Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2002, Qupperneq 30
30
Helqarblctö DV
LAUOA.RDA.CiUR 1-4. SEPTEMBER 2002
DV-Sport metur meistaraefnin úr Árbænum:
Stenst Fylkir pressuna?
— og vinnur fyrsta íslandsmeistaratitil félagsins frá upphafi
Odagur í úrslita-
leik Fylkis og KR
í Símadeild karla
- Fylkisvöllur, sunnudagur 14.00
Kjartan Sturiuson
Kjartan hefur vaxið mikið sem markvörður á
undanfömum árum. Hann er stór og hreyfanleg-
ur og sjálfstraust hans með boltann á tánum hef-
ur vaxið mikið. Á til að fara í glórulaus úthlaup
sem em oft dýrkeypt auk þess sem staðsetningar
hans orka tvímælis á köflum.
Leikir Mörk Stoðs. Spjöld DV-Sport
16 -19 1 -0 3,13
Fylkismenn eru í lykilstöðu. Þeir geta
tryggt sér íslandsmeistaratitilinn í fyrsta
sinn á heimavelli sínum í Árbæ með sigri
gegn KR. Eftir að hafa verið við toppinn
og á toppnum nánast samfellt frá því að
þeir komust upp úr b-deildinni 1999 finnst
mörgum tími til kominn á að Fylkismenn
fari alla leið og standist pressuna.
Björgvin Vilhjálmsson Björgvin er að stíga sín fyrstu skref í '18 toppslagnum. Hann er sterkur líkamlega og jS 0U/f 7*3 baráttuglaður en vantar mikið upp á að geta ““ Vj skilað bolta almennilega frá sér. Vantar hraða til £ I ’ttT að glíma við fljóta kantmenn og á í vandræðum I með staðsetningar í vamarfærslu á köflum. Leik'r M°rk S,°ös Spí°id DV Sport Þrír af fjórum varnarmönnum Fylkis hafa spilað saman undanfarin ár og eru orðnir mjög vel samæfð- ir og reynslumiklir. Helsti veikleiki varnarinnar er reynsluleysi Björgvins sem gæti haft áhrif í þessum mikilvæga leik, sérstaklega ef Einar Þór Daníelsson J er í stuði í liði KR. Þórhallur er íljótur en gerir of mikið af því að horfa á boltann og missir því oft af sínum manni. Ómar ætti að vinna Sigurð Ragnar í loftinu. C Gunnar Þór Pétursson | Gunnar Þór hefur verið með betri bakvörðum 1 % landsins undanfarin ár. Hann er með frábærar piwO — 1 sendingar og fyrirgjafir. Gunnar er harður í horn " Vlj að taka í návígum en á það til vera kærulaus í míÁ> MÉW- \ »» stöðunni einn á móti einum. Vinnur vel með Þór- ||gfc|**^ ’ : -íl halli Dan vinstra megin í vörninni. JB Leikir Mörk Stoös. Spjöld DV-Sport jtis 16 0 0 -0 3,06
33stig
10 mörk
í plús
Ómar Valdimarsson
Ómar er mikill karakter sem leiðir Fylkis-
vömina. Hann er mjög öflugur skallamaður,
bæði í vöm og sókn og góður í að dekka sóknar-
menn andstæðinga. Ómar skortir hraða en bætir
það upp með skynsömum leik. Ágætur aö koma
boltanum í spil.
Leikir Mörk Stoðs. Spjöld DV-Sport
14 0 1 -0 3,07
Þórhallur Dan Jóhannsson
Þórhallur hefur bætt sig mikið sem vamar-
maður á síðustu árum. Hann er fljótur, les leik-
inn vel og grimmur i návígum. Hann er mjög ör-
uggur á boltanum en á það þó til aö vera of
hrokafullur með boltann. Vandamál Þórhalls er
að hann er slakur að dekka menn inni í teig.
Leikir Mörk Stoðs. Spjöld DV-Sport
16 0 0 -0 3,37
Á þessu þriggja ára tímabili
hefur knattspymuáhugi Árbæ-
inga farið upp úr öllu valdi og
þrátt fyrir ungan aldur félags-
ins á ekkert annað lið, fyrir ut-
an KR, orðið dyggari og stærri
stuðningsmannahóp.
Allan tímann hefur fjölskyld-
an verið í fyrirrúmi á Fylkis-
vellinum og stemningin í hverf-
inu er engu lík á leikdegi. Ólíkt
Án nokkurs vafa besta miðja deildarinnar.
Miðjumennimir þrir eru allir góðir spilarar og mun
sterkari vamarlega heldur en miðja KR-inga. Þeir
Ihafa einfóld hlutverk sóknarlega séð og eiga að senda
boltann í svæðin á bak við bakverði andstæðinganna
fyrir Sævar Þór og Theódór. Mikið mun mæða á
Sverri og Vali Fannari sem þurfa að stoppa spilið
sem myndast í kringum Sigurvin og Veigar Pál á
miðjunni hjá KR.
'MMfe
O
Sverrir Sverrisson
Sverrir hefur gífurlega mikla reynslu. Hann
hefur minni yfirferð en áður en spilar boltanum
einfalt og hratt frá sér. Frábær skallamaður bæði
í vörn og sókn. Hefur verið þjakaður af meiðslum
í sumar sem hefur gert það að verkum að hann
er ekki í sínu besta formi.
Leikir Mörk Stoös
16 2 3
Spjöld DV-Sport
-0 2,94
árinu 2000 þegar liðið tapaði ópinbemm úrslitaleik mótsins fyrir
F KR á KR-vellinum fá Fylkismenn
tækifæri á að hefna sín núna og
það heimavelli.
Fylkismenn hafa sýnt og sann-
að styrk sinn í sumar. Þeir eru
Bk eina liðið sem hélt út á öllum víg-
I >1 stöðum, þeir era á toppnum í
Um WK Símadeildinni, eru komnir í bik-
arúrslitin annað árið í röð og spil-
uðu að auki tvo erfiða leiki í Evrópu-
keppninni.
FVLKIR
Upphitun
fyrir leik
Fylkismenn ætla
að hittast í Árseli kl.
11.30 á sunnudaginn.
Þar verður andlits-
málun og hoppkast-
ali auk þess sem
hljómsveit mun
spila. Á Blásteini
verður boðið upp á
súpu og brauð en að
auki stendur félög-
um í Club Orange til
boða sUdarveisla í
Fylkishöll og hefst
hún kl. 12. Skrúð-
ganga verður frá Ár-
seli kl. 13.20.
Valur Fannar Gíslason
Valur Fannar er duglegur leikmaður með
mikla yfirferð. Ætti sökum stærðar að taka
meira til sín í skallaboltum. Á til að vera
fullæstur og brjóta mjög klaufalega af sér. Skilar
boltanum vel frá sér en reynir stundum full-
flóknar leiðir í sendingavali.
Leikir Mörk Stoös. Spjöld DV-Sport
16
2 - 0 3,07
o
Theódór Óskarsson
Theódór er að spila sitt langbesta timabil fyr-
ir Fylki. Hann er með mikið sjálfstraust og er
duglegur, fljótur og leikinn. Theódór hentar vel í
4-3-3 leikkerfi Fylkis. Hann mætti bæta fyrirgjaf-
ir og skot auk þess sem hann þyrfti að styrkja sig
líkamlega.
Leikir Mörk Stoös. Spjöld DV-Sport
16 3 1 -0 3,20
o
Fmnur Kolbeinsson
Finnur er einn af betri miðjumönnum í deild-
inni. Hann er með mikla yflrferö, skilar boltan-
um vel frá sér og er með stórhættulegar auka-
spymur og hom. Hættulegur skotmaður við víta-
teiginn. Verður betri og betri með hverju árinu
sem liður.
Leikir Mörk Stoös. Spjöld DV-Sport
15 0 8 -0 3,67
Sævar Þór Gíslason
Sævar Þór hefur átt frábært tímabil. Hann er
eldfljótur, likamlega sterkur og ótrúlega grimm-
ur og fómfús upp við mark andstæðinganna. Hef-
ur sýnt það í sumar að hann getur skotið með
báðum fótum og hefur náð að hemja skap sitt bet-
ur en oft áður.
Leikir Mörk Stoös. Spjöld DV-Sport
16 12 1 -0 3,18
Liðið hefur fma breidd en
um leið spilar Aðalsteinn
Viglundsson ekki á mörgum
mönnum. Hann hefur myndað
sterkan kjarna leikmanna sem
eru með hlutverk sín á tæru.
Aðalsteinn hefur ekki breytt
mikið áherslum í leik liðsins
frá fyrirrennara sínum, Bjarna
Jóhannssyni.
Starf hans hefur aðallega
fólgist í því að halda í það sem
var vel gert og undir hans
stjórn hafa leikmenn eins og
Finnur Kolbeinsson, Sævar Þór
Gíslason, Theódór Óskarsson
og Kjartan Sturluson aldrei
leikið betur.
Fylkismenn hafa sannað sig
svo um munar sem stórveldi í
íslenskri knattspyrnu og Árbæ-
ingar geta verið stoltir yfir því
að eiga lið sem hefur fest sig í
sessi sem topplið. -ósk/ÓÓJ
Fljótasta framlína deildarinnar. Gæti skapað vand-
ræði fyrir KR-vömina sem er ekki sú hraðasta í deild-
inni. Mun væntanlega reyna öllum stundum að setja
boltann í svæðin bak við varnamenn KR og treysta á
hraðann. Sævar Þór er sjóðandi heitur og Steingrím-
ur hefur mikla reynslu af leikjum eins og þessum.
Theódór er að spila vel og það mun verða mjög mik-
ilvægt fyrir Fylkismenn að þessir þrír komist tljótt
inn í leikinn á morgun og láti að sér kveða.
Steingrímur Jóhannesson
Steingrímur hefur átt við mikil meiðsli að
stríða í sumar og er því ekki í sínu besta formi.
Hann fljótur, ótrúlega duglegur og alltaf hættu-
legur. Hann hefur ekki enn bætt galla sína sem
knattspymumanns sem eru léleg boltamóttaka
og slakar sendingar.
Leikir Mörk Stoös. Spjöld DV-Sport
13 5 2 -0 3,09
©
Björn Viðar Ásbjörnsson
Bjöm Viðar er að spila sitt fyrsta tímabil í
deildiimi. Hann er grimmur og ákveðinn en á
það til að fara flóknar leiðir að takmarki sínu.
Bjöm á það til að missa móðinn ef hlutimir
ganga ekki upp hjá honum en það breytist með
meiri reynslu.
Leikir Mörk Stoös. Spjöld DV-Sport
16 4 1 -0 3,00
Jón B. Hermannsson
Jón er gifurlega duglegur og grimmur
miöjumaður sem hefur komið skemmtilega á
óvart í sumar. Hann er ekki mjög leikinn með
boltann en þekkir styrkleika sinn og spilar
yfirleitt einfalt á næsta mann. Sterkur í návígum
og tæklingum en vantar hraða.
Leikir Mörk Stoös. Spjöid DV-Sport
12 1 2 -0 3,00
: .