Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2002, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2002
/ / e l Q a r b la ö X>"V
9
menningsgarði í borginni Sanshui í Guangdong-hér-
aði í suðurhluta Kina. Lögreglan fann stúlkuna og
kom henni fyrir á barnaheimili.
„Við fengum að vita að hún hefði fundist þann 15.
júní í fyrra og þegar hún fannst var hún i bleikum fal-
legum fötum og með henni var miði þar sem stóð að
hún hefði fæðst 8. júní. Fyrir okkur sem íslendinga er
það ótrúlegt að þetta litla kríli skyldi finnast i kassa
í almenningsgarði, en það er algengt að börn séu skil-
in eftir á þennan hátt í þessu stóra landi,“ segir Krist-
jana en tekur það fram að börnin séu skilin eftir á
fjölförnum stöðum þar sem öruggt sé að þau finnist.
Þvegin úr saltvatni og mjólk
Hópurinn sem fór frá íslandi áleiðis til Kína föstu-
daginn 3. maí var 6 pör og 4 einstæðar mæður. Flug-
ið til Peking tók 9 klukkutíma samtals og þegar hóp-
urinn lenti var tekið mjög vel á móti þeim af starfs-
mönnum sendiráðs íslands í Kina. Fyrstu þrjá dag-
ana í Peking fór hópurinn í skoðunarferðir um borg-
ina þar sem Torg hins himneska friðar og Kínamúr-
inn, ásamt fjölda annarra staða var skoðaður. Krist-
jana og Bergþór segja að þessi tími í Peking hafi
þjappað hópnum vel saman og þetta hafi verið góður
undirbúningur fyrir það að taka við börnunum. Með-
al þess sem hópurinn heimsótti var kínverskt bað-
hús, en Bergþór segir að það hafi verið sérstök upp-
lifun.
„Maður var þveginn hátt og lágt og það var enginn
líkamspartur undanskilinn. Við vorum smúluð,
þvegin upp úr saltvatni og mjólk, nudduð og síðan
fórum við inn I stóran sal þar sem við horfðum á
skemmtiatriði og slökuðum á. Ég hvet alla sem fara
til Kina til að fara í kínverskt baðhús,“ segir Berg-
þór.
Eftir þrjá daga í Peking var haldið til Guangzhou í
Guangdong-héraði en þar var hitinn um 35 gráður og
mikill raki í loftinu. Þegar Kristjana og Bergþór voru
nýkomin á hótelið sem þau áttu að gista á var þeim
sagt að þau hefðu 10 mínútur til að gera sig klár í rút-
una sem átti að fara með þau á skrifstofu ætt-
leiðingarfélagsins í Kína. Þegar þangað kom var
þeim vísað inn í herbergi þar sem þau biðu og gengu
frá pappírum. í næsta herbergi við þau voru 10 stúlk-
ur við leik á gólfinu, sumar grátandi.
„Það var hræðilega þungt loft þarna inni og mikil
molla. Við fórum ásamt öðru pari inn í herbergið þar
sem stúlkurnar voru og um leið og við komum inn
þekktum við litla sólargeislann, Sunnu Líf Zan. Við
vorum búin að fá tilmæli um það að við ættum að
rétta henni leikföng og mynda tengsl við hana. Um
leið og hún rétti okkur hringlu til baka kom umsjón-
arkonan og sagði okkur að taka hana upp. Okkur
fannst við þurfa meiri tíma til að mynda tengsl við
hana og við vildum leika við hana lengur, en við tók-
um hana og okkur var þá strax vísað í þriðja her-
bergið. Þar inni vorum við í tvo klukkutíma að ganga
frá alls kyns pappírum og þessa tvo tíma grét Sunna
Líf stanslaust," segir Kristjana.
Eftir að hafa gengið frá öllum nauðsynlegum papp-
irum var haldið beint á hótelið. Þegar þangað var
komið var Sunna Líf hætt að gráta og var farin að
hjala og hlæja með foreldrum sínum. Kristjana segir
að eftir þessar tvær erfiðu klukkustundir hafi Sunna
Líf tekið þeim mjög vel.
„Það var rosalega gott að finna það þegar hún
kúrði sig að manni og maður fann að henni leið vel.“
Leið eins og kvikmyndastjömum
Daginn eftir þurfti hópurinn að fara aftur á
skrifstofuna til að ganga frá enn fleiri pappírum.
Kristjana og Bergþór segja að það hafi verið verulega
erfitt að fara þangað aftur með stelpuna því um leið
og þau komu inn hjúfraði Sunna Líf sig að mömmu
sinni.
„Manni fannst það mjög óþægilegt að taka barnið
úr þvf öryggi sem við veittum því og fara með það aft-
ur á barnaheimilið þar sem það grét svo sárt og þurfa
að vera þar í rúmlega tvo klukkutíma því Sunna Líf
hefur áreiðanlega haldið að við værum að fara aftur
með hana þangað. Hún vildi ekki fara úr fanginu á
okkur allcm tímann sem við vorum þarna.“
Eftir að hafa gengið endanlega frá allri pappírs-
vinnu fór hópurinn í skoðunarferðir um héraðið
ásamt börnum sinum og segja Bergþór og Kristjana
að Kínverjar hafl starað mikið á þau, sérstaklega þar
sem Kristjana er með ljóst sitt hár og þau voru með
kínverskt barn.
„Okkur leið eins og kvikmyndastjömum þarna úti
og það voru margir sem vildu fá að taka mynd af okk-
ur með bömum sínum. Það var líka bent á okkur og
stundum labbaði fólk með okkur til að skoða okkur
betur. Það var líka greinilegt að Kinverjamir litu upp
til okkar þar sem þeir vissu að það kostar töluverða
fjármuni að ættleiða barn frá Kína. Okkur fannst við
ekki eiga þessa virðingu skilda því að menningarsaga
Kínverja er svo stórbrotin og þjóð þeirra einnig og ef
eitthvað er ættum við að bera meiri virðingu fyrir
þeim.“
Gengið var frá vegabréfsáritunum fyrir börnin hjá
danska sendiráðinu í Kína og í fluginu frá Peking til
Kaupmannahafnar tók við 9 tíma leikþáttur fyrir
bömin þar sem 17 nýbakaðir foreldrar léku fyrir börn
sin, því í flugvélinni voru ásamt íslenska hópnum, 7
Sunna Líf Zan fannst yfirgefin í pappakassa í almenn-
ingsgarði í Kína. Hún er nú orðinn fslendingur og
þótt loftslagið sé kalt eru tilfinningarnar heitar.
hjón frá Svíþjóð. Kristjana og Bergþór segja að flug-
ferðin hafi gengið vel og þegar þau lentu í Keflavík
hafi fjölskylda og vinir tekið á móti þeim:
„Það var mikil dramatík í gangi þegar við hittum
fjölskylduna í Leifsstöð. Allir voru mjög spenntir að
sjá Sunnu Líf Zan og allir tóku henni mjög vel. Hún
er svo sannarlega stjarna fjölskyldunnar."
Frá því þau komu heim með litlu stelpuna sína hef-
ur gestagangur verið mikill. Kristjana segir að áður
en þau fóru út hafi þau fengið leiðbeiningar um það
hvernig best sé að mynda tengsl við Sunnu Líf Zan.
„Það vilja allir taka stelpuna upp og halda á henni
sem eðlilegt er. Okkur var sagt að við mættum ekki
láta aðra halda mikið á henni og að við ættum sjálf
alfarið að sjá um að gefa henni að borða og skipta á
henni því hún verður að finna að hún geti alfarið leit-
að til okkar. Það er okkur líka svo mikilvægt að hún
myndi sem sterkust tengsl við okkur sem fyrst. En
það er erfitt að halda aftur af fólki og segja því að
„ Við fengum að vita að hún hefði fundist
þann 15. júní í fyrra og þegar hún fannst
var hún í bleikum fallegúm fótum og með
henni var miði þar sem stóð að hún hefði
fæðst 8. júní. Fyrir okkur sem íslendinga er
það ótrúlegt að þetta litla kríli skyldi fnnast
í kassa í almenningsgarði, en það er algengt
að börn séu skilin eftir á þennan hátt í þessu
stóra landi, “ segir Kristjana en tekur það
fram að börnin séu skilin eftir á fölfórnum
stöðum þar sem öruggt sé að þau finnist.
vera ekki of mikið utan í henni, en fólk áttar sig fljótt
á þessu því við fórum mjög vel í gegnum þessi atriði
áður en við fórum út.“
Nafnið merkir lofsömuð
Upp á síðkastið hefur umræða um kynþáttafordóma
verið mikil í íslensku samfélagi og í raun um alla
Evrópu. Kristjana og Bergþór hafa ekki áhyggjur af
þvi að Sunna Líf verði fyrir kynþáttafordómum þegar
hún eldist.
Við lítum á Sunnu Líf sem íslending og alla
þá sem flytjast hingað og aðlaga sig ís-
lenskri menningu og tala tungumálið okk-
ar. Þegar maður upplifir hvað Kínverjar
bera mikla virðingu fyrir okkur þá finnst
manni það skelfilegt að hugsa til þess að við skulum
ekki bera jafnmikla virðingu fyrir þeim. Okkur
fannst það ömurlegt þegar kínverska hópnum var vís-
að frá íslandi, því ef þetta hefðu verið Norðurlanda-
búar hefði þetta aldrei gerst. Auðvitað erum við
hrædd um að Sunna Líf eigi einhvern tíma eftir að
upplifa fordóma gagnvart sér, en við sem kennarar
sjáum að þau börn sem hingað flytjast frá útlöndum
eru fljót að aðlaga sig og þeim er vel tekið,“ segja þau.
Nafnið Zan merkir á kínversku lofsömuð og það er
svo sannarlega hægt að segja að Sunna Lif sé lofsöm-
uð af öllum þeim sem sjá hana. Kristjana og Bergþór
hlakka til að takast á við lífið með Sunnu Líf sér við
hlið og hvetja þá sem ekki geta eignast börn til að líta
á ættleiðingu sem vænlegan kost.
„Sunna Lif Zan er dásamleg og við gætum alveg
hugsað okkur að ættleiöa annað barn í framtíðinni,"
segja þau að lokum.
Jóhannes Kristjánsson