Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2002, Blaðsíða 52
52
Helgarhloö 33 V LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2002
Fátt er skemmtilegra í útilegum en að komast
í tengsl við náttúruna og þá ekki síður þá
náttúru sem býr innra með okkur.
N áttúr an
hrópar og kallar
Marqir telja æskileqt að qeta i/erið eins oq
heima hjá sér þeqar þeir fara íútilequ í
tjaldi oq tilheqrandi. Kqnlíf er án efa mikið
stundað í tjöldum oq við tjöld ííslenskri
náttúru. Nú er sennileqa rétti árstíminn til
að fara qfir nokkur qrunduallaratriði tenqd
tjaldkqnlífi.
HVERT TJALD ER HEIMUR ÚT AF fyrir sig. Þetta
hljómar eins og tilvitnun í skáldsögu eftir Guöberg
Bergsson en mér datt þetta í hug rétt í þessu. Það er
nefnilega staðreynd að hvert tjald er heimur út af fyr-
ir sig og þegar maður er kominn inn í tjaldið sitt þá
finnst manni eins og maður sé einn í heiminum með
þeim sem deilir með manni tjaldi. Ef tveir aðilar af
gagnstæðu kyni eru saman í tjaldi má eiginlega
breyta þessari speki svolítið og segja að hvert tjald sé
Eden.
Það fór þannig fyrir Adam og Evu í aldingarðinum
forðum að á einhverju stigi málsins áttuðu þau sig á
því að þau voru nakin. Skírlífissinnar hafa mikið
reynt að nota þessa dæmisögu til stuðnings þeirri
skoðun að nekt sé röng eða óæskileg því Adam og Eva
hafi ekki séð neitt athugavert við nektina fyrr en þau
höfðu étið epli af skilningstré góðs og ills. Ef eplaátið
fékk þau til að halda að nekt væri röng þá hefur þetta
ekki verið rétta eplið og alls ekki rétta tréð.
Sama staða veröur oft uppi í tjöldum nútimafólks.
Það rennur upp fyrir því að það er sennilega ekki
statt í sama tjaldi fyrir tilviljun og vorið og sumarið
með sínum birkiilmi og brumandi frjómagni upp um
allt og út um allt hefur hvetjandi áhrif á marga af
holdi og blóði.
Allt ber þetta að sama brunni. Þegar fólk fer í úti-
legur og og skemmtiferðir út í náttúruna er því oft
kynlíf ofarlega í huga og þar sem nú fer í hönd sá
tími sem flestir stunda útilegur er rétt að rifja upp
nokkur grundvallaratriði sem hafa ber í huga við
kynlíf í tjaldi.
Það liggur eiginlega í hlutarins eðli að lengi vel
hlýtur maðurinn (homo sapiens) að hafa stundað kyn-
líf úti í guðsgrænni náttúrunni. Frummaðurinn hlýt-
ur að hafa stokkið á vænlegan félaga hvort sem leið-
ir þeirra skárust uppi í trjánum eða niðri á sléttunni
á tveimur jafnfljótum. Ef marka má ríkjandi sögu-
skoðun haföist maðurinn lengi við í trjám og hellum
áður en hann fór að byggja sér hús. Húsbyggingar
verða ekki til fyrr en akuryrkja kemst í móð og mað-
urinn leggur af hirðingjalíf. Þannig má halda því
fram með nokkrum rökum að maðurinn sé nýlega far-
inn að stunda kynlíf innanhúss.
Tjaldkynlíf
Kynlíf í tjaldi er auðvitað ekki undir berum himni
en það er þó í býsna mikilli nálægð við náttúruna og
hennar magísku öfl og sennilega það næsta sem
margir íslendingar komast því að elskast eins og
frummaðurinn. Við tjaldkynlíf eru nokkur atriði sem
vert er að hafa í huga.
Svefnpokar sem hægt er að reima saman svo þeir
myndi einn stóran eru frábærir og leysa flest vanda-
mál sem kunna að koma upp við þessar aðstæður.
Séu fleiri í tjaldinu en þeir sem fýsir að veita hvötum
sínum lausan tauminn getur þurft að gripa til hljóð-
látara og kyrrlátara kynlífs en almennt er stundað.
Par sem liggur í samanreimuðum svefnpoka með
hrjótandi ferðafélaga sitt til hvorrar handar á erfitt
verkefni fyrir höndum. Hér gildir sem endranær að
láta ekki aðstæður buga sig eða hræða frá settu
marki.
Sum tjöld eru svo stór og rúmgóð að ekkert vanda-
mál er að athafna sig í þeim stellingum og með þeim
aðferðum sem hver er vanastur að beita. Þó getur
þurft að grípa til heftandi frávika þegar t.d. tjöld gefa
ekki færi á að aðilar standi uppréttir.
Mörg göngutjöld eru það litil að erfitt getur verið
að athafna sig við kynlíf í þeim nema í stellingum þar
sem báðir aðilar liggja endilangir eða annar húkir
álútur ofan á hinum. Þætti það mörgum ekki mikil af-
neitun sé markmiðinu náö.
Hvaða óhljóð eru þetta?
Oft er það svo að tjöld standa mörg og þétt saman
á tjaldstæðum og tjöld eru afar illa og reyndar ekkert
hljóðeinangruð. Þetta er rétt að hafa i huga þegar
tjaldkynlíf er stundað en getur auðveldlega gleymst í
hita leiksins.
Sá sem þetta ritar hlýddi eitt sinn á gríöarlega fjör-
legar og háværar samfarir á þéttskipuðu tjaldstæði á
Hornströndum. Tjöldin tilheyrðu öll sama hópnum og
þótt hljóðin hafi áreiðanlega verið einhverjum til eft-
irbreytni þá voru allir jafnforvitnir og ferðafélagar
horfðu afskaplega rannsakandi hverjir á aðra daginn
eftir. Þótt hópurinn hafi verið samvistum nokkra
daga eftir þessa háværu kvöldstund og allir kepptust
við að beita útilokunaraðferðinni þá varö aldrei heyr-
inkunnugt hverjir þarna áttu í hlut.
Sjáðu sæta hjólhýsið mitt
Nú kunna menn að halda að með því að gista í hjól-
hýsum eða fellihýsum sé hljóðmengunarvandinn
leystur og þar innandyra geti menn orgað af losta og
nautn eins og þeir draga án þess að vekja athygli á
þéttsetnum gististöðum.
Þetta er rétt svo langt sem það nær því mörg hjól-
hýsi eru prýðilega hljóðeinangruð meðan fellihýsin
eru líkari tjöldum að þessu leyti. Hins vegar eru felli-
hýsi og hjólhýsi á góðum og mjúkum dempurum og
vagga tiltölulega mikið eftir hreyfingum innandyra.
Ef innbyggjarar slíkra hýsa hreyfa sig taktfast og
ákveðiö geta samsvarandi hreyfmgar hýsis þeirra
vakið athygli ekki síður en hávær hljóðrás. Þetta á
einnig við um pallhýsi sem margir nota aftan á bif-
reiðum sínum.
Af hverju ekki úti?
Þeir eru til sem eru hallir undir kynlíf úti i guðs-
grænni náttúrunni og telja á því marga kosti. í
fyrsta lagi er það skemmtilegt og gott. í öðru lagi ná
iðkendur alveg sérstöku og nánu sambandi við
náttúruöflin sem er á jaðri hins guðdómlega og
verður ekki lýst með orðum heldur gjörðum. Við
iðkun kynlífs úti í náttúrunni finnur maðurinn
dýrið í sjálfum sér og kemst í samband við sitt
innsta eðli. I þriðja lagi er þetta einstök aðferð til
þess að nálgast ferðafélaga sína og kynnast þeim
betur en í upphafi ferðar og styrkir og stuðlar að
nánum tengslum þeirra á milli sem eru svo nauð-
synleg, t.d. vegna öryggis á ferðalögum. í þriðja lagi
heldur kynlíf hita á þátttakendum sem einhverra
hluta vegna geta þurft að bíða við erfiðar aðstæður
og eru ef til vill ekki nægilega vel klæddir.
Kynlíf úti í náttúrunni gefur færi á einstökum
ferðaminningum. Það er hægt að velja sér sérstaka
staði, óvenjulegar aðstæður, fara oft á sama staðinn
og svo framvegis. Vel heppnaður ástarleikur á Esj-
unni gefur ferðamanni færi á að horfa með sér-
stöku augnaráði til fjallsins þegar vitnað er i borg-
arskáldiðTómas Guðmundsson: „Sjáið tindinn,
þarna fór ég ..."
Nokltur heilræði
Við kynlíf utandyra eru ýmsar siðareglur og var-
úðarráðstafanir sem rétt er að hafa í huga. Það
fyrsta er næði. Séu aðeins tveir á ferð er það auð-
vitað ekkert vandamál sé vilji beggja fyrir hendi. Ef
áhugamenn á þessu sviði eru með fleirum í hóp
þarf að liggja fyrir frá upphafi hvort ástæða sé til
að hafa áhorfendur eða ekki en hér er gengið út frá
því að það vilji fáir. Séu menn staddir á sléttlendi
getur þurft að finna skjól nema sé logn og þá erum
við örugglega ekki stödd á íslandi. Sé undirlagið al-
gerlega slétt er það ekki vandamál en í brekkum
geta aðilar þurft að íhuga hvernig þeir ætla að snúa
og gera ráð fyrir að færast undan brekkunni nema
fundin sé góð viðspyrna eða eitthvað sem annar eða
báðir geta haldið í. Trjágreinar og steinar geta
þarna komið að góðu gagni en ávallt er miðað við
að kynlíf utandyra valdi ekki skemmdum á við-
kvæmu lífríki og því gætu menn viljað nýta hjálp-
artæki s.s. tjaldhæla eða ísaxir í þessu skyni.
Æslíilegur fatnaður
Fatnaður eða ekki fatnaður við þessa iðju er auð-
vitað eitthvað sem veðrið ræður. Islenskt veðurfar
býður sjaldan upp á algera nekt úti í náttúrunni og
reyndar verður fötum yfirleitt ekki fækkað umfram
það sem nauðsynlegt er til að ná settu marki. Mörg-
um finnst mikill skjólfatnaður ef til vill fráhrind-
andi en ef mjúkur skafl er undir og stjörnubjartur
himinn yfir dregur góð úlpa ekki úr töfrum stund-
arinnar. Eiginlega eru vettlingar eini fatnaðurinn
sem er á bannlista við ástarleiki úti í guðsgrænni
náttúrunni. Þeir ganga eiginlega ekki.
-PÁÁ