Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2002, Blaðsíða 46
HeIqctrhlctcf H>V LAUGARDACUR 25. MA.Í 2002
Ragnar Róbertsson, fslandsmeistari og heiuisbikarmeistari í torfæruakstri götubíla 2001, kvæntist
Ingibjörgu Magnúsdóttur síðasta laugardag.
DV-myndir JAK
Ragnar Róbertsson tryggði sér heimsbikartitilinn í fyrra þegar hann endaði síðustu braut
lokaumferðar mótsins með hrikalcgu stökki sem endaði með veltu og kengboginni afturhásingu.
wr
Ragnar Róbertsson skar brúðartertuna af sömu yfirvegun og nákvæmni og hann
beitir þegar hann ekur vandasamar og erfiðar torfærubrautir á Pizza ‘67 Willysnum.
Torfæran hefst á sunnudag:
Hvað gerir
sá nýkvænti?
Síðustu daga og vikur hafa torfæru-
ökumenn verið önnum kafnir í öllum
frístundum sínum við að endurbyggja
og bæta keppnistæki sín fyrir fyrstu
umferð torfærunnar sem ekin verður á
morgun, sunnudag, i malargryfjunum í
Bolöldum fyrir minni Jósefsdals.
Flestir þeirra hafa varla gefið sér
tima til að reka nefið út úr bílskúmum,
nema Ragnar Róbertsson. Ragnar not-
aði síðasta laugardag til að ganga upp
að altarinu hjá séra Valgeiri Ástráðs-
syni í Seljakirkju og kvænast heitkonu
sinni, Ingibjörgu Magnúsdóttur. Á með-
an mátti Pizza 67 Willysinn bíöa en
Ragnar átti þá eftir að skipta um aftur-
hásinguna undir jeppanum. Gamla
hásingin kengbognaði í lokabraut sið-
ustu torfærunnar í fyrra þar sem Ragn-
ar tryggði sér heimsbikartitilinn en
áður hafði hann unnið íslandsmeist-
aratitilinn í götubilaflokki.
Erfið titilvöm
Ragnar á nú fyrir höndum erfiða tit-
ilvöm því helsti keppinautur hans í
götubílaflokki, Gunnar Gunnarsson á
Trúðnum, er búinn að setja nýuppgerða
vél með innspýtingu í jeppann, auk
nýrrar 350 TurboHydramatic skipting-
ar með converter sem grípur við 5000
snúninga. Gunnar hyggst endurheimta
íslandsmeistaratitilinn aftur og ná
heimsbikartitlinum sem Ragnar hefur
haldið í tvö ár. Það stefnir allt í harða
keppni milli þeirra Ragnars og Gunn-
ars auk þess sem búast má við að fleiri
blandi sér í toppbaráttu götubílaflokks-
ins.
-JAK
Bland í noka
Ákafir aódáendur Formúlu 1 bíða
spenntir eftir keppninni í Mónakó um
helgina. Menn velta því mikiö fyrir
sér hvort sama staða muni koma upp
og í siðustu keppni, nefnilega að
Rubens Barrichello „vinni" öruggan
sigur og hleypi síðan Michael
Schumacher fram úr sér á lokametr-
unum.
Taki liösstjórn Ferrari aftur slíka
ákvörðun má telja nokkuð víst að vin-
sældir Ferrari fari ört minnkandi og
að ákafir stuðningsmenn liðsins snúi
á önnur mið. Víða um heim hefur
framkoma Ferrari í síðustu keppni í
Austurriki verið fordæmd og er þá
reyndar vægt til orða tekið. Þeir sem
heitast unna Formúlunni vonast eftir
því að rétt yfirvöld taki sig nú saman
í andlitinu og banni ökumönnum liða
að ráðskast með úrslitin eins og Ferr-
ari gerði í síðustu keppni.
Mikil eftirvœnting ríkir í Senegal
etir því að heimsmeistarakeppnin í
knattspyrnu hefjist. Landsliö Senegal
leikur nú í fyrsta skipti í úrslitum
keppninnar og mætir heimsmeistur-
um Frakka í opnunarleik HM um
mánaðamótin.
Yfirvöld í Senegal hafa nú gefið út
skipun til skólayfirvalda þess efnis að
öllum skólabörnum í landinu verði
gefið frí á meðan leikir Senegal í
keppninni standa yfir til þess að
krakkamir geti fylgst með átrúnaðar-
goðum sinum á knattspyrnuvellinum.
Lið Kamerún er loksins komið til
Japan til þess að taka þátt í HM í
knattspymu. Brottför liösins tafðist í
nokkra daga vegna ósamkomulags um
aukagreiðslur til handa leikmönnum
og gengu þeir samningar afar illa fyr-
ir sig. Loksins þegar hægt var að
halda af stað skorti leyfi til að fljúga
yfir Kambódíu og Filipseyjar og tafð-
ist liðið um 20 klukkustundir vegna
þessa. Þessi seinkun kann að raska
mjög undirbúningi liðsins fyrir HM.
-SK