Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2002, Page 56
56
Helqarblacf DV LAUGARDACUR 25. M Af 2002
Mercedes Benz E320,4matic,
11/98, ek. 84 þ. km, sjsk.,
álfelgur,
geislaspilari, topplúga og fleira.
Verð kr. 3.200.000, skipti ath.
Mercedes Benz 230 CE
Sportline, 01/90, ek. 131 þ.km,
sjsk., 18“ álfelgur, spólvörn,
leðuráklæði, topplúga,
geislaspilari.
Vero kr. 1.490.000.
Toyota Avensis Sol stw., 2000
cc, 01/98, sjsk., ek. 59 þ. km.
Verð kr. 1.380.000.
Mazda323Lx, 12/00, ek. 41
þ. km, beinskiptur, 5 gíra,
Verð kr. 1.130.000.
Nissan Patrol Elegance 3000
cc, sjsk. 10/00 ek. 40 þ. km,
35“ breyttur, leðurinnrétting,
topplúga, kastaragrind,
fjarhitari, toppbogar,
varahjólshlíf, spoiler og fleira.
Verð kr. 4.600.000.
Musso 2900 TDI, árg. 1996,
ek. 107 þ. km, beinskiptur,
38“ breyttur, 5/38 hlutföll,
kastaragrind, olíumiðstöð,
loftdæla með úrtaki,
loftlæstur að framan og aftan,
mjög vel útbúinn bíll.
Verð kr. 2.490.000.
BÍLASALAN <S> SKEIFAN
• BÍLDSHÖFÐA 10 •
S: 577 2800 / 587 1000
www.benni.is
Breyttur opnunartími: Virka daga. 10-19 • Laugardaga 11-17
Akureyri: Bilasalan Ós • Hjalteyrargótu 10 - Simi 462 1430
Formúla 1
Þetta atvik var vægast sagt mjög umdeilt í keppninni í Austurríki þegar Rubens Barrichello hleypti Michael Schumacher framúr sér á síöustu
metrunum eftir fyrirmæli frá liðsstjórn Ferrari. Vilja margir meina aö þetta hafi veriö aigjör óþarfi og sportinu til vansa.
Viðskipti eða ástríða
Þann tólfta maí síðastliðinn tókst
Ferrari-keppnisliðinu að ganga
fram af heimsbyggðinni með ótrú-
legum skipunum á síðustu hringj-
um austurríska kappakstursins til ökumanna
sinna þegar Rubens Barrichello sem hafði forystu
nær alla keppnina var beðinn að gefa eftir sigur
í hendur félaga síns, Michael Schumacher. Reiði
áhorfenda um allan heim var geysileg og voru
ökumennimir púaðir svo af brautargestum að
aldrei hefur slíkt heyrst í fimmtíu og tveggja ára
sögu Formúlunnar. Eldheitir Ferrari-aðdáendur
brenndu fána liðs sins að lokinni keppni, svo
mikil var heiftin, sumir sögðust aldrei ætla að
horfa framar á Formúlu 1 kappakstur. Verið
getur að 12. maí komi til með að verða einn af eft-
irminnilegustu dögum kappakstursins þegar
fram líða stundir. Dagurinn sem það varð á end-
anum ljóst að markaðsöflin stýrðu hinu ástríðu-
fulla og goðsagnakennda ítalska keppnisliði Ferr-
ari. Nú, eða er ástriðan svo sterk innan liðsins að
þeir vilja ekki hætta neinu í leið sinni að enn ein-
um heimsmeistaratitlinum?
Schumacher alltaf umdeildur
Síðan 1996, er Michael Schumacher hóf að aka
fyrir Ferrari, hefur liðið ekki farið i neinar graf-
götur með goggunarröð ökumanna sinna og liðs-
skipanir sínar. Schumacher er númer eitt hjá lið-
inu og aðrir ökumenn liðsins koma þar á eftir.
Rubens BarricheOo þar á meðal. Michael
Schumacher hefur á undanfómum árum verið
goðsögn í sköpun með því að vinna hvert metið á
fætur öðru og nú stefnir í að hann tryggi sér
fimmta heimsmeistaratitil sinn og þann þriðja í
röð. Þaö hefur ekki gerst síðan Juan Manuel
Fangio skóp söguna á sjötta áratugnum. Á þess-
um átta ámm hefur hann unnið 39 keppnir á
móti 5 sem félagar hans hjá Ferrari hafa unnið til
samans. En það hefur borið skugga á þá goðsögn
sem Schumacher hefur verið að skapa sér sem
hann á erfitt með að losa sig við. Aderleid-atvik-
ið gegn Damon Hill árið 1994 hefur alltaf verið
umdeilt, Jerez ’97, er hann ók vísvitandi utan í
Jacques Villeneuve og nú hefur Zeltweg ’02 bæst
við. Þetta atvik á síðustu metrum austurríska
kappakstursins á eftir að rýra gildi titla hans og
afreka. í ljósi þeirra yflrburða sem hann og Ferr-
ari hafa notið á þessu ári er undarlegt að hann
hafi samþykkt þessar skipanir liðsins þegar hann
hafði yfir tuttugu stiga forystu á næsta keppinaut
sinn. Það var öllum fullljóst að heimsmeistarinn
naut sín alls ekki á verðlaunapaUinum í Austur-
ríki og ýtti hann þvi félaga sínum og raunveru-
legum sigurvegara keppninnar á efsta þrep verð-
launapallsins og gaf honum verðlaunagripinn.
Það var þó ekki fym en hann mætti á blaða-
mannafundinn að það rann upp fyrir honum að
hann og Ferrari höfðu gert alvarleg mistök.
Blaðamenn tóku hann kverkataki með spuming-
um sínum. En hengdu þeir bakara fyrir smið?
Juan Pablo Montoya er á þeirri skoðun. „Ég sá
svipinn á andliti Schumachers. Ég sá að hann
hafði ekkert með þessar skipanir að gera.“ Að-
spurður hvort hann færi eftir skipunum liðs síns
ef hann lenti í svipaðri stöðu og Barrichello,
„Auðvitað, annars gæti ég farið að leita að nýju
starfl. Einfalt!"
Ron Dennis; ekkert rangt
Liðsskipanir hafa aldrei verið vinsælar á með-
al áhorfenda, en það er ljóst að þær hafa alltaf
verið hluti af Formúlu 1 kappakstrinum og verða
það svo lengi sem þær verða ekki bannaðar af Al-
þjóða akstursiþróttasambandinu, FLA. Undanfar-
in ár hafa þær verið notaðar af flestum liðanna
og umtalið hefur verið æði misjafnt eftir því hver
hefur átt í hlut. í hinni eftirminnilegu Jerez
keppni árið 1997 tóku Williams og McLaren sig
saman og stóðu að fyrsta sigri Mika Hakkinens.
Ári síðar varð það Hakkinen á ný sem fékk sigur
frá félaga sínum í Melboume. Er Eddie Irvine ók
fyrir Ferrari, gaf hann eftir sæti til Schumachers
í Austurríki og Japan árið ’98, síðan í Frakklandi
’99 og þáði svo í staðinn sigur frá Mika Salo í
Hockenheim og Schumacher í Malasíu það sama
ár. Þá fór minna fyrir gagnrýni enda var stiga-
keppnin í jámum. Breska pressan var sérstak-
lega róleg og fannst það eðlilegt, öfugt við núver-
andi ástand. I franska kappakstrinum í fyrra var
Ralf Schumacher beðinn að víkja fyrir félaga sín-
um, en hann neitaði og var harðlega gagnrýndur
fyrir af blaðamönnum. Það er oft ekki sama hver
á í hlut. Ron Dennis, liðsstjóri McLaren, sem seg-
ist gefa ökumönnum sínum jafnan rétt í keppn-
um er á þeirri skoðun aö Ferrari hafi ekki gert
neitt rangt í síðustu keppni. „Þeir gerðu ekkert
rangt gagnvart reglunum. Ég er alls ekki hissa á
því sem gerðist því þeir gerðu ekkert sem þeir
hafa ekki gert áður,“ sagði Dennis um atburðina
á síðustu metrum austurríska kappakstursins.
„Ég er liðsstjóri McLaren og viö höfum lýst yfir
jafnrétti á milli ökumanna sem ég tel að beri lið-
inu gott vitni. Það gæti kostað okkur stöðu á
stigalistanum eða jafnvel meistaratitli, en ég er
samt á þeirri skoðun að það sé rétta leiðin til að
reka Formúlu 1 keppnislið."
Gert í þágu titilbaráttunnar
Það voru þeir Ross Brawn og Jean Todt, sem
stjóma keppnisliði Ferrari, sem tóku þessa af-
drifaríku ákvörðun þann 12. maí, en skiptar skoð-
anir eru um hvenær hún var tekin og hvemig
hún var framkvæmd. Hvort liðið hefði betur falið
aðgerðir sínar í þjónustuhléum eða Barrichello
óvart ekið út af og þannig hleypt félaga sínum
fram fyrir. Það hefði veriö betra fyrir sportið að
sumra mati. En það hefði bara gert aðgerðir liðs-
ins óhreinni og verið niðurlægjandi fyrir Brasil-
íumanninn sem um þessa helgi undirritaði nýjan
tveggja ára samning við liðiö. Ross Brawn segir
að þrjú ár i röð (’97 til ‘99) hafði Ferrari tapað tit-
ilbaráttu í síðustu keppnum á örfáum stigum og
með þessari framkvæmd hafi forskot Schu-
machers verið aukið um fjögur stig sem gætu
haft mikið að segja í lok ársins og því hægt að
koma i veg fyrir að þetta endurtaki sig. „Við höf-
um varið miklum fjármunum til að vinna meist-
aratitla og kostendur reiða sig á okkur,“ var haft
eftir félögunum að keppni lokinni, en það er
hugsanlegt að þessi ákvörðun geti haft þveröfug
áhrif á viðskiptahlið Ferrari sem hefur getað stát-
að sig af hundruð prósenta í aukningu á sportbíl-
um sínum eftir að velgengni liðsins jókst.
Kostendur eru viðkvæmir gagnvart gagnrýni og
slæmri imynd. Það að fá dygga aðdáendur Ferr-
ari-liðsins á móti sér er ekki gott og á meðan þeir
fylgjast ekki með missa kostendur áhugann. Ekki
bara á Ferrari heldur Formúlu 1 í heild sinni. En
Jean Todt er ekki á þeirri skoöun. Alls ekki. „Ég
veit að aðdáendur okkar elska okkur (Ferrari).
Við höfum brugðist þeim og þeir eru reiðir. En
hætta sjómenn að elska hafið þrátt fyrir að það
gefi á annað slagið?" -ÓSG
Jordan bíll Sato iiggur hér viö brautarkantinn eftir samstuöuö viö Nick Heidfeld í síöustu keppni.
Sato hlaut heilahristing viö áreksturinn en ekki frekari meiösli.