Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2002, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2002, Qupperneq 36
HgIqorblacf 3Z>V LAUG ARDAGU R 25. M Af 2002 Ólafío Hrönn Jónsdóttir leikkona er með fyndnustu íslendingum. Hún er komin aftur í Þjóðleikhúsið eftir erfiða regnslu sem hún telur að hafi bregtt sér: hún er viðkvæmari en áður, hún er hætt að herma eftir og tilbú- in að takast á við meira krefjandi hlutverk. ÞÚ ERT BÚIN AÐ LEIKA FIMMTÍU sýningar af Með vífið í lúkunum í Borgarleikhúsinu. „Já, og árið áður lék ég í Sýnd veiði í Iðnó. Það hentaði mér rosalega vel að vera í einni sýningu í einu þannig að ég gæti verið heima á daginn hjá stelpunni minni. Svo er ég að leika i Strompleiknum í Þjóðleikhúsinu." Það hefur sem sagt ekki allt gengið sem skyldi með barnið? „Nei, hún fæddist mjög veik og ég vildi náttúrlega vera eins lengi og þyrfti heima með hana. Hún er hress núna þó ekki sé allt búið.“ Hvenær útskrifaðistu úr Leiklistarskólanum? „87“ Og þú hefur verið á fullu síðan. „Já.“ Hvernig var að kúpla sig út úr leikhúsinu eftir þessa löngu törn? „Það var ofsalega skrýtið. Ég hafði verið á fullu síð- an ég útskrifaðist og varla tekið mér pásu nema svona rétt í kringum fæðingar. Leikhúsheimurinn heltekur mann og maður gleymir svolitið lífmu fyrir utan leikhúsið. Maður er alltaf að láta allt rúlla. Vinnan er svo rosalega stór þáttur í lífi leikarans. Þegar ég fór út úr þessum heimi sá ég að leikhús- heimurinn skildi ekki svo mikið eftir sig. Það voru hjá mér engin tengsl á milli þessara tveggja heima. Það var svolítið sjokk fyrir mig. Ég hef þurft að hugsa hlutina dálítið upp á nýtt.“ Þér var kippt ansi hressilega inn í lífið. „Já, líf mitt breyttist mjög mikið. Foreldrar mínir dóu með fimm ára millibili og ég var komin heim með veikt barn. Það var mjög mikil breyting. En svona leiðir alltaf til einhvers góðs því maður lærir að meta lífið upp á nýtt, hvað skiptir máli og hvað maður vill; hvernig maður vill vera.“ Lífið utan leikhússins nærir væntanlega lista- manninn. Heldurðu að þetta breyti þínum lista- mannsferli? „Ég held það.“ Hvernig? „Ég held að þessi reynsla hafi dýpkað mig. Mig langar í alvarlegri og meira krefjandi verkefni. Það var líka eitt sem gerðist hjá mér: ég get ekki lengur hermt eftir fólki. Ég er svo hrædd um að særa það og mig langar ekki til þess. Ég er orðin viðkvæm fyrir svona hlutum." Ég þekki mann sem eignaðist fyrirbura og hann sagði að löngu eftir þá reynslu hafi hann ekki getað lesið skáldskap, einungis ævisögur um alvöru fólk. „Ég skil hvað hann á við. Maður vill hafa allt í meiri alvöru. Þegar ég hitti fólk vil ég tala við það í alvöru. Ég horfi öðrum augum á lífið.“ Bölvun fyndninnar Þú hefur aðallega fengist við grínhlutverk. „Já, en samt ekki til að byrja með. Þegar ég útskrif- aðist úr skólanum vissi ég að ég gæti alltaf farið út í grínið og ætti auðvelt með það. Ég lét það hins vegar ekki mikið uppi og einbeitti mér frekar að alvarlegri hlutverkum. Svo fór ég meira út í grínið og þá er eins og maður sé settur í skúffu." Bölvun fyndninnar? „Já, svolítið. Ég var mjög oft fengin til að lesa upp í útvarpsþáttum áður fyrr en það er alveg hætt. Mað- ur er kannski ekki eins trúverðugur ef maður er í grínbransanum, ég hef heyrt þá kenningu og held að það sé svolítið til í því.“ Hefurðu alltaf verið fyndin? „Já, ég hef alltaf verið í því hlutverki að grínast á alls kyns samkundum frá því ég var lítil. Ég grinað- ist í skátunum, skólanum og í leikfélaginu á Horna- firöi. Þetta hefur alltaf verið svona og þegar ég fór í Leiklistarskólann ákvað ég að hvíla þetta aðeins.“ Komstu beint frá Hornafirði í Leiklistarskólann? „Nei, nei. Ég átti bara heima á Hornafirði í sjö ár. Síðan fór ég í skóla á Laugarvatni og flutti siðan aft- ur í bæinn með foreldrum mínum, kláraði stúdentinn og fór í inntökupróf. Ég er ekki Hornfirðingur. Ég átti heima þar í sjö ár og hélt bara að ég væri Hornfirð- ingur." Þú hélst það, en hvað ertu? Ertu Reykvíkingur? „Já, í raun og veru er ég fædd og uppalin í Reykja- vík. Ég flutti svo út á land og kom aftur til baka.“ Þannig að það er ekki bara misskilningur hjá okk- ur hinum að þú sért Hornfirðingur, heldur líka hjá þér? „Já.“ „Ég er auðvitað meira í því að herma eftir konum og ég held að þær séu viðkvæmari fvrir því en karlar. Stjórnmálamönnum finnst ofsalega gaman þegar hermt er eftir þeirn. Og ef mér líður illa þegar ég hermi eftir fólki þá á ég ekki að vera að því. Ég veit að þetta er asnalegt og óþarfa viðkvæmni en þetta er bara staðan hjá mér í dag. Ég vorkenni fólkinu sem ég hermi eftir og þá líður mér illa. Og af hverju ætti ég að vera að því? Eins og þegar ég hermdi eftir Björk - þá hugsaði ég með mér: æ henni þvkir þetta örugglega leiðinlegt." DV-mynd Hari Ég er hætt að herma eftir Flóttaleið fyndninnar Það er oft talað um að þeir sem eru alltaf að grín- ast noti húmorinn sem eins konar bjarghring til að sleppa frá tilveru sinni. „Jú, jú, húmorinn er tæki til að lifa af. Það hjálp- ar fólki mikið að sjá fyndnu hliðina á hlutum þeg- ar eitthvað hrjáir það; húmorinn smækkar vanda- málið og þá fjarlægist maður hlutina og getur hleg- ið að þeim. Það er ákveðin flóttaleið fólgin í húmornum og stundum þarf maður slíkan neyðar- útgang. En sumt er ekki hægt að grínast með.“ Nú eru Sýnd veiði og Með vífið í lúkunum fyndn- ar sýningar. Er alltaf jafn skemmtilegt að leika í försum, jafnvel þótt sýningin sé númer fimmtíu? „Það er alltaf jafn skemmtilegt. Fólk furðar sig alltaf á því. Það er bara svo skrýtið með það að þetta er lítið og skemmtilegt líf sem maður á á svið- inu og það dettur maður inn í á hverri sýningu og skemmtir sér alltaf jafn vel.“ Það hlýtur að vera gaman að láta heilan sal af fólki hlæja. „Svo er það líka alltaf ögrun að láta verkið virka á hverju kvöldi. Það er alltaf ákveðið próf.“ Þykir þér auðveldara aö fást við gamanhlutverk en alvarleg? „Ég veit það ekki. Mér finnst hvort tveggja erfitt, það er bara ólikt. Dómurinn á sýningu þar sem maður á að vera fyndinn er hins vegar mjög afger- andi. Það er ekki hægt að blekkja sjálfan sig, það er bara eitt mælitæki: hláturinn."
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.