Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2002, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2002, Page 29
LAUCARDAGUR 25. MAÍ 2002 Helgcirhlciö DV 29 „Mér hugnast ekki þegar menn eru stimplaðir kommar ef þeir hafa félagslcga lífssýn. Slíkt finnst mér einfald- lega barnalegt og kemur í veg fyrir að hægt sé að ræða málin með vitrænum hætti. Allir þurfa að leggja hönd á plóg við að móta samfélagið," segir Robert Faulkner hér í viðtalinu. dv-mvnd: -sbs „Ég lít á það sem borgaralega skgldu mína að hafa áhrif á það samfélag sem ég bg og Borgaraleg skylda að móta samfélagið starfa í. Mér hefur þótt óréttlátt að hafa ekki haft kosningarétt öll þessi ár sem ég hef búið hér. Því fagna ég mjög þessum lög- um sem nglega hafa tekið gildi,“ segir Aðal- dælingurinn Robert Faulkner. „AÐ MÍNUM DÓMI ER NAUÐSYNLEGT að fólk sem er af erlendu bergi brotið og hefur sest að hér á landi sé virkt í mótun samfélagsins. Meðal annars með störfum á hinum pólitíska vettvangi. Þetta er einfaldlega hluti af því að þetta fólk aðlagist íslensku þjóðfélagi og geti jafnframt haft áhrif á þróunina. Jafnframt tel ég þetta vera lið í því að þeir sem eru íslendingar í húð og hár meðtaki að ísland er orðið fjölmenningarlegt samfélag þar sem fólk viðs vegar að úr heiminum hefur sest að; býr og starfar og hefur áhrif á þjóðfélagsgerðina með einum eða öðrum hætti,“ segir RobertÝFaulkner, tónlistarkennari við Hafralækjarskóla í Aðaldal í Suður-Þingeyjarsýslu. Borgaraleg skylda Og Robert er meira en tónlistarkennari, því hann er líka að verða sveitarstjórnarmaður. Hann er fyrsti út- lendingurinn hér á landi sem blandar sér í baráttuna á hinum pólitíska vettvangi með því móti. Samkvæmt lögum sem Alþingi samþykkti fyrir skömmu hafa er- lendir ríkisborgarar nú kosningarétt hér - og þá jafn- framt kjörgengi - eftir fimm ára samfellda búsetu á Is- landi. Fólk af Norðurlöndunum þarf hins vegar aðeins þriggja ára búsetu til að öðlast þessi sömu réttindi. „Ég lít á það sem borgaralega skyldu mína að hafa áhrif á það samfélag sem ég bý og starfa í. Mér hefur þótt óréttlátt að hafa ekki haft kosningarétt öll þessi ár sem ég hef búið hér. Því fagna ég mjög þessum lögum sem nýlega hafa tekið gildi,“ segir Robert. Hann skipar annað sætið á Aðaldælalistanum, en það er eini framboðslistinn sem fram kom fyrir sveitar- stjórnarkosningarnar þar í sveit. Því eru Robert og hin- ir fimm efstu mennirnir sem listann skipa sjálfkjörnir til þess að stjórna málum sveitarfélagsins á komandi kjörtímabili. Sextán ár á íslandi Robert og Juleiet, kona hans, fluttu til íslands árið 1986 frá heimaslóðum sínum í Lundúnaborg. „Þingey- ingurinn Jón A. Baldvinsson, sem er sendiráðsprestur í London, er góður kunningi okkar og það var í gegn- um hann sem við komum hingað. Einhverju sinni sát- um við saman við spjall þegar það barst í tal hvort ekki væri upplagt hjá okkur að fara til starfa á íslandi. Við létum slag standa og komum. Og erum hér enn, nú sext- án árum síðar. Og ekki á fórum í bráð," segir Robert. Þau hjónin koma víða við í störfum sínum í hérað- inu. Þau kenna bæði við Hafralækjarskóla og Juleiet stjórnar kirkjukórum í sveitinni. Auk þess hefur Ro- bert með höndum stundakennslu við Háskólann á Ak- ureyri. Þá stjórnar hann Karlakórnum Hreim í Þingeyj- arsýslu sem og Kór Hafralækjarskóla. Vetrarstarfi þess- ara kóra er nú að ljúka og hefur verið í mörg horn að líta hjá stjórnandanum. Tónleikar hafa verið haldnir vítt og breitt að undanfórnu og hafa þeir lukkast vel, enda er efniviður kórstjórans býsna góður. Þannig hélt síðarnefndi kórinn tónleika í Laxárvirkjun um síðustu helgi og stefnt er á útgáfu geisladisks með lögum kórs- ins á hausti komanda. Þau Robert og Juleiet eiga tvö börn; þau James Boss sem er fjórtán ára og Nönnu Lucy sem er sex ára. Fjöl- skyldan heldur enn sínum breska ríkisborgararétti og ætlar ekki að breyta því í bráð. Af þjóðsögum og Þingeyingum Þjóðsagan hermir að Þingeyingar séu helst til grobbnari en aðrir Islendingar. Séu upp meö sér yfir einhverju því atgervi eða arfleifð sem nútímafólk fær illa skilið hver nákvæmlega sé. „Ég hef aldrei skilið sjálfur hvernig þessi saga er alltaf á floti. En sjálfur lít ég svo sannarlega á mig sem Þingeying og hef stolt og metnað fyrir hönd þessa héraðs. Hér er náttúrufegurð einstök og yndislegt fólk. Ég hef alltaf upplifað Þingey- inga sem mitt fólk og finnst ég eiga mínar rætur hér. I það minnsta hef ég aldrei skynjað mig sem útlending á íslandi. Finnst ég eiga heima hér,“ segir Robert. En víkjum þá að máli málanna; sveitarstjórnarmál- unum í Aðaldal sem Robert ætlar sér nú að blanda sér í. Viðfangsefnin í þeim ranni eru svipuð hvert sem sveitarfélagið eða landshornið er. Meginhluti tekna Að- aldælahrepps fer til reksturs Hafralækjarskóla og segir viðmælandi okkar aö vel takist til með rekstur hans. Meira en 90% kennara séu fagmenntaðir og ánægja sé með skólastarfið. Fjárfestuin í bömum „Sveitarsjóðurinn hefur ekki mikið fé til fram- kvæmda aö öðru leyti. Við höfum einbeitt okkur að því að fjárfesta í börnum og það er góð byggðastefna. Þá ekki aðeins fyrir Aðaldalinn heldur miklu frekar landið í heild. Hagur Aðaldælahrepps hefur ekki ver- ið nógu góður að undanfómu, en nú erum við laus úr þeirri gjörgæslu sem sveitarsjóðurinn hefur verið í. Þetta horfir allt til betri vegar,“ segir Robert. Um önnur mál sem líklegt er að áberandi verði á komandi kjörtímabili nefnir hann sameiningu sveit- arfélaga í héraðinu. Nú þegar hafi sveitarfélögin meö sér samstarf í ýmsum verkefnum og hún geti orðið upptaktur að sameiningu í fyllingu timans. Að henni hafi svo sem verið unnið þegar lögð var fram tillaga um sameiningu allra sveitarfélaga sýslunnar í eitt sem var hafnað í atkvæðagreiðslu á sínum tíma. „Það hefði líka átt að vera ljóst strax í upphafi að fyrir þeirri tillögu var ekki hljómgrunnur og hún hlaut að verða felld,“ segir Robert. Aðaldælahrepp, sem í eru um 300 íbúar, segir hann vera landbúnaðarhérað - en aðrar atvinnugreinar séu að verða æ ríkari þáttur í atvinnulífi sveitarinnar. Þar megi nefna ferðaþjónustu en einnig vinni margir af bæ, en búi í sveitasælunni. Virkja alla til þátttöku Það hljóta óneitanlega að vera tímamót í sögunni að maður sem er af erlendu bergi brotinn sé nú orð- inn fulltrúi í sveitarstjórn á íslandi. Kannski er þetta tímanna tákn og hluti af ákveðinni jafnréttisbaráttu, nú þegar fólki frá erlendum löndum fjölgar óðum í ís- lensku samfélagi. Jafnréttisbaráttan snýst væntan- lega um margt fleira en jafnrétti kynjanna; svo sem að öll sjónarmið og raddir eigi sína fulltrúa á vett- vangi stjórnmálanna og annars staðar þar sem ákvarðanir um hag fólks eru teknar. „Það þarf að virkja nýtt fólk til þess að hafa áhrif á samfélagið. Sú þróun sem átt hefur sér stað í stjórn- málum í Evrópu á siðustu misserum þar sem öfga- flokkar hvers konar eru að verða æ meira áberandi er ekki góð. Einmitt þess vegna þarf að virkja alla til virkrar þátttöku í því að móta samfélagið. Þar ber hver nokkra ábyrgð bæði sem einstaklingur en einnig sem hluti af heildinni. Að því leyti er ég félagshyggju- maður en hef ekki skipt mér af landsmálapólitíkinni eða skipað mér þar í neinn flokk. En mér hugnast ekki þegar menn eru stimplaðir kommar ef þeir hafa félagslega lífssýn. Slíkt finnst mér einfaldlega barna- legt og kemur í veg fyrir að hægt sé að ræða málin með vitrænum hætti. Allir þurfa að leggja hönd á plóg við að móta samfélagið," segir Robert Faulkner að síðustu. -sbs

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.