Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2001, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2001, Side 7
7 LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2001 DV Fréttir Flutningur Reykjavíkurflugvallar kannaður: Lagt til fyrir tæpum 19 árum ~ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir vildi láta kanna flutning vallarins Fyrir tæpuni tveimur áratugum lagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, nú- verandi borgarstjóri Reykjavíkur, fram tillögu Kvennalistans fyrir borg- arráð um að gerð yrði könnun á mögu- leikunum á því að flytja Reykjavíkur- flugvöll. „Þessi tiilaga var flutt í borgarstjóm 1. júlí 1982 þannig það það er 18 1/2 ár síðan. Það var verið að fara fram á að gerð yrði könnun á þessu og það hefði nú betur verið gert,“ sagði Ingibjörg Sólrún sem var á þeim tíma nýbyrjuð i stjómmálum, en hún var kosin sem fulltrúi Kvennalistans í borgarráð vor- ið 1982 en hann var stofnaður i febrú- ar sama ár. Tillagan hljóðaði svona: „Borgar- stjóm samþykkir að fela borgarskipu- lagi, í samvinnu við skipulagsneftid, að kanna möguleikana á því að flytja ReykjavíkurflugvöU úr Vatnsmýrinni, með það fyrir augum að blönduð ibúa- byggði rísi á svæðinu hið allra fyrsta. Jafnframt felur borgarstjórn borgar- skipulagi að gera samanburð á kostum og göllum við byggð í Vatnsmýri ann- ars vegar og byggð norðan Grafarvogs og í landi Keldna hins vegar.“ Tillagan fékk hins vegar ekki hljóm- grunn á þeim grundvelli að slik könn- un tæki verulega langan tíma. Ingibjörg bætti því við að í tillögu sem kom um afgreiðslu málsins standi að jafhvel þótt niðurstaða þessarar könnunar væri sú að flytja skyldi flug- völlinn yrði ákvörðunin háð vflja Al- þingis og fjárveitingavalds og gæti tek- ið ár eða áratugi i framkvæmd. „En það eru náttúrlega liðnir tveir áratugir síðan tUlagan var flutt þannig að jafnvel þótt það hefði tekið áratugi í framkvæmd þá kannski stæðum við í svolítið öðrum sporum núna því þetta var áður en farið var nokkuð að deUiskipuleggja ReykjavUíurflugvöU og málið var alveg opið á þessum tíma,“ sagði Ingibjörg Sólrún. DeUiskipulagning fór fram nokkrum Akureyri: Vélsleðar bannaðir PV, AKUREYRI:________________ Bæjarráð Akureyrar hefur vísað tU bæjarstjómar erindi þess efhis að feUa úr gUdi ákvæði í lögreglusamþykkt bæjarins sem heimUar takmarkaðan akstur vélsleða innan bæjarmarkanna. í lögreglusamþykktinni er vélsleða- mönnum heimflað að aka vélsleðum sínum frá heimUum sínum og stystu leið út úr bænum, eða að bensínstöð. íbúi á Akureyri sendi fyrirspum tU umboðsmanns Alþingis þess efftis hvort þetta ákvæði í lögreglusam- þykktinni stangaðist ekki á við um- ferðarlög. Eftir bréfaskriftir umboðs- mannsins og lögmanns Akureyrarbæjar varð niðurstaðan sú að ákvæðið í lög- reglusamþykktinni yrði að víkja og því verður óheimUt að aka vélsleðum hman bæjarmarka Akureyrar þegar bæjar- stjóm hefur fjaUað um málið. -gk Hníf stungumálið: Sleppt úr varðhaldi Tveimur konum og einum karl- manni, sem handtekin vom eftir að lögreglan kom að manni sem lá í blóði sínu eftú hnífstungur á heimUi hans á Klapparstíg í ReykjavUc á miðviku- dagskvöldið, hefur verið sleppt úr varðhaldi. Maðurinn sem stunginn var er einnig kominn heim tU sin eftir að læknar gerðu að sárum hans. Að sögn lögreglunnar í ReykjavUí vom sárin hvorki djúp eða lífshættuleg. Maður- inn hefur ekki kært neinn en aUt fólk- ið sem var i íbúðinni þegar lögreglu bar að garði þekkist. -SMK árum eftir að tUlaga Ingibjargar Sól- rúnar var feUd. í síðustu viku lagði Stefán Ólafsson, prófessor við Háskóla íslands, úttekt á flugvaUarmálmn fyrir borgarráð. Ýms- ar tiUögur hafa komið fram mn úr- lausnir í málum ReykjavíkurflugvaU- ar, meðal annars þær að flytja hann í Hvassahraun, tU Keflavíkm og að láta hann vera þar sem hann er. í úttekt Stefáns kemur flugvöUur í Hvassa- hrauni nokkuð vel út. -SMK DV-MYND GVA Kvennalistinn stofnaður Frá stofnfundi kvennaframboösins á Hótel Borg 4. febrúar 1982. Fimm mánuö- um síöar lagöi ingibjörg Sólrún Gísladóttir, sem er lengst til vinstri á myndinni, fram tillögu um aö gerö yrði könnun á því aö flytja Reykjavíkurflugvöll úr Vatns- mýrinni. Tillagan var felld á þeim grundvelli aö slík könnun tæki of langan tíma. íslandsbanki og VíB bjóða upp á fjölmargar sparnaðarleiðir sem henta öllum þeim sem kjósa öruggan sparnað, s.s. fyrrum áskrifendum að spariskírteinum ríkissjóðs. Sparnaðarleiðir okkar bera góða ávöxtun, henta vel til langtímasparnaðar og eru öruggir kostir f fjármálafrumskóginum. Verðbréfareikningur fslandsbanka Reikningurinn er fyrir þá sem ekki vilja binda fjármuni sína en njóta samt hámarksávöxtunar og lágmarksáhættu. Reikningurinn er tengdur ávöxtun fjármagnsmarkaðarins og er lágmarksinnstæða 250.000 kr. * Ríkisskuldabréf - Sjóður 5 Eignir sjóðsins eru ávaxtaðar í ríkisskuldabréfum. Hann bar hæstu ávöxtun sambærilegra sjóða sl. 3 ár og er því vænlegur sem framtíðarfjárfesting. Lágmarksfjárhæð við kaup er einungis 5.000 kr. Astra heimssafnið í Astra heimssafninu fjárfestir þú í yfir 1400 alþjóðlegum hlutabréfum og nýtur því mjög góðrar áhættudreifingar. Vegna lækkana á erlendum hlutabréfum er nú kjörið að fjárfesta í Astra heimssafninu og búa að framtíðarhækkunum. Lágmarksfjárhæð við kaup er einungis 5.000 kr. Sparileið 60 Sparileið 60 hefur verið einn vinsælasti reikningur (slandsbanka f gegnum tíðina. Reikningurinn er bundinn til 60 mánaða, ber háa vexti og er góður kostur fyrir reglulegan sparnað. Framtíðarreikningur íslandsbanka Framtíðarreikningurinn kom, sá og sigraði þegar hann var kynntur á siðasta ári enda er hann sniðinn fyrir þá sem vilja tryggja velferð barna sinna í framtíðinni. Hægt er að stofna reikninginn fyrir börn 14 ára og yngri og er inneignin bundin til 18 ára aldurs. Hann ber hæstu vexti sem bankinn býður hverju sinni. Fáðu nánari upplýsingar hjá VÍB í síma 560 8900 eða íslandsbanka f sfma 5 75 75 75. ISLA ISLANÐSBANKIFT5A Þú átt margra góðra kosta völ hjá íslandsbanka og VÍB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.