Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1965, Blaðsíða 48
48
ar Búnaðarfélags Sveinsstaðahrepps kr. 3.448.84 styrk til
kaupa þessara verkfæra:
1. Jarðyrkjuáhöld: 3 plógar, 5 herfi og tvenn valtajárn.
2. Heyvinnutæki: 12 sláttuvélar og 4 múgavélar.
Þegar verið var að vinna að útgáfu Sögu Búnaðarfélags
Svínavatns- og Bólstaðarhlíðarhreppa sendi sá, er þetta rit-
ar öllum búnaðarfélagsstjórnum í Austur-Húnavatnssýslu
spurningarlista um vélar og vinnutæki í hreppnum. Búnað-
arfélag Sveinsstaðahrepps gaf skýr og glögg svör. Svörin eru
með hendi Jóns Kr. Jónssonar á Másstöðum. Hann lét af
formannsstörfum búnaðarfélagsins 1942. Ef til vill hafa
þetta verið síðustu stjórnarnefndarstörf þess mæta manns.
Samkvæmt þeim upplýsingum, sem þá fengust voru í Sveins-
staðahreppi árið 1942 vélar og verkfæri eins og hér greinir:
a. Jarðyrkjuáhöld:
9 plógar, 1 þúfnaplógur, 10 herfi, 4 flaggrindur, 4 hesta-
rekur, 6 valtar og 3 lokræsaspaðar.
b. Garðyrkjuáhöld:
1 plöntustingur, 1 plöntuskeið, 3 rákajárn, 23 arfasköfur,
2 arfaklær, 1 kartöflugref, 4 garðkönnur, 11 garðhrífur.
c. Áburðartæki:
2 forardælur, 3 forardreifar fyrir húsdýraáburð, 2 tað-
vélar.
d. Heyvinnutæki og almenn flutningatæki:
28 sláttuvélar, 4 rakstrarvélar, 1 snúningsvél, 3 múgavél-
ar, 27 meiðasleðar við heyflutning, 38 vagnar og kerrur,
14 heyhnífar og 9 ísasleðar.
e. Heimilistæki:
9 vefstólar, 6 kambaprjónavélar, 3 hringprjónavélar, 1
spunavél, 13 smiðjur.
d. Dýralækningatæki:
1 hestavönunartöng, 5 geldingatengur (lamba), 10 bólu-
setningasprautur og 3 doðaáhöld.
Aðeins eitt þessara tækja, herfi, var eign Búnaðarfélags
hreppsins.