Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2001, Side 43

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2001, Side 43
51 LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2001 I> V Tilvera Uppskrrftir Lambalundir með appel- sínusósu Fyrir 6 1200 g lambalundir salt og pipar olía til steikingar Appelsínusósa 1 peli rjómi börkur og safi úr einni appel- sínu 1 msk. þurrkuð græn piparkorn 1/2 dl appelsínuþykkni 1 1/2 dl dökkt kjötsoð (eða vatn og teningur) 2 msk. Grand Mamier líkjör (má sleppa) nokkrir dropar sósulitur kjötkraftur 1 tsk. hunang salt og pipar sósujafnari eða maisenamjöl til þykkingar Meðlæti 150 g snjóbaunir 18 tsk. kartöflur, soðnar 200 g spergilkál í litlum sprotum 2 stk. appelsínur 'Cl&ÍÍV Lagið sósuna og haldið heitri meðan kjötið er steikt. Hitið olíu á pönnu og snöggsteikið lundirn- ar, kryddið með salti og pipar. At- hugið að þegar eldað er svona mikið af kjöti þarf að steikja það í tvennu lagi á pönnunni. Setjið steikt kjötið á grind í 180 C heitan ofn í 2 mínútur. Setjið eina ausu af sósunni á hvem disk og raðið lundunum fallega þar ofan á. Berið fram með baunum, steiktum kartöflum og appelsínu- laufum. Diskamir þurfa að vera heitir. Appelslnusósan Rifið börkinn af appelsínunni með fínu rifjárni og setjið í sjóð- andi vatn í okkrar sekúndur til að ná mestu remmunni úr. Setjið börkinn í pott ásamt öðrum hrá- efnum í sósuna og látið sjóða við vægan hita í 10 mínútur. Þykkið með sósujafnara eða maisena- mjöli. Bragðbætið með salti og pipar. Meðlæti Afhýðið kartöflurnar og steikið í olíu á pönnu, þannið að þær brúnist allan hringinn. Setjið í ofnskúffu og bakið í 30 mínútur við 200°C eða 180°C á blæstri. Kryddið með salti og pipar. Snöggsjóðið baunirnar og spergilkálið I léttsöltuðu vatni í 2 mínútur. Afhýðið tvær appelsín- ur, skerið laufin innan úr og not- ið sem skreytingu. Hollráð Heitan mat skal bera fram á heitum diskum og kaldan á köld- um diskum. Sósur og litlir kjöt- bitar kólna ótrúlega hratt á köld- um diskum. Gummi Th., matgæðingur vikunnar: „Ég hefekki einu sinni reynt að heilla kvenmann meö rómantískum heimatilbúnum kvöldveröi, ég held einhvern veg- inn að þaö myndi virka alveg þveröfugt. “ Með rúsínur á teinunum - í rómantískri bústaðarferð Nautalundir 800 g nautalundir McCormick hvitlauks- og jurtakrydd olía Aðferð: Snyrtið lundina og veltið henni upp úr kryddinu. Steikið hana í heitri olíunni svo að hún lokist. Setjið hana síðan í ofnskúffu og steikið hana í 185 C heitum ofni í 20 mínútur. Hunangssteiktar kartöflur 400 g kartöflur 4 msk. hunang 2 msk. vatn Aðferð: Afhýðið kartöflurnar í höndun- um. Snöggsjóðið þær í saltvatni, færið þær síðan upp og skolið í köldu vatni. Hitið hunangið á pönnu og veltið kartöflunum upp úr því. Bætið við vatni og steikið áfram stutta stund. Berið kartöfl- urnar fram með kjötinu. „Ég er ekki mikið fyrir það að elda, heldur kýs ég að fara á góðan veitingastað og geta borðað það sem mig langar í þá stundina, óháð því hvort ég kannski nenni að elda það. Ég hef ekki einu sinni reynt að heilla kvenmann með rómantískum heimatilbúnum kvöldverði, ég held einhvern veginn að það myndi virka alveg þveröfugt. En svo er aftur annað mál með grillið, þar kemst enginn með tærn- ar þar sem ég hef hælana," segir Gummi Th., matgæðingur vikunn- ar. Guðmundur Th. Jónsson er sölu- maður fasteigna og mikill matgæð- ingur að eigin sögn þó hann sé kannski ekki besti kokkur í heimi. Með grillið að vopni „Ég hef jú einu sinni reynt að heilla konu með matargerð, ég gleymi því aldrei svo lengi sem ég lifi. Ég bauð henni í rómantíska ferð upp í bústað og þar sem ég Nýkaup Þarsem ferskleikinn býr Uppskriftirnar eru fengnar frá Nýkaupi þar sem allt hráefni í þær fæst. hafði grillið að vopni hélt ég að ég væri alveg skotheldur. Ég tók þessa sólarhringsferð mjög hátiðlega og sérpantaði nautakjöt á besta stað i bænum. Fór í þær mat- reiðslubækur sem ég átti efst uppi í skáp og keypti hráefni alveg eftir bókinni. Þvínæst keypti ég bæði gott rauðvín og hvítvín þar sem smekkur manna er misjafn og ætl- aði ekki að klikka á smáatriðunum. Lagt af stað Ég var kominn til hennar um sex- leytið sem var alveg á tíma því þangað sem leiðin lá var um klukkutíma akstur. Þegar við svo komum í bústaðinn var allt eins prýðilegt og á var kosið. Heitur pott- ur var á staðnum sem var tilvalinn eftir góða máltið. Það var með tilhlökkun að ég setti kjötið á grillið og ég sagði stúlkunni að sitja bara róleg og láta fara vel um sig. Ég held að ég hafi vart gerst rómantískari, hellti í rauðvínsglös fyrir okkur, kveikti á kertum og þarna sátum við og spjölluðum heillengi. Alltof lengi. Stúlkan vissi ekki hvað á sig stóð veðrið þegar ég hentist í loftköstum út á verönd og að grillinu. Ég trúði ekki mínum eigin augum. Ég hafði gleymt úrvalskjötinu á grillinu og eftir stóðu aumingjalegar rúsínur á teinunum. Þessi mistök höfðu ekki verið með í prógramminu, né á inn- kaupalistanum, því eftir sátum við með engan mat í sólarhring," sagði Gummi að lokum. -klj O (ÍKS Gnmmívinnnstofan ehf. Réttarhálsi 2. sfnti: 587 5588 Skipholti 35. simi: 553 1055 Þjónustuaðilar um land allt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.