Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2001, Blaðsíða 8
8
Útlönd
LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2001
DV
Alfred Sirven
Handtaka hans á Filippseyjum gæti
haft afdrifaríkar afieiöingar fyrir rétt-
arhöldin yfir Roland Dumas.
Réttarhöldunum
yfir Roland
Dumas frestað
Réttarhöldunum yfir Roland
Dumas, fyrrum utanríkisráðherra
Frakklands, verður frestað á mánu-
dag, að þvi er upplýst var í París í
gær. Ástæðan er handtaka Alfreds
Sirvens, fyrrum yfirmanns hjá rík-
isoliufélaginu Elf, á Filippseyjum í
gærmorgun. Hann hafði verið á
flótta síðan 1997.
Sirven er miðpunktur eins
stærsta spillingarhneykslis í Frakk-
landi á síðari timum þar sem olíufé-
lagið Elf er sakað um að hafa eytt
hundruð milljóna króna í mútur til
háttsettra stjórnmálamanna, þar á
meðal Dumas, i tengslum við sölu á
herskipum til Taívans.
„Þetta er pólitískt samsæri,"
sagði Sirven við fréttamenn á Fil-
ippseyjum. Hann neitar að hafa að-
hafst nokkuð rangt.
Fjölskyldur í mál
við stjórn Líbíu
Bandarískar fjölskyldur fórnar-
lamba sprengjutilræðisins í flugvél
Pan Am yfir Lockerbie ætla að
höfða mál á hendur líbískum stjórn-
völdum og krefja þau um 850 millj-
arða króna í skaðabætur. Lögmaður
fjölskyldnanna 150, Lee Kreindler,
sagði þó í gær að þær þyrftu senni-
lega aö sætta sig við umtalsvert
lægri fjárhæð.
Fulltrúar fjölskyldnanna hittu
dómara í New York í gær til að
skipuleggja hvenær mál þeirra yrði
tekið fyrir. Útsendari líbisku leyni-
þjónustunnar var í vikunni dæmd-
ur í lífstíðarfangelsi fyrir tilræðið.
Erfiö staöa
Poul Nyrup Rasmussen, forsætis-
ráöherra Danmerkur, líst ekki á sjálf-
stæöisbrölt Færeyinga.
Nyrup harmar
áform Færeyinga
Poul Nyrup Rasmussen, forsætis-
ráðherra Danmerkur, segir að
ákvörðun færeysku landstjómar-
innar um að boöa til þjóðaratkvæð-
is um sjálfstæðismálin í vor séu al-
varleg tíðindi fyrir samband land-
anna tveggja.
„Danska ríkisstjórnin stendur
frammi fyrir alvarlegri stöðu þar
sem upp kemur fjöldi álitamála á
sviði stjómlagaréttar og efnahags-
mála,“ segir Poul Nyrup í viðtali við
fréttastofuna Ritzau.
Danska ríkisstjómin hittir Fær-
eyjanefnd danska þingsins eftir
helgi til að ræða stöðuna.
Færeyska landstjórnin tilkynnti á
fimmtudag að kosið yrði um sjálf-
stæðisáætlanir hennar 26. mai.
Palestínumenn efndu til mótmæla eftir bænahald í gær:
Brenndu Ijósmyndir
af Barak og Sharon
Hundruð Palestínumanna efndu
til mótmælaaðgerða í Vesturbakka-
borginni Nablus eftir bænahald i
gær. Sjónarvottar sögu að mótmæl-
endurnir heföu kveikt í ljósmynd-
um af þeim Ehud Barak, forsætis-
ráðherra Israels, og Ariel Sharon,
leiðtoga hins hægrisinnaöa Likud-
bandalags. Á myndirnar var áletr-
að: „Tveir morðingjar".
Ólæti brutust út víðar á heima-
stjómarsvæðum Palestínumanna í
gær, fjórum dögum fyrir forsætis-
ráðherrakosningarnar í ísrael. Ef
marka má skoðanakannanir mun
Sharon vinna auöveldan sigur á
Barak og verða næsti forsætisráð-
herra landsins.
ísraelskir hermenn skutu og
særðu fjóra Palestínumenn í átök-
um við mótmælendur í Ramallah á
Vesturbakkanum. í Hebron kveiktu
mótmælendur í bíldekkjum og
grýttu ísraelska hermenn sem svör-
uðu með gúmkúlum og stuðsprengj-
Ehud Barak
Þótt ísraelski forsætisráðherrann sé
brosandi og gefi sigurmerkiö, eru
allar líkur á aö hann muni tapa stórt
í forsætisráöherrakosningunum sem
fara fram á þriöjudaginn kemur.
um. Sjónarvottar sögðu að palest-
ínskir lögregluþjónar hefðu reynt
að halda mannfjöldanum frá ísra-
elsku hermönnunum.
Skoðanakannanir benda til að
Sharon muni sigra með allt að 21
prósentustigs meirihluta. Hann
sagði þó í gær að björninn væri
ekki unninn.
„Ég get aöeins lofað einu: Þegar
ég verð kjörinn verður mynduð rík-
isstjórn og það veröur þjóðstjórn
því eining er það sem mestu skipt-
ir,“ sagði Sharon á kosningafundi í
borginni Herzliya.
Barak hét því að hann myndi
ekki taka þátt í slíkri ríkisstjórn. Og
í viðtali við ísraelskt dagblað sagði
hann að með sigri Sharons kæmist
til valda „öfgasinnaðasta stjórn í
sögu landsins".
Ýmsir flokksfélagar Baraks höfðu
hvatt hann til að draga sig i hlé og
láta Shimon Peres keppa við Sharon
en Barak féllst ekki á það.
Súpa handa heimllislausum í Moskvu
Fátæklingar og heimilislausir eiga ekki sjö dagana sæla í Moskvu um þessar mundir. Mikill snjór liggur yfir öllu, meö
tilheyrandi vandræöum fyrir fólk, hvort sem þaö er fótgangandi eöa akandi. Þessi mynd var tekin í gær þar sem þeir
sem ekki eiga í nein hús að venda gátu fengiö sér smá súpuslettu til aö ylja sér og til aö seöja sárasta hungriö.
Norski nýnasistinn sem var handtekinn í Kaupmannahöfn:
Neitar að hafa drepið
blökkudrenginn í Ósló
Norski nýnasistinn Joe Erling
Jahr, sem var handtekinn í Kaup-
mannahöfn á fimmtudagskvöld,
lýsti sig saklausan af moröinu á
blökkupiltinum Benjamin Herman-
sen í Ósló fyrir viku.
Joe Erling sagði þetta fyrir rétti í
Kaupmannahöfn í gær. Hann neit-
aði jafnframt að láta framselja sig
til Noregs. Honum verður gert að
sæta gæsluvarðhaldi í þrettán daga.
„Jahr sat grafkyrr. Hann sagði
bara eina setningu og leit ekki út
fyrir að líða vel,“ sagði Lars Petter
Henie, ritari við norska sendiráðið í
Kaupmannahöfn, í samtali við net-
útgáfu norska blaðsins VG.
Til stóð að norska lögreglan legði
fram formlega kröfu um framsal
Jahrs síðdegis í gær og gerði hún
sér vonir um að skjótt yrði brugðist
við henni.
„Við vonumst til að fá hann til
Noregs á þeim þrettán dögum sem
honum er gert að sitja í varðhaldi í
Kaupmannahöfn," sagði lögreglu-
fulltrúinn Finn Abrahamsen í Ósló
við VG.
Þar sem Jahr neitar að láta fram-
selja sig getur það tekið allt að fjór-
ar vikur að fá hann aftur til Noregs.
Norska lögreglan íhugar að senda
fulltrúa sina til Kaupmannahafnar
til að yfirheyra Jahr.
Nokkur hópur manna geröi hróp
að norska nýnasistanum þegar
komið var með hann til dómhússins
í gær. Eftir að hann var kominn inn
kom til átaka milli andstæðinga
kynþáttafordóma og tveggja til
þriggja nýnasista.
„Nasistasvín, nasistasvín," hróp-
uðu mótmælendumir.
Jahr var handtekinn í lest í Kaup-
mannahöfn þar sem hann hafði ekki
gildan miða.
Þrír aðrir norskir nýnasistar
voru úrskurðaðir í fjögurra vikna
gæsluvarðhald í Ósló í gær, grunað-
ir um aðild að morðinu á Benjamin
Hermansen. Þremenningarnir
höföu áður verið handteknir í
tengslum við rannsókn málsins en
síðan látnir lausir.
Spurningar fyrir Rumsfeld
Donald Rumsfeld,
landvamaráðherra
Bandaríkjanna, get-
ur átt von á því að
þurfa að svara fjöl-
mörgum spurning-
um áhyggjufullra
leiðtoga Evrópu-
ríkja um fyrirhug-
aðar eldflaugavarnir stjórnvalda í
Washington. Rumsfeld situr ráð-
stefnu um öryggismál í Múnchen í
Þýskalandi yfir helgina.
Kjarnorkuvandi Litháa
Litháar gætu átt i erfiðleikum
með að gera sig klára fyrir aðild að
Evrópusambandinu nema þeir loki
einnig siðari ofni kjarnorkuversins
Ignalina, að því er sendiherra Sví-
þjóðar í Vilnius sagði í gær.
Fischer hreinsaöur
Joschka Fischer, utanríkisráð-
herra Þýskalands, hefur veriö
hreinsaður af öllum grun um að
hafa kastað eldsprengju sem nær
kostaði lögregluþjón í Frankfurt líf-
ið í mótmælaaðgerðum árið 1976.
Milosevic undir smásjá
Stjórnvöldum í Belgrad hefur orð-
ið nokkuð ágengt í að safna gögnum
fyrir eigin ákæru á hendur Slobod-
an Milosevic, fyrrum Júgóslavíufor-
seta, fyrir meinta glæpi sem hann
framdi á tólf ára valdaferli sínum,
að sögn Zorans Djindjics forsætis-
ráðherra.
Tony og Bill lífstíöarvinir
Bill Clinton, fyrr-
um Bandaríkjafor-
seti, á von á því að
þeir Tony Blair, for-
sætisráðherra Bret-
lands, verði lífstíð-
arvinir, svo vel hef-
ur farið á með
þeim. Clinton bar
mikið lof á Blair í blaðaviðtali.
Tvíburaforeldrar fyrir rétt
Bresku hjónunum sem ættleiddu
tvíbura um Netið hefur verið gert
að mæta fyrir rétt í Bandaríkjun-
um, að sögn lögmanns hjónanna
sem deila við þau um yflrráð yfir
börnunum.
Robertson vil samvinnu
George Robert-
son, framkvæmda-
stjóri Atlantshafs-
bandalagsins, ítrek-
aði í gær óskir sin-
ar um að Evrópu-
sambandslöndin
hefðu samráð við
NATO-lönd sem
ekki eru í ESB um skipulagningu
vamarmála.
Áfallahjálp gagnslaus
Sálfræðileg áfallahjálp til þeirra
sem hafa lent í slysum hefur engin
áhrif, að því er segir í niðurstöðum
rannsóknar dansks sálfræðings.
Danska blaðið Politiken sagði frá
þessu í gær.
Stjörnurnar til hjálpar
íþrótta- og kvikmyndastjörnur á
Indlandi sögðu í gær að þær ætluðu
að leggja fómarlömbum jarðskjálft-
ans mikla í Gujarat lið. Þúsundir
manna hafa orðið að sofa undir ber-
um himni átta nætur í röð í miklum
kulda. Þeir sem stjóma hjálparað-
gerðum sögðu að þannig yrði þaö í
marga mánuði enn.