Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1965, Blaðsíða 2
2
formannsskýrslu sinni: „Ræktunarfélagið vill leiða vísind-
in inn á heimili hvers einasta jarðyrkjumanns á Norður-
landi.“ í þessum orðum er fólgin stefnuskrá og markmið
Ræktunarfélagsins.
Meira en hálf öld er liðin. Öld stórfelldari breytinga og
byltinga en nokkru sinni fyrr í sögu mannkynsins, og þó
hefur byltingin ef til vill hvergi verið meiri en hér á íslandi,
bæði í atvinnuháttum og hugarfari. Margt það, sem skrifað
var um aldamótin síðustu, er nú úrelt og lætur jafnvel
skringilega í eyrum nútíðarmanna. En orð Páls Briem
standa óhögguð í róti tímanna, og hafa ef til vill aldrei
verið ferskari en nú, og í krafti þeirra hefur Ræktunarfélag
Norðurlands nú valið sér nýtt verkefni í þágu landbúnað-
ar á Norðurlandi, og þykir mér hlýða að gera þess nokkra
grein, þegar starf er hafið á þeim vettvangi.
Eins og kunnugt er, lagði Ræktunarfélagið niður til-
raunastarfsemi sina árið 1946 og leigði þá tilraunastöðina
Rannsóknarráði ríkisins. En þá var sú stefna hafin, að all-
ar tilraunir í þágu jarðræktar á íslandi skyldu vera undir
stjórn og umsjá Tilraunaráðs. Síðar kom að því, að félagið
seldi ríkinu stöðina og aðrar eignir sínar fyrir tveimur ár-
um.
Eftir að félagið hætti að reka tilraunastöðina, mátti segja
að verkefni þess væru verulega þrotin, eins og þá stóðu sak-
ir. Sú skipan var þá upp tekin að gera félagið að sambandi
Búnaðarsambanda á Norðurlandi, og tekjum þess skyldi var-
ið, til að halda uppi búnaðarfræðslu með Ársritinu, fyrir-
lestrahaldi og umræðufundum eftir því sem tækifæri gæfist.
En þótt þessu héldi svo áfram, var forráðamönnum félags-
ins ljóst, að þetta var ekki nægjanlegt verkefni, og vert væri
að leita anarra viðfangsefna, sem væri nær hinum upphaf-
lega anda félagsins, og mætti koma landbúnaði á Norður-
landi og raunar landinu öllu að meira haldi.
Á fundi 15. október 1962 ákvað svo stjórnin að hefja at-
hugun á möguleikum að stofnun efnarannsóknarstofu á Ak-
ureyri, er skyldi vinna að jarðvegs-, áburðar- og fóðurrann-
sóknum fyrir bændur á félagssvæðinu. Flutti stjórnin málið