 4, Kópavogi.
75 ára
Aðalheiður Kolbeins,
Aðalstræti 4, Patreksflrði.
Egill Jón Benediktsson,
Sunnuílöt 2, Garðabæ.
70 ára
Baldur Helgason,
Langholtsvegi 184, Reykjavík.
Hjörtur Hjartarson,
Miðbraut 2, Seltjarnarnesi.
60 ára
Bjamflnnur Hjaltason,
'Rjúpufelli 24, Reykjavík.
Bjöm Friðfinnsson,
Sundlaugavegi 20, Reykjavík.
Hrönn Sigmundsdóttir,
Hringbraut 75, Keflavík.
Óskar G Sigurðsson,
Fjarðargötu 17, Hafnarfirði.
Tómas Sigurðsson,
Jaðarsbraut 31, Akranesi.
50 ára______________________
Ásdís Friðriksdóttir,
Hólagötu 5, Njarðvík.
Birgir M. Valdimarsson,
Birkihlíð 37, Sauðárkróki.
Bjöm Ragnar Sigtryggsson,
Víðihvammi 1, Hafnarfirði.
Eyjólfur Valdemarsson,
Aðallandi 6, Reykjavík.
Guðmundur Guðmundsson,
Grundarstíg 14, Sauðárkróki.
Guðrún Ingibjörg
HaUdórsdóttir,
Kirkjuvegi 19, Selfossi.
Jóhanna Guörún
Sigurðardóttir,
Birkiteigi 6b, Keflavík.
Róbert Pálsson,
Bylgjubyggð 33, Ólafsfirði.
40 ára
Ingunn Ósk Sturludóttir,
Vigur, Isafirði.
Kristbjörn Svansson,
Höfðabrekku 25, Húsavík.
Pétur Eggert Eggertsson,
Háaleitisbraut 155, Reykjavik.
Sigríður Ragnhildur
Valsdóttir,
Hlíðarbyggð 28, Garðabæ.
Tryggvi Snorrason,
Meðalholti 4, Reykjavík.
Notaðu vísifingurinn
Frípóstur
weitir
þér aukið