Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1969, Síða 107
109
þess að vænta að í sumar komist verulegur skriður á það
mál. Þorvaldsdalur er kjörið rannsóknarsvæði þessarar stöðv-
ar, og mælir það m. a. með verndun hans.
6. Glerárdalur. Hann gengur, sem kunnugt er, upp af
Akureyri, og er svipaður Þorvaldsdal að stærð. Fyrir utan
hentuga legu sína, hefur Glerárdalurinn margt til síns ágæt-
is. Þar eru umhverfis einhver hæstu og hrikalegustu fjöll,
sem finnast á Norðurlandi og stórir skriðjöklar. Bergteg-
undir eru þar óvenju fjölbreytilegar, enda klýfur dalurinn
stærsta líparítsvæði á Norðurlandi, og gengur að líkindum
í gegnum innviði eins mesta eldfjalls, sem verið hefur við
líði á Islandi.
Af nefndum ástæðum virðist verndun hans svo sjálfsögð,
að ekki þurfi þar fremur um að ræða.
Auk þess kemur vel til greina, að útfæra þetta svæði
þannig, að það nái yfir allan fjallgarðinn milli Eyjafjarðar
og Hörgárdals-Öxnadals. Yrði það þá um 300—350 ferkm.
og yrði þá vel þess virði að kallast þjóðvangur.
7. Hraunsvatn og Vatnsdalur, með Drangafjalli. Hér er
um að ræða fremur lítið svæði, 25—30 ferkm. Allir, sem
farið hafa um þjóðveginn milli Eyjafjarðar og Skagafjarð-
ar munu kannast við Hraundrangana, sem Jónas Hallgríms-
son kvað um. Þeir eru eins og voldugt minnismerki um
þennan norðlenzka náttúrufræðing og skáld. Undir Dranga-
fjallinu (Háafjalli) er Hraunsvatn í djúpri kvos og inn af
því dálítill dalur. Er þarna nndrafagurt, svo að fáir eða
engir staðir á Islandi taka því fram. Væri ekki tilvalið að
friða þetta svæði, til minningar um Jónas? Eg held það
yrði tilkomumeira en kjarrlundurinn niðri við samkomu-
húsið á Þverá.
8. Skagafjarðareyjar. Með Skagafjarðareyjum á ég við
Drangey, Málmey og Þórðarhöfða, sem hefur áður fyrr ver-
ið eyja, og er það að vissu leyti enn. Sjálfar eyjarnar eru
samtals lítið meira en 5 ferkm, en sé sjávarsvæðið milli
þeirra tekið með, verður það alls um 50—70 ferkm. Það er
löngu kunnugt, að eyjar þessar eru yngri jarðmyndun en
sjálfur Skagafjörður, enda sést það strax á útliti þeirra, að