Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1999, Síða 57
„ ''•></ /j0tm
niil/"'
FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999
fólk ' -
Hveragerði og Holiywood - nýstárleg athöfn að lokinni kynningu á ferðamálum:
Klofin líflína Guðna talin tákna flokkaklofning
hljómplötur
*** Ragnar Bjarnason - Hin hliðin:
Djassstandardar og ballöður
Hin hliðin er nokkuð gott nafn á
nýrri plötu Ragnars Bjarnasonar
því á henni er hann í raun að
syngja lög sem hann flutti á tónleik-
um og dansleikjum á löngum og far-
sælum ferli sem ekki er séð fyrir
endann á, lög sem aldrei lentu á
plötum og eru þær þó ekki fáar sem
hann hefur sent frá sér. Á árum
áður, þegar Ragnar var hvað iðnað-
astur við að gefa út plötur, var yfir-
leitt um að ræða tveggja laga plötur
Og þá var fyrst og fremst hugsað um
hvaö myndi ná til fólksins sem var
þá vinsæl rokklög eða ný íslensk lög
og því kom aldrei til greina að gefa
út standarda á borð við þá sem eru
á Hinni hliðinni þótt Ragnar hefði
kannski mest gaman af
að syngja þessi lög.
Nú eru þessi lög kom-
in út á plötu og er feng-
ur að plötunni því ef það er einhver
söngvari íslenskur sem getur fetað í
fótspor Frank Sinatra og Tony
Bennett, svo tveir toppar séu nefnd-
ir, sem getur „svingað“ í söngnum
þá er það Ragnar og best fluttu lög-
in á Hinni hliðinni eru einmitt
þekktir djassstandaradar, sem allir
söngvarar sem vilja vera menn með
mönnum reyna við, lög eins og og
You Make Me Feel so
Young, Just One of
Those Things, Deed I
Do og Love and
Marriage og ekki er síður flutning-
ur hans á jólaóði Mel Tormes, The
Christmas Song, sem alla tíð hefur
verið uppáhald djasssöngvara þegar
kemur að jólalögum. Ragnar fer
með það eins og sannur atvinnu-
maður, hnökralaust. Þegar kemur
að ballöðunum er flutningur Ragn-
ars misgóður, best nær hann sér á
strik í All the Way og Young at He-
art.
Segja má að það sé góður heildar-
svipur á plötunni, undirleikur er
mjög góður, enda valinn maður í
hverju rúmi með Þorvald Ástvalds-
son píanóleikara í broddi fylkingar.
Þau lög sem skera sig nokkuð úr
heildinni eru tvö íslensk lög, annað
eftir Ragnar, Sú sælutið, sem er
ágæt lagasmíð þó það falli í saman-
Hilmar Karlsson
**** Magnús Eiríksson & KK - Kóngur einn dag:
Tveir kóngar í fínu formi
Snillingamir Magnús Eiríksson
og KK (Kristján Kristjánsson) eiga
að baki nokkurra ára samstarf
sem meðal annars skilaði sér í
þeirri ágætu plötu, Ómissandi
fólk, sem kom eins og ferskur
vindur í tónlistarflóruna. Þeir
hafa síðan verið að halda tónleika
með hléum jafnt á höfuðborgar-
svæðinu sem á landsbyggðinni
meðan beðið hefur verið eftir, með
nokkurri eftirvæntingu, nýrri
plötu frá þeim félögum, sérstak-
lega þar sem þeir hafa verið nokk-
uð lengi að hvisla því að fólki að
þeir væru alltaf að hugsa um að
láta verða af því að gefa út aðra
plötu. Þeir létu loks verða af því í
haust að fara i upp- .... .. .
tökuver og afrakstur HlllTiar KaflSSOII
inn er Kóngur einn --------------------------
dag, sem eins og
Magnús og KK hafa í gegnum
tíðina sótt efnivið í blúsinn og
upprunann er að finna í lögum á
Kóngm- einn dag
þótt segja megi
að þeir fari um
víðan völl án
þess þó að
karakterein-
kennin hverfi.
KK hefur plöt-
una með gríp-
andi lagi,
Seinna, seinna.
Hans karakter
sem lagahöfund-
ur kemur þó bet-
ur fram i þriðja
Ómissandi fólk er einstaklega gef-
andi og góð hlustun, uppfull af góð-
um melódískum lögum og skemmti-
legum og vel sömdum textum.
lagi plötunnar, Mér er
alveg sama, ekta KK-
lag. Magnús Eiríksson
hefur í gegnum tíðina
náð að verða ekki aðeins öflugt
tónskáld heldur öílugur textasmið-
ur og lög hans, sem eru í meiri-
hluta á plötunni, eru hvert öðru
betra og erfitt að taka eitt fram
yflr annað.
Samstarf þeirra Magnúsar og
KK er eigin-
lega samstarf
sem getur
aldrei skilað
nema góðri
skemmtun,
báðir hafa ver-
ið afkastamikl-
ir og arfur
þeirra er mik-
ill og góður.
Það kemur
kannski á
óvart hversu
vel þeir harm-
onera saman. Um hvorugan er
hægt að segja að hafi fagra rödd,
væru varla tækir í karlakór, en
það væri lítið varið í að heyra
karlakór syngja lögin á Kóngur í
einn dag, nei, flutningurinn er
áhrifamikUl vegna raddanna, sem
segja oft meira en mörg orð.
burði við klassíkina og Við bjóðum
góða nótt, lag sem Ragnar hefur
sungið frá upphafi ferils síns, fallegt^
lag eftir fóður hans, Bjama Böðv-
arsson, og segir Ragnar að þetta
eina lag réttlæti útgáfu plötunnar
því aldrei hafi hann sungið það inn
á plötu áður.
DV, Hveragerði:___________________
Hvergerðingar eru fremstir allra
landsmanna í ferðaþjónustu. Eng-
inn bær fær aðrar eins gestakomur
og ferðamenn eyða þar meiru fé en
á öðru byggðu bóli. Fyrir skömmu
var haldinn blaðamannafundar, í
Hveragerði, þar sem kynnt voru
meginatriði skýrslu um stefnumót-
un og framkvæmdaáætlun í ferða-
málum fyrir bæinn. Skýrslan er
m.a. byggð á viðhorfsrannsóknum
gesta og heimamanna í Hvera-
gerði.
Að sögn Olafs Forbergs verkefn-
isstjóra mun þetta vera ein viða-
mesta samantekt sem gerð hefur
verið í þessum málaflokki fyrir eitt
sveitarfélag. í skýrslunni kemur
m.a. fram að samkvæmt rannsókn-
um og vegatalningum vegagerðar-
innar megi áætla að 200-230 þús-
und ferðamenn hafl komið við í
Hveragerði árið 1998 I alls 750-900
þúsund heimsóknum. Heildarút-
gjöld ferðamanna í bænum voru
samkvæmt niðurstöðum rann-
sókna 800-1.000 milljónir króna
það ár, eða 470-600.000 kr. á hvern
íbúa í Hveragerði. Er það 4-5 sinn-
um hærra en landsmeðaltal.
Olaf Forberg verkefnisstjóri og Anna Jórunn, formaður leikfélagsins.
Hálfdán bæjarstjóri staðfestir tilveru sína í leirköku. DV-myndir Eva.
Að lokinni dagskrá í Hveraskál-
anum var gestum boðið í Grænu
smiöjuna til „óvæntrar uppá-
komu“. Sú athöfn að frægir leikar-
ar þrýsti hönd sinni í blauta
steypu og skrái nafn sitt við er vel
þekkt i Hollywood. í Grænu smiðj-
unni var Guðna Ágústssyni land-
búnaöarráðherra.boðið að þrýsta
hönd sinni í leirköku og móta
þannig handarfar sitt, líkt og leik-
aramir í Hollywood. Höfðu við-
staddir á orði að i afsteypunni
sýndist líflína Guðna Ágústssonar
klofin. Gæti það e.t.v. verið til
marks um einhvers konar flokka-
klofning innan tíðar. Afrit af hendi
bæjarstjórans, Hálfdáns Kristjáns-
sonar, var einnig greypt í leir.
Þessar tvær leirkökiu- hanga nú
væntanlega uppi í Grænu smiðj-
unni sem fyrsti vísir að safni hand-
arfara frægra listamanna og ann-
arra fræga manna. -eh
Bjartmar Guðlaugsson - Strik:
★★★
Við sama heygarðshornið
Bjartmar Guðlaugsson hefúr fyrir
löngu helgað sér bás í íslensku dæg-
urtónlistarsögunni. Hann er ekkert
langt frá Megasi og jafnvel Herði
Torfasyni en þó oft aðgengilegri
fjöldanum en þeir tveir með léttrokk-
aða tónlist sína og skemmtilega sam-
an setta texta. I þeim hæðist hann
gjaman að sér og samferðamönnum
sínum í nútið og fortið og kemst oft
bráðskemmtilega að orði.
Á plötunni Strik er Bjartmar við
sama heygarðshornið. í raun og veru
er fátt hægt að segja um þessa nýju
plötu sem ekki hefur verið áður sagt
um verk Bjartmars. Ekki er beinlín-
is hægt að afgreiða hann
sem staðnaðan meðan í . T,
hann finnur ný og ný ASgeií I OITiaSSOII
efni til að yrkja og ------------------------------
syngja um en efnistökin
eru alifyrirsjáanleg.
hjali. Þetta á einkum viö hið svokall-
aða sumarpopp þar sem í tísku virð-
ist vera að sleppa því
að nota persónufomöfn
í söngtextum. Meðan
lágkúran ríkir ber að
fagna hverri vel yrkj-
Þjóðfélagsrýni er fremur fátíð í ís-
lenskum dægurlagatextum um þess-
ar mundir en þeim mun meira af
meiningarlausu og illa saman settu
andi sál sem nennir að messa dálítið
yfir okkur hinum. Þetta kann Bjart-
mar Guðlaugsson og gerir það á plöt-
unni Striki á sinn háðska hátt.
fcj-