Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1965, Blaðsíða 9
9
kvæmt bréfi amtmanns og reyna að vinna hreppsbúa sína
til að ganga í þau þar umtöluðu búnaðarfélög og stofna af
fríviljugum samskotum almennan hreppssjóð til eflingar
búnaðinum í hverri grein“. Enn fremur samþykkti fundur-
inn „að nauðsynlegt væri að stofna sýslufélag og sýslusjóð í
áðurnefndu augnamiði og sem sameiningarband milli
hreppsfélaganna". Kaus fundurinn 5 manna nefnd til þess
að semja frumvarp tii laga fyrir sýslubúnaðarfélagið, og
hlutu kosningu: Guðmundur Vigfússon prófastur á Mel-
stað, Páll Vídalín stúdent í Víðidalstungu, Ólafur Jónsson
hreppstjóri á Sveinsstöðum, Jósef Skaftason læknir í Hnaus-
um og Kristján Kristjánsson sýslumaður á Geitaskarði.
Sýslumanni og tveim fyrst töldu nefndarmönnunum var
falið „að skrifa hlutaðeigandi hreppstjórum um þau atriði,
er til umræðu hafa komið á fundi þessum“.
Fundargerðin gefur engar upplýsingar um fundarsókn.
Gengið var svo frá stofnun Búnaðarféiags Húnavatnssýslu
árið eftir, iO. júní Í864. Jón Kr. Jónsson á Másstöðum hef-
ir skráð sögu Búnaðarfélags Húnavatnssýslu í Búnaðarrit-
ið 1940, og verður því saga þess ekki rakin frekar hér, þó
að ég sé ekki alltaf sammála höfundinum.
Bréf amtmannsins til hreppstjóranna hefir vakið nokkra
hreyfingu í héraðinu, þó að minna yrði úr en ætla hefði
mátt. Tvö ný hreppsbúnaðarfélög eru þó stofnuð: Sveins-
staðahreppsfélagið og sjálfstætt félag í Bólstaðarhlíðar-
hreppi, auk þess, sem Svínvetningar endurskipuleggja félag
sitt.
í Aldarminningu Búnaðarfélags Svínavatns- og Bólstaðar-
hlíðarhreppa hefir Jónas B. Bjarnason frá Litladal skráð
glögga lýsingu á búnaðarháttum og búnaðarástandi í Húna-
vatnssýslu um miðja síðastliðnu öld. Verður þetta ekki end-
urtekið hér, enda er a. m. k. húnvetnskum lesöndum til-
tækilegt að leita sér fræðslu um það efni í fyrr nefndri rit-
gerð. Hins vegar verður hér síðar gerð grein fyrir búend-
um og búfjártölu í Sveinsstaðahreppi árið sem búnaðarfé-