Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2002, Page 20
20
Helqarblað 13 V LAUGARDAGUR 27. JÚLf 2002
fer með hlutverk Títusar.
Reynum að ganga
eins langt og við
Það er ekki á hi/erjum degi sem leik-
rit eru æfð upp til þess að sgna einu
sinni. Þannig er þvíþó varið með
leikritið Títus sem Vesturportið sýn-
ir íkvöld. Ólafur Darri Ólafsson,
einn af leikurunum ísýningunni,
segir þetta fgrirkomulag hins vegar
ekki svo slæmt, enda veiti ekki af
þvíað venja íslendinga við betri
leikhúsvenjur og fá þá til að hætta
að slá þvíá frest að fara á sýningu
sem þá langar á. Þeir áhorfendur
sem mæta á Títussýninguna íkvöld
mega búast við gróteskri upplifun
þarsem blóð og aflimanir gegna
veigamiklu hlutverki.
„Þaö verður bara þessi eina sýning, sama þótt að-
sóknin verði góð og óskað verði eftir annarri sýn-
ingu. Ég held líka að það sé bara ágætt enda finnst
mér tími tii kominn að við íslendingar hættum að
vera alltaf að skoða hvað sé að gerast í leikhúsunum
og ákveða að okkur langi rosalega að fara á þessa eða
hina sýninguna, en ætlum samt ekki að sjá hana fyrr
en eftir fimm mánuði. Mér finnst við verðum að fara
að laga til í bakgarðinum hjá okkur og gera það sem
okkur langar til þegar okkur langar til þess. Þeir sem
langar til þess að sjá þessa sýningu hafa bara þetta
eina kvöld, þannig að það er bara að koma,“ segir
getum
Ólafur Darri Ólafsson. Hann er einn af leikurunum
sem taka þátt í uppfærslu Vesturportsins á leikritinu
Títus sem sýnt verður í kvöld klukkan átta. Sýningin
er að mörgu leyti óvenjuleg, fyrir utan að vera bara
sýnd einu sinni þá er æfingatíminn einnig mjög stutt-
ur þannig að sýningin í heild sinni er ein stór tilraun.
Ekki vita áhorfendur heldur hvar sýningin fer fram
en miðasala á hana fer fram í Loftkastalanum og
þangað mæta einnig gestir og þaðan verður farið á
þann stað sem sýningin fer fram á.
„Stefnan var í upphafi sú að leggja bara allt í púkk-
ið og hafa eina virkilega góða sýningu þar sem öllu
væri kostað til. Þetta er bara ákveðin tilraun, og það
að gera þetta svona er bara hluti af tilrauninni. Við
höfum sem sagt bara frumsýninguna til þess að sýna
hvað i okkur býr,“ segir Ólafur Darri.
Eins og góð splattermynd
Títus er einn af fyrstu harmleikjum Shakespeares
og er leikritið talið vera hans ofbeldisfyllsta verk.
„Þetta er mjög gróteskt leikrit. Það eru aflimanir og
alveg haugur af morðum í því og við reynum að
ganga eins langt og við getum til þess að koma því til
skila,“ segir Ólafur Darri og bætir við að þetta sé í
fyrsta sinn sem verkið sé sett upp á íslandi.
í stuttu máli fjallar leikritið um rómverska hers-
höfðingjann Títus sem kemur heim sigursæll úr
stríði með nokkra fanga, þar á meðal fyrrverandi
drottningu óvinanna, Tamóru. Hún verður svo keis-
araynja í Róm og hefnir sin á Títusi. Inn í þetta
blandast svo tvær fjölskyldur, íjölskyldan Títusar og
fjölskylda drottningarinnar, auk fjölskyldu hins fyrr-
verandi keisara. Leikstjóri sýningarinnar er Björn
Hlynur Haraldsson, en um 100 manns koma nálægt
sýningunni allt í allt.
„Það er búið að taka leikritið og stytta það mikið
enda er það oft þannig í leikritum Shakespeares að
þaö er oft talað um það hvað muni gerast og það sem
hefur gerst. Þarna reynum við hins vegar að taka orð-
in og breyta þeim í gjöröir. Leikritið er blanda af
gamni og alvöru. Það er fullt af sorglegum atburðum
í þessu leikriti en eins og oft þegar hlutirnir eru sorg-
legir þá eru þeir líka fyndnir. Þegar ég las þetta leik-
rit fyrst þá fannst mér það alveg rosalega fyndið, ja
eiginlega eins og góð splattermynd, það var búið að
höggva eina hönd þarna, búið að drepa þennan og
hinn og tungan farin úr þessum. Kannski er ég kom-
inn með svona klikkaðan húmor en mér fannst ég
bara vera að horfa á Evel dead 2,“ segir Ólafur Darri
og hlær.
Æfingatími leikrita of langur?
Fyrir utan að vinna við Títus hefur Ólafur Darri
verið í sumarfríi að undanförnu og er m.a. nýkominn
heim frá systur sinni í Flórida eins og sólbrúnir
handleggir hans sanna. Hann segist vera búinn að
gira sig upp fyrir leikrit haustins en hann tekur þátt
í þremur sýningum í haust sem eru Kvetsch sem sýnt
verður í Vesturporti, Rómeó og Júlia sem sýnt verð-
ur í Borgarleikhúsinu, en þar er um að ræða nýja
þýðingu frá Hallgrími Helgasyni, og barnasöngleik-
inn Honk, litli ljóti andarunginn i leikstjórn Maríu
Sigurðardóttur sem sýndur verður í Borgarleikhús-
inu.
Ólafur Darri viðurkennir að auðvitað sé það svolít-
ið skrýtið að vera að vinna að sýningu sem verður
einungis sýnd einu sinni en hann segir að leikarnir
sem taka þátt i sýningunni séu samt alveg sáttir við
það og finnist verkefnið spennandi.
„Ég veit að Björn Hlynur hefur talað um það og ég
get tekið undir með honum í því að æfingartími leik-
rita er oft allt of langur. Við æfum of mikið og of
lengi. Sumt erum við kannski búin að ofæfa og ég
held að að sumu leyti slökum við bara meira á ef
hlutirnir eru ekki æfðir svona stíft. Við íslendingar
erum nú þekktir fyrir það að gera allt á síðustu
stundu þannig að þetta verkefni er kannski svolítill
angi af þeim hugsunarhætti að sjá hvort hægt sé að
æfa leikrit upp á 10 dögurn," segir Ólafur. Hann bæt-
ir við að kannski mætti stytta æfingatíma leikrita
niður í 6 vikur. Hann tekur fram að það þyrfti þó að
meta í hvert sinn, eftir eðli sýninganna, hann gæti
t.d. ekki hugsað sér að setja upp sýningu eins og
Dansað i rigningunni á 10 dögum.
Títussýningin er annars engin smásmíði þrátt fyr-
ir stuttan undirbúningstíma og verður greinilega
mikil veisla fyrir augað. Að sýningunni koma auk
leikara, hönnuða og tónlistarmanaa Vesturports-
hópsins kvennakór, karlakór, Götuleikhúsið, að
ógleymdum áhættuleikara sem taka mun þátt í
hættulegu atriði. Tónlistin í sýningunni er öll frum-
samin og er hún ágeng, krafmikil og með rafrænu
ívafi. „Fyrir alla þá sem hafa áhuga á leikhúsi getur
þetta orðið mjög spennandi sýning. Þetta verður alla-
vega spennandi tilraun, hvort hún mistekst eða ekki
verður bara að koma í ljós, slík áhætta er hluti af
sportinu við að gera svona tilraun," segir Ólafur
Darri og minnir á að einungis um 1000 miðar séu í
boði. -snæ
DV-myndir S.IÖ
Sýningin er mikil veisla fyrir augað . Uni hundraö
nianns koma nálægt hcnni í heild sinni, þar á meöal
áhættuleikari, tveir kórar og fjöldi tónlistarfólk . Á
myndinni má sjá leikkonuna Völu Þórsdóttur.