Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2001, Síða 51

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2001, Síða 51
LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2001____________________________________________ I>V Tilvera Síðasta myndin um Morse lögreglufulltrúa og heimildamynd: Morse kveður fyrir fullt og allt Á annan tug ára hefur lögreglu- fulltrúinn Morse birst af og til á skjánum í hverri gæðamyndinni af annarri þar sem hann leysir hin flóknustu sakamál sem að langmest- um hluta gerast í Oxford og ná- grenni. Nú er komið að lokamynd- inni sem gerð er eftir síðustu bók- inni sem Colin Dexter skrifaði um þennan vinsæla lögreglufulltrúa. í þessari sjónvarpsmynd verða örlög Morse ráðin og endapunkturinn settur á eitthvert vinsælasta og besta sjónvarpsefni sem frá Bretum hefur komið og er þó af mörgu að taka. í þessari síðustu mynd hefur fé- lagi hans, Lewis, tekið við stjórn- inni vegna veikinda Morse. Morse getur þó ekki staðist dularfullt morðmál og kemur aftur til starfa þó greinilegt sé að hann er þjáður maður. Á undan myndinni, sem á íslensku hefur fengið nafnið Síðasta mál Morse en heitir á frummálinu The Remorseful Day, verður sýnd heimildamynd um Morse lögreglu- fulltrúa og skapara hans, Colin Dexter, og að sjálfsögðu kemur mik- ið við sögu í þeirri mynd John Thaw sem leikið hefur Morse frá upphafi. Allt frá því fyrsta sjónvarpsmynd- in um Morse lögreglufulltrúa og fé- laga hans, Lewis liðþjálfa, birtist Bretum hefur þessi sjónvarps- myndaflokkur verið í miklu uppá- haldi bæði hjá almenningi og gangrýnendum og er aðdáendahóp- urinn mjög harðsnúinn. Er Morse þegar kominn upp að hlið söguper- sónum á borð við Sherlock Holmes, Hercule Poirot, Lord Peter Wimsey og fleiri klassískum lögregluhetjum. Þegar Colin Dexter tilkynnti að Morse yrði látinn deyja í næstu bók varð uppi fótur og fit og sýndist sitt hverjum um þessa ætlun hans. Dexter lét sig ekki og sagði að Morse ætti ekkert betra skilið en að deyja. Eins og allir sem fylgst hafa með Morse er hann langt í frá að vera hinn dæmigerði Englending- ur. Hann er piparsveinn og eng- inn efast um hæfni hans í að leysa sakamál og ráða krossgátur en mannleg samskipti hafa ávallt verið honum erfið og líður honum best þegar hann hlustar á klassíska tón- list í fullkomnum tækjum heima hjá sér og svo þykir honum bjórsopinn góður. Eitt af því sem John Thaw John Thaw Hefur leikiö Morse lögreglufulltrúa í þrettán sjónvarpsmyndum. Morse í Oxford Ósjaldan koma viö sögu prófessorar og kennarar viö háskólann í Oxford. segir að geri Morse svo áhugaverð- an sé að hann hefur ekki alltaf rétt fyrir sér og sumar hugleiðingar rugla áhorfandann í ríminu þegar kannski sá hinn sami situr heima í sófa og er að rembast við að leysa morðgátuna. John Thaw John Thaw, sem gert hefur Morse lögreglufulltrúa ódauðlegan, er einn af virtustu leikurum Breta. Hefur í áratugi leikið í kvikmyndum, sjón- varpi og á sviði. Fyrir túlkun sína á Morse hefur hann tvisvar fengið hin eftirsóttu BAFTA-verðlaun sem besti leikari í sjónvarpi. Thaw hafði áður en hann hóf að leika Morse gert garðinn frægan í þáttaröðinni The Sweeny, sakamálaseríu sem naut mikiRa vinsælda á sínum tíma og hefur verið sýnd í íslensku sjón- varpi. Gerðar voru tvær kvikmynd- ir upp úr þeirri seríu og var Thaw verðlaunaður fyrir leik sinn í annarri þeirra. Með fram því að leika Morse hefur John Thaw einnig leikið í annarri sjónvarpsser- íu, Kavannagh QC, þar sem hann leikur titilhlutverkið, lögmann i þjónustu hennar hátignar, Elísabet- ar Bretadrottningar. Á sviði hefur John Thaw leikið mörg stór hlutverk i helstu leikhús- um í London og þá hefur hann leik- ið í kvikmyndum. Fyrsta hlut- verk hans í kvikmynd var lít- ið hlutverk í The Loneliness of the Long Distance Runn- er sem Tony Richardson leikstýrði. Meðal annarra kvikmynda sem Thaw hefur leikið í má nefna Cry Freedom, Chaplin og Business as Usu- al. John Thaw fæddist 3. janúar í Manchester. Eiginkona hans í fiölda ára er leik- konan Sheila Hancock og eiga þau saman dótturina Mel- anie Thaw sem er ung og upprennandi leikkona. -HK 59 ijrkitr&dtdkitýckickýrkik m Gítarinn ehf. ¥ ^ Laugavegí 45, Kassagítarar Sími 552~2125 09 895a*9376.xr^r JV "agmna?rfekt, fPá 7.900 kr. jM Hljómborð frá 3.900^, Bæjarlínd 6, símí 554 6300 Opið virka daga 10-18. Laugard. 10-16, sunnud. 13-16. 3^90 2.690 kr Barnabílsessa með ól HÚSASMIÐJAN Sími 525 3000 • www.husa.is Britax Britax

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.