Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2002, Blaðsíða 58
58
HelQctrhlciö DV LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2002
Hókus Pókus_____________
Umsjón
Margrét Thorlacius
^mmmmmmimmtmmm^
VINNINGSHAFAR
Sagan mín: Jóhann Pálmar Harðarson,
Lyngrima 3, Reykjavík.
Mynd vikunnar: Ægir Þorsteinsson,
Borgarhrauni 7, Grindavík.
Matreiðsla: Karen Sveinsdóttir.
Þrautir: Anja íris Brown, Ránarstíg 2,
550 Sauðárkróki.
TRÖLLASAGA
Kristján Logi Einarsson,
Núpasíðu 8a, 600 Akureyri.
*
Einu sinni voru tröllabörn sem hétu
Magga og Maggi. Þau voru miklir prakk-
arar. Dag eftir dag gerðu þau prakkara-
strik - ótal mörg! Einu sinni voru þau að
fá sér að drekka. Það var full mjólkur-
kanna á borðinu. Þegar enginn sá til tók
Magga könnuna, hellti mjólkinni í vaskinn
og lét rjóma í staðinn. Þegar mamma
ætlaði að fá sér að drekka drakk hún auð-
vitað rjómann. Hún varð öskureið og
spurði: „Hver gerði þetta?“ Enginn svar-
aði en henni datt strax Magga í hug og
rassskellti hana. Maggi var ekki eins
stríðinn.
Maggi hlýddi nánast alltaf og var stein-
hissa á því hvernig systir hans lét. Svo
mátti heldur aldrei greiða Möggu. Hárið á
henni var úti um allt. Mamma og pabbi
voru í mestu vandræðum og vissu ekki
hvað átti að gera við Möggu.
Næsta dag tók Magga skóna hans pabba
og fyllti þá af vatni. Pabbi varð öskureið-
ur og rassskellti Möggu. Stundum var
Magga verri en Emil í Kattholti! Magga
hlýddi ekki foreldrum sínum. Hún sagði
bara nei! Einn morguninn sagði mamma
við Möggu: „Ef þú greiðir þér ekki þá
klippi ég af þér allt hárið!“ Magga vildi
ekki míssa hárið og mamma var lengi að
greiða gegnum allt hárið. Magga bað
mömmu um nammi. Mamma sagði að
það mætti hún ekki fá því hún hlýddi
aldrei. Af þessu lærði Magga að maður á
að hlýða foreldrum sfnum og vera þægur
og góður.
Karen Sigurðardóttir, 10 ára,
Hátúni, 611 Grímsey.
KAFFI
Geturðu raðað tölum { auðu reitina -
þannig að útkoman verði ávallt rétt?
... ..... \
ÁLFA-
FJÖLSKYLDA
Þessa litríku og fallegu
álfa teiknaði íris Hrund
Stefánsdóttir, 7 ára. Hún
á heima að Skútahrauni
10, 660 Mývatni, og er að
sjálfsögðu vinningshafi
vikunnar.
Til hamingju, íris Hrund!
/
Geturðu fundið 6 atriði sem ekki eru
eins á þessum trúðamyndum?
Hvaða TVÖ tré eru alveg eins?
Teiknaðu nú skemmtileg
andlit á fólkið!
Hvernig liggur leið litlu kanfnunnar
að gulrótinni?
Sendið lausnir allra þrauta til:
Hókuss Pókuss,
Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík.