Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1965, Blaðsíða 40
40
dag, en leggi hann sér til 2 hesta í 10 tíma á dag, þá fái
hann 5 kr. í kaup. Af félagssjóði greiðist 1 króna fyrir hvern
dag, sem hann vinnur hjá félagsmönnum, hitt borga þeir
honum, sem hann vinnur hjá. Einnig lofar Jón að leggja
sér til lappaherfi, og lofar félagið að borga honum sérstakt
gjald fyrir það, 10 krónur fyrir allan tímann“.
Jón Melstað kom vestur að Sveinsstöðum í maí 1906.
Hafði hann með sér 2 vinnuhesta, plóg og lappaherfi. Eng-
in tök voru á að hefja vinnu þá þegar, enda voraði seint
árið 1906, og mikið var um heyleysi. Meðan Sveinstæðingar
voru ekki tilbúnir að láta vinna hjá sér jarðabótastörf, varð
það að ráði, að Jón fékk vinnu við jarðyrkju hjá Kvenna-
skólanum á Blönduósi, en þannig var mál með vexti, að
þá um vorið voru teknar 7 dagsláttur til ræktunar við skól-
ann, landið girt og nokkuð af því brotið þá þegar. Var í
ráði, að við Kvennaskólann risi „aðalgróðrarstöð í sýsl-
unni“, eftir því sem segir í minningarriti skólans.
Jón Melstað telur, að það hafi verið eitthvað komið fram
í júní, þegar jarðabótavinnan hófst í Sveinsstaðahreppi, og
að hann hafi unnið þar við þau störf í fullan mánuð. Lík-
legt er að Magnús á Sveinsstöðum hafi einnig unnið hjá
búnaðarfélaginu 1906, því að þá fengu þeir Jón Melstað
og hann hagstætt lán hjá félaginu til kaupa á spaðaherfi.
Varð Magnús síðar einn eigandi að herfinu, enda vann hann
að jarðabótastörfum hjá félaginu enn um nokkurra ára bil.
Jón Melstað kemur oftar við búnaðarsögu Sveinsstaða-
hrepps, þó að hann ynni ekki meira hjá búnaðarfélaginu.
Þegar hann sleppti úr hendi sér plógnum kallaði að annað
starf í Sveinsstaðahreppi. Veturinn áður hafði Jón verið í
Danmörku fram eftir vetri og fest þá kaup á sláttuvél fyrir
3 bændur í Sveinsstaðahreppi, þá bræður Níels og Ólaf
Sveinssyni á Þingeyrum og Guðjón Jónsson á Leysingjastöð-
um. Var þetta Deeringvél, upphaflega gerð fyrir einn hest,
en Jón lét breyta ökubúnaðinum svo, að hún varð tveggja
hesta vél. Kom vélin upp til Blönduóss vorið 1906. Var Jón
svo hjá þeim eigöndum vélarinnar og kenndi þeim að nota