Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2002, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2002, Qupperneq 11
LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2002 11 Skoðun skipstjórann. „Ætli það sé ekki best að göngufélagi okkar hvíli sig í landi í dag. Hann fær kannski að fljóta með þegar þú kemur að sækja okkur í kvöld." Að því sögðu vippuðu systumar sér um borð og vinkuðu mér. „Sjáumst í kvöld, elskan,“ kallaði konan. „Passaðu að misstíga þig ekki í dag.“ Þær flissuðu eins og smá- stelpur. Kafteinninn horföi á land- krabbann undarlegum augum en sagði ekki neitt. Skárri en síðast Ég mætti á bryggjuna um kvöldið, óhaltur. Skipstjórinn ungi tók vel á móti mér. Hann minntist ekkert á liðna morgim- stund á ísafjarðarbryggju en nefndi það að fylgdarkonur mínar hefðu gengið rösklega af stað frá Sæbóli. Við stímdum út lognkyrr- an Skutulsfjörð. Blíðan hélst í Djúpinu og inn Jökulfirðina. Við tókum stefnu á Hesteyri. Þegar grillti í hús í því löngu yfirgefna plássi fékk ég lánaðan sjónauka skipstjórans. Mikið rétt, þar gat að líta tvær konur í fjöruborðinu, önnur í rauðri yfirhöfn, hin í blárri. Þegar að landi kom skaut sjómaðurinn knái út gúmbát til þess að sækja þær göngumóðu. Mér var falið að gæta hafskips- ins. Það var fyrsta eigin- lega hlut- verk mitt þann daginn. Formað- urinn var snöggur upp í fjöru, konumar stukku um borð og óðar en varði var túttan komin að báts- hlið. „Þið lifðuð þetta af,“ sagði ég og talaði eins og sérfræðingur í gönguferðum á Hornströndum. „Já, já,“ svöruðu þær, eldhressar, rjóðar í kinnum og hamingjusam- ar. „Þetta var ekkert mál,“ sagði konan, hikaði aöeins en lét svo vaða: „Þú hefðir san)t ekki meik- að þetta.“ Ég kaus að svara ekki athugasemdinni og skipstjórinn var svo tillitssamur að kíkja á sjó- kort í sömu andrá. Síminn hringdi í vasa mér í þann mund er við sigldum inn í ísafjarðarhöfn það sama kvöld. Dóttir okkar hjóna hringdi úr höf- uðborginni. „Hvernig gengur?" spurði hún. „Fóruð þið á Hom- strandir?" Ég leit á konurnar tvær sem sátu aftur á og nutu út- sýnisins. „Já,“ svaraði ég, „við erum einmitt að koma að landi eftir þrekvirkið. Þetta var alveg sex tima ganga og einna erfiðust í mýrlendinu. Ég er samt alveg þokkalegur en mamma og þin kæra móðursystir eru að hvíla sig. Auðvitað reyndi þetta talsvert á þær.“ „Finnurðu þá ekkert til í hnénu?“ spurði stelpan. „Ja,“ svaraði ég eftir nokkra um- hugsun, „ég er skárri en á Svínanesinu." Hefnd hinna spilltu Fréttamenn á íslandi eru sú stétt manna sem þykir hvað sjálfsagðast að höggva til í opinberri umræðu. Oftar en ekki gerist það að vegið er að æru einstakra fjölmiðlamanna eða fjöl- miðla í skjóli annarra slíkra. Hið fornkveðna að hengja beri boðbera vá- legra tíðinda á einstaklega vel við á íslandi þar sem hávær en sem betur fer þröngur hópur telur það vera hagsmunum sínum til heilla að þagg- að verði niður í þeim sem tilbúnir eru til að upplýsa um mál sem bera spill- ingarkeim eða einkennast af sjálftöku á fjármunum. Síðasta sumar kom upp mál þegar alþingismaður var staðinn að verki við auðgunarbrot. Þjóðin var furðu lostin yfir þessu máli og fjölmiðlar með tveimur alvarlegum undantekn- ingum sýndu og sönnuðu að þeir stóðu undir þeirri ábyrgö sem felst i því að fara með hið margumrædda fjórða vald. Þeir upplýstu og fylgdu málinu eftir með þeirri niðurstöðu að það sem máli skipti varð opinbert. Hinar alvarlegu undantekningar í umfjöllun um mál þetta voru að sér- staklega einn fjölmiðill gekk hart fram í því að birta falsanir sem hinn grunaði greip til sér til varnar. Til- gangurinn virtist annars vegar sá að hjálpa til að fela slóð en hins vegar sá að koma höggi á aðra fjölmiðla með þeirri mynd að farið hefði verið offari gegn einstaklingi. Þeirri aðfór að trú- verðugleika var hrundið og hið rétta kom upp á borðið. Lenska að ljúga Lengi var það lenska að sjálfsagt þótti hjá stjómmálamönnum og öðr- um þeim er í eldlinunni standa að ljúga beinlínis að fiölmiðlum til að leyna óþægilegum sannleika. Áður- nefht mál þingmannsins varð til þess að breyta nokkru í þessum efnum. Þeim hefur fækkað sem velja sér lyg- ina til varnar og auðveldara er fyrir fiölmiðla að nálgast sannleikann og menn vilja síður verða uppvísir að ósannsögli. En spillingaröflin og þeir sem hafa eitthvað að fela hafa gripið til annarra vopna og njóta þar aðstoð- ar þeirra sem síst skyldi, sem sagt fiölmiðla sem af einhverjum ástæðum sjá sér hag í því að reifa óhróður á hendur kollegum sínum. Dæmi mátti sjá um þetta þegar þingmaðurinn áð- umefndi var ákærður. Fréttamaður á Ríkisútvarpinu, sem unnið hafði að málinu á frumstigi, var ausinn óhróðri í tveimur sjónvarpsþáttum og næstum þvi heilsíðugrein í blaði. Sak- bomingurinn í málinu fékk truflunar- laust að halda því fram í þremur fiöl- miðlum að fréttamaðurinn hefði fals- að ffétt með því að klippa til svar þingmannsins og hefði að auki „æpt á blóð“ þegar málið stóð sem hæst. Und- irritaður fékk ásamt fréttamanninum þá einkunn að vera „mannætur ís- lenskra fiölmiðla". Óhróðurinn fékk að flæða hindrunarlaust og sjálfsagt undir þeim formerkjum að sjálfsagt sé að krafsa í æru fiölmiðlafólks. Auð- velt er að afsanna að umrætt fiöl- miðlafólk sé mannætur þótt það hafi sinnt þeirri frumskyldu sinni að upp- lýsa um óheiðarleika einstaklings á valdastóli en það er þó íhugunarefni fyrir siðanefnd Blaðamannafélags ís- lands hvort hún ætti ekki af eigin frumkvæði að fara ofan í þessa fá- dæma umfiöllun nokkurra stærstu fiölmiðla landsins. Varðandi frétta- fólsunina kom það í ljós að fréttamað- ur Útvarpsins hafði gætt þess að geyma óklipptar upptökur af viðtal- inu við þingmanninn og í ljós kom að með lygina að vopni átti að sverta mannorð viðkomandi. „Þeim hefur fœkkað sem velja sér lygina til vam- ar og auðveldara er fyrir fjölmiðla að nálgast sannleikann og menn vilja síður verða uppvísir að ósannsögli. En spill- ingaröflin og þeir sem hafa eitthvað að fela hafa gripið til annarra vopna.“ Annað dæmi um fiölmiðla sem kusu að styrkja stöðu sína í erfiðum fiölmiðlaheimi var þegar fréttastjóri eins slíks tók upp mikla herferð í því skyni að stimpla inn að annar fiölmið- ill hefði brugðist heimildarmanni sín- um með þeim afleiðingum að upp um hann komst. Rök fréttastjórans voru þau að í símtali sem blaðamaður á samkeppnismiðli átti við ráðamann í kröppum dansi hefði verið gefin vís- bending sem gerði kleift að nálgast heimildarmanninn. Þarna var um hreinan og endurtekinn þvætting að ræða. Heimildarmaður fréttastjórans gat ekki verið annar en sá er vOdi ná fram hefndum á þeim er naut aðstoð- ar uppljóstrarans. Handbendi og málpípur? Það vopn sem hvað vinsælast hefur verið hjá spillingaröflum og skulda- þrjótum landsins að undanfórnu er að sá fræjum tortryggni í garð blaða- manna og fiölmiðlafólks undir þeim formerkjum að fólk gangi erinda eig- enda þess fiölmiðils sem það starfar hjá. Þetta er á stundum sett rakalaust fram og fólk sem af heiðarleika vill stunda fréttamennsku byggða á hlut- leysi þarf að sæta því að vera borið út sem málpipur einhverra afla sem vilji hafa áhrif á umræðuna sér í hag. Ný- legt dæmi er um forstjóra í skuldafeni sem notaði hvert tækifæri sem gafst tU að lýsa samsæriskenningum sínum um að hægri öflin í landinu vUdu koma sér og sínum á kné. FjölmiðUl sem sagt hafði fréttir af því að fyrir- tæki forstjórans skuldaði himinháar fiárhæðir og að stærstu bankar lands- ins væru að stefna því vegna skulda- mála var að mati forstjórans að ganga erindi hægri aflanna og forsætisráð- herra. Og blaðamaðurinn sem frétt- irnar skrifaði var að sjálfsögðu hand- bendi þeirra hægri sinnuðu. Málið er þeim er þetta ritar skylt þar sem hann skrifaði umræddar fréttir og situr undir samsæriskenningunum. Þessar kenningar forstjórans komu ekki upp þegar þmgmaðurinn af hægri vængn- um sagði af sér þingmennsku síðasta sumar en þær henta nú tU að fela hið raunverulega vandamál sem er fyrir- tæki á barmi gjaldþrots. Forstjórinn sem um ræðir hefur leikið lausum hala i fiölmiðlum þar sem hann með grófum hætti fær að sá fræjum tor- tryggni án rökstuðnings. En að vísu vUl svo tU að hann rekur fiölmiðlafyr- irtæki og hefur oftar en ekki komið fram þar og lýst skoðunum sínum á fiölmiðlum sem gangi erinda eigenda sinna. Flestir blaðamenn þekkja það að reynt er að hafa áhrif á umfiöllun þeirra með blíðmælgi eða hótunum. Sá er þetta ritar hefur fengið óvenju rausnarlegt atvinnutUboð frá fyrir- tæki sem vUdi forðast óþægilegt kast- Ijós og ekki eru nema örfáir dagar síð- an þau skUaboð bárust að sá sem þetta skrifar mætti eiga von á „ræki- legri hefnd" vegna nýlegra skrifa um tUtekin öfl. Þetta er aUt partur af lífi á fiölmiðli sem tekur á viðkvæmum málum án tUlits tU þess hver á i hlut. Skammir eða hrós eru hluti af starf- inu og aðalatriðið að kunna að taka hvorutveggja. Hótanir eru verri en því verður Ula trúað að skúrkar á litla íslandi færi sig upp á skörina og grípi tU ofbeldis í stað þess að láta róginn nægja. Hliðvarsla Fjölmiðlafólki á íslandi er nauð- synlegt að hugsa vandlega sinn gang og láta af þeirri ósvinnu að reifa óhróður hvert í annars garð. Hlið- varsla er hlutverk fiölmiðla en ábyrgðin sem henni fylgir er að gæta þess að ekki sá vegið ómaklega að mannorði nafngreindra einstaklinga án þess að þeir fái varist. Því verður trúað af reynslu að flestir sem starfa á íslenskum fiölmiðlum séu grand- vart fólk sem vinnur að starfi sínu af alúð en er ekki rekið áfram af annar- legum sjónarmiðum afla tU hægri, vinstri eða á miðjunni sem vUja nota það tU að ná auknum áhrifum. Sömu- leiðis er ekki ástæða til að ætla ann- að en að eigendur flestra íslenskra Qölmiðla skilji vandlega á miUi fréttamiðlunar og áforma um aukin áhrif. En undantekningarnar eru tU og þaö eru jú rónarnir sem koma óorði á brennivínið.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.