Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2001, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2001, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2001 I>V Fréttir Einn fjölmargra hluthafa í Mex-Ice: Vonaðist eftir sólskinsstarfi - en smábátaútgerð breyttist í mjölverksmiðju „Mér var á sínum tíma talin trú um aö hefja ætti smábátaútgerö í Mexíkó. Mikil bjartsýni réð ríkjum og ég lagði í þetta smávegis pen- inga. Síöar komu aðrir hluthafar inn og ákveðiö var að kaupa mjöl- verksmiðju," segir Sigurður Ingi Lúðvíksson, fyrrverandi skipstjóri og útgerðarmaður, einn fjölmargra hluthafa í Mexikansk-íslenska út- gerðarfélaginu hf. Sigurður Ingi gekk til liðs við fyrirtækið við stofn- un þess árið 1993 og var þá kosinn í stjóm. Hann hafði átt smábátaút- gerö en seldi hana eftir að hafa lent i alvarlegu slysi. Eins og DV greindi frá stofnaði Mexikansk-íslenska út- gerðarfélagið fyrirtækið Mex-Ice sem keypti mjölverksmiðju í Culiacán við Kaliforníuflóa. Endur- bygging verksmiöjunnar hófst árið 1995 og lauk í desember árið 1997 með vel heppnaðri prufukeyrslu. Síöan hefur ekki komið svo mikið sem ein sardína i verksmiðjuna og mexíkóskur banki hefur yfirtekið eignirnar. Aöeins verðir Engin vinnsla hefur veriö í verk- smiöju Mex-lce síöan prufukeyrt var í desember 1997. Eina lífsmarkiö eru veröirnir sem passa aö ekki veröi stoliö tækjum eöa búnaöi. nokkurt fé með sölu út- gerðar sinn- Hug- myndin hafi ver- ið sú að hann legði fram meira fjár- magn f fyrir- tækið. „Ég var til- búinn til að leggja fram nokkrar milljónir ef því væri að skipta en af því varð sem betur fer ekki. Ég tel mig heppinn að hafa sloppið. Það virðist hafa verið eitthvert stjóm- leysi í gangi þarna. Að minu mati var óhreint mjöl í pokahorninu," segir Sigurður Ingi. -rt DV-MYND INGÓ Ekkert mjöl Siguröur Ingi Lúövíksson lagði peninga í smábátaútgerð i Mexíkó en eignaöist hlut í mjölverksmiöju sem aldrei fór í gang. Hér er hann meö umbúöir sem áttu aö vera utan um ómælt magn af mjöli sem enn ból- ar ekkert á. „Ég sá von í því að fá vinnu sem ég þyldi í sólskini og hita í Mexikó. Um hríð vann ég ýmis viðvik fyrir félagiö en sá aldrei krónu fyrir það,“ segir Sigurður Ingi. Hann seg- ir að ekkert hafi orðið af Mexíkó- ferð. „Seinna komu nýir menn að þessu og ný stjórn var kosin. Ég hef ekkert heyrt síðan nema á skotspón- um. Ég heyrði því fleygt að vel gengi að útbúa verksmiðj- una og ól þá von í brjósti að einhverja vinnu væri þar að hafa. Eftir að verksmiðjan var prufu- keyrð í desember 1997 hefur verið þögn um málið. Ég hef spurst fyrir en fátt er um svör. Mér skilst að verksmiðjan hafl aldrei fengið hrá- efni og nú verið yfirtekin af banka í Mexíkó," segir hann. Sigurður Ingi segist hafa losað DV-MYND GK Hann er á! Guömundur Jónsson búinn aö setja í ágæta bleikju í lóninu skammt frá Húsavík. Fluguveiði á þorra DV, AKUREYRI:________________ Skammt sunnan við Húsavík getur nú að líta nokkuð stórt lón sem þar er nýkomið en lónið var búið til og í það veitt affallsvatni frá orkuveitu bæjarins sem er þama skammt frá. Er ágætis hiti á vatninu og úr lón- inu rennur lækur til sjávar. 1 lónið voru settar eitt þúsund bleikjur af ýmsum stærðum, allt frá nokkur hundruð gramma fiskum upp í 3-4 punda fiska og mönnum er heimilt að fara að lóninu hvenær sem er og kasta fyrir fisk endur- gjaldslaust. Þegar vorar er reiknað með að bleikjan gangi til sjávar og komi siðan til baka þegar kemur fram á sumarið, feit og falleg. Þegar DV átti leið þarna um nú í vikunni var einn maður að veiðum í lóninu. Þar var á ferðinni Guð- mundur Jónsson og hann sveiflaði flugu sinni fimlega út yfir vatnið og bleikjan tók hjá honum. Ekki ama- legt það, að standa í bleikjuuveiöi á flugu á þorra. -gk Sjö bílslys á sjö mánuöum: Kristín lenti í því áttunda - varö ekki um sel 7 bílslys á 7 mánuðum - «íí «r ««ir kriaúJiM-iáktit Kristín Jónsdóttir þroska- þjálfi, sem komst í fréttimar siðastliðið haust eftir að hafa lent í sjö umferðarslysum á sjö mánuðum, hefur nú lent í því áttunda. Kristín skipti yfir á vetrardekk á bifreið sinni í síðustu viku og á leið- inni heim af dekkjaverkstæð- inu losnaði eitt hjólið undan. Kristín sá hvað verða vildi og tókst í tima að renna bíl sínum út í vegkant á Vesturlandsvegi áður en tjón hlaust af. „Það voru í raun þijú hjól undir bílnum þegar ég stansaði og mér varð ekki um sel. Ég er orðin dauðhrædd um að þetta eigi eftir að enda illa ef svo fer fram sem horfir. Ég held að ég sé heimsins mesti hrakfallabálkur," sagði Kristín sem þorir vart orðið að Fréttln um Kristínu og slysin sjö Er líklega mesti hrakfallabálkur í heimi. stinga brauðrist í samband af ótta við slys. Kristín Jónsdóttir hefur haft bílpróf í 14 ár og telur sig vera í góðri þjálfún sem bílstjóri. Hún hefur alltaf verið í fúllum rétti í öllum þeim um- ferðaróhöppum sem hún hef- ur lent í og hefúr fullan bón- us hjá tryggingafélagi sínu. Hrakfallasaga Kristínar í umferðinni er sem hér segir: Fyrst var ekið aftan á hana á rauðu Ijósu gegnt Fíladelfíu- kirkjunni við Laugavegin. Þá var ekið utan í hana í Grafar- vogi, síðar i Mosfellsbæ og þá aftur í Grafarvogi. Hjól datt undan bíl hennar á leið norður í land og í Mosfellsbæ ók bíll í veg fyrir hana með þeim afleiðingum að hún ók út af. Svo var það nú síðast að hjólið með nýja vetrardekkinu losnaði undan sem fýrr greindi. „Ég veit ekki hvað veldur. Mér stendur ekki á sama,“ sagði Krist- ín Jónsdóttir. -EIR Jan Kjærstad fær Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs Ein dómnefnd fauk Norski rithöfundurinn Jan Kjærstad sigraöi í kapphlaupinu um Bókmenntaverðlaun Norður- landaráðs í gær með þriðja bindi sinu um sjónvarpsstjömuna Jonas Wergeland, einhverja umfangs- mestu rannsókn á norsku samfé- lagi í bókmenntum síðari tíma. Að- dáendur höfundarins heima og er- lendis hafa verið æfir af reiði yfir því að fyrri bindin skyldu ekki vera lögð fram og þegar lokabind- ið, sem kom út 1999, var ekki lagt fram heldur varð allt vitlaust. Lauk deilum svo að norska dómnefndin sagði af sér, en ný nefnd hlýddi kröf- um lesenda og lagöi Opp- dageren (Landkönnuð- inn) fram með ofan- greindum árangri. Þríleikur Kjærstads hef- ur vakið jafnvel meiri Jan Kjærstad. hrifningu utan Noregs en innan, ekki síst í Dan- mörku, og er ástæðan talin sú hve tæpitungulaust hann lýsir þjóð sinni. Norömenn koma fyrir sem óttalega sjálfsánægt fólk í verkinu og þeir eru ekki allir jafn ánægðir með það. Verðlaunin eru 350.000 dkr. og verða afhent í Ósló 4. apríl í vor. -SA Unisjón: Reynir Traustason netfang: sandkorn@ff.is Saman í Brussel Ymsar /angaveltur bafa verið uppi um að Jón Baldvin Hannibalsson sendiherra ís- lands í Was- hington hygð- ist verða sendiherra í Kína. Nú er um það talað í helstu kreðsum ut- anríkisþjónustunnar að ekkert verði af Kínafor Jóns Baldvins og Bryndísar Schram. Þau muni halda til Brussel þar sem Jón Bald- vin endi feril sinn en hann fer á eftirlaun eftir nokkur ár. Þessu til stuðnings er bent á að börn sendi- herrahjónanna, Glúmur Bald- vinsson og Kolfinna Baldvins- dóttir búi bæði þar. Fjölskyldan muni því sameinast í Belgíu ... Dularfull Stella Eitt bes varðveitt; leyndarmá bókmennta- geirans er það hver felur sig á bak við höf- undarnafnið Stella Blóm- kvist sem selt hefur morð- bækur sínar aBcci- lega. Hjá forlagi Stellu, Eddu, verj- ast menn allra frétta. Giskaö hefur verið á að Stefán Jón Hafstein væri þarna kominn í dulargervi en það mun vera alrangt. „Stella" er kona á fertugsaldri sem skrifað hef- ur bækur undir réttu nafni en ekki orðið þekkt enn þá... iPÓSTURINN íslandspóstur hjálpar Mán- aðamót | janúar c febrúar | vilja oft vefjast fyrir fólki. Líður þá mörgum eins og her- mönnunum sem komu frá Víetnar og endurlifðu atburðina. Heimilis- feður og mæður vakna upp eftir martraðir um margítrekaðar posa færslur í búðum fyrir jólin. Flestb fógnuðu þess vegna þegar íslands- póstur kynnti nýja og byltingar- kennda tækni í baráttunni við vísareikningana. Með sérstökum aðgerðum ætla Einar Þorsteins- son og aðrir starfsmenn Islands- pósts að hjálpa lítilmagnanum ef marka má fréttir. Tilraunir voru gerðar í Suðurhlíðum Reykjavíkui og lofuðu góðu. Aðferðin var ein- fóld: einfaldlega að bera ekki út neinn póst heldur fela hann á ör- uggum stað ... Ánægja með Ármann Keppendur og stjórnendur Gettu betur eru hæstánægðir með hinn nýja dómara, Ár- mann Jakobs- son. Spuming- ar hans þykja traustar og dómarinn fer I á kostum. Ár- mann var ráðinn sem dómari í kjölfar þess að Ólína Þorvarðar- dóttir hafði verið eitt ár í dómara- sætinu við misjafnan orðstír. Bæði Ármann og Logi Bergmann Eiðs- son stjórnandi stunduðu á sínum tíma nám við Menntaskólann við Sund en lið skólans er að vanda í úrslitum. Ármann hirti stig af sporgöngumönnum sínum á dögun- um en lýsti þvi jafnframt að aðrir skólar heföu fengið stig fyrir sama svar. „Vil ekki vera sakaður um að hygla mínum skóla,“ sagði dómar- inn við mikil fagnarlæti áheyr- enda....
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.