Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1965, Blaðsíða 57
58
tíina í formannssæti ná þeir bræður Jón á Másstöðum 18 ár-
um og Magnús á Sveinsstöðum 15 árum. Núverandi formað-
ur, Halldór Jónsson, er þegar kominn í 14 ár.
Starfstímabil stjórnarnefndarformannanna eru sem hér
segir:
1. Jón Ólafsson, Sveinsstöðum ............ 1884—1888
2. síra Bjarni Pálsson, Steinnesi......... 1888—1891
fl) Jón Ólafsson, Sveinsstöðum (í annað sinn) 1891—1896
3. Halldór Pálsson, Miðhúsum................. 1896—1902
4. Jón Kr. Jónsson, Másstöðum ............... 1902—1908
5. Magnús Jónsson, Sveinsstöðum............. 1908—1914
6. Jónas Björnsson, Hólabaki................. 1914—1916
(5) Magnús Jónsson, Sveinsst. (í annað sinn) 1916—1918
(3) Halldór Pálsson, Miðhúsum (í annað sinn) 1918—1919
(4) Jón Kr. Jónsson, Másstöðum (í annað sinn) 1919—1921
(5) Magnús Jónsson, Sveinsst. (í þriðja sinn) 1921—1928
7. Jón S. Pálmason, Þingeyrum............ 1928—1932
(4) Jón Kr. Jónsson, Másstöðum (í þriðja sinn) 1932—1942
8. Magnús B. Jónsson, Brekku............. 1942—1950
9. Halldór Jónsson, Leysingjastöðum .... 1950 og síðan
Núverandi stjórn er þannig skipuð:
Halldór Jónsson, Leysingjastöðum, formaður,
Ólafur Magnússon, Sveinsstöðum, og
Magnús Sigurðsson, Litlu-Giljá, meðstjórnendur.
Eins og áður hefir verið getið koma þeir niðjar Ólafs
Jónssonar á Sveinsstöðum mjög við sögu búnaðarfélagsins,
og hefir jafnan einhver þeirra ættmanna setið í félagsstjórn,
en síðan 1942 hefir formennskan hvílt á þeim Brekkubræðr-
um: Magnúsi B. Jónssyni bónda í Brekku (dáinn 17. maí
1962) og Halldóri Jónssyni bónda á Leysingjastöðum. For-
eldrar þeirra bræðra voru: Jón Jóhannsson og kona hans
Þórkatla Guðmundsdóttir, sem reistu bú í Brekku í Þingi
1891. Varð Jón Jóhannsson þegar athafnasamur umbóta-
maður í búnaði, og á árunum 1884—1924 er Brekka með