Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1965, Blaðsíða 77
78
proteini, sem sér fyrir heildarþörf skepnunnar, þarf að
samanstanda af lífsnauðsynlegum aminósýrum í því magni,
sem getið er um í töflu 3. Sé litið á töflu 4, 5 og 6 sést að
í sumum tilvikum er prósent hráprotein í grasi og hveiti-
klíði nægilega há, en of lág í maís, væri fóðrað með þessum
fóðurtegundum einum saman. Of lítið er af sumum hinna
lífsnauðsynlegu aminósýra í þessum fóðurtegundum til þess
að ráðlegt sé að nota þær einar saman.
Hlutverk fiskimjöls í fóðurblöndum er tvíþætt, hvað
snertir proteinið, að tryggja nægilegt magn af hráefni til
myndunar þeirra aminósýra, sem ekki eru lífsnauðsynlegar
og að nægilegt magn sé af lífsnauðsynlegum aminósýrum.
Berum við nú saman samsetningu hráproteins í grasmjöli,
hveitiklíð og maís (tafla 4), þá reynist yfirleitt minnst af
lífsnauðsynlegum aminósýrum í hráproteininu í hveitiklíði,
en ýmist nokkru meira eða minna af hinum einstöku lífs-
nauðsynlegu aminósýrum í hrápróteini grasmjöls, heldur
en er í maíshráproteini. Hráproteininnihald grasmjölsins
er svipað og í hveitiklíði, og hærra en í maís. Hráprotein-
innihald erlenda heysins er álíka og í maís. Vegna aminó-
sýruinnihalds fóðursins virðist samkvæmt ofanskráðu að
miklu leyti mega nota grasmjöl í fóðurblöndur handa svín-
um og hænsnum í stað hveitiklíðs eða maís. Verðugt verk-
efni er að rannsaka, hvort sama gildir um önnur næringar-
efni en aminósýrurnar. Þegar rætt er um aminósýruinni-
hald eru fyrst og fremst hafðar í huga proteinríkar fóður-
blöndur handa svínum og hænsnum, en við framleiðslu
proteinsnauðra fóðurblandna er fyrsta krafan mikið magn
auðmeltra næringarefna, ríkra af nýtanlegri orku, auð-
leystra kolhydrata og fitu. í grasi fer að jafnaði saman lágt
proteininnihald og hátt innihald af tréni seint á þroska-
skeiði grassins og er það háð nýtingu trénisins, hvort sein-
slegið proteinsnautt gras er vel fallið til framleiðslu orku-
fóðurblandna. Mikilvægt rannsóknarefni er magn meltan-
legra kolhydrata í íslenzku grasmjöli og sér í lagi meltan-
leiki trénisins.
Um notagildi grasmjöls í proteinríkar fóðurblöndur