Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2002, Blaðsíða 47
LAUGARDAGUR 25. MA.f 2002
H&lgarbfctcf 33V
47
Brotthvarf Roys Keanes úr írska landsliðinu mjög umdeilt:
Málarar ■ Múrarar - Píparar - Smiðir
Dúkarar - Rafvirkjar - Ræstitæknar
Fyrir mér er Keane
ekki lengur Iri
- fjarvera hans veikir írska liðið mikið, segir Völler
Um fátt er talað meira þessa dagana en óvæntan
brottrekstur Roys Keanes úr landsliði íra á HM í
knattspyrnu.
Roy Keane, fyrirliði Manchester United, lenti í
harkalegu rifrildi við þjálfara írska liðsins, Mick
McCarthy. Sendi Keane honum tóninn af mikilli
ókurteisi og vanþóknun svo þjálfaranum var nóg boð-
ið. „Orðaskipti okkar voru með þeim hætti að ég átti
ekki annan kost í stöðunni en að visa Keane heim. Ég
taldi þetta besta kostinn fyrir liðið og er enn sömu
skoðunar," sagði McCarthy í gær og bætti við: „Ég er
leiður yfir þvi að missa Keane sem leikmann en sem
liðsmann er mér nokkurn veginn sama.“
Völler er ánægður
Rudi Völler, þjálfari þýska landsliðsins, sagði í gær
að það væri mikið áfall fyrir lið íra að missa Keane
úr liðinu. „Það er ekki spurning að fjarvera hans
veikir lið írlands mikið. Ég vil að öðru leyti ekki tjá
mig um þetta leiðindamál, einfaldlega vegna þess að
ég þekki ekki málavexti," sagði Völler sem hlýtur að
anda léttar því írar eru með Þjóðverjum í riðli á HM.
Keane gagnrýndi aðstöðu írska liðsins og skipulag.
Hann tilkynnti brotthvarf sitt úr liðinu fyrr í vikunni
en snérist hugur eftir langt samtal við Sir Alex Fergu-
son, framkvæmdastjóra Manchester United. Síðan
varð allt vitlaust á ný og þeir Keane og McCarthy
lentu i hörkurifrildi þar sem Keane hellti sér yfir
þjálfarann með fyrrgreindum afleiðingum.
Keane hefur ekki látið hafa mikið eftir sér vegna
málsins en sagði þó við brottförina heim til írlands að
hann iðraðist alls ekki orðanna sem hann beindi til
McCarthy og hann stæði við hvert orð sem fallið hefði
í þessari orrahríð.
Skiptiborð útvarps- og sjónvarpsstöðva á írlandi
hafa verið rauðglóandi frá því að þetta mál kom upp
og Keane var rekinn. Dæmi eru um að 10 þúsund æst-
ir aðdáendur knattspyrnu hringdu í einn þáttinn á
einni klukkustund. 86% af þeim sem hringdu inn
studdu Roy Keane og tóku hans málstað.
„Keane ekki lengur íri“
Dæmi voru einnig um gríðarlega hörð viðbrögð og
þeim alfarið beint að leikmanninum. „Ég get sagt
ykkur eitt. Ég vildi ekki vera Roy Keane í dag eftir
það sem hann hefur gert okkur. Ég tel að Mick
McCarthy hafi brugðist rétt við í þessu máli og fyrir
mér er Roy Keane ekki Iri lengur," sagði funheitur
stuðningsmaður irska liðsins sem kominn er til Jap-
an til þess að fylgjast með HM.
Misjöfn viðbrögð
Viðbrögð íra voru mjög misjöfn og hér eru tvö
dæmi til viðbótar: „Keane er yfirburðamaður í liðinu
og framkoma írska sambandsins er því til skammar,"
sagði einn stuðningsmaður írlands og var mikið niðri
fyrir: Annar hafði þetta að segja: „Það eru milljónir
knattspyrnumanna sem myndu vaða eld og brenni-
stein til þess að fá að leika með landsliðinu. Ganga til
Austurlanda, sofa á götunum, lifa á vatni og brauði
fyrir það eitt að fá að leika í heimsmeistarakeppni.
Vertu í góðum höndum!
Eitt númer-511 1707
www.handlaginn.is
handlaginn@handlaginn.is
BYG
BYGGINGAVINKIAR
..það sem
fagmaðurinn
notar!
flllar gerðir festinga
fyrir palla og grindverk
á lager
síml: 533 1E34 fax: 5GB 0433
GÓÐ RÉTTING GERIR GÓÐAN BÍL BETRI